Morgunblaðið - 22.10.1995, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 22. OKTOBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
eftir Híldi Friðriksdóttur
MARGRÉTI Guðmunds-
dóttur finnst gott að
vera komin heim eftir
16 ára fjarveru frá ís-
landi. Síðasti starfsdagur hennar
í Danmörku var 31. ágúst en hún
var ráðin til Skeljungs 1. septem-
ber. Hún kveðst hafa kosið að
losna fyrr til að fá tíma til að
koma sér almennilega fyrir hér á
landi áður en hún hæfi störf. Hún
hafi hins vegar verið beðin um að
taka þátt í endaspretti á ákveðnu
verkefni áður en hún hætti hjá
Q8 og það tók þennan tíma.
Hún kveðst hafa átt mjög góð
ár í Hanmörku og verið heppin
miðað við margt annað ungt fólk
því hún hafi fengið að vinna í
tveimur frábærum fyrirtækjum.
„Af einhveijum ástæðum hef ég
verið í olíugeiranum síðan 1982.
Hjá Q8 var ég framkvæmdastjóri
í öllum deildum nema á bensín-
sviði, en það fæ ég að prófa nú
hjá Skeljungi. í Danmörku var ég
síðast yfír söludeild olíu til iðnaðar
og fleira, þar sem viðskiptavinir
voru rúmlega 100 þúsund.“
Hún segir meiri aga vera í al-
þjóðlegum fyrirtækjum eins og
Esso og Q8 en í íslenskum fyrir-
tækjum. Það komi ekki síst til af
því að þau vinni náið með við-
skiptaháskólum og hafi því tileink-
að sér öguð vinnubrögð í áætlana-
gerð, stefnumótun og upplýsinga-
streymi. „Allur rekstur einkennist
af því að maður hefur tileinkað
sér ákveðnar kenningar," segir
hún.
í bensíngallann
Aðspurð um hvort hún hafi flutt
með sér nýja strauma og stefnur
segist hún hafa verið í starfi það
stuttan tíma að nær væri að spyrja
aðra. Hún bendir þó á að hún
ætlist til að þeir sem gegni stjórn-
unarstörfum í deildinni þekki öll
störf af eigin raun. Því hafi hún
sett það sem skilyrði að þau ynnu
á bensínstöðvum í tvo daga. „Þetta
er háifgert kvenfélag hér hjá mér,“
segir hún svo. „Við erum þijár
konur og einn karl á skrifstofunni
og þar af erum við tvær sem höf-
um nýhafið störf hér.“
Sjálf tók hún að sér heilar d«g-
vaktir á bensínstöðvum við Suður-
fell og Laugaveg 180 og segir það
hafa verið iærdómsríkt. „Ekki þar
fyrir að ég hef sextán ára reynslu
af því að fylla á bíla en mér kom
á óvart hversu föst bensínlokin
geta verið. Ég var einnig í af-
greiðslu og upplifði það að þurfa
að vera snögg að afgreiða 5-8 bíla
í einu og hafa á hreinu, hvort
„Toyotan þarna“ væri örugglega
ekki „Pajeroinn" við hliðina," seg-
ir hún kankvís á svip.
Hún segir vinnuna hafa verið
ágætis lífsreynslu sem geri það
að verkum að skilningurinn aukist
á því hvers sé hægt að vænta af
starfsfólkinu. „Ég vil gjaman sjá
að við sem vinnum á skrifstofunni
og þeir sem vinna á bensínstöðv-
unum náum árangri sem heild en
ekki að persónan ein og sér standi
upp úr,“ segir Margrét, sem lét
það verða eitt af sínum fyrstu
verkum að fara á Vestfirði og
heimsækja alla þá staði þar sem
bensín er selt. Framundan eru
heimsóknir í fleiri landshluta.
Verðstríð olli tapi
Hún telur á heildina litið að olíu-
markaðurinn í Danmörku og á
Islandi séu að mörgu leyti svipað-
ir. „Ef við lítum á bensínmarkað-
inn, sem ég er að vinna við hér,
þá gengu Danir fyrir 12-13 árum
í gegnum þær breytingar sem eru
að gerast hér núna. Það er að
segja markaðurinn breyttst frá því
að vera eingöngu sjálfsafgreiðslu-
markaður í að ómannaðar bensín-
stöðvar skutu upp kollinum. Síðar
Morgunblaðið/Júlíus
FRÁ Q8Á
KLAKANN
varð þróunin sú að hefðbundnar
bensínstöðvar fengu að auki hlut-
verk kaupmannsins á horninu og
hefur orðið gífurleg þróun í þeim
málum.“
Þegar ómönnuðu stöðvarnar
fóru að spretta upp hjá nýju fyrir-
tæki, Jet, hófst nokkurra ára verð-
stríð þar sem gömlu olíufyrirtækin
álitu að þau gætu hrakið keppi-
nautana út af markaðnum. „Hjá
Q8 eins og fleirum varð mikið tap
á þessum árum,“ segir Margrét
og kveðst vona að forráðamenn
olíufyrirtækjanna geri sér grein
fyrir að ákveðin þáttaskil verði í
bensínsölu á íslandi með tilkomu
Orkunnar. „Þar verður engin þjón-
usta utan þess að viðskiptavinur-
inn getur með sjálfsafgreiðslu
fengið bensín allan sólarhringinn
með hvaða korti sem er eða með
peningaseðlum.“
Þúsundkall út um gluggann
Hún segir að núverandi olíufyr-
irtæki verði að keppa á grundvelli
þjónustunnar, annaðhvort með
vöruúrvali á bensínstöðvum eða
þjónustu úti við bílana. „Mér finnst
mjög sérstakt að sjá hvemig ís-
lendingar kaupa bensín. Það mætti
halda að það sé þjóðarsport,“ seg-
ir hún og brosir út í annað.
„Þeir eru ótrúlega margir sem
kaupa bensín fyrir 500-1.000
krónur og jafnvel allt niður í 200
krónur. Erlendis tíðkast að fylla
tankinn þannig að menn komi við
einu sinni í viku. Lúxusinn hér er
að skrúfa rúðuna niður um 2 cm
í versta gaddinum, rétta þúsund
VEDSKIPn/jaVlNNUUF
Á SUNNUDEGI
►Margrét Guðmundsdóttir fæddist 16. janúar 1954 í Reykja-
vík. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla íslands 1974,
viðskiptafræðiprófi frá HÍ1978 og cand.merc.-prófi frá
Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn 1981. Á árunum
1978-79 starfaði hún sem aðstoðarframkvæmdastjóri Aiesec
í Brussel. Hún starfaði sem skrifstofustjóri hjá Esso í Dan-
mörku 1982-86, en þá tók hún við stöðu framkvæmdastjóra
hjá olíufélaginu Q8 í Danmörku. Hún var framkvæmdastjóri
í mismunandi deildum til ársins 1995, auk þess sem hún sat
í stjórn fyrirtækisins. 1. september síðastliðinn var hún ráð-
in forstöðumaður markaðssviðs Shellstöðvanna hér á landi.
MARGRÉT Guðmundsdóttir hefur hug á að breyta „smurolíuí-
mynd“ bensínstöðvanna í þjónustufyrirtæki fyrir neytendur.
krónur út um gluggann og láta
starfsmanninn sjá um að berjast
við að skrúfa lokið af, setja frost-
lög á, rúðuvökva og allt sem til
þarf. Þetta er gífurleg þjónusta
og því eðlilegt að verðið á bensíni
sé hærra á slíkum stöðvum.“
Þijár Orkan-bensínstöðvar, þar
af tvær á Reykjavíkursvæðinu og
ein á Akureyri, verða opnaðar á
næstunni. Ekki segist Margrét vita
til þess að verðið á bensínlítranum
hafí verið ákveðið enn. Hún segir
algengan mismun í Danmörku
milli slíkra stöðva og hefðbundinna
vera 2-2,50 íslenskar krónur.
Skynsamir menn
I Morgunblaðinu nýlega töldu
keppinautar ykkar hjá Olís margt
benda til þess að það hafí verið
mistök hjá Skeljungi að vera í
samstarfi um að opna Orkan-bens-
ínstöð hjá stórmörkuðum. Ástæð-
an er sú að Shell-bensínstöð er
yfírleitt þar í nágrenninu. Hveiju
viltu svara þessari gagnrýni?
„Þessi ákvörðun var tekin áður
en ákveðið var að ég hæfi störf
hjá Skeljungi. Þá hafði ég á orði
að Skeljungsmenn væru skynsam-
ir. Ég er enn á þeirri skoðun vegna
þess að Orkan hefði komið án til-
lits til þess hvort Skeljungur væri
í samstarfinu eða ekki.
í Bretlandi gafst olíufyrirtækj-
um kostur á því að hefja samstarf
við stórmarkaði þegar þeir fóru
þessa leið sem Hagkaup og Bónus
fara hér. Forsvarsmenn þeirra
hristu höfuðið og gáfu lítið fyrir
að stórmarkaðir ætluðu að hefja
rekstur á olíufyrirtæki. Ég held
að margir þeirra fari hjá sér núna
þegar þeir sjá hversu stórri mark-
aðshlutdeild þessi fyrirtæki hafa
náð og hversu vel þau eru rekin.
Ákveðnar vísbendingar eru um að
það geti verið auðveldara að fara
úr smásöluverslun, ef maður er
góður á því sviði, í að reka bensín-
sölu en að fara úr bensínsölu yfir
í smásöluverslun, sem við öll hin
erum að beijast við.“
Skeljungur rekur um sjötíu
bensínstöðvar um landið og einna
hagkvæmastar eru stöðvarnar við
Suðurfell, Bústaðaveg og Lauga-
veg. Segir Margrét að þar skipti
bæði staðsetning máli, svo og sér-
staða hverrar stöðvar fyrir sig.
Varðandi sameiginlegan rekst-
ur olíufélaganna á afskekktum
stöðum segir hún slíkt ekki hafa
komið til frekari umræðu nýlega,
enda séu Olís- og Esso-menn
væntanlega uppteknir af nýja
sameiginlega fyrirtækinu Olíu-
dreifingu. „Það yrði mjög gott ef
hægt yrði að koma slíku við á fleiri
stöðum eða að ákveðin félög dragi
sig út úr rekstrinu eins og við
gerðum í Neskaupstað fyrr á ár-
inu. Þá tók Olís yfir þá stöð sem
við höfðum rekið.“
Hagkvæmni í dreifingu
Þegar talið berst að þeim mikla
sparnaði sem Olís og Esso telja
sig ná með stofnun Olíudreifingar
segir Margrét það gefið mál að
hægt sé að ná ákveðinni hag-
kvæmni í dreifmgu. Það sé sá
kostnaður sem olíufyrirtækin ein-
blíni hvað mest á.
„Ég þekki þetta að utan, þar
sem Texaco var í samstarfi við
Q8 um birgðahald og dreifingu.
Þegar ég hætti hjá fyrirtækinu í
sumar vorum við að leggja síðustu
hönd á að leysa upp það sam-
starf. Það reyndist vel í upphafí
þegar bæði lyrirtækin voru jafn
stór. Þegar Q8 var orðið mun
stærra var það okkar mat að við
gætum aukið hagkvæmnina sjálf
og gert samning um að fá olíu úr
birgðastöðvum hinna olíufyrir-
tækjanna.
Það er ekki þar með sagt að
Olís og Esso komi ekki vel út úr
samvinnunni og auðvitað verðum
við að líta gagnrýnum augum á
I
I
>
>
>
>
>
>
>