Morgunblaðið - 09.11.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
<
Stóðhesta-
stöðín á
krossg’ötum
Ný stjóm hefur tekið við Stóðhestastöðinni og
mun hún skipuleggja og hafa umsjón með rekstri
hennar. Valdimar Kristinsson fór á blaðamanna-
fund sem haldin var í Gunnarsholti og segir frá
því helsta, sem þar bar á góma.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
NÝJA sljórn stóðhestastöðvarinnar skipa, frá vinstri talið Sigurbjörn Bárðarson, Páll Dagbjarts-
son, Hrafnkell Karlsson, Haraldur Sveinsson og Anna Bryndís Tryggvadóttir.
HIÐ vandaða hesthús stóðhestastöðvarinnar ýtir við hrossarækt-
armönnum um að reka þar myndarlega starfsemi sem stuðlar
að framförum í íslenskri hrossarækt.
TÍMAMÓT eru nú í tilveru Stóð-
hestastöðvarinnar í Gunnarsholti
þegar Bændasamtök íslands hefja
rekstur hennar til eins árs meðan
hestamenn sjálfir eru ekki reiðubúnir
að taka við rekstrinum. Leigja sam-
tökin hesthúsið í Gunnarsholti af
landbúnaðarráðuneytinu fyrir eina
milljón króna í leigugjald. I viðtali
við Morgunblaðið fyrir tveimur mán-
uðum sagði búnaðarmálastjóri að
ekki kæmi til greina að Bændasam-
tökin tækju að sér rekstur stöðvar-
innar til frambúðar heldur væri hér
um að ræða bráðabirgðalausn meðan
unnið væri að sameiningu Félags
hrossabænda og Hrossaræktarsam-
bands íslands.
Nýlega var skipuð ný stjórn yfir stöð-
ina sem skipuleggur og hefur umsjón
með rekstrinum þetta ár. Hana skipa
Hrafnkell Karlsson formaður, Anna
Bryndís Tryggvadóttir, Haraldur
Sveinsson, Páll Dagbjartsson og Sig-
urbjörn Bárðarson. Stjómin boðaði
nýlega umtalsverðar breytingar á
starfseminni og kynnti þær á blaða-
mannafundi í Gunnarsholti þegar
fráfarandi stjórn skilaði af sér og
nýja stjómin tók við.
Uppeldi úr sögunni
Aðalbreytingin verður sú að ekki
er lengur tekið við folum í uppeldi
eins verið hefur frá upphafí, gamla
stjómin sagði upp öllum samningum
sem gerðir höfðu verið um uppeldi á
ungfolum. Aðeins verða teknir inn
folar á tamningaaldri og þaðan af
eldri til tamningar og þjálfunar. Eng-
ar lágmarkskröfur verða gerðar til
þeirra hestá sem teknir eru inn á
stöðina, í það minnsta framan af,
eða þar til skýrist hver aðsóknin
verður. Stjómarmenn tóku þó fram
að ef aðsóknin verði meiri en hægt
verður að anna verði einkunn í kyn-
bótaspánni og ætterni látið ráða um
val. Folarnir em teknir minnst til
tveggja mánaða þjálfunar og verður
gert mat á hæfileikum og framförum
að þeim tíma liðnum. Stjórn stöðvar-
innar áskilur sér rétt til að vísa hest-
um af stöðinni, uppfylli þeir ekki
lágmarkskröfur. Sérstök áhersla
verður lögð á fullkominn trúnað og
samráð við eigendur um alla þjálfun
og tamningu. Þorkell Bjarnason
hrossaræktarráðunautur hefur verið
faglegur ráðunautur stöðvarinnar í
vetur.
Aukin þjónusta - lægra verð
Tamningagjöld hafa verið ákveðin
25 þúsund krónur á mánuði að við-
bættum virðisauka, sem þykir í lægri
kantinum, en algengt verð fyrir þjálf-
un stóðhesta hefur verið á bilinu 30
til 40 þúsund krónur fyrir utan virðis-
auka. Innifalið í verði stöðvarinnar
er mat á byggingu fljótlega eftir að
hestur kemur á stöðina, tamning og
járningar, fóður, hirðing og fóðureft-
irlit ráðunauts, mánaðarlegt eftirlit
dýralæknis og þátttaka í vorsýningu
stöðvarinnar eftir því sem ástæða
þykir til. Þá munu hesteigendur hafa
hestana til ráðstöfunar í sumar og
munu allar tekjur af hestunum renna
til þeirra en ekki stöðvarinnar eins
og áður var. Fyrstu þijá mánuðina
verður veittur _10% afsláttur af mán-
aðargjaldinu. I ráði er að haft verði
opið hús einu sinni í mánuði svo fólk
hafi greiðan aðgang til að kynna sér
starfsemina, en með því móti megi
tryggja lágmarks truflun á daglegri
starfsemi.
Stjórnarmenn töldu að Stóðhesta-
stöðin stæði á tímamótum, tímabært
hafi verið að gera breytingar á
rekstrarfyrirkomulagi. Útkoman á
þessu ári myndi vafalítið ráða úrslit-
um um hvort framhald verði á til-
veru stöðvarinnar og því mikilvægt
að vel tækist til. Áríðandi væri að
ræktunarmenn sýndu hug sinn gagn-
vart starfseminni með því meðal
annars að senda hesta í þjálfun á
stöðina.
Á síðustu tveimur árum hafa radd-
ir um að stóðhestastöðin væri búin
að þjóna sínum tilgangi og að engin
nauðsyn væri á að starfrækja hana
lengur stöðugt gerst háværari.
Hestakosturinn hafi farið versnandi
og efnilegustu og best ættuðu folam-
ir ekki skilað sér inn á stöðina. Með
öðrum orðum að eigendur væru orðn-
ir tregir á að senda folöld í Gunnars-
holt. Einnig hefur verið um kennt
því fyrirkomulagi sem ný stjórn hef-
ur aflagt, þ.e. að ala foíana upp frá
folaldsvetri. Kostnaður á ári var um
90 þúsund krónur og kostaði folinn
því eigandann 450 þúsund þegar
honum var skilað tömdum fimm
vetra gömlum og sumra folanna beið
gelding. Á þessum tíma hafði stöðin
allar tekjur af útleigu folans og því
skiljanlegt að menn væru ekki reiðu-
búnir að senda frá sér vel ættaða
fola sem líklegir væru til að skila
eigandanum tekjum strax tveggja
vetra. Með þessum háa uppeldis-
kostnaði voru menn að greiða inn á
tamninguna sem fram fór síðustu tvö
árin sem folinn dvaldi á stöðinni og
sumir folanna voru sendir heim áður
en þeir komust á tamningaaldur.
Áðdráttarafl stöðvarinnar hefur
NÝR 2000 KRÓNA PENINGASEÐILL
OG 100 KRÓNA MYNT
í umferð 9. nóvember
s Kynningarörk liggur frammi
| í bönkum og sparisjóðum
Reyndir
menn
halda um
taumana
PÁLL BJARKI Pálsson og Sig-
urður Vignir Matthíasson munu
annast tamningar á stóðhesta-
stöðinni í vetur. Báðir eru þeir
vel kunnir í faginu og Páll
reyndar fyrrum starfsmaður
stöðvarinnar um árabil. Það
kom reyndar á óvart að Páll
skyldi falast eftir starfanum
þar sem hann er kominn með
stóra fjölskyldu og umfangs-
mikla ræktun hrossa nyrðra og
búinn að skjóta þar rótum.
Páll sagði, í samtali við Morg-
unblaðið, ýmsar ástæður hafa
ráðið því að hann hafi slegið
til og komið suður en ákvörðun-
in hafi verið tekin með litlum
umhugsunarfresti. „Það er lítið
um að vera fyrir norðan en
fjórðungsmót hér fyrir sunnan
næsta sumar svo er vinnan á
stöðiniti alltaf ögrandi starf og
spennandi að fást við tamning-
ar á úrvals stóðhestum. Þá hef-
ur þetta glæsilega hesthús
nokkurt aðdráttarafl, vafalítið
skemmtilegt að vinna við þessar
aðstæður. Fjölskyldan kemur
svo suður eftir áramótin." Páll