Morgunblaðið - 22.10.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995 21
Skeljungur h.f.
nýtt skipurit
( Forstjóri
Kynningarmál
Innra eftirlit
Umhverfi
Markaðssvið:
Shell stöðvar
1 . J ,
Innkaup áhættustýring Þróunarsvið X Fjármálasvið
Starfsmanna-
hald
Markaðssvið:
Bein viðskipti
Eigna umsýsla
Rekstrarsvið
Upplýsinga-
tæknisvið
hvernig kostnaðurinn er við okkar
dreifingu.“
Aðspurð um hvaða tromp Skelj-
ungur hafi á hendi gagnvart nú-
verandi samkeppnisaðilum og
hugsanlega Irving Oil telur hún
það vera hversu góðar Shell-bens-
ínstöðvarnar séu. Þær séu hreinar,
snyrtilegar og bjóði upp á góðar
vörur og þjónustu. „Þar ætlum við
að vinna slaginn," segir hún. „Við
ætlum að vera nálægt viðskipta-
vinum okkar, skilja þarfir þeirra
og mæta þeim.“
Hún segir óljóst hvort Irving-
feðgarnir setji upp stöð hér þó svo
að þeir hafí fengið vilyrði fyrir
lóðum. Hún kveðst hafa orðið hissa
þegar hún heyrði fréttirnar úti í
Danmörku vegna þess kostnaðar
sem felist í því að byggja bensín-
stöð. „Það þarf svo mikið til að
slíkt geti gengið upp þegar mark-
aðurinn er þetta langt í burtu. Ég
held hins vegar að við getum
horfst í augu við það að samkeppn-
in hér fari aðeins á einn veg; hún
harðnar. Ég tel að kröfur um hag-
kvæmni í rekstri hafi aldrei verið
meiri en nú.“
„Ég held hins veg-
ar að við getum
horfst í augu við
það að sam-
keppnin hér fari
aðeins á einn veg;
hún harðnar.
Kröfur um hag-
kvæmni í rekstri
hafi aldrei verið
meiri en nú.“
Ellefu forstöðumenn
Nýtt skipurit er að taka gildi
hjá Skeljungi og segist Margrét
vonast til að það verði tilbúið inn-
an mánaðar. „Ég hlakka mikið til
vegna þess að þetta er raunar
sama skipulag og ég er að koma
úr. Því styð ég mjög þær breyting-
ar sem verið er að vinna að.“
Breytingarnar felast meðal ann-
ars í því að „fletja stjórnskipulagið
út“ eins og Margrét orðar það. í
stað forstjóra og þriggja fram-
kvæmdastjóra áður verður nú for-
stjóri og ellefu forstöðumenn mis-
munandi sviða, þar af eru þrír
nýir starfsmenn. Hafa tveir þeirra
þegar hafið störf. Markaðsdeild
hefur verið skipt upp í þrjú svið,
tölvudeildin verður sjálfstætt svið
en ekki hluti af íjármálasviði og
eignaumsýsla verður sjálfstæð
deild. „Þar af leiðandi miðast allar
rekstraráætlanir við hveija deild
fyrir sig og kostnaðarliðir verða
augljósari. Þetta þýðir að afkoma
einstakra stöðva verður mun skýr-
ari og ákvarðanir verða auðveld-
ari.“
Margrét er önnur af þeim kon-
um sem verða í hópi forstöðu-
manna en hin er Rebekka Ingvars-
dóttir starfsmannastjóri. „Fjöldi
kvenfólks hefur aukist innan fyrir-
tækisins að undanförnu, þannig
að kannski tekst að breyta „smur-
olíuímynd“ bensínstöðvanna yfír í
að verða þjónustufyrirtæki fyrir
neytendur,“ segir hún í lok spjalls-
ins.
Nýtt - Nýtt - Nýtt - Nýtt
Verð aðeins
kr. 1.250
Sundvesti sem auðvelda
börnum að læra
að synda.
Stærð A = 10-15 kg., 2-31/2 árs.
Stærð B = 15-25 kg. 31/2-6 ára.
Stærð C = 25-30 kg. 6-8 ára.
pið hús hjá
Félagsmálastofnun
Verið velkomin!
Reykjavíkurborgar
Sunnudaginn 22. október, frá kl. 13 til 17, verður opið hús hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Tilgangurinn er að gefa Reykvíkingum tækifæri til að kynna sér þá þjónustu og úrræði sem Félagsmálastofnun býður
borgarbúum. Opið hús verður á eftirtöldum stöðum og mun starfsfólk veita allar nánari upplýsingar:
Síðumúii 39: Aðalskrifstofur, öldrunarþjónustudeild, fjölskyldudeild, húsnæðisdeild, hverfaskrifstofa II.
Skógarhlíð 6: Hverfaskrifstofa I og Unglingadeild.
Álfabakki 12: Hverfaskrifstofa III og félagsleg heimaþjónusta fyrir 66 ára og yngri.
Tryggvagata 12: Útideild.
Félags- og þjónustumiðstöðvar aldraðra: Aflagranda 40, Vesturgötu 7, Lindargötu 59 (Vitatorg), Bólstaðarhlíð 43,
Hvassaleiti 58, Norðurbrún 1 og Hjallaseli 55 (Seljahlíð).
Anni G. Haugen, yfirmaður fjölskyldudeildar, flytur fyrirlestur um
barnaverndarmál kl. 14 að Síðumúla 39.
Opinn fundur Félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar
verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur,
mánudaginn 23. október kl. 16:30.
Kynnið ykkur starfsemi Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar!
Félagsmálastofnun
Rey kj avíkurborgar