Morgunblaðið - 09.11.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 15
morgunDiaoio/öigurgeir jonasson
SIGURÐUR Jónsson, sem hefur tekið þátt frá byijun,
og sigurvegari göngurallsins Daði Garðarsson.
Fóðurgildi heyja á Suð-
urlandi meira en í fyrra
Selfossi - Fóðurgildi heyja á Suð-
urlandi er mun betra eftir sumarið
í ár en var í fyrra, samkvæmt niður-
stöðum rannsókna á rúmlega 500
heysýnum sem efnagreind hafa verið
á Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins.
140 bændur á Suðurlandi sendu
Búnaðarsambandi Suðurlands alis
rúmlega 700 heysýni sem flest voru
tekin 20. júní-20. júlí en niðurstöður
eru ekki komnar úr þeim öllum. Svo
virðist sem orkugildi heyjanna hafi
haldist betur fram í júlí en í fyrra
og búist er við að það leiði af sér
meiri framleiðslu mjólkur fyrri hluta
vetrar, en innlagt magn mjólkur frá
1. september síðastliðnum sýnir
þetta.
Runólfur Sigursveinsson hjá Bún-
aðarsambandi Suðurlands segir gildi
fóðursýnanna ótvíræð fyrir bónd-
ann.„„Hann getur valið með meira
öryggi hvað hann gefur kúnum mið-
að við burð og aðrar aðstæður. Sýna-
takan og rannsóknirnar verða eitt
af stjórntækjunum í búrekstrinum
og bóndinn verður betur í stakk bú-
inn til að gefa það fóður sem við á
hveiju sinni,“ sagði Runólfur.
Bændur jákvæðir
Hann sagði bændur mjög jákvæða
gagnvart því að taka slík sýni og
senda til Búnaðarsambandsins, sem
kemur þeim áfram til Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins í efna-
greiningu. Bændur fá síðan niður-
stöðurnar og túlkun á þeim frá Bún-
aðarsambandinu í bréfi eða heim-
sókn. Bændurnir greiða sjálfir efna-
greiningarkostað við hvert sýni.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
FRÁ vígslu neyðarskýlisins á Ingólfshöfða.
Endurbyggingu
neyðarskýlis lokið
Hnappavöllum, Öræfum - Nú er
nýlega lokið endurbyggingu neyð-
arskýlis Slysavarnafélags Islands í
Ingólfshöfða og fór vígsla þess fram
4. nóvember sl. að viðstöddum
fjölda fólks úr Öræfum og góðra
gesta úr Hornafirði og frá SVFÍ.
Skýli þetta er elsta neyðarskýli
landsins sem nú er til, reist í októ-
ber 1912 á kostanð Ditlev Thoms-
ens kaupmanns sem var þýskur
konsúll á íslandi en Slysavarnafélag
íslands hefur um margra áratuga
skeið haft umsjón með því.
Andlát
GUÐRÚN
SIGURÐARDÓTTIR
Mývatnssveit - Látin er Guðrún Sig-
urðardóttir í Reykjahlíð. Hún var
búin að dvelja um tíma á sjúkrahús-
inu á Húsavík og þar lést hún 26.
október síðastliðinn.
Guðrún fæddist í Reykjahlíð 13.
apríl 1918. Foreldrar hennar voru
Jónasína Jónsdóttir og Sigurður Ein-
arsson. Guðrún stundaði nám á
Laugum, síðan fór hún í Húsmæðra-
kennaraskóla íslands; að því loknu
hóf hún húsmæðrakennslu, kenndi
m.a. einn vetur á ísafirði og á Laug-
um en aðalkennarastarf hennar var
við Húsmæðraskóla Akureyrar og
Gagnfræðaskólann. Þar kenndi hún
samfleytt þar til hún varð að láta
af störfum vegna aldurs.
Á sumrin rak Guðrún ásamt systk-
inum sínum Hótel Reykjahlíð um
áratugaskeið af miklum myndarbrag
og var það ærið starf. Þar eignaðist
hún marga vini og kunningja enda
einstaklega vel látin af öllum sem
henni kynntust. Frændahópur henn-
ar var einnig mjög fjölmennur.
Útför Guðrúnar var gerð frá
Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 4.
nóvember að viðstöddu mjög miklu
fjölmenni. Sóknarpresturinn, sr. Örn
Friðriksson, flutti útfararræðu og
jarðsöng.
Göngurall
Björgunar-
félags Vest-
mannaeyja
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
GUÐMUNDUR Guðmundsson og hundurinn Sokki ásamt
Gunnari Einarssyni frá Daðastöðum.
Fjárhundakeppni
haldin í annað sinn
Vestmannaeyjar - Björgun-
arfélag Vestmannaeyja stóð
fyrir árlegu gönguralli fyrir
skömmu. Göngurallið hefur
verið fastur liður í starfsemi
félagsins en í göngurallinu er
gengin ákveðin leið með 10
kílóa byrði í keppni við tím-
ann. Þátttakendur gátu valið
um að taka þátt í keppni á
lengri eða styttri leið rallsins
og tóku 13 karlmenn þátt í
rallinu að þessu sinni. Lengri
leiðin lá frá Skátaheimilinu við
Faxastíg á Blátind, Klif, Skans,
Eldfell, Helgafell, Sæfell og
síðan aftur að Skátaheimilinu
en styttri leiðin var frá Skáta-
heimilinu á Skans, Eldfell,
Helgafell, Sæfell og að Skáta
heimili.
Sigurvegarinn
Sigurvegari í rallinu að
þessu sinni var Daði Garðars-
son á 1:56,27 en í öðru sæti
varð Jónatan Guðbrandsson á
2:07,45. Besti tíma sem nást
hefur í göngurallinu frá upp-
hafi á Guðni Georgsson,
1:55,00 en Guðni hafnaði nú í
4. sæti.
Einn keppandi, Sigurður
Þórir Jónsson, fór styttri leið-
ina og gekk hana á 1:53,07.
Reykholtsdal, Borgarfirði - Fjár-
hundakeppni var haldin í annað sinn
að Hesti í Andakíl 5. nóvember. Sjö
hundar tóku þátt í keppninni. Dóm-
ari var Gunnar Einarsson, bóndi á
Daðastöðum.
Þegar fólki fækkar á búunum og
fé einnig er landareignin alltaf jafn
stór sem þarf að smala og er þá
nauðsynlegt að hafa góða hunda
sér til hjálpar. Fjárhundakeppni er
haldin í mörgum löndum. Hún er
eitthvað frábrugðin milli landa en
í grundvallaatriðum snýst hún um
það sama.
Hundategund sú sem mest er
notuð er í smalamennsku hér á landi
er „Border Collie". Það sem hundur-
inn á að kunna er að fara fram
fyrir kindur og stoppa þær koma
með þær til smalans og reka þær
frá honum.
Við verðlaunaafhendinguna
sagði Gunnar Einarsson að mikil
framför hefði orðið á hundunum frá
því í fyrra og bændur væru á réttri
leið með hundana sina og færi bráð-
um að verða hægt að fá skoska
dómara og þjálfara til að liðsinna
bændum. I þessari keppni er hund-
urinn látinn sækja kindur, koma
með þær til smalans og reka þær
í gegnum tvö hlið, stoppa þær og
róa niður og að lokum reka þær í
litla rétt sem smalinn hefur opnað.
Allir þátttakendurnir luku verkefn-
inu og flest stig hlaut Guðmundur
Kr. Guðmundsson á Kaðlastöðum
með hundinn sinn Sokka. í öðru og
þriðja sæti sæti voru hjónin á Hæli
í Flókadal, Harpa Reynisdóttir og
Jóhann P. Johnsson. Sigurvegarinn
frá því í fyrra Dagbjartur Dag-
bjartsson lenti í fjórða sæti.
LISTMDNAOPPBBD
8
Qunnlaugur ‘BlöndaC - ‘Uið Höfnina.
Á HÓTEL SÖGU í KVÖLD KL. 20.30.
MALVERK EFTIR GOMLU MEISTARANA,
t.d. Kjarval, Gunnlaug Blöndal, Jón Stefánsson, Ásgrím Jónsson, Þórarinn B.
Þorláksson, Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason og Mugg.
Einnig verða boðin upp ekta handimnin persnesk teppi.
Uppboðsverkin sýnd í dag kl. 12-18.
Ingálvur av Reyni opnar sýningu
í Gallerí Borg við AusturvöII
laugardaginn 11. nóvember kl. 16-18.
JZLllir velko
mnir
BORCi
við Austurvöll • SÍMI 552 4211.