Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Hanna Dóra Sturludóttir sópransöngkona Hlutskörpust í ljóða- keppni í Þýskalandi HANNA Dóra Sturludótt- ir sópransöngkona varð á dögunum hlutskörpust í ljóðakeppni Paulu-Lind- berg Salomon, Das Lied, í Þýskalandi. Hlaut hún önnur verðlaun en fyrstu verðlaunin voru ekki veitt að þessu sinni. Keppnin heitir í höfuðið á 98 ára gamalli söng- konu, Páulu-Lindberg Salomon, sem stendur sjálf straum af keppninni. „Markmið hennar er öðru fremur að ýta undir að ljóðasöngur sé ræktaður," segir Hanna Dóra og bæt- ir við að keppnin sé haldin Hanna Dóra Sturludóttir árlega og dóm- nefndin sé einatt skipuð virtum söngvurum. 25 ljóðasöngvarar mættu til leiks í þetta skipti og er það metþátttaka. Söngkonan er að vonum ánægð með árangurinn og segir að þessi viðurkenn- ing sé góð auglýs- ing fyrir sig. „Það er mjög mikilvægt að skapa sér nafn í þessu fagi og von- andi eiga þeir sem voru að hlusta á mig í fyrsta skipti í keppninni eftir að fylgjast betur með mér þegar þeir heyra í mér næst.“ Hanna Dóra lauk 8. stigi úr Söngskólanum í Reykjavík vorið 1992 með hæstu einkunn sem þar hefur verið gefin og hefur síðan lagt stund á framhaldsnám við Hochschule der Kunste í Berlín. Gerir hún ráð fyrir að brautskrást þaðan árið 1997. Hanna Dóra hefur átt góðu gengi að fagna síðasta kastið því fyrr á árinu hlaut hún þriðju verðlaun í virtri söngkeppni í Barcelona. Þá söng hún nýverið í beinni útsend- ingu í útvarpi í Þýskalandi. Á efnis- skránni voru meðal annars lög eftir íslensk tónskáld. HÁ: - Morgunblaðið/Ásdís Yeíslan í barnavagninum ÍSLENSKU barnabókaverðlaun- in fyrir myndskreytta sögu fyrir yngstu lesendurna voru afhent í gær. Verðlaunin hlutu þær Her- dís Egilsdóttir rithöfundur og Erla Sigurðardóttir myndlistar- kona fyrir söguna, Veislan í barnavagninum. Olafur Ragn- arsson, formaður stjórnar Verð- Iaunasjóðs, afhenti Herdísi og Erlu skrautritað viðurkenning- arskjal en þar segir um bókina: „Veislan í barnavagninum er hugljúf en um leið hressileg bar- nasaga þar sem samspil mynda og texta er eins og best verður á kosið. Söguþráðurinn er snið- inn að áh'uga og þroska yngstu lesendanna og myndirnar eru unnar af fagmennsku. Hvort tveggja ber jafnframt með sér persónulegan stíl höfunda." Verk eftir Guðmund. Myndlist í 200 króna verslun GUÐMUNDUR Björn Sveinsson hefur opnað myndlistarsýningu að Laugavegi 103 (í 200 króna versl- uninni). Guðmundur er fæddur 1930 í Neskaupstað. Hann lauk námi í Handíðaskólanum 1962. Undan- farna áratugi hefur Guðmundur verið búsettur erlendis og hefur haldið sýningar á íslandi, í Svíþjóð, Kanada og Bandaríkjunum. Viðar Eggertsson í hlutverki vampýrunnar Drakúla greifa. Sýningum á Drakúla að ljúka NÚ FER hver að verða síðastur að sjá sýningu Leikfélags Akureyrar á leikgerð írska leikstjórans Michaels Scott á sögu landa hans Bram Stok- er um vampýruna frægu, Drakúla greifa. Vegna umfangs næsta verkefnis Leikfélags Akureyrar, sem er Spor- vagninn Girnd eftir Tennesse Will- iams, verður sýningum nú að ljúka. Síðustu sýningar verða laugar- daginn 11. nóvember og laugardag- inn 18. nóvember. SKAGFIRSKA söngsveitin og Söngsveitin Drangey. Afmælistónleikar í Langholtskirkju SKAGFIRSKA söngsveitin í Reykjavík er 25 ára um þessar mundir og verða af því tilefni haldnir afmæl- istónleikar í Langholtskirkju laugardaginn 11. nóv- ember og hefjast þeir kl. 17. Þar koma fram Skag- firska söngsveitin og Söngsveitin Drangey. Á söng- dagskránni verða eingöngu flutt lög eftir skagfirska höfunda og eru það þeir Pétur Sigurðsson, Eyþór Stefánsson, Jón Björnsson, Geirmundur Valtýsson og Kristján Stefánsson. Auk kóranna koma fram sex einsöngvarar, sem allir eru ættaðir úr Skagafirði, en þeir eru: Ásgeir Eiríksson, Friðbjörn G. Jónsson, Guðmundur Sigurðsson, Helga Rós Indriðadóttir, Margrét Stefánsdóttir og Óskar Pétursson. Snæbjörg Snæbjamardóttir stjórnaði Skagfirsku söngsveitinni frá stofnun eða frá árinu 1970, í 13 ár, en þá tók Björgvin Þ. Valdimarsson við og hefur stjórnað síðan eða í 12 ár. Söngsveitin Drang- ey var stofnuð 1985 og er því 10 ára um þessar mundir, en það er kór sem stofnaður var af eldri félögum Söngsveitarinnar. Fyrstu árin stjórnaði Björgvin báðum kórunum en síðan 1991 hefur Snæ- björg Snæbjarnardóttir stjórnað Söngsveitinni Drangey. Undirleikari á tónleikunum er Vilhelmína Ólafsdóttir. Uppmagnað hljóðumhverfi TONOST Borgarlcikhúsið KAMMERTÓNLEIKAR Caput-hópurinn flutti kammerverk eftir Hans Abrahamsen, Bent Sör- ensen, Hauk Tómasson, Magnús Lindberg, Jukka Koskinen og Ricc- ardo Nova. Þriðjudagurinn, 7. nóvember, 1995. CAPUT-hópurinn hefur ávallt lagt áherslu á flutning nútímatón- listar og unnið til nafns erlendis og sl. vor hlaut hópurinn menningar- verðlaun DV. Tónleikamir að þessu sinni hófust á verki eftir danska tónskáldið Hans Abrahamsen. Verkið er unnið upp úr þremur smáverkum fyrir píanó, eftir Carl Nielsen. Sú aðferð að umrita píanó- verk fyrir hljómsveit er aðferð sem gjarnan er notuð við kennslu í hljóð- færafræði (Instrumentation) og eru slíkar „stúdíur" eða umritanir aldr- ei fluttar opinberlega. Það verður þó að segja um þessa umritun, að Abrahamsen fer nokkuð frjálslega með efni fyrirmyndarinnar og er verkið ekki óskemmtilega unnið, þannig að að hluta til er verkið eftir Abrahamsen, þó sjá megi skuggann af meistara Nielsen og jafnvel oftlega mjög greinilegan. Annað viðfangsefni tónleikanna var verk eftir Bent Sörensen, sem hann nefnir Minnelieder. Man- söngvar þessir eru kaótískt unnir, þar sem alls konar tónferli og stef- brot mynda samfelldan tónbálk, er tekur samt samvirkum breytingum í hraða og styrk. Þrátt fyrir ósam- stætt ferli raddanna, heyrast ein- staka stef hér og þar í tón-niðinum og getur verið býsna skemmtilegt að fylgjast með þessum stefjum, sem eru eins konar felumyndir i flæktri myndgerð verksins. í heild er verkið þó helst til sérviskulegt en býsna áheyrilegt tón-púsluspil. Þriðja verkið nefnist Árhringur og er eftir Hauk Tómasson og er það unnið upp úr verki, sem Hauk- ur samdi fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Það er eitthvað „músíkantískt" við öll verk Hauks. Músíkleg framvinda þeirra er meira en „strúktúr", þrátt fyrir að þau séu vandvirknislega unnin. Árhringur er vel unnið verk, þar sem bregður fyrir mjög ákveðinni tematík og jafnvel á köflum þrá- stefjun í oftlega mjög þykkum tón- vef, er á stundum tók á sig kaó- tíska mynd án þess þó að vera til- vihunarkennd. Undir lokin varð hfynræn samvirkni hljóðfæranna nokkuð áberandi. Þetta er gott verk, vel unnið og fullt upp með skemmtilegum tóntilþrifum. Coyote Blues eftir Magnús Lind- berg er undir áhrifum af jazzi og jafnvel bregður þar fyrir nokkrum atriðum er minna á Sögu hermanns- ins og jafnvel Vorblót eftir Strav- inskíj. Þetta er ágætt verk en blátt áfram og auðheyrt. Næstsíðasta verkið á efnisskránni var Ululation, sem mun merkja ýlfur (Ululate = ýlfra, góla, spangóla og kvarta há- stöfum), eftir finnska tónskáldið Jukka Koskinen. Ýlfur er eitt þeirra tónverka, sem fær hlustendur til að staldra við og hugleiða markmið- in með sköpun listaverka, nema að slíkum markmiðum sé í raun hafn- að. Ljóð á aðeins að vera, en ekki merkja eitthvað, var slagorð ný- listamanna fyrir hálfri öld en þrátt fyrir að merking tónmálsins sé mjög greinileg, þ. e. að reynt er að líkja eftir ýlfri, vaknar sú spurning, hvort önnur markmið í listsköpun, er taka til tilfinninga, fagurmats og boð- skaps, eigi hér ekki við og skilaboð- in eða boðskapurinn, sem Koskinen er að flytja hlustendum sínum, séu þau, að allt listbaslið sé í raun ekk- ert annað en argasta ýlfur. Þarna tekur tónskáldið sér stöðu með svip- uðum hætti og þeir sem telja samfé- lag manna mettað af siðlausri hræsni og hafa þar af leiðandi að Sigurbjörn biskup velur ljóð dagsins MEÐAL útgáfubóka hjá Setbergi fyrir jólin er Ljóð dagsins, en efnið er valið af Sigurbirni Einarssyni biskupi. í bókinni eru mörg hundruð ljóð eftir 93 íslensk skáld, eitt ljóð fyrir hvern dag ársins og að auki eru orð til íhugunar á hverri síðu. Lát hjartað ráða för er ný skáld- saga eftir ítalskan rithöfund, Sús- önnu Tamaro. Thor Vilhjálmsson þýðir. Bókin hefur komið út á fjölda tungumála og er mjög umtöluð víða. Bókin um Pétur sjómann eftir Ásgeir Jakobsson er ævisaga Péturs Sigurðssonar, sjómanns, alþing- ismanns og forstjóra Hrafnistu. Setberg gefur einnig út bókina Fimm læknar segja frá. í bókinni ræðir Önundur Bjömsson við Árna Björnsson, Björn Önundarson, Hrafnkel Helgason, Pétur Pétursson og Þorgeir Gestsson. Meðal annarra bóka Setbergs eru handbók um ljós- myndun, skáldsaga eftir Danielle Steel og barna- og unglingabækur. engu lög og reglur. Þrátt fyrir þetta er verkið byggt á formúleraðri hug- mynd, og hlustun á það er eins og að vera staddur í húsi fáránleikans, þar sem inn um undarlega gluggana berst skin urðarmánans og ýlfrandi svipsljóar verur sveima hægferðugt um húsið. Ekkert skeður og allt er án tengsla en á þó samvist í tíma- lausum fáránléikanum, er án upp- hafs, tilgangs eða endis, er aðeins undarlega líðandi, af engu til orðin og hverfur í sitt eigið - ekkert. Tónleikunum lauk með Parafrasi II, eftir ítalska tónskáldið Riccardo Nova, ágætt verk sem byggist mik- ið á einföldum trommuleik og ,jazz- ískum“ tóntiltektum. í heild voru tónleikamir mjög vel framfærðir af Caput-hópnum, sem var óvenju fjölmennur að þessu sinni. Það sem þó hafði hvað mest áhrif á hljóm- gæðin, var að beitt var hljóðnáms- tækni, þar sem upptökunni var varpað fram úr hátölurum, sem staðsettir voru fyrir aftan hljóm- sveitina og verkuðu eins og sterkt endurómandi umhverfi. Þetta létti undir með hljóðfæraleikurunum og tónuninni, svo að flutningurinn öðl- aðist mikla dýpt og skýrleika. Hvort þetta er það sem koma skal, skal ósagt látið en við flutning á nútíma- tónlist gefur þetta henni þann tæknilega blæ, sem hæfir deginum í dag og viðhorfum manna til hljóðs- ins, eins og gerist í nærri allri skemmtitónlist leikinni í dag, fyrir fólk sem er umvafið .gerviblómum plastskrauti, neonljósum og upp- mögnuðu hljóðumhverfí. Jón Ásgeirsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.