Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fundur borgarstj órans með íbúum Vesturbæjar, Miðbæjar og Þingholta Morgunblaðið/Ásdís FJÖLMENNT var á fundi borgarstjóra með íbúum Vesturbæjar, Miðbæjar og Þingholta. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í ræðustól á fundinum í Ráðhúsinu. U mferðarmálin í brennidepli Á hverfafundi, sem borgarstjóri hélt í Ráð- húsinu síðastliðið mánudagskvöld með íbúum Vesturbæjar, Miðbæjar og Þingholta, voru umferðarmálin í brennidepli og þá ekki síst fyrirhugaðar breytingar á Hverfisgötu, en stefnt er að því að þar verði tvístefnuakst- ur. Þá kom í ljós óánægja íbúanna með ástand lóðarinnar umhverfis Hallgrímskirkju. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hóf fundinn með því að ræða nokkuð um fjárhag borgarinn- ar sem hún sagði aldrei hafa verið verri. Skuldir borgarinnar hefðu um síðustu áramót verið tæpir 12,5 milljarðar kr. og ykjust um einn milljarð á þessu ári. Skuldir á íbúa hefðu verið rúmlega 120.000. kr. en 1978-1988 hefðu skuldir á hvem íbúa verið innan við 40 þúsund kr. Árið 1989 hefðu skuldir borgarinnar verið tæpir 3,5 milljarðar kr. Greiðslubyrði lána væri þyngri en nokkru sinni og til þess að bregðast við vandanum yrði stefnt að 6,5% lægri rekstrargjöldum á næsta ári sem óhjákvæmilega leiddi til að dregið yrði úr starfsemi. Eftir að hafa greint frá fjárhags- stöðu borgarinnar fjallaði borgar- stjóri m.a. um fyrirhugaðar fram- kvæmdir í þeim borgarhlutum sem til umfjöllunar voru á fundinum. Þar væri meðal annars um framkvæmd- ir að ræða í því skyni að greiða götu strætisvagna: breytingu Hverf- isgötunnar í tvístefnuakstursgötu og nýja skiptistöð í Hafnarstræti. Frek- ari endurbætur á Laugavegi yrðu hins vegar að bíða um sinn. Þá stæði til að undirbúa fyrsta áfanga fram- kvæmda á lóð Hallgrímskirkju á næsta ári í samvinnu við kirkjuna, en ljóst væri að framkvæmdir á Skólavörðuholti myndu dreifast á mörg ár. Óvissa um framtíð flugvallar Ingibjörg Sólrún gerði grein fyrir fyrirhuguðum flutningi Borgar- bókasafnsins í gamla Morgunblaðs- húsið, og sagði hún að til boða stæði að kaupa enn stærri hlut í húsinu og væri framtíðarnýting þess til skoðunar í því ljósi. Hún sagði að Aðalstræti 18 yrði endurbyggt og væntanlega yrðu byggð ný hús á auðu lóðunum við hliðina, sem falla myndu að gömlu húsunum þannig að heilleg götumynd skapaðist. Hvað varðar framtíð flugvallar- ins þá sagði borgarstjóri að ekki væru forsendur til að flytja innan- landsflugið frá Reykjavík til Kefla- víkur, en uppbygging og viðhald flugvallarins myndu hins vegar líða fyrir óvissu um framtíð hans. Loks gat borgarstjóri framkvæmda við skólpútrásir við ströndina sem lokið yrði á næsta ári, en gat þess að holræsagjaldið sem ætlast var til að stæði undir þessum framkvæmd- um myndi ekki duga til þess. Kostn- aður við holræsagerðina á næsta ári væri áætlaður 800 milljónir króna, en holræsagjaldið væri um 350 milljónir króna. Umferðarskipulag Þingholta endurskoðað Lengi hefur staðið til að flytja Hringbrautina suður fyrir Umferð- armiðstöð og skapa aukið svigrúm og bæta aðkomu að Landspítalan- um. Sagði borgarstjóri að vonast væri til þess að af þessari fram- kvæmd gæti orðið á næsta 12 ára tímabili, svo framarlega sem fjár- magn til framkvæmdanna kæmi til þess frá ríkinu. Umferðarskipulag Þingholtanna verður endurskoðað og sagði borgarstjóri að þegar hefði verið ákveðið að gera hringtorg á mótum Skothúsvegar, Laufásvegar, Þingholtsstrætis og Hellusunds. Borgarstjóri gerði nokkra grein fyrir áætluðum breytingum á leiða- kerfí SVR í þeim borgarhlutum sem fjallað var um á fundinum. Liður í því væri að hægt verði að aka Hverf- isgötu í báðar áttir og að bæta frá- gang skiptistöðvarinnar á Lækjar- torgi. Þannig myndi t.d sérstakur Laugavegsvagn hætta akstri en í stað þess yrði ekið Hverfísgötuna. Þá stæði til að keyptur yrði sér- stakur smávagn til að aka frá Loftleiðahóteli um Snorrabraut að Domus Medica og þaðan yfír Skólavörðuholt og niður Skólavörðu- stíg að Lækjartorgi og nánast sömu leið til baka. Breyting Hverfisgötirkostar 200 milljónir Umferðarmálin voru ofarlega í huga flestra þeirra fundargesta sem lögðu spurningar fyrir borgarstjór- ann. íbúi við Grettisgötu kvartaði um mikinn umferðarþunga þar og spurði hvort fyrirhugað væri að fjölga vistgötum í hverfínu eða setja fleiri hraðahindranir. Borgarstjóri sagði að engar slíkar áætlanir væru uppi, en sjálfsagt væri að kanna hvort hægt væri að draga úr umferð- arhraða með einhveijum hætti. íbúi við Hverfísgötu lýsti óánægju yfír fyrirhuguðum breytingum á götunni og kvartaði yfír að enginn fundur hefði verið um framkvæmd- imar með íbúum við götuna. Vísaði hann til þess sérstaklega að umferð- arþungi á gatnamótum Hverfísgötu og Snorrabrautar myndi aukast verulega og væri hann þó mikill fyrir. Ingibjörg Sólrún sagði að nokkuð væri síðan samþykkt hefði verið að breyta Hverfisgötu í tvístefnuakst- ursgötu í því skyni að reyna að hægja á og draga úr gegnumum- ferð um götuna og beina henni á stofnbrautir. Sagðist hún telja þessa breytingu verða til mikilla bóta og draga úr slysahættu. Áætl- aður kostnaður við þetta verk er talinn verða 180-200 milljónir króna. Spurt var hvort fyrirhugaðar væru einhveijar breytingar á að- komunni að Landspítalanum. Borg- arstjóri sagði hugmyndir hafa verið uppi um gjaldtöku á bílastæðum við spítalann til að draga úr umferð starfsfólks, en engin niðurstaða hefði náðst hvað það varðar. Þá sagði hún óskir hafa komið frá starfsfólki um aðkomu að spítalan- um frá Miklubraut, en sá kostur væri ekki talinn, fýsilegur. Sagði borgarstjóri fyrirhugaðan flutning Hringbrautar suður fyrir Umferð- armiðstöð bæta úr því vandamáli sem aðkoman að Landspítalanum væri. Lóð Hallgrímskirkju til vansæmdar Lóð umhverfis Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti kom til umræðu og var ástand hennar sagt til mikillar vansæmdar fyrir alla. Þangað kæmi fjöldi erlendra ferðamanna á ári hveiju og óhæft væri að bjóða þeim og öðrum upp á það umhverfi sem þarna væri að finna. Borgarstjóri tók undir þessi sjón- armið og sagði brýnast að lagfæra nánasta umhverfi kirkjunnar fyrir kirkjugesti. Hins vegar væri mjög dýrt að lagfæra allt svæðið um- hverfis kirkjunna, m.a. vegna breyt- inga sem yrði að gera á gatna- kerfi. Borgin kemur ekki ein að þessu verki og sagði borgarstjóri að rætt hefði verið við dóms- og kirkjumálaráðuneytið í þessu sam- bandi. Fram kom að heildarkostn- aður við endurbætur á Skólavörðu- holti skipti hundruðum milljóna króna, en við 1. áfanga væri kostn- aðurinn áætlaður um 50 milljónir króna. Meðal þess sem fram kom í svör- um borgarstjóra við spurningum fundargesta var að Grandaskóli sem býr við mjög þröngan húsakost fær íjárveitingu til framkvæmda á næsta ári. Þá lægju viðræður við Skeljung um flutning olíustöðvar- innar í Skeijafirði niðri um þessar mundir, en þær hafa staðið yfir í mörg ár. Fram kom að bætur sem Reykjavíkurborg þarf að greiða Skeljungi fyrir mannvirki væru um 100 milljónir króna. Fjármagn vant- aði til að leiða þetta mál til lykta, en Skeljungi hefur verið úthlutuð lóð í Borgarholti í stað lóðarinnar í Skeijafirði. Borgarstjórí svarar fyrirspurnum frá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins Yill ræða við aðra hluthafa Landsvirkjunar ÓVIÐUNANDI að Reykvíkingar eigi 45% eignaraðild að Landsvirkj- un án þess að sú eign skili arði, sem orð sé á gerandi, segir í svari borgarstjóra við fyrirspum borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokks í borgar- ráði í gær. Fram kemur að borgar- stjóri hyggst óska eftir viðræðum við aðra hluthafa í Landsvirkjun um málefni fyrirtækisins. Vegna ummæla borgarstjóra í fjölmiðlum um málefni Landsvirkj- unar í október óskuðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eftir að borg- arstjóri upplýsti hvort hann teldi að selja ætti hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Ennfremur hvort borgarstjóri hefði stuðning félaga sinna innan R-listans um söluna. í svari borgarstjóra kemur fram að óviðunandi sé að borgin eigi hlut í fyrirtækinu sem skili ekki meiri arði. Tvennt komi til álita, þ.e. borgin tæki þá stefnu að selja hlut sinn, en minnt er á að sam- kvæmt lögum um Landsvirkjun séu borginni settar ákveðnar skorður þar um. Eða að borgin geri þá kröfu að fyrirtækið skili eigendum sínum eðlilegum arði. Hyggst borgarstjóri óska eftir viðræðum við sameigendur borgarinnar um þessi mál. Þá segir að borgarstjóri hafí þann stuðning félaga sinna sem hann hafi í þessu máli sem öðrum. í bókun borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins segir að í svari borgarstjóra væri dregið í land með hugmyndir um sölu á hlut borgarinnar vegna núgildandi laga æm setji borginni skorður. Þegar Landsvirkjun hafi skilað hagnaði hafi eðlilega verið greiddur arður til borgarinnar. Því sé enn afar óljóst hvert borgarstjóri hyggist stefna í máli sem hún hafi tekið upp á sitt eigið einsdæmi að ræða opinberlega. Svör borgarstjóra beri vott um fljótfærnisleg vinnubrögð í þessu máli. Vegna bókunar sjálfstæðis- manna, bókaði borgarstjóri að rétt væri að fram kæmi að arðgreiðslur Landsvirkjunar hafi verið óveru- legar í gegnum tíðina með tilliti til eignarhluta borgarinnar. Á verðlagi ársins 1994 hafi greiðslur fyrir árið 1979 verið 22 millj., árið 1985 voru þær 59 millj., árið 1988 voru þær 34 millj., árið 1989 voru þær 32 millj., árið 1990 voru þær 34 millj., árið 1991 voru þær 35 millj. og árið 1992 voru þær 37 millj.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.