Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLUN
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 29
sig á íslenskan mælikvarða.
Venjulega er það 12 síður á dag
í stóru broti, en á laugardögum
er það gefið út í sama broti og
Morgunblaðið og þá 48 síður. Þá
hefur verið bætt við blaðaukum,
til dæmis sérstökum blaðauka um
Moskvu, um menningu og íþróttir
sem fylgja blaðinu einu sinni í
viku. Litprentun er lítil, nema þá
helst í laugardagsblaðinu.
Undarleg lögmál gilda um
áskriftar- og útsöluverð blaða í
Rússlandi. Sex mánaða áskrift af
Komsomolskaja Pravda kostar til
dæmis nú 140 þúsund rúblur eða
tæpar 2.000 íslenskar krónur, sem
er mikið þegar tekið er tillit til
þess að meðallaun eru um 450-600
þúsund rúblur á mánuði. En þegar
komið er út fyrir Moskvu er verð-
ið allt annað og yfirleitt lægra,
allt niður í 56 þúsund rúblur.
Ástæðan er sú að póstmeisturum
viðkomandi svæða er í sjálfsvald
sett hvað þeir setja upp fyrir að
beya blaðið út.
Lausasöluverðið er einnig mis-
munandi. í Rússlandi hefur ríkt
óðaverðbólga og verð á dagblöðum
eins og öðru hefur breyst nær
daglega. Blaðasölufólk kemur að
prentsmiðjunni og kaupir eintök á
verði dagsins sem í októbérbyijun
var um 600 rúblur eða um 9 krón-
ur. Síðan eru blöðin seld á götum
Moskvu á t.d. 7-800 rúblur.
Greitt eftir
afköstum
Það vinna um 100 blaðamenn
á Komsomolskaja Pravda en
Dolgopolov segir að um 40 blaða-
menn skrifi blaðið. Grunnlaun
blaðamanna eru ekki há en dug-
legir blaðamenn hafa ýmsa mögu-
leika til að auka tekjur sínar. Á
Komsomolskaja Pravda fá blaða-
menn til dæmis greitt eftir afköst-
um; eftir því sem þeir skrifa meira
fá þeir hærri laun. Að auki fá 10
blaðamenn í mánuði sérstaka
uppbót fyrir gæði skrifanna og
loks utanlandsferðir á kostnað
blaðsins. Þegar allt er talið munu
laun hæst iaunuðu blaðamann-
anna vera býsna há.
Dolgopolov viðurkennir að
reynt hafi verið að múta blaða-
mönnum blaðsins til að birta vil-
hallar upplýsingar en það sé von-
andi liðin tíð, enda sé strangt eft-
irlit með slíku á blaðinu.
Það er hins vegar er löglegt
að birta áróðursgreinar í rúss-
neskum blöðum ef þær eru sér-
staklega merktar. Það er greitt
fyrir þær eins og auglýsingar en
heilsíðu auglýsing i Komso-
molskaja Pravda kostar 27 þús-
und bandaríkjadali, eða um 1,8
milljónir króna. Blaðamenn hafa
gjarnan milligöngu um birtingu
slíkra áróðursgreina enda fá þeir
þá prósentur af söluverðinu; 5%
ef þeir eru milligöngumenn og
2,5% til viðbótar ef þeir skrifa
greinina sjálfir. Því er eðlilegt að
blaðamenn sæki þetta fast og
stjórnendur blaðsins hvetja blaða-
menn sína einnig til þessa, þar
sem þetta aflar blaðinu fjár.
Zhírínovskíj í banni
Dolgopolov segir þó, að stjórn
útgáfufyrirtækisins hafi ákveðið
að birta ekki greinar frá tveimur
stjórnmálaflokkum í Rússlandi,
Kommúnistaflokki Gennadíjs
Zjúganovs og Fijálsa demókrata-
flokki Vladimírs Zhírínovskíjs.
Dolgopolov sagði að í upphafi
kosningabaráttunnar fyrir vænt-
anlegar þingkosningar í desem-
ber, hefði fulltrúi Zhírínovskíjs
gert blaðinu tilboð um að birta
sex heilsíðu áróðursgreinar fyrir
kosningarnar og greiða fyrir þær
tvöfalt verð í beinhörðum pening-
um. Þegar blaðið færðist undan
hafi menn Zhírínowskíjs verið til-
búnir að borga meira. „Þá veittum
við okkur þá ánægju að segja að
við tækjum ekki við einni einustu
rúblu frá þeim,“ sagði Dolgop-
olov.
Sprangað
HÆGT er að finna nokkur rúss-
nesk blöð á veraldarvefnum en
sá böggull fylgir skammrifi að
þau eru flest á rússnesku.
Þó er St. Petersburg Press
gefið út á ensku á vefnum og
aðgangur er ókeypis. Slóðin er
http://www.spb.su/supress/.
Eins og nafnið bendir til er blað-
ið gefið út í Pétursborg og kem-
ur út vikulega á vefnum.
Annað blað á ensku er The
Moscow News. Það er ekki gefið
út á veraldarvefnum en hægt er
að fá fréttabréf sent með tölvu-
pósti en blaðið hefur netfangið
mosnexsovam.com.
Af blöðum og fréttabréfum á
um vefinn
rússnesku má nefna Analytica
Moscow, sem hægt er að fá sent
með tölvupósti. Pöntunarnet-
fangið er farzinunixg.ubc.ca.
Verðið er 100 bandaríkjadalir á
ári, eða um 6.500 krónur. Frétta-
bréfið birtir vikulega greinar og
fréttir úr um 30 rússneskum dag-
blöðum og tímaritum.
Þá er dagblaðið Izvestíja gefið
út á rússnesku á veraldarvefnum
daglega (http://www.onl-
ine.ru/mlists/izvestia/izvesti-
a/izvestia/). Einnig er gefið út
rússneskt viðskiptablað á vefn-
um, European Business Contact,
(http://www.spb.Su/ebc/index.h-
tml) en það er einnig á rússnesku.
Vegna jjöltla eftirspurna tókst
okkur að útvega aðra sendingu
af hinum vinsæla undra brjósta-
haldara í svörtu og hvítu.
Pantanir óskast sóttar.
Fjöldi annarra tilboða igangi.
Póstsendum
Aðeinsfcr. 1.480
VERSLUNIN
EG&ÞU
Laugavegi 66, sími 551-2211.
- kjarni málsins!
LBOÐ
A myndarlegu Novembertilboði Japis færð þú geisladiska með
þinni uppáhaldstónlist með 20% afslátti.