Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Morgunblaðið/Kristján
Boðið upp á tertu
GUÐMUNDUR VE kom með
rúm 800 tonn af loðnu til verk-
smiðjunnar í Krossanesi seint
í fyrrakvöld og var þetta jafn-
framt fyrsti loðnufarmurinn
sem berst til Akureyrar á
haustvertíðinni, eða í tæpa
fjóra mánuði.
Jóhann Pétur Andersen,
framkvæmdastjóri Krossa-
ness, brá sér um borð í Guð-
mund VE eftir að hann lagð-
ist að bryggju og færði áhöfn-
inni glæsilega rjómatertu,
sem Grímur Jón Grímsson,
skipstjóri tók við fyrir hönd
áhafnarinnar.
Sigurður VE kom með 950
tonn af loðnu í Krossanes um
miðjan dag í gær. Leiðinda-
veður var á miðunum og erf-
itt við loðnuna að eiga, sem
þykir líka frekar smá. Það
vantaði því ein 450 tonn upp
á að Sigurður VE kæmi með
fullfermi að landi.
Afkoman og úthöfjn
rædd á aðalfimdi LIU
Utvegurinn
kynntur
• Á VEGUM Samstarfsvettvangs
sjávarútvegs og iðnaðar, sem
starfræktur hefur verið frá 1. jan-
úar 1994, er. unnið að útgáfu á
sölumöppu fyrir vörur sem tengj-
ast sjávarútvegi, ásamt gátt á
Internetinu. Áætlað er að gagna-
söfnun fyrir fyrstu útgáfu ljúki
fyrir áramót 1995-96 og prentun
og uppsetningu á Internetinu ljúki
u.þ.b. mánuði síðar.
„Þetta er verkefni sem við vinn-
um að með Samstarfsvettvangi
sjávarútvegs og iðnaðar,“ segir
Hermann Ottósson hjá Auglýs-
ingastofu Reykjavíkur, íslands-
gáttinni. „Okkar verkefni felst í
því að koma upplýsingum um ís-
lenskan sjávarútveg, fyrirtæki í
sjávarútvegi og þjónustuaðila við
sjávarútveg á framfæri á Int-
ernetinu.
Við höfum sett upp gátt undir
íslandsgáttinni, sem heitir Fish
Industry Net, en það mun reyndar
vera fyrsta gáttin á Internetinu
sem fjallar sérstaklega um sjávar-
útveg og þjónustu við sjávarút-
veginn. Þarna er í raun verið að
skapa heildstæðan kynningar-
vettvang fyrir íslenskan sjávarút-
veg og fyrirtæki sem tengjast
honum á Internetinu."
Samhliða því sem þessar upp-
lýsingar verða sendar út á Inter-
netinu, verða þær gefnar út í
vöru- og þjónustuskrá sem mun
fá víðtæka dreifingu. Verklok í
þessum tveim verkefnum eru fyr-
irhuguð 1. febrúar 1996.
Auktu framleiðnina
með
L > " ..
INTERROLL
' joKi
Færibanda- S
S 5.
mótorar, I
flutningsrúllur,
flutningskerfi,
lagerkerfi.
Viðurkennd gæðavaro.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SEUAVEGI 2 SÍMI 562 4260
AÐALFUNDUR LÍÚ verður hald-
inn í dag og á morgun. Helzta við-
fansgefni fundarins auk hefðbund-
inna aðalfundarstarfa, verður veiða
rá úthöfunum, afkoma og afkomu-
horfur sjávarútvegsins, afrán hvala,
sjálfvirk tilkynningaskylda og nýt-
ing takmarkaðarar auðlindar.
Fundurinn verður haldinn á Hót-
el Sögu og hefst hann klukkan
14.00 í dag með ræðu Kristjáns
Ragnarssonar, formanns LIÚ. Þá
ávarpar sjávarútvegsráðherra, Þor-
steinn Pálsson, fundinn, og erindi
um helztu malefni fundarins verða
flutt: Helgi Ágústsson, ráðuneytis-
stjóri íjallar um áhrif úthafsveiði-
samnings Sameinuðu þjóðanna á
íslenzka útgerðarhagsmuni; Sveinn
Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur
LIÚ kynnir afkomu og afkomuhorf-
ur sjávarútvegsins, Jóhann Sigur-
jónsson, aðstoðarforstjóri Hafrann-
sóknastofnunar ræðir um afrán
hvala og áhrif þeirra á aðra nytja-
stofna og Jón Leví Hilmarsson,
verkfræðingur hjá Vita- og hafnar-
málastofnun, kynnir sjálfvirka til-
kynningaskyldu.
Á föstudeginum fara umræðu-
hópar yfir þijá helztu málaflokka
aðalfundarins og gera síðan grein
fyrir störfum sínum. Þá ávarpar
samgönguráðherra Halldór Blöndal
fundarmenn, en fundi lýkur með
samþykktum nefndarálita og
stjórnarkjöri.
D/VEWOO
örbylgjuofnar
10 gerðir - verð við allra hæfi.
Ofnarnir fást með venjulegum
stillingum, tölvustillingum, grilli og
blæstri. 19-32 lítra.
Við bjóðum úrvals ofna og þjónustu sem
þér býðst hvergi annarstaðar!
Þér stendur til boða kvöldnámskeið í
Matreiðsluskóla Drafnar þar sem þú
lærir að matreiða grænmeti, steikja kjöt,
sjóða fisk, baka, búa til sultur og margt,
margt fleira. Þú færð leiðbeiningar og
uppskriftir án endurgjalds.
Kynntu þér Daewoo og þjónustu
okkar!
Einar
Farestveit&Colif
Borgartúni 28, símar 562-2901 og 562-2900.
FRÉTTIR: EVRÓPA
Skipasmíðastyrkj-
um haldið áfram
IÐNAÐARRÁÐHERRAR ríkja
Evrópusambandsins samþykktu á
þriðjudag að framlengja um níu
mánuði gildistíma tilskipunar sam-
bandsins um styrki til skipasmíða.
Tilskipunin átti að falla úr gildi
um áramót, um leið og samkomu-
lag á vegum OECD, um að hætta
ölum beinum styrkjum til skipa-
smíða, tæki gildi. Nú liggur hins
vegar fyrir að Japan og Bandarík-
in hafa ekki staðfest OECD-sam-
komulagið og mun ESB því fram-
lengja skipasmíðastyrki sína til 1.
október 1996.
Að sögn Reufers-fréttastofunnar
er ákvörðun ráðherranna ekki end-
anleg, þar sem þeir þurfa að leita
álits Evrópuþingsins. Reglurnar,
sem þeir hafa ákveðið að fram-
lengja, kveða á um að leyfa megi
styrki til smíði skips, sem nema
allt að 9% af andvirði þess.
Mörg ríki ESB voru treg til að
afnema skipasmíðastyrkina einhliða
um áramót, ef önnur iðnríki gerðu
ekki slíkt hið sama.
Framkvæmdastjórn sambandsins
vildi framlengja reglurnar um heilt
ár. Svíþjóð vildi hins vegar enga
framlengingu, Þýzkaland fjóra
mánuði og Bretar hálft ár. Niður-
Hægrimenn
þinga í
Madríd
JOSÉ Maria Aznar, leiðtogi
spænskra íhaldsmanna, veifar til
mannfjöldans á samkomu, sem
Evrópski alþýðuflokkurinn, þing-
flokkur hægrimanna á Evrópu-
þinginu, hélt í Madríd fyrr í vik-
unni. Flokkar kristilegra demó-
krata og íhaldsmanna í Evrópu-
ríkjum ræddu undirbúning ríkja-
ráðstefnu Evrópusambandsins.
Flokkarnir lögðu áherzlu á að
styrkja sameiginlegar varnir.
„Évrópusambandið verður aldrei
stórveldi nema það búi sig í stakk
til þess,“ sagði Wilfried Martens,
formaður Evrópska alþýðu-
flokksins. Á meðal tillagna í
skýrslu Danans Hans-Gert Pott-
ering, sem lögð var fyrir fundinn,
er að taka ákvarðanir um utanrík-
is- og vamarmál í ráðherraráði
ESB með auknum meirihluta í
stað einróma samþykkis.
staðan varð málamiðlun milli mis-
munandi sjónarmiða.
Skipasmíðatilskipun ESB var
tekin upp í samninginn um Evr-
ópskt efnahagssvæði fyrr á þessu
ári. Á grundvelli hennar voru settar
íslenzkar reglur um að niðurgreiða
megi skipasmíðar, sem samið er um
á árinu 1995, að því tilskildu að
smíði heljist fyrir 1. apríl 1996.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, hefur
ekki verið ákveðið í iðnaðarráðu-
neytinu hvort brugðizt verði við
ákvörðun ESB og reglur um ís-
lenzku niðurgreiðslurnar eða „jöfn-
unargreiðslurnar" eins og þær eru
kallaðar, verði framlengdar.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er talið að svokallað jafnræðisá-
kvæði tilskipunar ESB, sem kveður
á um að aðildarríki samningsins
geti krafizt lækkunar styrkja til
skipasmíðaverkefnis, séu þeir hærri
í samkeppnislandi en heima fyrir,
dragi úr þörfinni á að gildistími
reglnanna verði framlengdur. Talið
er að þetta ákvæði, sem Eftirlits-
stofnun EFTA sér um að fram-
fylgja. geti styrkt stöðu íslenzks
skipasmíðaiðnaðar í samkeppni við
þann norska.
Sænskir heildsalar
mótmæla undirboðs-
ákvæðum ESB
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SÆNSKU heildsalasamtökin hafa
borið upp mótmæli við sænsku
stjórnina um undirboðsákvæði Evr-
ópusambandsins (ESB). Samtökin
segja að þessi ákvæði hækki vöru-
verð óeðlilega, auk þess sem að í
mörgum tilfellum sé ekki um undir-
boð að ræða að sögn Svenska Dag-
bladet.
ESB safnar upplýsingum um fyr-
irtæki, sem flytja vörur til aðildar-
landanna, þar sem grunur er á að
um undirboð sé að ræða til að koll-
sigla fýrirtæki innan ESB. í sam-
ræmi við þetta eru aðildarlöndin
skylduð til að leggja tolla á viðkom-
andi vörur til að vernda framleiðslu
aðildarlandanna. Sjötíu vörur eru á
listanum og þijátíu aðrar eru í at-
hugun. Tollarnir, sem lagðir eru á,
eru á bilinu 5-100%, en algengast
er að þeir séu 20-40%.
Sænsku heildsalasamtökin segja
að þessi ákvæði hafi á einni nóttu
valdið því að verð á þessum vörum
hafi hækkað á sænskum markaði
við inngönguna í ESB. Sænskir
embættismenn hafa reynt að hafa
áhrif á þessi ákvæði í þeirri nefnd
sambandsins, sem fylgist með und-
irboðum, en hingað til árangurs-
laust.
Sænska fyrirtækið Esselte, sem
framleiðir meðal annars plastmöpp-
ur, á nú á hættu að verða fyrir
barðinu á verndartollunum. Fyrir-
tækið er með verksmiðju í Malasíu
og eru möppur þaðan mun ódýrari
en evrópskar möppur. Forsvars-
menn fyrirtækisins segja muninn
eingöngu stafa af lágum fram-
leiðslukostnaði eystra, en ekki af
undirboðum. Óánægja sænsku
heildsalasamtakanna stafar fyrst
og fremst af því að evrópsku
ákvæðin eru sett án þess að nægi-
lega sé hugað að hvernig á verð-
muninum standi og hvort raunveru-
lega sé um undirboð að ræða.