Morgunblaðið - 22.10.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995 13
eru tveir menn, sem eitt sinn voru
nefndir krónprinsar Kohls: Woif-
gang Schauble, leiðtogi flokksins á
þingi, og Volker Riihe varnarmála-
ráðherra.
Ef einhvern Akkillesarhæl er að
finna á kristilegum demókrötum er
hann sá að löng valdaseta Kohls
hefur gert honum kleift að móta
flokkinn í sinni mynd. Ein ástæðan
fyrir því að Kohl mun væntanlega
bjóða sig fram á ný er sú að hann
óttast leiðtogadeilur á borð við
þær, sem nú eru að ríða jafnaðar-
mönnum á slig. Kohl og Scháuble
eru sagðir hafa sæst á það í sumar
að veldissprotinn verði látinn ganga
án flokksdeilna. Með framboði
Kohls yrði slíkum deilum slegið á
frest. Án hans væru kristilegir
demókratar ekki jafn kokhraustir
og þeir voru á flokksþinginu í Karls-
ruhe.
Reuter, Frankfurter Allgemeine Zeitung,
Der Spiegel og Time Magazine.
hms vegar reynst orðin tóm og
honum er einkum legið á hálsi fyr-
ir það að stjórnarandstaða skuli
vart merkjanleg.
Kristilegu flokkarnir hafa stjórn-
að Þýskalandi ásamt fijálsum dem-
ókrötum (FDP). Fylgi FDP hefur
hins vegar farið þverrandi og flokk-
urinn virðist ekki eiga sér uppreisn-
ar von eftir að Hans Dietrich-
Genscher, fyrrum utanríkisráð-
herra, fór frá. Flokkurinn hefur átt
í basli með að ná fimm prósentu-
stiga þröskuldinum, sem er skilyrði
fyrir því að flokkur komist á þing
í Þýskalandi, og talið er að hann
gæti jafnvel þurrkast út í næstu
kosningum.
Þótt skoðanakannanir sýni að
kristilegir gætu jafnvel náð meiri-
hluta í næstu kosningum verða þeir
þó að gera ráð fyrir að þurfa að
finna samstarfsaðilja. Samstarf við
SPD hefur borið á góma, en sam-
steypustjóm með Græningjum ber
nú hæst í umræðunni.
Hingað til hefur yfirleitt verið
litið svo á að Græningjar myndu
helst eiga samleið með jafnaðar-
mönnum. Fylgishrun SPD hefur
hins vegar haft í för með sér að
græningjar leggja nú vara við því
að binda sig við sökkvandi skip.
Græningjar hafa löngum skipst
í raunsæismenn (Realos) og bók-
stafstrúarmenn (Fundis). Bókstafs-
trúarmennirnir hafa hvergi viljað
miðla málum, en raunsæismennirn-
ir hafa litið svo á að til þess baráttu-
mál flokksins verði ekki knúin fram
án valda og til þess að komast í
valdastól verði að slá af þegar það
á við.
Samhliða þessari þróun hafa
Græningjar smátt og smátt verið
að vinna sér sess á þingi. Þegar
flokkurinn fýrst komst á þing voru
þingmenn hans sniðgengnir í flest-
um málum og lítið mark á þeim
tekið. Nú er öldin önnur og Græn-
ingjar eiga nú menn í ýmsum
áhrifastöðum á þingi.
Leiðtogi raunsæismannanna er
Joschka Fischer, sem þykir þeirra
skeleggasti og mælskasti stjórn-
málamaður. Fischer hefur tekið af
skarið um ýmis mál, sem eitt sinn
hefðu ekki komist á dagskrá hjá
flokknum, og lætur ekkert tækifæri
ónotað til að sýna að hann hefur
munninn fyrir neðan nefið. Ástæða
þess að Fischer hefur tekist að
sveigja flokkinn er hins vegar sú
að flokksmenn gera sér grein fyrir
því að án hans komast þeir ekki
langt. Hann er einn ötulasti mál-
svari þess að Þjóðverjar axli hernað-
arlegar skuldbindingar í Bosníu og
með yfirlýsingum sínum í þá veru
tókst honum að hrifsa frumkvæðið
af jafnaðarmönnum, sem hafa verið
mjög hikandi í þessu máli.
Einnig hefur mörgum komið á
óvart hversu vel Fischer kemur
saman við Kohl og hefur samband
þeirra gefið vangaveltum um sam-
starf græningja byr undir báða
vængi.
Það er til marks um velgengni
Græningja að Kohl reynir nú að
yfirtaka baráttumál þeirra. Kohl
hefur lýst yfir því að hann hyggist
nú sérstaklega láta til sín taka í
umhverfismálum og líta flestir á
það sem tilraun til að lokka til sín
fylgi Græningja.
Eins og sakir standa gnæfir
BÆTT ÞJÓNUSTA OG BREYTINGAR Á LEIÐAKERFI SVR
BORGIN VEX
OG STRÆTÓ
SVR kynnir breytingar á leiðakerfi,
sem taka gildi n.k. mánudag, 23. október
Breytingar í Árbæ
Leið 110 mun tímabundið aka um Borgarmýrina. Á morgnana mun leið 110 fara
Dragháls inn í hverfið, ekki Rofabæ og fara síðdegis Dragháls út úr hverfinu,
ekki Rofabæ.
Leið 2 fyrr á ferðinni
Brottfarartíma verður flýtt um kvöld og helgar til að auðvelda farþegum að skipta
úr leið 2.
alveg ómissandi
Hafðu samband í þjónustusíma SVR: 551 2700 og fáðu nánari upplýsingar um leiðir sem henta þér og þínum.
Ýtarlegar upplýsingar um þjónustu SVR er að finna í leiðabók.
WOLFGANG Schauble, formaður þing-
flokks CDU, blæs reyk á leiðtoga sinn á
flokksþinginu í Karlsruhe.
eitt sinn réði ríkjum í Slésvík og
Holtsetalandi, sem þríeykið, er
skyldi leiðajafnaðarmenn. Hneyksl-
ismál ýttu Engholm til hliðar og
Lafontaine fékk sitt tækifæri. Nú
standa átökin um forystu jafnaðar-
manna milli Scharpings og Ger-
hards Schröders. Það vekur hins
vegar athygli að Lafontaine hefur
nú blandað sér í þennan slag og
þykir jafnvel veikleikamerki og bera
því vitni að flokkurinn geti ekki
endumýjað sig.
Meðan á þingi kristilegra demó-
krata stóð gekk Lafontaine fram
fyrir skjöldu og krafðist þess að
verkaskipting flokksforystunnar
yrði endurskoðuð. Hann sagði
blaðamönnum í Bonn að hann vildi
að Schröder gegndi ábyrgðarmeira
hlutverki.
Scharping hefur margoft lýst
yfir því að nú myndu jafnaðarmenp
snúa bökum saman í andstöðunni
gegn Kohl. Þessar yfirlýsingar hafa
Helmut Kohl yfir aðra stjórnmála-
menn í Þýskalandi, jafnt í bókstaf-
legri, sem yfirfærðri merkingu. En
Kohl hefur ekki aðeins tekist að
kveða niður andstæðinga. Hann
nýtur ekki heldur samkeppni í eigin
röðum og segja má að við flokknum
blasi forystuvandi þegar Kohl fer
frá.
Kohl vill hafa jábræður í kringum
sig. Hans nánustu samstarfsmenn
era Friedrich Bohl,. stjórnandi
kanslaraembættisins, Juliane We-
ber skrifstofustjóri og Andreas
Fritzenkötter, sem sér um fjölmiðla
fýrir Kohl. Hans keppinautar eru
fáir og enginn mælir honum mót.
Heiner GeiSler var eitt sinn hans
helsti andstæðingur á fijálslynda
væng flokksins og haft var eftir
honum að Kohl „gæti þetta ekki“.
Nú segir GeiSler Kohl í sérflokki
og hugsar sig lengi um þegar hann
er beðinn um að fínna honum eitt-
hvað til foráttu. Helst sé framgöngu
Kohls í þágu mannréttinda í Kína
ábótavant.
Ef Kohl verður við völd til ársins
2002 geta ýmsir gefið vonir um að
taka við af honum upp á bátinn.
Skyndilega beinist
sviðsljósið að
flokksmönnum um
fertugt og á þinginu
var Jurgen
Ruttgers, sem er 43
og hefur mennta-
mál og vísindi með
höndum, mikið
hampað. Hann hef-
ur verið nefndur
„ráðherra framtíð-
arinnar" og á þing-
inu sá hann sér-
staklega um heils
dags umræður um
framtíðina.
Týnda kynslóðin
Eftir sitja hins
vegar kristilegir demókratar milli
fímmtugs og sextugs, sem nú sjá
fram á að ná aldrei á tindinn. Þess-
ir menn ganga nú undir nafninu
„týnda kynslóðin" og meðal þeirra