Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
AÐSEIMDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Hættumat
vegna snjóflóða
FÁTT er ofar í hug-
um íslendinga þessa
dagana en þær hörm-
ungar sem snjóflóðin í
Súðavík í janúar sl. og
á Flateyri nú í október
hafa leitt yfir íbúa þess-
ara staða og Vestfirði
alla.
Höfundur þessara
hugleiðinga er fæddur
á Vestfjörðum, í Bol-
ungarvík eins og móðir-
in, en faðirinn er frá
Súðavík. Um tíma ólst
höfundur upp á Siglu-
firði. Þessi bakgrunnur
kann að vera skýring á
því hvers vegna hugur-
inn hefur beinst að því
hvemig staðið hefur verið að hættu-
mati á snjóflóðasvæðum og hvernig
hugsanlega megi bæta það mat.
Höfundur hefur hugsað um þetta
sem leikmaður, eðlisfræðingur og
rekstrarhagfræðingur með nokkra
reynslu í gerð tölvulíkana. Eftir snjó-
flóðið í Súðavík voru hugmyndirnar
ræddar við vinnufélaga í kaffitímum
og matartímum, en nú eiga þær ef
til vill erindi inn í þá umræðu sem
fer fram um endurskoðun á hættu-
mati vegna snjóflóða.
Svo virðist sem það hættumat sem
hefur verið unnið til þessa hafí fyrst
og fremst litið til þriggja þátta: 1.
Sögulegra heimilda um snjóflóð á
svæðinu. 2. Landslags og staðhátta
í viðkomandi fjalli. 3. Ástands snjóa-
laga og innri samloðunar og styrks
þeirra. Á grunni þessara upplýsinga
hefur verið útbúið mat fyrir hvern
stað þar sem þekkt snjóflóðasvæði
eru merkt rauð svæði, en fyrir utan
er skilgreint gult hættusvæði þar
sem áhættan er nokkur, en þó mun
minni.
Höfundur telur að taka þurfi
Qórða þáttinn mun meira inn í mynd-
ina. Þar er átt við veður, hitastig,
úrkomu og síðast en ekki síst vind-
hraða. Eftir veðri mætti skilgreina
þijú hættustig, sem verða skýrð
betur síðar:
1. Hættustig. Hætta á hægfara
vatns-, krapa- og snjóflóðum.
2. Hættustig. Hætta á hraðfara
þurrum snjóflóðum.
3. Hættustig. Hætta á þurrum
hraðfara snjóflóðum samfara mikl-
um vindi í sömu stefnu og snjóflóðið.
Snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri
urðu við aðstæður sem flokka má
undir 3. hættustig.
1. Hættustig
Flestir geta gert sér í hugarlund
þau snjóflóð sem falla á fyrsta
hættustigi. Þeim má líkja við vatns-
flóð og aurskriður. Þau eru knúin
áfram af þyngdaraflinu einu saman
og farvegur þeirra ræðst af því
landslagi sem þau renna eftir. Hætt-
an er mest við þekkta farvegi, sam-
anber snjóflóðið á Patreksfirði á sín-
um tíma. Eyðileggingarmátturinn
er fólginn í miklum þunga og tiltölu-
lega mikilli eðlisþyngd snævarins,
fremur en hraðanum sem hann ferð-
ast með. Þau hafa svipuð áhrif og
risastór, óstöðvandi jarðýta með
fulla tönn af snjó. Tiltölulega auð-
velt ætti að vera að afmarka þau
svæði sem eru í hættu á fyrsta
hættustigi. Jafnvel þó mörkin yrðu
nokkuð rúm, þá eru þessi svæði
væntanlega aðeins hluti þeirra
svæða sem nú eru skilgreind sem
snjóflóðahættusvæði. Tiltölulega
einfalt er að útbúa varnarmannvirki
(garða sem beina flóðinu í tiltekinn
farveg eða stöðva það) og þannig
takmarka enn frekar þau svæði sem
eru í hættu á 1. hættustigi. Þetta
hættustig er algengast í leysingum.
2. Hættustig
Það er frost ög verulegur laus
snjór í fjallshlíðinni. Hengja hefur
myndast efst í bröttu 400-800 m
háu fjallinu. Þunginn er orðinn meiri
en innri styrkur hengjunnar þolir.
Hún brestur og leggur
af stað niður hlíðina. Á
leiðinni hrífur hún með
sér lausan snjóinn sem
bætist við þann snjó-
massa sem rennur nið-
ur hiíðina. Aukinn
massi eykur hröðunina
þar sem viðnámið í
snjónum sem skriðan
hrifsar með sér verður
hlutfallslega minna og
ennfremur minnka
hlutfallslega áhrifin af
loftviðnámi. Með enn
auknum hraða verður
loftviðnámið þó veru-
legt þar sem snjó-
hengjan hefur hrist í
sundur í öreindir sínar
og orðið að snjóskýi sem líkist frem-
ur lofti mettuðu snjókornum, en snjó
mettuðum lofti. Snjóskýið steypist
niður hlíðina.
Ögurstund er upprunnin. Ef
landslagið í hlíðinni er þannig að
Ef þessar hugleiðingar
um áhrif veðurfars og
víndstyrks eru réttar,
segir Gunnlaugur H.
Jónsson, er ekki nóg
að tala um rauð og gul
hættusvæði.
snjóskýið dreifist um hlíðina, og þar
með orkan í flóðinu, verður hraði
flóðsins ekki mjög mikill. Núnings-
kraftar við undirlagið, lausan snjóinn
sem er í veginum og við loftið, verða
fljótlega í jafnvægi við þyngdaraflið.
Snjóskýið rennur niður mesta bratt-
ann og stoppar fljótlega þegar dreg-
ur úr hallanum. Ef landslagið virkar
á hinn bóginn eins og safnlinsa, sem
þjappar snjóskýinu saman, sbr.
Skollahvilft, þá heldur það áfram
að safna í sig massa og auka hrað-
ann. Hraðinn er nú orðinn það mik-
ill og snjóskýið svo þykkt að misfell-
ur í landslagi (minni hæð en 5-10
m) hafa ekki áhrif á stefnu flóðsins.
Það rennur því undan hallanum án
tillits til lækjarfarvega. Skapast hafa
skilyrði fyrir hættustigi 2. Snjóskýið
rennur niður hlíðina í stefnu mesta
halla og stoppar ekki fyrr en á til-
tölulega sléttu landi. Áhrif af þessu
flóði á hús eru lík áhrifum fellibylja
eða sprengju. Þau eru þó mun hættu-
legri en fellibyljir þar sem þykkt
snjólag verður. eftir þar sem skýið
stoppar, samanbarið líkt og eftir
skafrenning. Þeir sem í því lenda
óvarðir eiga sér ekki langa lífsvon
án hjálpar.
3. Hættustig
Ef til viðbótar við þær aðstæður
sem ríkja á hættustigi 2 bætist
sterkur vindur í flóðstefnu (vindur
stendur af fjalli) þá hafa skapast
aðstæður fyrir hættustig 3. Eins og
áður var getið er núningskrafturinn
við loft einn þáttur í eðlisfræði snjó-
flóða. Það vill svo til að ísland, eða
í það minnsta hluti þess, er einhver
mesti rokrass á byggðu bóli. Vindur
sem er yfir 10 vindstig hefur mikil
áhrif á þurr hraðfara snjóflóð. Ef
vindurinn er í stefnu beint niður hlíð-
ina þá minnkar loftmótstaðan veru-
lega og hraði snjóskýsins verður að
sama skapi meiri. Flóðið rennur
lengra en ella, það rífur upp meiri
snjó en ella og tapar minni snjó þar
sem vindurinn sér til þess að skottið
á snjóskýinu situr ekki eftir heldur
fylgir í kjölfarið. Hér er för snjóskýs-
ins líkt við halastjömu. Að öllu sam-
anlögðu verður orka þess og eyðing-
armáttur mun meiri en í logni eða
mótvindi. í þessu samhengi þarf að
hafa í huga að farvegur snjóflóða
getur orðið 2.000-3.000 metra lang-
ur. Tiltölulega lítil aukning í vega-
lengd getur því fært hættumörkin
um tugi eða jafnvel hundruð metra
eða sem nemur 1-4 húsaröðum. Á
þeim svæðum og á þeim tíma sem
hættustig 3 ríkir er því hættusvæðið
mun stærra en á hættustigi 2.
Sterkur vindur getur væntanlega
auk þess beint snjóskýinu nokkrar
gráður út úr þeirri stefnu sem eðli-
leg er miðað við landslag, ef vind-
stefnan er misvísandi miðað við ríkj-
andi halla. Mikill vindur skapar því
aukna óvissu um ferðir snjóskýs sem
geysist undan brekku og vindi.
Nokkur orð um
siy óflóðavarnir
Hér að framan eru færð rök að
því að landslag sem virkar eins og
safnlinsa auki verulega hraða og
eyðingarmátt snjóflóða. Eru þá ekki
rök fyrir því að „tilbúin dreifilinsa"
geti verið ódýrasta og áhrifaríkasta
snjóflóðavömin? Skilyrði fyrir því að
þetta geti verið hagkvæmt er að
dreifílinsunni megi koma fyrir á litlu
og afmörkuðu svæði langt fyrir ofan
byggð sem er í hættu vegna snjó-
fióða. Umhugsunarvert er hvort ekki
er mögulegt og hagkvæmt að koma
fyrir mannvirki, sem klýfur snjóflóð,
efst í eða ofan við aurkeiluna úndir
Skollahvilft. Mannvirkið gæti verið
í formi fleyga sem yrðu að mestu
úr jarðvegi en steinsteyptir efst.
Hlutverk fleyganna er að skipta
snjóflóðinu upp í tvö eða fleiri
smærri flóð sem hvert um sig renn-
ur mun skemmra en eitt stórt.
Niðurstaða og fjárhagslegar
afleiðingar
Ágæti lesandi. Ef þessar hugleið-
ingar um áhrif veðurfars og sérstak-
lega vindstyrks eru réttar þá er ekki
nóg að tala um rauð og gul hættu-
svæði. Það þarf að huga sérstaklega
að veðurfarinu og á grundvelli þeirra
upplýsinga og staðhátta og eðlis
snjóalaga á hverjum stað og hverri
stundu að lýsa yfir viðeigandi hættu-
stigi. Þá sjaldan hættustigi 3 er lýst
yfir þarf að rýma miklu stærri svæði
en áður hefur verið gert. Þessa verð-
ur vonandi ekki þörf á hveiju ári
og vonandi það sjaldan að hægt sé
að búa við það. Aðalatriðið er þó
að öryggi íbúa þessa lands sé tryggt
eftir því sem vísindin frekast leyfa,
án þess að meiri verðmætum sé fórn-
að en nauðsynlegt getur talist.
Fjárhagslega getur það reynst
óyfirstíganlegt að yfirgefa fyrir fullt
og allt og kaupa upp öil þau hús sem
verða á þessum stækkuðu hættu-
svæðum. Hafa verður í huga að lík-
lega verða flest þessara húsa orðin
Elli kerlingu að bráð áður en þau
verða fyrir snjóflóði, sem hugsanlega
gæti komið á 300 ára fresti. Það
verður því að reikna með því að
búið verði áfram í hluta þeirra húsa
sem eru á hættusvæðum. I þessu'
samhengi gæti þurft að bæta eigend-
um húsa á hættusvæðum það tjón
sem þeir verða fyrir, vegna óhjá-
kvæmilegs verðfalls á íbúðum í kjöl-
far þess óhagræðis sem af því hlýst
að þurfa að yfírgefa heimili sín á
hættustundu. Þetta óhagræði má að
hluta til meta til fjár.
Forgangsverkefni er að kortleggja
snjóflóðasvæði þannig, að hætt verði
að fjárfesta í dýrum mannvirkjum á
líklegum snjóflóðasvæðum svo sem
nýleg sorpbrennsla á ísafírði er sorg-
legt dæmi um. Það verður hver að
meta hve mikla áhættu hann er
reiðubúinn að taka með íbúðarhúsið
sitt eða sumarbústaðinn, en tryggja
verður að öll hús verði yfírgefín á
hættustundu. Þau hús á hættusvæð-
um sem ekki verða setin allt árið
vegna tíðra viðvarana um snjóflóða-
hættu, má vafalítið nýta sem sumar-
hús og sumarhótel og þannig gera
úr þeim nokkurt verðmæti fyrir eig-
andann, byggðarlagið og þjóðina
alla.
Höfundur er eðlisfræðingur og
rekstrarhagfræðingur.
Gunnlaugur H.
Jónsson
Af hverju
Islenskt já takk?
SAMTÖK atvinnu-
rekenda og launþega,
ásamt íslenskum land-
búnaði, hafa undanfar-
in ár staðið fyrir árlegu
átaki kenndu við Is-
lenskt já takk. Það er
samdóma álit þeirra
sem að átakinu standa
að það hafi skilað mikl-
um árangri undanfarin
ár. Þetta staðfesta
bæði kannanir og for-
svarsmenn íslenskra
framleiðslufyrirtækja.
í ljósi þessa góða
árangurs er blásið í
herlúðra á ný og átak-
inu ýtt úr vör í þriðja
sinn. Markmið átaksins er enn sem
fyrr að hvetja landsmenn, almenn-
ing og stjórnvöld, til að velja ís-
lenskt og vekja um leið athygli á
þeirri verðmætasköpun sem inn-
lend atvinnustarfsemi felur í sér.
Fólk er hvatt til að kynna sér bæði
verð og gæði íslenskrar framleiðslu
og kaupa hana frekar en innflutta
ef þessir þættir standast saman-
burð.
Hvers vegna ætti fólk sem fer í
verslun að leiða hugann að því hvort
það er að kaupa íslenska vöru eða
erlenda? Hvað hagnast maður á því
að láta undan áróðrinum um að
taka innlenda vöru fram yfír er-
lenda? Er ekki eingöngu verið að
festa í sessi ákveðin útkjálkaviðhorf
og koma í veg fyrir að eðlileg og
óheft samkeppni fái notið sín?
Svona spumingar
em eðlilegar þegar
átakið íslenskt já takk
fer af stað í þriðja
sinn. Hver eru rökin
fyrir því að velja frek-
ar það sem innlent er?
Minna má á að
meðal annarra þjóða,
ekki síst rótgróinna
iðnaðarþjóða, er slíkt
viðhorf mjög vel
þekkt. Þetta sjáum við
víða, t.d. bæði í Bret-
landi og Þýskalandi,
þar kaupir fólk gjam-
an innlenda vöra að
óathuguðu máli vegna
þess að það er full-
visst um gæði innlendrar fram-
leiðslu. Hér á landi hefur hitt verið
ríkjandi í áratugi, að velja hugsunar-
laust erlenda vöra án þess að leiða
hugann að því hvort til sé sambæri-
leg innlend vara. Sem betur fer er
þetta viðhorf víkjandi hér á landi.
Raunar má segja að orðið hafí hug-
arfarsbylting að þessu leyti á undan-
fömum rhissiram; efnahagsleg skil-
yrði hafa alið af sér gagnrýnni
kaupendur.
Það er mjög mikilvægt fyrir ís-
lenskan iðnað að eiga kröfuharðan,
sanngjarnan og sterkan heima-
markað. Með því almenna viðhorfí
að íslenskar vörar séu góðar festist
í sessi tæknistig og verkþekking
sem gerir okkur kleift að telja okk-
ur meðal annarra iðnaðarþjóða. Við
eigum þvi miður alltof mörg dæmi
Haraldur
Sumarliðason
Helgi Hálfdanarson
Forsetakjör
EINHVERN tíma stakk undir-
ritaður upp á því, að embætti
forseta og biskups yrðu samein-
uð og hið nýja embætti nefnt
„Biskup íslands“. Kunningjar
hans ýmsir halda því fram, að
með þessari tillögu hafi hann
viljað sýna forsetaembættinu
dulbúna lítilsvirðingu. Það er að
sjálfsögðu fjarstæða. Aðrir telja
að ekki hafí annað vakað fyrir
honum en að kveikja hollar
umræður um þessi æðstu emb-
ætti ríkis og kirkju. Hafi svo
verið, hefur sú von brugðizt, og
mun hann ekki leggja þar fleiri
orð í belg að sinni.
Hins vegar er full ástæða til
að vará við því, sem nú þegar
hefur örlað á, að farið sé með
opinberam skoðanakönnunum
að skipa þjóðinni til fylgis við
tiltekna einstaklinga, sem ein-
hveijir hafa af skyndingu stung-
ið upp á til forsetakjörs, rétt
eins og ekki komi þar aðrir til
greina, enda þótt enginn hafi
gefið kost á sér til starfsins.
Nú orðið mun fáum þykja við
eiga, að forseti sé valinn eftir
afstöðu til stjómmála, svo sem
hlyti að verða ef starfandi
stjórnmálamenn kæmu til álita,
þó mætir menn væru að öðru
leyti. Með kjöri Kristjáns Eld-
jáms og síðan Vigdísar Finn-
bogadóttur mun flestum hafa
þótt í því efni hyggilega mörkuð
farsæl stefna.
Þó að kalla megi miður
smekklegt, að nú þegar sé farið
að kjósa um menn, sem hending
ein eða bráðlátur pólitískur
áhugi hefur til nefnt, er sjálf-
sagt að hver sem er geti bent
á æskilegt forsetaefni með þeim
rökum sem teljast öðru fremur
skipta máli.
Því er það, að við, nokkur
hópur manna, leyfum okkur að
benda á þann sem við teljum
æskilegt að gefi kost á sér til
þessa embættis. Þar er um að
ræða kunnan Reykvíking úr
stétt menntamanna;.og skal það
tekið fram, að enn hefur hann
sjálfur enga hugmynd um mála-
leitan okkar og mun ekki af
henni frétta á undan öðrum.
Nafn hans mun nefnt á þessum
stað einhvem næstu daga; en
að sinni skulu sögð á honum
nokkur deili.
Um alllangt skeið hefur mað-
ur þessi gegnt mikilvægum
störfum á sviði menntamála.
Hann er upp alinn á merku
menningarheimili foreldra sinna
í Reykjavík og hefur sjálfur hlot-
ið víðtæka menntun hér heima
og í háskólum erlendis. Hann
hefur meðal annars samið mik-
ils háttar fræðirit, sem íslenzkri
menningu er ágætur fengur.
Hann var víðförull og víðsýnn
heimsborgari, en í störfum sín-
um og ritum hefur hann sýnt,
að hann er umfram allt þjóðræk-
inn í þess orð beztu merkingu.
Hann er prúðmenni í allri fram-
göngu, slyngur ræðumaður, tal-
ar og ritar mörg tungumál, og
þótt hógvær sé, er hann manna
skemmtilegastur þegar því er
að skipta. Hann hefur ekki tek-
ið beinan þátt í stjórnmála-
starfi, og ekki er vitað hvernig
hann hefur ráðstafað atkvæði
sínu í pólitískum kosningum.
Að þessu sinni skal því einu við
bætt, að eiginkona hans er
menntuð vel.
Við, sem hér stöndum saman,
höfum valið þann kost að gefa
almenningi færi á að hugleiða
lýsingu þessa eina saman, án
þess að nafn sé nefnt samtímis.
En þess mun skammt að bíða.
Hér er um að ræða næsta
óformleg samtök, sem hafa falið
undirrituðum að koma ósk sinni
á framfæri.