Morgunblaðið - 22.10.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995 27
SVEINNMÁR
G UÐMUNDSSON
+ Sveinn Már
Guðmundsson
fæddist á Hvanná á
Jökuldal 25. nóv-
ember 1922. Hann
lést á Sjúkrahúsinu
á Seyðisfirði 13.
október síðastlið-
inn og fór útför
hans fram frá
Akureyrarkirkju
19. október.
„ÞAU mega ekki
missa mig líka.“
Þessi setning er
mér efst í huga er ég minnist Sveins
Guðmundssonar, elskulegs mágs
» míns og góðs vinar.
Að fæðast með heilbrigða sál í
hraustum líkama er mikil Guðs
gjöf. Sveinn mágur minn gat lengst
af státað af hvoru tveggja. En þar
kom að hreysti líkamans minnk-
aði. Þá kynntist ég því í orðsins
fyllstu merkingu hvað hugtakið
heilbrigð sál merkir. Sveinn lá þá
helsjúkur á Borgarspítalanum la-
maður og mállaus eftir heilablæð-
ingu þá nýbúinn að missa eigin-
konu frá bömum þeirra ungum.
Þann ótrúlega baráttuvilja og
æðruleysi gat enginn sýnt án heil-
brigðrar sálar.
Þeirri hetjubaráttu
sem Sveinn þá háði
ætla ég ekki að lýsa
hér, en það fyrsta sem
hann reyndi að segja
við mig eftir að hann
mátti mæla var: „Þau
mega ekki missa mig
líka.“
Baráttunni lauk
með furðugóðum sigri
Sveins og gat hann
annast bömin og sinnt
starfí sínu í mörg ár
eftir þetta.
Það gefur auga leið
að eftir kynni við svo stórbrotinn
athafnamann sem Sveinn var leita
margar minningar á hugann. En
þar sem hann mágur minn var aldr-
ei margorður, ætla ég að stikla á
stóm í heimi minninganna.
Sveinn var nýtur þjóðfélagsþegn
og vann byggðarlagi sínu vel og
tel ég víst að aðrir geri þeim málum
góð skil.
Allt sem hann tók sér fyrir
hendur leysti hann vel af hendi
með dyggum stuðningi hennar
Gúnu, hans bráðduglegu og elsku-
legu konu, saman eignuðust þau
soninn Bjöm og dætumar Arn-
björgu, Ámýju og Bóthildi. Sveinn
og Gúna vom góð heim að sækja
og má segja að þau hafi „reist
skála um þjóðbraut þvera“. Slík
var gestrisni þessara elskulegu
hjóna.
Fyrsta heimsókn mín til þeirra
var í þann heillandi heim sem mér
fannst síldarsöltunarstöðin
Ströndin vera. Gúna í eldhúsinu,
sem Sveinn kallaði hesthús þegar
hann var orðinn leiður á hrossa-
lq'ötinu, hefur þá kannski verið
búinn að fá sér smá brennivínslús.
Abba næstum á haus ofan í síld-
artunnu því hún var svo lítil þegar
hún fór að; salta síld, Bjössi að
pækla og Ámý og Bóta að leika
sér á planinu, þarna var samhent
fjölskylda við leik og störf. Svona
man ég Ströndina.
Sveinn var alla tíð dyggur sjálf-
stæðismaður og efa ég ekki að
stoltur hafí hann fagnað sigri dótt-
ur sinnar þegar hún var kjörin á
þing síðastliðið sumar.
Eg kveð elskulegan mág minn
með innilegu þakklæti fyrir alla
hans vinsemd og tryggð við okkur
Snorra Vigga. Eg er sannfærð um
það að þessi trúmaður, sem samdi
við Almættið um frest þegar börn-
in þurftu hans mest með, hefur
kvatt þessa jarðvist sáttur við Guð
sinn.
Elsku Bjössi, Abba, Ámý og
Bóta, innilegar samúðarkveðjur
sendi ég ykkur og afabömunum
öllum og öðmm ástvinum.
Megi Guðs blessun fylgja Sveini
Má Guðmundssyni.
Bertha.
OLAFINA
ÓLAFSDÓTTIR
+ Ólafína Ólafs-
dóttir fæddist í
Deild á Akranesi
11. október 1902.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 12.
október síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Ólafur
Ólafsson vélsmið-
ur, f. 18.2. 1875, d.
11.11. 1959, og Jó-
hanna Sigríður Jó-
hannsdóttir, f. 28.2.
1858, d. 28.2. 1939.
Systur Ólafínu
voru tvær, Guð-
laug, f. 9.7. 1897, d. 8.9. 1990,
og Margrét, f. 5.4. 1899, d.
27.10. 1921.
Hinn 15. ágúst 1926 giftist
Ólafina Ólafi Helga Sigurðs-
syni. Eignuðust þau níu börn
og eru sjö þeirra á lífi: Hörður
Ragnar, Ólafur,
Guðrún Diljá, Mar-
grét, Ingibjörg, Ása
Sigríður og Jóna
Kolbrún. Látnir eru
Sigurður Hreinn og
Freymóður Heiðar.
Fyrir átti hún son-
inn Jóhann Grétar
Hinriksson. Ólafína
og Ólafur skildu.
Ólafina eignaðist
eina dóttur, Olafínu
Sigrúnu, með sam-
býlismanni sínum,
Ólafi Eggerti Þor-
steinssyni (d. 1975).
Ólafína var vistmaður á
Dvalarheimilinu Höfða mörg
síðustu árin. Útför hennar fer
fram frá Akraneskirkju á
morgun, mánudaginn 23. októ-
ber, og hefst athöfnin klukkan
14.00.
SVANUR LÁRUSSON
+ Svanur Lárusson fæddist á
Breiðabólstað á Skógar-
strönd á Snæfellsnesi 28. maí
1913. Hann lést á Landakots-
spitala 3. október siðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Dómkirkjunni 11. október.
HAUSTIÐ 1961 keypti faðir minn,
Jóhannes Guðnason, lítið iðnfyrir-
tæki, Eldavélaverkstæði Jóhanns
Fr. Kristjánssonar, sem framleiddi
hinar landsþekktu Sóló-eldavélar.
Fljótlega hóf þar störf hjá honum
Svanur Lárusson sem var föður
mínum ekki allsókunnur því að þeir
höfðu unnið saman við bifreiðavið-
gerðir nokkrum árum áður.
Svanur var við eldavélasmíðina
næstu 25 árin þar til hann komst
á lífeyrisaldur. Naut hann þar alla
tíð mikils sjálfstæðis í starfi og
reyndi mjög á frumkvæði hans enda
í mörg horn að líta þar sem starfs-
menn voru jafnan fáir en smíðin
nokkuð flókin. Því kom sér vel hve
útsjónarsamur Svanur var og laginn
til allra verka. Sannaðist þar hið
fornkveðna að betur vinnur vit en
strit.
Eg var ekki hár í loftinu þegar
faðir minn tók mig með sér inn á
verkstæði og þá gleymdi eg mér
oft við að horfa á Svan við smíðar.
Síðan hefur mér alltaf þótt gaman
að fylgjast með góðu verklagi.
Skjótar en öruggar handahreyfíng-
ar hans og hnitmiðuð vinnubrögð
vöktu óskipta athygli mína og smíð-
isgripirnir báru vitni um hagleik
hans. Svanur var listamaður að
margra dómi og er eg minnugur
þeirra orða föður míns að Svanur
hefði átt að leggja fyrir sig silfur-
smíði, þar hefðu hæfileikar hans
notið sín til fulls.
Orðfæri Svans var fágað rétt eins
og handverkið, orðum í hóf stillt
en þau þrungin merkingu. Var hann
jafnan ómyrkur í máli er hann tjáði
sig ,um ýmis þjóðmál. Einkum þótti
honum gott að ræða um tónlist en
að vinnudegi loknum stytti Svanur
sér stundir við harmoníkuleik og
var enginn ósnortinn er á hlýddi.
Nú hafa hamarshöggin hljóðnað
og nikkan er þögnuð. Ekkja Jó-
hannesar Guðnasonar og hennar
börn þakka Svani samfylgdina og
lærdómsrík kynni. Afkomendum
hans senda þau innilegar samúðar-
kveðjur.
Arnbjörn Jóhannesson.
MIG langar að skrifa nokkrar línur
um ömmu mína. Amma var búin
að vera veik og var ég ekki hissa
þegar systir mín hringdi í mig og
sagði að amma væri dáin. Amma
hafði þráð þetta lengi, að fá að
sofna svefninum langa.
Þá fór ég að hugsa: Hvenær sá
ég hana síðast? Það var í maí sl.
Það hefði verið í síðasta sinn sem
ég og sonur minn sáum hana. Það
er samt alltaf svo sárt að missa
ástvin.
Amma var 93 ára þegar hún lést.
Ég veit að henni líður vel núna.
Hún á eftir að fínna frið og ham-
ingju hjá Guði. Fósturafi minn lést
1974. Það tók mjög mikið á hana.
Hún átti erfitt með að vera ein og
þá fékk ég að sofa hjá henni. Fannst
henni það vera mikill styrkur að
hafa einhvem hjá sér á nóttunni.
Okkur kom vel saman. Amma
átti alltaf coco-puffs handa mér.
Þetta voru góðar stundir sem við
áttum saman, við urðum einhvem
veginn tengdari eftir þessa mánuði.
Svo kom að því að amma þurfti
að fara á dvalarheimilið Höfða. Hún
var ekki sátt við það. Það tók hana
mörg ár að sættast við það. Ég flutti
á Seyðisfjörð 1983. Við sáumst þá
ekki eins oft og við hefðum viljað.
Ömmu fannst ekki alltaf lífsbar-
áttan réttlát. Hún átti 11 böm, níu
eru á lífi.
Elsku amma mín. Ég þakka þér
fyrir allt. Megi Guð styrkja okkur
öll í sorginni. Ég bið algóðan Guð
að styrkja sérstaklega móður mína
í sorginni. Blessuð sé minning
merkrar konu.
Saga Valsdóttir.
FOSSVOGI
Þegar andlát
her dð höndum
Útfararstofa Kirkjugarðanna Fossvogi
Sími 551 1266
+
Elskuleg eiginkona mín,
ÁSLAUG KEMP,
Skagfir&ingabraut 23,
Sauðárkróki,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans 20. október.
Stefán Kemp.
t
AAGOT VILHJÁLMSSOIM,
Miðleiti 5,
sem andaóist 15. október sl., verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 24. október kl. 15.00.
Vandamenn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BRYNJAR ÞÓR SNORRASON,
Vesturbergi 144,
sem lést í Borgarspítalanum 17. októ-
ber, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 24. október
kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Þeim sem vildu minnast hans er bent
á líknarstofnanir.
Hrafnhildur Karlsdóttir,
Kristinn Karl Brynjarsson,
Hrönn Brynjarsdóttir.
+
Hjartanlegar þakkir fyrir vináttu, samúð
og hlýhug við andlát og útför
HULDUARADÓTTUR,
Grettisgötu 39,
* Ari Þórðarson,
Erlingur Snær Guðmundsson, Svava Gisladóttir,
Þórunn Elísabet Stefánsdóttir, Gísli Jensson,
Stefán Stefánsson, Linda Arthur,
Birna Ríkey Stefánsdóttir, Birgir Eyþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
PÁLÍNU REBEKKU HALLDÓRSDÓTTUR.
Sigríður Guðmundsdóttir, Ruben Jóhannessen,
Pálína Benjamínsdóttir, Guðrún Benjamínsdóttir,
Guðrún H. Guðmundsdóttir, Björgvin Bæringsson,
Guðmundur Friðrik, Guðrún Linda,
Pálína Hugrún og Bæring Jóhann Björgvinsbörn.
+
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og
útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ELÍSAR DANÍELSSONAR,
Dölum,
Fáskrúðsfirði.
Sigrún Steinsdóttir,
Ármann Elísson, Jóna Ingunn Óskarsdóttir,
Vilborg Elísdóttir,
Dagný Elfsdóttir,
Steinunn B. Elísdóttir,
Guðný Elfsdóttir,
Elsa S. Elísdóttir,
Eyrún M. Elísdóttir,
og barnabörn.
Hafsteinn Ellertsson,
Grétar Arnþórsson,
Ingólfur Hjaltason,
Steinþór Pétursson,
Valur Sveinsson,
Björgvin Hansson
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 - sími 587 1960