Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 17
Fasanar, skógardúfur
og dádýrakjöt á
skoskum dögum
VILLIBRÁÐ eins og steiktir fasan-
ar, skógardúfur og hjartarkjöt eða
hefðbundinn þjóðarréttur Skota,
haggis, er meðal þess sem matar-
gestum Hótel Holts stendur til boða
þessa dagana.
Dagana 7.-12. nóvember standa
yfir skoskir dagar á Holtinu og af
því tilefni er staddur hér á landi
skoski matreiðslumeistarinn Steph-
en Johnson frá veitingahúsinu Butt-
ery í Glasgow. Hann er íslensku
matreiðslumönnunum á Hótel Holti
til halds og trausts.
„Það sem við erum að bjóða gest-
um upp á er ekki venjubundinn
skoskur heimilismatur heldur frek-
ar eitthvað sem gestum fínna
skoskra veitingahúsa stendur til
boða,“ segir Stephen Johnson, sem
var í óða önn að undirbúa mat fyr-
ir gesti kvöldsins þegar okkur bar
að garði. Hann segir að þó gefist
gestum kostur á að bragða haggis,
sem er þjóðarréttur Skota og að
uppistöðu úr nýrum, hjörtum og
öðrum innmat úr lambakjöti auk
ýmissa kryddtegunda. Eins og
slátrið okkar er rétturinn settur í
vömb og soðinn. Matargerð Skota
hefur breyst með nýjum lífsstíl,
báðir foreldrar vinna gjarnan úti
allan daginn og þá er gripið til fljót-
legrar fæðu í lok dagsins. Skyndi-
bitafæði hefur haldið innreið sína í
Skotlandi eins og hér á landi. Hefð-
bundnir réttir sem þó eru enn eldað-
ir af og til eru, auk haggis, til
dæmis svokölluð Shepherds-baka,
blóðbúðingur úr svínakjöti og hakk-
réttur með gulróturo og lauk sem
er hulinn með kartöflumús.
Þegar við föluðumst eftir upp-
skriftum handa lesendum var af
nógu að taka og Stephen mælti
með skosku kartöflukökunum sem
gjarnan eru hafðar í morgunmat,
og síðan stakk hann upp á laxa-
rétti og piparrótarsósu.
Þess má að lokum geta að auk
þess sem hægt er að snæða skosk-
an mat á Hótel Holti þessa dagana
stendur þar einnig yfir kynning á
skosku viskii.
Skoski matseðillinn stendur til
boða á Hótel Holti frá klukkan 19
til 22 fram á sunnudag og sömu
daga er viskíkynning frá 19-21.
Skoskar kartöflukökur
______500 g morðor kgrtöflur______
1 stór msk. smjör
'h bolli hveiti
krydd eftir smekk
Merjið kartöflurnar á meðan þær
eru heitar og blandið smjörinu vel
Morgunblaðið/Ásdis
STEPHEN Johnson matreiðslumeistari á veitingahúsinu Buttery
í Glasgow ásamt matreiðslumönnunum á Hótel Holti, þeim Ægi
Finnbogasyni og Hallgrími Inga Þorlákssyni.
saman við. Kryddið vel og hnoðið
með hveitinu. Fletjið kartöflukök-
urnar út í kringlóttar kökur og pikk-
ið þær með gaffli. Hitið pönnu,
penslið hana með smjöri og steikið
fjórar kökur í einu í um það bil
þijár mínútur á hvorri hlið. Haldið
kökunum heitum á meðan afgang-
urinn er steiktur. Berið fram með
smjöri.
Plparrótarsósa
4 góðor msk. rifin pipgrrót
___________4 tsk. sinnep__________
2 tsk. hvítt vínedik
1 tsk. sykur
____________7h bolli rjómi________
Blandið piparrót, sinnepi, ediki
og sykri saman (og öðru kryddi ef
vill). Þeytið rjómann vel og blandið
honum saman við piparrótina. Þessi
sósa er hefðbundin með skosku
nautakjöti en hentar einnig vel með
reyktum laxi.
Lax að hættl Skota
__________4 Iqxosneióar___________
____________örlítió smjör_________
krydd aó vild
Vibollar rjómi
______2 msk. Drambuie-líkjör______
Vi tsk. ansjósu-brqgðefni
krydd
Setjið laxinn í fat sem búið er
að smyija að innan með smjöri.
Kryddið sneiðarnar. Blandið tjóm-
anum saman við líkjörinn og ans-
jósu-bragðefnið. Hellið ijómanum
yfir silunginn. Þekið formið með
álpappír og bakið við 180°C þangað
til laxinn er soðinn. Berið fram með
agúrkusalati. ■
Nýjar pylsur
að dönskum
hætti
í VIKUNNI komu á markað nýjar
pylsur frá Sláturfélagi Suðurlands
svf., og eru þær framleiddar undir
vörumerkinu „Pölsemesteren". Um
er að ræða nýtt vörumerki hjá Slát-
urfélaginu en þetta er í fyrsta skipti
sem fyrirtækið framleiðir pylsur
eftir hefðbundinni danskri upp-
skrift.
í Filippo Berio-ólífuolíu eru 16,1%
mettaðar fítusýrur (hörð fita) en
ekki 26,1% eins og fram kom í töflu
með grein um fitu í matvælum 28.
Erlendir sérfræðingar í danskri
pylsugerð aðstoðuðu við þróun og
framleiðslu þessarar nýju vöru en
danskar pylsur eru almennt ein-
göngu úr svínakjöti og pylsurnar
frá Pölsemesteren eru í náttúru-
legri eggjahvítugörn.
Dönsku pylsurnar verða seldar 6
saman í pakka og kosta 698 krónur
kílóið.
október síðastliðinn. Þá misprentað-
ist einnig hlutfall einómettaðra fitu-
sýra í Kraft kornolíu og var sagt
24,5%, en er 24,9%.
Kompu-
kast í Kola-
portinu
NÆSTU þijár helgar verður lögð
sérstök áhersla á að fá seljendur
svokallaðs kompudóts í Kolaportið
og fá þeir sérstakt afsláttarverð á
sölubásum þessar helgar.
í frétt frá Kolaportinu segir að
kompudótið sé mjög vinsæl sölu-
vara í Kolaportinu og aldrei sé nóg
af því á boðstólum. Væntanlegum
seljendum er bent á að henda engu
því í Kolaportinu sannist rækilega
að eins manns drasl geti verið
annars manns fjársjóður.
Þá hefur sölutíma á laugardög-
um verið breytt þannig að Kolap-
ortið er opið frá kl. 11-17 eða á
sama tíma og á sunnudögum.
Fita í olíu
Flug og hótel
19.930
Viðbótarflug 27. og 30. nóvember.
Viðbótargisting á hinu ágæta ráðstefnuhóteli Earls Court, sem
við bjóðum nú á frábæru verði í þessa brottför. Gott hótel með
öllum aðbúnaði. Öll herbergi með sjónvarpi, síma, baði og
buxnapressu. Veitingasalir, barir og fundaaðstaða. Kynntu þér
borgaixispu Heimsferða til London, mestu heimsborgar Evrópu,
á. ótrúlega hagstæðu verði og íslenskir fararstjórar Heimsferða
tryggja þér ánægjulega dvöl í heimsborginni.
Verð 16.930 kr.
Verð með flugvallasköttum, 20. nóv.
Verð 19.930 kr.
M.v. 2 í herbergi, Earls Court, 3 nætur, 20. nóv.
Verð með flugvallasköttum.
Hvenær
er laust?
13. nóv. - 6sætil
16.nóv.~ uppselt
20. nóv,- 25 sæti)
23. nóv. - 29 sæti I
27. nóv.-laus sætif
30. nóv. - 31 sætí
HEIMSFF.RÐIR
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.