Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 31
- TZ----------N
um það að hafa misst verkþekkingu
úr lándi þegar ákveðin iðnfram-
leiðsla hefur lagst af vegna tíma-
bundinna erfiðleika og vantrúar
stjórnvalda og almennings.
Val á innlendri vöru og þjónustu
styrkir íslenskt efnahagslíf. Hlut-
deild íslensks iðnaðar í þjóðarfram-
93% neytenda telja ís-
lenskar vörur sambæri-
legar erlendum. Har-
aldur Sumarliðason
telur mikilvægt að ís-
lenskur iðnaður eigi
sterkan heimamarkað.
leiðslunni er um þessar mundir um
18%, eða heldur meiri en hlutur
sjávarútvegs. ímyndum okkur að
hlutur iðnaðar í þjóðarframleiðsl-
unni myndi lækka niður í 9%. Það
þýddi að þjóðarauðurinn minnkaði
að sama skapi, eða að aðrar gjald-
eyrisskapandi atvinnugreinar yrðu
að brúa bilið. Með öðrum orðum:
Með því að kaupa íslenskt eru neyt-
endur að spara erlendan gjaldeyri
og styrkja um leið stöðu sína og
þjóðarbúsins í heild.
íslenskir neytendur efla innlenda
atvinnu með því að kaupa íslenskt.
Þótt atvinnuleysi hafi margfaldast
hér á landi á örfáum árum er það
samt minna en í löndunum kringum
okkur. Hér þurfa allir að spyrna
við fótum og snúa þróuninni við,
m.a. með því að kaupa íslenskt.
Öflugur heimamarkaður er for-
senda útflutnings. íslenskir fram-
leiðendur vilja sanngjama sam-
keppni við erlenda framleiðslu. Þeir
vilja sjá innlenda neytendur gera
miklar kröfur til íslenskra vara. Það
er m.a. forsendan fyrir því að ís-
lenskar vörur seljist í öðrum lönd-
um.
Að lokum skal bent á þá stað-
reynd að íslenskar vörur þykja að
jafnaði standast samanburð við það
besta í öðrum löndum. í könnun
sem ÍM-Gallup gerði i janúar sl.
kemur í ljós að 93% neytenda telja
íslenskar vörur sambærilegar eða
betri að gæðum en innfluttar vör-
ur. Það er óþarfi að þegja yfir
þessu.
Höfundur er húsasmíðameistari
og formaður Samtaka iðnaðarins.
Enn til
útgerðarmanna
A ÞRIÐJUDAGINN
var sendi ég aðalfundi
LÍÚ línu í Morgunblað-
inu og bað fundarmenn
að íhuga hvort ekki
væri vert að samtök
útgerðarmanna æsktu
þess að gengið yrði úr
skugga um að núver-
andi eignarhald á veiði-
leyfum samræmdist því
meginmarkmiði, að öll
þjóðin njóti góðs af auð-
lindum hafsins. Þá dag-
ana voru menn með
hugann við flest annað
en fundahöld og veiði-
leyfi, og því æxlaðist
svo til að bréfkornið
birtist löngu fyrir fund-
inn ?em það var stílað á. Því er
ástæða til að ítreka í örstuttu máli
það sem þar var farið fram á.
Það þarf engan að undra þótt
Útgerðarmenn biðja um
athugun á því, segir
Markús Möller, hvort
minnkandi eignarhald á
kvóta tryggi almenna
hagsæld.
menn veiji hagsmuni sína með oddi
og egg. Menn hneigjast meira að
segja til að sjá aðstæður í því ljósi
sem best henta hagsmunum þeirra.
„Það sem er gott fyrir General Mot-
ors, er gott fyrir Bandaríkin,“ sagði
forstjóri þess mæta fyrirtækis ein-
hveiju sinni. Ef nauðsyn krefur er
síst erfiðara að telja sér trú um að
þar sem núverandi eignarhaldsfyrir-
komulag á veiðileyfum er harla gott
fyrir útgerðarmenn, þá hljóti það að
vera býsna hagstætt fyrir íslensku
þjóðina. Það er líka nokkurn veginn
á hreinu að íslenska þjóðin græðir
ekki á auðlindum sjávar ef enginn
er til að gera út. Blómleg útgerð er
áreiðanlega nauðsynleg forsenda
þess að landsmenn njóti góðs af auð-
lindum sjávar. Þar með er hins vegar
hreint ekki sjálfgefið, raunar að
minni hyggju ólíklegt,
að hagur almennings
sé tryggður með því
einu að útgerðin dafni.
Athugunin sem útgerð-
armenn ættu að biðja
um, á einmitt að snúast
um hvort núverandi
fyrirkomulag nægi til
þess að tryggja að al-
menn hagsæld á ís-
landi verði sem mest.
Krafan er gerð á út-
gerðarmenn sjálfa, því
starfslið þeirra, sem
venjulega verður fyrir
svörum, er trútt sínum
starfsskyldum og telur
þær meðal annars fel-
ast í að hlífa umbjóð-
endum sínum við að horfa framan í
óþægilegan veruleika. Þessir menn
þurfa því aukið umboð áður en þeir
verða til viðtals. Því er hér milliliðum
sleppt og spurningunni beint til full-
trúa á aðalfundi LÍÚ: Að því gefnu
að þið fáið að njóta arðs af þeirri
ótvíræðu eign ykkar, sem er hæfi-
leikinn til að veiða fisk hagkvæmar
en aðrir, eruð þið þá svo harðir á
ykkar hagsmunum, að þið leggist
gegn vandaðri athugun á því, hvort
íslenskum almenningi kemur betur
að eignarhald á óveiddum físki verði
með öðrum hætti en nú er?
Höfundur er hagfræðingur.
GLÆSILEGAR GJAFAVÖRUR
KR. 4.750
Markús
Möller
14. nóv. - 7. des. þriðjud./fimmtud. kl. 20.00-22.15 (7 skipti).
Námskeið fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða og/eða
eru að ganga í gegnum mikla breytingar í lífinu. Kenndar verða
leiðir til að slaka á og öðlast auhið frelsi og lífsgleði.
Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson, jógakennari.
Upplýsingar og skráning:
Voga Studio, Hátúni 6a, Reykjavík.
Slmar 552-1033 og 552-8550 milli kl. 10 og 12 og 20-22 daglega.
Skelltu þér á einn
AT
Litríkur og smart
Kr.
Staðgreiðsluafsláttur
eða góð greiðslukjör
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bíldshöfði 20 -112 Rvík - S:587 1199
Félac Löggiltra Bifreidasala
NÝJA BÍLAHÖLUN FUNAHÖFDA I S: 567-2277
Félag Löggiltra Biereidasala
MANAÐA
SP- BILALAN TIL ALLT AÐ 6
fToyota Landcruiser VX Executive
diesel árg. ‘94, ek. 70 þús. km.,
í dökkgrænn, sjálfski, álfejgur, sóllúga,
z leöurinnr. V. 4.890.000. Ath. skipti.
fToyota Corolla L/B Special Series
árg. ‘94, ek. 26 þús. km., rauður, •
þjófav., cen., 5 g. V. 1.195.000.
* Ath. skipti.
MMC Pajero stuttur árg. ‘92, ek. 74
þús. km., dökkgrænn, 31“ dekk,
álfelgur. V. 2.000.000. Ath. skiptl.
Mazda 323 F árg. ‘92, ek. 33 þús.
km., dökkgrænn, 5 g., toppbíll.
V. 1.090.000. Ath. skipti.
MMC Lancer GLXi. 4WD árg. '92,
ek. 42 þús. km., hvítur, 5 g.,.
V. 1.190.000. Ath. skipti.
Toyota Landcruiser VX árg. '93, ek.
76 þús. km., grár, sjálfsk., álfelgur, sól-
lúga. V. 4.480.000. Ath. skipti. Bílalán
getur fylgt.
SBMW 735i árg. ‘89, ek. 92 þús. km„
dökkblár, sjájfsk., álfelgur, sóllúga
2 og m.fl. V. 2.700.000. Ath. skipti.
fPlymouth Voyager SE árg. ‘90, ek.
70 þús. km„ blár, sjálfsk., 7 manna,
5 góður fyrir stórar fjölskyldur.
S V. 1.450.000. Ath.skipti.
Toyota Touring GLi árg. '92, dökkblár,
vetrar- og sumardekk, álfelgur, cen„
ástandsskoðaður. V. 1.130.000.
Ath. skipti.
S Renault Clio RT árg. ‘92, ek. 34
5? þús. km„ hvítur, sjálfsk. V. 780.000.
g Ath. skipti.
SNissan Pathfinder SE V6 árg. ‘88, ek.
132 þús. km., svartur, sjálfsk., álfelgur,
sóllúga. V. 1.250.000. Ath. skipti.
Nissan Sunny GTi árg. ‘92, ek. 55 þús.
km„ rauöur, álfelgur. 5 g. V. 1.090.000.
Ath. skipti.
LÁTIÐ EKKI GLEPJAST AF GYLLIBOÐUM BÍLAUMBOÐANNA - GERIÐ VERÐSAMANBURÐ HJÁ OKKUR