Morgunblaðið - 22.10.1995, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ágæti hf.
með hagn-
að tvö ár
af þremur
MATTHÍAS H. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ágætis, segir rangar
þær staðhæfingar Gunnars Gíslason-
ar, framkvæmdastjóra Mata, í Morg-
unblaðinu í gær að Ágæti hafí verið
rekið með tapi undanfarin ár. Hið
rétta sé að á þremur síðustu árum
hafí fyrirtækið skilað hagnaði tvö
ár af -þremur.
Hann mótmælir því einnig að
eignastaða fyrirtækisins sé ofmetin
í reikningum, eins og Gunnar heldur
fram. Til sanns vegar megi færa að
fasteign fyrirtækisins sé ofmetin, en
á móti komi að ýmsar aðrar eignir
séu vanmetnar. Þess vegna sé geng-
ið 1,5, sem Mata bauð ýmsum hlut-
höfum Ágætis að kaupa á, mjög
nærri því að vera raunvirði, en að
innra virði fyrirtækisins væri aðeins
0,66 væri fjarri lagi.
Matthías telur að rekja megi átök-
in milli fyrirtækjanna á markaðnurn
lengra aftur heldur en Gunnar geri.
Ágæti hafí verið byrjað að seilast inn
á ávaxtamarkaðinn, þar sem Mata
er fyrirferðamikið, og vafalaust
höggvið eitthvað í markaðshlutdeild
Mata úr því að það freistaði þess að
ná yfirtökunum í Ágæti. Síðan hafi
Mata svarað fyrir sig með því að
freista þess að ná ítökum á kartöflu-
rnarkaðinum sem verið hefur helsta
vígi Ágætis. „Þetta eru þess vegna
bara venjulegar samkeppnisýfíngar,"
segir Matthías H. Guðmundsson.
-----♦ ♦ »
Staurinn
brotnaði
við höggið
LJÓSASTAUR brotnaði og bíll stór-
skemmdist þegar honum var ekið á
staurinn við Klettaborgarveg á Ak-
ureyri á föstudagskvöld. Engan sak-
aði í óhappinu.
Að sögn lögreglunnar var hálku-
laust þegar óhappið varð og virðist
sem ökumaðurinn hafi misst stjórn
á bílnum með þessum afleiðingum.
Bíllinn skemmdist svo mikið að fjar-
lægja varð hann af vettvangi með
aðstoð kranabíls.
SAMÞYKKT hefur verið í skipu-
lagsnefnd Reykjavíkurborgar og
borgarráði að fella niður kvöð á
lóð Ríkisútvarpsins Efstaleiti 1
um almenna gönguumferð á
hitaveitulögn, sem um lóðina
liggur.
Þorvaldur S. Þorvaldsson,
forstöðumaður Borgarskipu-
Iags, segir að í framhaldi af
áformum um að reisa heilsu-
gæslustöð á lóðinni komi nýir
stígar þvert yfír lóðina. „Stóra
hitaveitulögnin sem liggur alveg
frá hitaveitunni að Reykjum í
Mosfellsbæ liggur þvert yfir lóð-
ina og fyrir löngu var sett kvöð
um að almenningur mætti
ganga þvert yfir hana eftir hita-
veitulögninni. En þegar þarna
kemur stígur, þurfum við ekki
þessa kvöð lengur,“ segir hann.
Frjálst að breyta
Með afnámi kvaðarinnar get-
ur Útvarpið breytt stokknum að
vild, sett þar bílastæði eða stað-
ið fyrir öðrum framkvæmdum.
„Ríkisútvarpinu er frjálst héðan
í frá að fjalla um lóðina án þess-
arar kvaðar, fari það einhvern
tímann út í frekari framkvæmd-
ir á henni, af því að stígurinn
kemur þama, enda engin
ástæða til að hafa ónauðsynlega
kvöð á lóðinni," segir hann.
Lúkashenko
lenti á leið
til New York
ALJAKSANDR Lúkashenko, for-
seti Hvíta-Rússlands, millilenti
hér á landi skömmu eftir hádegi
í gær, á leið sinni til New York
þar sem hann sækir hátíð Sam-
einuðu þjóðanna í tilefni 50 ára
afmælis samtakanna.
Hörður H. Bjarnason, sendi-
herra og siðameistari utanrikis-
ráðuneytisins, tók á móti forset-
anum fyrir hönd íslenskra stjórn-
valda, ásamt rússneska sendi-
herranum, Júrí Resetov. Hörður
sagði að forsetinn myndi ekki
ræða við íslenska ráðamenn.
Eduard Sjevardnadsje, forseti
Georgíu, hafði boðað millilend-
ingu hér kl. 12 á hádegi í gær,
en eftir hádegi kom í ljós að
hann kæmi ekki. Samkvæmt
fréttastofunni Reuter hætti hann
við vesturför vegna ástandsins
heima fyrir, þar sem uppreisnar-
öfl Iáta á sér kræla, auk þess sem
forseta- og þingkosningar í Ge-
orgíu eru innan skamms, eða
hinn 5. nóvember.
Björgun f rá grimmum
örlögum
►Fyrirbyggjandi aðgerðir í lækn-
isfræði geta skilað þýðingarmikl-
um árangri, svo sem niðurstaða
kembileitar, sem s.l. 15 ár var
gerð á íslenskum nýburum til þess
að finnasem allra fyrst þau böm
sem líða meðfæddan skort á
skjaldkirtilshormóni, gefur til
kynna. /10
Ofurkanslarinn Kohl
►Helmut Kohl hefur aldrei verið
traustari í sessi og virðist hyggja
á valdasetu fram á næstu öld.
Andstæðingar Kohls em sundraðir
og þýskir fjölmiðlar finna vart
höggstað á kanslaranum./12
Umdeild en ómissandi
►Stofnsáttmáli Sameinuðu þjóð-
annatók gildi 24. október 1945.
Haustið eftir tóku þær til starfa í
heimssýningarbyggingu frá 1939
í Flushing Meadows við NY. Elín
Pálmadóttir starfaði þar 1949 og
segir frá samtökunum og fyrstu
áram þeirra. /18
Frá Q8 á klakann
►í Viðskiptum og atvinnulífí á
sunnudegi er rætt við Margréti
Guðmundsdóttur sem ráðinn hefur
verið framkvæmdastjóri hjá Skelj-
ungi eftir að hafa starfað um ára-
bil fyrir Q8 í Danmörku. /20
B .
► l-28
Gengiðá
Cho Oyu
►Þrír íslenskir hjálparsveitár-
menn og fjallagarpar með méira
komust nýverið allir á topp Cho
Oyu, sem er sjötta hæsta fjall ver-
aldar. /1&14-15
Frægðin er yf irborðs-
kennd
►Norski tónlistarmaðurinn Mort-
en Harkett, sem varð heimsfrægur
með hljómsveitinni A-Ha, er nú
einn á ferð. /2
Eins og villidýrið komi
fram
►Hlutskipti það sem Borgnesing-
urinn Þorvaldur Friðriksson ætlaði
sér með inngöngu í Bandaríkjaher
árið 1950 og það hlutskipti sem
forlögin höfðu í raun braggað hon-
um gætu ekki verið ólíkari. /4
Teoría kvennafarsins
►Pétur Pétursson grefur hér upp
úr fórum sínum frásögn Ólafs F.
Ólafssonar, vélstjóra. /10
C BÍLAR___________________
► 1-4
l\lý kynslóð BMW 5
►Fjórða kynslóð 5-línunnar frá
BMW er komin markað, betur
búin og laglegri en nokkru sinni
áður. /1
4-línan frá Scania
►Scania í Svíþjóð kynnti í vikunni
nýja kynslóð vörubíla ./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Fólk í fréttum 38
Leiðari 24 Bíó/dans 40
Helgispjall 24 íþróttir 44
Reykjavíkurbréf 24 Útvarp/sjónvarp 46
Minningar 26 Dagbók/veður 47
Myndasögur 34 Gárur 6b
Bréf til blaðsins 34 Mannlífsstr. 6b
Brids 36 Kvikmyndir 8b
Stjörnuspá 36 Dægurtónlist 9b
Skák 36
INNLENDAR FF ÆTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1 6
Verkfræðideild Háskóla Islands hefur einfaldan tækjabúnað
Fjarskortur hamlar
flóknari rannsóknum
VEGNA fjárskorts er kennsla í verkfræðideild
Háskóla Islands bundin einföldum tækjum og
tölvum, sem hamla í raun flóknari og viðameiri
rannsóknum eða kennsluaðferðum, að sögn
Bjöms Kristinssonar, forseta deildarinnar. „Við
verðum að halda okkur við einfaldleikann og
þegar um flóknari atriði er að' ræða verður að
senda fólk utan,“ segir Bjöm.
Ekki sé hægt fyrir vikið að bjóða upp á sérhæf-
ingu hérlendis, heldur aðeins almennt nám á
breiðum grundvelli. Björn segir þróunina hafa
verið mesta á sviði tölvubúnaðar sem deildin
hafi reynt að fylgja eftir megni, en tækjaþörf
við verkfræðikennslu sé margbrotnari en svo að
núverandi tækjakostur fullnægi henni.
Þröngur stakkur sniðinn
„Vegna þessa og lítils rekstrarfjár HÍ, verður
allt kennslulið í þokkabót að sætta sig við kjör
sem þekkjast ekki annars staðar í heiminum.
Okkur er þröngur stakkur sniðinn,“ segir Björn.
Hann segir „þokkalega" mikið til af gmnn-
tækjum til kennslu, svo sem mælitæki, tæki
fyrir sérstakar æfingar og tölvur. „Allt em þetta
frekar einföld tæki og ódýr, en þessi tækjakost-
ur hefur verið byggður upp á mörgum árum og
endumýjaður öðru hveiju með fjármunum úr
tækjakaupasjóði HÍ og almennu rekstrarfé deild-
ar og skora. Hérna koma varla til greina dýrari
tæki en sem samsvara t.d. verði ódýrrar bifreið-
ar. Öll stærri og flóknari tæki til kennslu og
rannsókna em varla til.
Þó get ég nefnt dæmi um styrk sem við feng-
um frá einkasjóði, sem er nú um 10 milljónir
króna, sem átti að renna til kaupa á rannsóknar-
tæki sem má nýta til þess að gera bæi og borg
byggilegri méð því að rannsaka hegðun vinda
við hús og önnur mannvirki. Vegna þess að
ekki hefur tekist að afla fjár til að annast rekst-
ur á þessu tæki, er ekki hægt að setja það upp,
þannig að við höldum áfram að búa við óþarf-
lega neikvæð veðurskilyrði."
Bjöm segir að menntamálaráðherra hafi skip-
að nefnd til að fara yfir kennslumál verkfræði-
deildar og er þar m.a. verið að ræða um aukna
samvinnu um alla tæknikennslu, sem tengist
meðal annars Tækniskóla íslands. „Hugsanlega
em því á döfinni einhverjar breytingar, vonandi
til batnaðar, en það er eitt ár þangað til þessi
nefnd skilar niðurstöðum," segir Björn.
í hálfgerðu svelti
Skúli Guðmundsson, nemandi í byggingaverk-
fræðiskor, á sæti í tölvunefnd hennar. Hann
kveðst telja að deildin sé í hálfgerðu tækja-
svelti. Sérstaklega þurfi að fjölga tölvum. Þær
þurfi að vera fleiri og nýrri. „Þegar koma verk-
efnatarnir eru ekki nægjanlega margar tölvur
fyrir alla, þannig að menn verða að leita annað
til að fá úrlausn sinna mála. Sumar tölvurnar
eru einnig of hægar í vinnslu sökum aldurs, en
aðrar nægja okkur ennþá, sem betur fer,“ segir
Skúli.
„ÞARNA ER ANNAR STÆRRI!“
Morgunblaðið/Sverrir
Lóð Ríkisútvarpsins við Efstaleiti
Kvöð um umferð
á hitaveitulögn
á lóð felld niður