Morgunblaðið - 22.10.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
Karldýrin til mikils ama
London. The Daily Telegraph.
KYNFERÐISLEG áreitni af hálfu
karldýra virðist vera algeng í nátt-
úrunni og þekkist jafnt meðal apa
og skordýra, að sögn breskra vís:
indamanna við Oxford-háskóla. I
grein í tímaritinu Animal Behaviour
segja líffræðingarnir að þeir ræði
einvörðungu um áreitni meðal dýra
ef ljóst megi telja að kvendýrið bíði
tjón af atferlinu.
Hjá býflugnategund einni getur
kvenflugan í sumum tilvikum gert
ráð fyrir harkalegri áreitni á
þriggja sekúndna fresti og þetta
veldur því að hún er tvisvar sinnum
lengri tíma en ella að safna fæðu
handa afkvæmum sínum.
Sjimpansar beita kvendýrin
miklu harðræði þegar þeir elta þau
uppi, þeir bíta, klóra og beija. Otr-
ar bíta kvendýrið í trýnið og draga
það niður í vatnið, stundum
drukknar fórnarlambið í látunum.
Ungir órangutang-apar nauðga öli-
um kvendýrum sem þeir ná í.
Til eru dæmi um vamarviðbrögð.
Oft reyna kvendýrin að halda sig
í eða nálægt þéttum hóp, reyna að
hverfa í fjöldann. Kvendýr lítillar
sjimpansategundar, bonbo-
pygmea, mynda hópa er reka með
sameiginlegu átaki ágengustu karl-
ana burt og drepa þá stundum.
Meðal hákarla hefur veikara
kynið komið sér upp þykkari skráp
til að þola betur bit ágengra karla.
Hýenulæðan er vel stödd, kynfæri
hennar líkjast svo mjög kynfærum
karlsins að hún verður að jafnaði
fyrir minni áreitni en nokkurt ann-
að kvendýr.
London. Reuter.
COLIN Powell, hershöfðingi sem
orðaður hefur verið við forseta-
framboð í Bandaríkjunum, á ættir
sínar að rekja til stríðskonungsins
Játvarðs I Englandskonungs, og
er fjarskyldur ættingi Elísabetar
Englandsdrottningar og Díönu
prinsessu. Frá þessu var greint í
Bretlandi.
Powell er sonur jamaískra inn-
flyljenda og varð fyrsti blökku-
maðurinn til að gegna æðstu
valdastöðu í Bandaríkjaher.
Harold Brooks-Baker, útgáfu-
stjóri þjá Burke’s Peerage, sem
er viðurkennd ættfræðistofnun,
sérhæfð í ættartré bresku kon-
ungsfjölskyldunnar, lýsti því yfir
Powell skyld-
ur bresku
konungsfjöl-
skyldunni
að auk tengsla Powells við kong-
ungsfjölskylduna, geti hann
hreykt sér af því að vera skyldur
Bandaríkjaforsetunum George
Washington, Thomas Jefferson og
George Bush. „Bjóði hershöfðing-
inn sig fram til forseta og nái
ekki kjöri, verður það í fyrsta sinn
sem maður með slík ættartengsl
kemst ekki í Hvíta húsið," sagði
Brooks-Baker.
Rannsóknir hans hafa leitt í ljós
að Powell, sem er kominn af Jama-
íkamönnum í sjötta ættlið, er beinn
afkomandi Coote-fjölskyldunnar,
sem var ætt írskra hermanna. Sir
Eyre Coote (1762-1824), landsstjóri
á Jamaíka, átti barn með svartri
ambátt, Sally að nafni og barnið,
sem fæddist 1807, var langalanga-
langamma Powells. Coote tengdist
öllum helstu hefðarættum Bret-
lands, þar á meðal konungsfjöl-
skyldunni og mörgum konungs- og
aðalsættum í Evrópu.
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995 23
Ráðstefna um
sjúkraflutninga
Rauði kross íslands heldur ráðstefnu um skipulag og
framkvæmd sjúkraflutninga. Ráðstefnan verður á Hótel
Loftleiðum föstudaginn 27. október næstkomandi kl. 10 til 16.
Frummælendur eru:
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra.
Jón Viðar Matthíasson, aðstoðarslökkviliðsstjóri
hjá Slökkviliði Reykjavíkur.
Magnús Hreinsson, formaður Rauðakrossdeildar á Djúpavogi.
Dögg Pálsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.
Þórir Sigurbjörnsson, fulltrúi RKl í Sjúkraflutningaráði
Landlæknis.
Dr. Eelco H. Dykstra, forstöðumaður Evrópsku
upplýsingamiðstöðvarinnar um sjúkraflutninga.
Jón Baldursson, yfirlæknir á Slysadeild Borgarspítalans.
Úlfar Hauksson, formaður Heilbrigðis- og
almannavarnanefndar RKl.
Að loknum framsöguerindum verða
pallborðsumræður og fyrirspurnir.
Skráning á ráðstefnuna er hjá Rauða krossi íslands
í síma 562-6722 fyrir 25. október.
Þátttaka í ráðstefnunni er án endurgjalds. j
T
Blab allra landsmanna! - kjarni málsins!
DÓMUR ER FALLINN
ÞÉR í HAG
- lífeyrissjóðsframlag sjálfstæðra atvinnurekanda er nú frádráttarbært!
íslenski lífeyrissjóðurinn
- hæsta raunávöxtun
■ séreignasjóða verðbréfafyrirtækja
1991, 1992, 1993 og 1994
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hnekkt þeirri lagatúlkun skattayfirvalda að
atvinnurekstrarframlag einyrkja til lífeyrissjóðs falli ekki undir rekstrarkostnað.
bað misrétti sem ríkt hefúr milli rekstrarforma varðandi lífeyrissjóðsmál
er því væntanlega úr sögunni.
Hafir þú ekki greitt í lífeyrissjóð til þessa - þá er rétti tíminn núna!
Með því að sýna fyrirhyggju í lífeyrismálum tryggir þú þér tekjur á
eftirlaunaárunum.
H
LANDSBREF HF.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aöili að Verðbréfaþingi islands.
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 588 9200, BRÉFASÍMI 588 8598
■s
«