Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Katrin Elvarsdóttir
ANNA Óðinsdóttir og Hafsteinn Hinriksson með Marín í sjúkrahúsinu í Boston í gær.
Nýr gjaldmiðill
í umferð 1 dag
Ýmsir séð regn-
boga um nótt
Njólu-
baugur
LESENDUR hafa haft samband
við Morgunblaðið til að segja
frá samskonar regnbogum um
nótt og sagt var frá að hefði
birst skammt frá Ólafsvík í
haustrigningum um miðja nótt
fyrir stuttu. Ein kona hafði t.d.
séð slíkan boga í Skeijafirði á
mánudagskvöld og önnur í
Hvalfirði fyrir nokkrum árum.
Sú siðartalda sagðist hafa heyrt
heitið „njólubaugur" á nætur-
regnboga, en njóla segir ís-
lenzk orðabók að sé nótt og er
merkt sem skáldamál.
Guðmundur Erlingsson hjá
Orðabók Háskólans segir að
orðið njólubaugur sé hvorki að
finna í talmálssafni hennar né
ritmálssafni, en hins vegar sé
til kvæði eftir Einar Benedikts-
son með þessu nafni. Þar yrkir
skáldið meðal annars um
„mánafölvans friðar boga“ og
„næturborna bifröst anda
míns“, en eins og er alkunna
eru bæði friðarbogi og bifröst
önnur heiti yfir regnboga.
Reynt verði að grennslast fyrir
um heitið í kjölfar þessara
ábendinga.
Þess má geta, að Björn Gunn-
laugsson (1788-1876) stærð-
fræðingur og landmælingamað-
ur og yfirkennari við Latínu-
skólann gaf út heimspekilegt
trúaryóð með nafninu Njóla.
Kristján Karlsson hefur bent
á, að Einar Benediktsson hafi
orðið fyrir miklum áhrifum frá
Birni Gunnlaugssyni.
Ekki mjögalgengt
Trausti Jónsson veðurfræð-
ingur á Veðurstofu íslands
kveðst ekki hafa heyrt heitið
njólubaugur á þessu fyrirbæri,
en hann útiloki þó ekki að það
sé notað. Regnbogi að nóttu er
ekki mjög algeng sjón að sögn
Trausta, en hann hafi þó sjálfur
séð slíkt fyrirbæri. Það lúti
sömu lögmálum og regnbogi að
degi til, þ.e. þegar fer saman
bjart tunglskin og súld eða
skúraveður ásamt dreifðum
skýjum, geti myndast ljósbrot í
dropunum. Litirnir í næturbog-
anurn séu þó miklu daufari og
geti jafnvel litið út fyrir að
vera hvítir.
NÝR 2.000 króna seðill og 100
króna mynt fara í umferð í dag og
hættir Seðlabanki íslands nú að
senda frá sér 100 kr. seðla, þótt
þeir verði áfram löglegur gjaldmið-
ill jafnhliða myntinni.
Andlitsmynd af Jóhannesi S.
Kjarval listmálara prýðir framhlið
seðilsins ásamt öðru myndefni sem
tengist verkum hans. Á bakhlið eru
myndir af „Flugþrá“ Kjarvals og
„Konu og blómi" auk eiginhandar-
áritunar listamannsins.
Hönnuðir seðilsins eru Kristín
Þorkelsdóttir og Stephen A. Fair-
bairn. Seðillinn er jafnstór 1.000
kr. seðli og er blindramerki hans
þríhyrningur.
Til að torvelda fölsun var meiri
áhersla lögð á öiyggisþætti við
hönnun hins nýja seðils en tíðkast
hefur í hönnun íslenskra peninga-
seðla. í grunni er til dæmis mynst-
ur, sem gerir ljósritun í lit erfiðari
pg örletur með nafni Seðlabanka
íslands. Ennfremur er felumynd í
seðlinum, sem birtist þegar honum
er hallað móti ljósi. Auk þess eru
aðrir öryggisþættir, eins og í öðrum
íslenskum peningaseðlum, t.d. ör-
yggisþráður, vatnsmerki og upp-
hleypt prentun á báðum hliðum.
100 kr. myntin er slegin úr gul-
leitri málmblöndu, þeirri sömu og
50 kr. myntin, en rönd 100 kr.
myntarinnar er til skiptis slétt og
riffluð til að auðvelda blindum og
sjóndöprum að greina þessa mynt
frá öðrum. Á framhlið 100 krónu
myntarinnar er mynd af landvætt-
um, en á bakhlið er mynd af hrogn-
kelsi. Þröstur Magnússon grafískur
hönnuður teiknaði myntina.
í fyrsta upplagi eru 2 milljónir
seðla og 6 milljónir myntpeninga.
Prentun hvers seðils kostar 7,75
krónur en slátta hvers penings 3,65
krónur.
Marín fer í
aðgerð í dag
MARÍN Hafsteinsdóttir, sex
mánaða gömul stúlka frá Eski-
firði, mun gangast undir hjarta-
uppskurð í dag. Komið verður
fyrir nýrri slagæð við hjartað.
Anna Oðinsdóttir, móðir Marín-
ar, segist vera bjartsýn um
árangur af skurðaðgerðinni og
treysta læknunum fullkomlega
fyrir dóttur sinni.
Aðgerðin hefst kl. 7.30 að
bandarískum tíma. Ekki er vitað
nákvæmlega hvenær henni lýk-
ur, en talið er víst að hún standi
í a.m.k. fjóra klukkutíma.
„Það kann að vera að hjartað
verði bara lagað að hluta til
núna og betur eftir nokkra
mánuði. Hún á reyndar eftir
að fara í 3-4 aðgerðir áður en
hún verður fullvaxin. Þær æðar
sem settar verða vaxa ekki með
henni og þess vegna þarf að
skipta um.“
Anna sagði að dagurinn yrði
erfiður og kvaðst finna fyrir
kvíða. „En andrúmsloftið hér
virkar róandi á mann. Við erum
búin að sjá mörg lítil böm, sem
hafa farið i erfiðar aðgerðir,
og það gerir það að verkum að
maður sannfærist um að þessir
læknar séu kraftaverkamenn.
Eg treysti þeim mjög vel fyrir
barninu mínu.“
Græn-
lenzkur
ráðherra
í heimsókn
PAVIARAQ Heilman, sjáv-
arútvegsráðherra Grænlands,
er nú staddur hér á landi til
að funda með íslenzkum ráða-
mönnum og kynna sér íslenzk-
an sjávarútveg og tengdan
iðnað.
Heilman kom til landsins
síðastliðinn þriðjudag og verð-
ur hérlendis fram undir viku-
lok. Hann hefur þegar átt fund
með Þorsteini Pálssyni sjávar-
útvegsráðherra ásamt emb-
ættismönnum beggja ráðu-
neytanna. í gær heimsóttu
ráðherrarnir Akureyri, þar
sem þeir skoðuðu meðal ann-
ars Slippstöðina Odda, Sam-
heija, UA, DNG og Háskólann
á Ákureyri og snæddu kvöld-
verð í boði bæjarstjórnar Ak-
ureyrar.
I dag fundar Heilman á ný
með Þorsteini Pálssyni og
heimsækir Hafrannsókna-
stofnun, Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, Fiskistofu og
Marel hf. Á morgun heimsæk-
ir grænlenzki ráðherrann síð-
an Sjóminjasafnið í Hafnar-
firði áður en hann heldur af
landi brott.
Læknistölva
komí
leitimar
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins hefur upplýst hver það
var sem braust inn í 5 bíla í
Breiðholti. í fyrrinótt og stal
m.a. fartölvu læknis, og vinnu-
skjölum, geislaspilara, útvarpi
og fleiru.
Maðurinn var handtekinn í
gær og gekkst við verknaðin-
um. Þýfið er komið til skila.
Magaspeglunartæki og
skiptimynt var stolið í innbroti
á læknastofu við Laugaveg í
fyrrinótt.
Að sögn lögreglu er hæpið
að þjófarnir geti gert sér pen-
ing úr tækinu, enda vantar við
það tengibúnað til að það komi
að notum og er það því talið
verðlaust öðrum en eigandan-
um.
Barinn með
felgnlykli
MAÐUR varð fyrir líkams-
árás, sem talin er tilefnislaus,
í anddyri fjölbýlishúss við
Vesturberg í gærmorgun.
Maðurinn var á leið út úr
húsinu þegar maður, sem beið
í anddyrinu barði hann í andlit-
ið með felgulykli.
Sá sem fyrir varð meiddist
talsvert og var fluttur á slysa-
deild til aðhlynningar.
Árásarmaðurinn var sagður
um 185 cm hár, grannvaxinn,
með ljóst hrokkið hár og
klæddur í lopapeysu og leður-
jakka, en lögregla hafði ekki
haft uppi á honum þrátt fyrir
leit í gær.
Maður á vél-
hjóli slasaðist
MAÐUR á vélhjóli slasaðist á
Kapiaskjólsvegi í gær þegar
bíll ók í veg fyrir hjólið með
þeim afleiðingum að maðurinn
lenti á bílnum. Hann var fluttur
á slysadeild, en reyndist ekki
alvarlega slasaður og fékk að
fara heim að lokinni skoðun.
Starfsmenn flugvallarþjónustudeildar Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli
Einungis starfað samkvæmt
ströngustu öryggiskröfum
STARFSMENN flugvallarþjónustudeildar
Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli samþykktu á
fundi sínum í gær að sinna störfum sínum að-
eins samkvæmt ströngustu öryggiskröfum, en
starfsmennirnir, sem eru um 50 talsins, hafa
líkt og slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli
ekki fengið þær kjarabætur sem þeim ber sam-
kvæmt samningum. Skorar fundurinn á viðkom-
andi yfirvöld að ganga þegar í að leysa rnálið
svo ekki þurfí að koma til röskunar á flugsam-
göngum.
Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær
hafa brunaverðir á Keflavíkurflugvelli ákveðið
að sinna einungis neyðarþjónustustörfum þar til
þeir fá leiðréttingu á kjörum sínum samkvæmt
samningum. Starfsmenn flugvallarþjónustunnar
eru í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur
og taka kaup og kjör þeirra sömu viðmiðun og
laun brunavarða og eldvarnaeftirlitsmanna.
í ályktun fundarins frá því í gær segir að
þeir hafí ásamt Öðrum starfsmönnum varnarliðs-
ins um árabil þurft að búa við annað ástand
hvað varðar launa- og kjaramál en flestir aðrir
launþegar í landinu. Starfsmannahald varnar-
liðsins hafí hvað eftir annað dregið að afgreiða
mikilvæg mál og falið sig á bakvið kaupskrár-
nefnd, sem ekki komi saman af óskiljanlegum
ástæðum. Nú sé svo komið að starfsmenn hafí
ekki fengið leiðréttingu launa og hækkanir þær
sem hafa orðið á viðmiðunarsamningum svo
mánuðum skipti.
Að sjóða upp úr á mörgum stöðum
Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur, sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikill urgur væri í starfsmönn-
um flugvallarþjónustunnar.
„Starfsmannahald vamarliðsins hefur hvað
eftir annað dregið að afgreiða mál og falið sig
á bak við kaupskrámefndina. Þeir eru orðnir
afskaplega pirraðir á því að heyra sífellt að ver-
ið sé að athuga málin og starfsmannahald varn-
arliðsins virðist geta túlkað samninga út og
suður eftir því hvernig stendur upp í bólið hjá
þeim hveiju sinni.
Starfsmennimir munu nú sinna störfum sínum
samkvæmt ströngustu öryggiskröfum og skora
þeir á viðkomandi yfírvöld að ganga þegar í stað
í að leysa málið svo ekki komi til röskunar á
flugsamgöngum, en þetta em menn sem sinna
t.d. hálkueyðingu og snjóruðningi. Þetta er tal-
andi dæmi um að það virðist vera stöðugur ófrið-
ur um laun og um túlkun á kjarasamningum
hjá starfsmannahaldinu og það kveður mjög við
annan tón en það hefur gert mörg undanfarin
ár. Það er því að sjóða upp úr á mörgum stöð-
um,“ sagði Kristján.