Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 41

Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ HESTAR FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 41 ' hinsvegar legið í geysivinsælum vor- sýningum sem þar hafa verið haldn- ar í byijun maí hvert ár. Bæði þykir' þetta góður vettvangur til að auglýsa folana og svo ganga margir með það , í maganum að stöðvarhestar hafi fengið smá aukabónus í einkunnum. Ósagt skal látið hvort það fær stað- ist en gott þótti að mæta með stóð- hesta í dóm á vorsýningu stöðvarinn- ar. Hin nýja stjóm stöðvarinnar hef- ur ekki ákveðið fyrirkomulag vorsýn- ingar að öðru leyti en því að stefnt skuli að veglegri sýningu og hugsan- lega megi gera ráð fýrir einhverjum breytingum eða nýjungum til að auka gildi og viðhalda vinsældum sýning- arinnar. Dýrt og vandað hús ýtir við mönnum Það er margt sem kemur inn í umræðuna um framtíð stöðvarinnar og þar vegur hið glæsilega hesthús þungt. Það þykir mörgum snautlegt að loksins þegar hafðist í gegn að fá húsið byggt skuli umræðan vera farin að snúast um að leggja starf- semina niður. Þykir mörgum að kapp hafi ráðið meir en forsjá þegar ráð- ist var í byggingu þessa húss, sem kostaði á rúmlega 40 milljónir króna og eru allir sammála um að versti kosturinn sé að láta slíkt hús standa autt og ónotað. Þá þykir það grág- lettin Qárfesting ef hús sem er dýr- ara en 60 kúa fjós af bestu gerð yrði í framtíðinni notað undir almenna tamningastarfsemi. Sú staðreynd að húsið er risið, mjög vandað og dýrt, hvetur menn til að finna réttlætan- legt og þarft hlutverk sem er hrossa- ræktinni til hagsbóta. Flestir virðast orðnir sammála um að starfsemin, hver sem hún verður eða með hvaða hætti, skuli ekki rekin af ríki eða öðrum opinberum aðilum og hefur þar í fyrstu lotu verið litið til samein- ingar Félags hrossabænda og Hrossaræktarsambands íslands sem nú stendur yfir. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins eru menn hóf- lega bjartsýnir um að sameining verði komin á það stig að hægt verði að yfirtaka starfsemi stöðvarinnar að ári liðnu. Gangi það ekki eftir má ætla að Bændasamtökin verði treg í rekstur annað ár til bráða- birgða ef þessi tilraun sem nú er hleypt af stokkunum stendur ekki undir sér. Bændasamtökunum er þröngur stakkur sniðinn í fjárfram- lögum til reksturs og líklegt að tveggja ára meðlagsgreiðslur til stóð- hestastöðvar geti valdið úlfaþyt inn- an stofnunarinnar. Af þessu má sjá að nýrri stjóm stöðvarinnar er mikill vandi á hönd- um og áríðandi að starfsemin gangi upp, bæði frá fjárhagslegu og fag- legu sjónarmiði. Það er að vísu gagn- rýnt að ekki skuli vera gerðar gæða- kröfur til þeirra hesta sem koma inn á stöðina til að byija með en það er að sama skapi ánægjulegt að sú vit- und skuli ráða ríkjum að nauðsynlegt sé að starfsemi sem þessi skuli standa undir sér en ekki jarmað ein- göngu eftir framlögum frá ríkinu. Stjómin hefur nú þegar sett sig í samband við Bændaskólann á Hólum með ósk um samstarf við rannsókn- arverkefni ýmiskonar. Tæpast verður farið út í umfangsmiklar rannsóknar á einu ári en þama sýnir stjómin við- leitni í þá átt að leggja gmnninn að því sem kann að verða í áframhald- andi starfsemi. Flestir sem tjáðu sig um málefni stöðvarinnar vom sam- mála um að brýnt væri að efla rann- sóknir til hagsbóta ,fýrir hrossarækt- ina og væri stóðhestastöðin þar heppi- legur vettvangur í sumum tilvika. Stór nöfn á stöðinni Stjómarmenn kváðust nokkuð ánægðir með undirtektir það sem komið væri og þegar ljóst að margir kunnir stóðhestar muni gista stöðina. Hrossaræktarsamband Suðurlands hefur tryggt sér pláss fyrir fimm hesta á stöðinni í vetur. Tveir hestar frá sambandinu, þeir Hrynjandi frá Hrepphólum og Kmmmi frá Hala, verða þar í tamningu en auk þeirra verða þar í geymslu Sörli frá Bú- landi, Kveikur frá Miðsitju og flagg- skipið Andvari frá Ey. Þrír síðast- töldu hestamir verða jámaðir en ekki þjálfaðir markvisst. Þá verður Ögri frá Sauðárkróki áfram á stöð- inni og komið hefur til tals að Hrossa- ræktarsamband Skagfirðinga sendi fjögurra vetra hest, Hjalta frá Hól- um, suður en ekkert hefur verið ákveðið endanlega. Þá hyggst Leifur Þórarinsson bóndi í Keldudal senda tvo fjögurra vetra hesta á stöðina svo eitthvað sé nefnt. Ljóst er að framundan em afdrifaríkir tímar varðandi framhald á starfsemi stóð- hestastöðvarinnar og fróðlegt að fylgjast með hveijar verða undirtekt- ir þeirra sem líklega munu yfirtaka starfsemina, það er hrossabænda. Höfundur skrifar um hesta í Morgvnblaðið. Morgunblaoið/Valdimar Kristinsson FYRSTT hesturínn var kominn á staðinn daginn áður en starf- semin hófst. Þeir Páll og Sigurður stilltu sér upp við hlið Strengs frá Stakkhamri sem er undan Stiganda frá Sauðár- króki og Pílu frá Stakkhamri, en hann mun verða í það minnsta tvo mánuði á stöðinni. hefur einn tamningamanna stöðvarinnar unnið í þeim þremur hesthúsum sem stöðin hefur veríð til húsa í, en hann vann á stöðinni frá 1980 til 1985. Sigurður Matthíasson, sem í sumar hætti að vera efnilegur er hann skipaði sér á bekk með fremstu reiðmönnum landsins, sagði þetta vissulega spennandi verkefni, dálítið öðruvísi en það sem hann hefur verið að fást við og svo væri gaman að breyta um umhverfi. „Ég hef alltaf verið í bænum á veturna en breyti nú til og verð í sveit- inni í vetur,“ sagði Sigurður, ánægður með nýja starfið. Þeir Páll og Sigurður eru ráðnir fram að fjórðungsmóti með mögulcika á framlengingu ef starfsemi verður fram haldið að loknu móti. __________MIMNIMGAR SIGURÐUR GÚSTAF KJARTANSSON + Sigurður Gústaf Kjartans- son fæddist á Grimsstöðum á Fjöllum 18. mars 1922. Hann lést á heimili sinu á Birnunesi á Árskógsströnd 23. október síðastliðinn og fór útför hans fram frá Stærri Árskógskirkju 30. október. MIG langar í fáum orðum að minn- ast tengdaföður míns, Gústafs Kjart- anssonar, sem er látinn. Gústaf var búinn að vera heilsulítill nokkuð lengi, en aldrei kvartaði hann eða vildi ræða um veikindi sín, hann eyddi alltaf slíku tali eða sló því upp í glens. Gústaf var ekki sú mann- gerð er bar tilfínningar sínar á torg, en stutt var í gamansemina og létt- leikann ef því var að skipta. Ég veit ekki til þess að tengdafaðir minn hafi látið styggðaryrði falla um nokkum mann, hann var einstakt ljúfmenni, kurteis og lítillátur. Gúst- af hugsaði fyrst og síðast um fjöl- skyldu sína, að henni liði vel og þar væru allir hlutir í lagi. Það lýsir því Gústaf vel að morguninn sem hann lést hafði hann hellt upp á kaffikönn- una eins og hann var vanur svo að ijúkandi kaffisopinn yrði til áður en heimilisfólkið færi til verka, en fáum mínútum síðar var hann látinn. Hans líðan vék fyrir umhyggju um sína nánustu. Ég man enn í dag eftir okkar fyrsta samtali þegar ég blá- ókunnugur strákurinn kom í fyrsta sinn í Brimnes. Þeirri hlýju og góð- mennsku sem ég fann þá og alla tíð síðan frá þér streyma gleymi ég aldr- ei. Gestrisni og hjálpsemi hefur alla tíð einkennt tengdaforeldra mína og voru þau hjónin samhent í því, eins og svo mörgu öðru og skipti þá ekki máli hvort það voru börnin úr ná- grenninu eða fullorðnir sem áttu í hlut. Barnabörnin hafa öll mikið sótt í sveitina og nærveruna við afa sinn og ömmu, þar sem þau fengu ótakmarkaða væntumþykju og hlýju. Meðan okkar böm voru yngri dvöldu þau þar stundum part úr sumri og komu þaðan hraust og sæl til baka. Oft hefðum við viljað vera nær ykkur og geta skroppið oftar í sveitina, en fjarlægðin hefur gert slíka skreppitúra ómögulega. Gústaf og Karólína byggðu upp á Brimnesi af miklum dugnaði og myndarskap og er þar rekið myndarlegt bú í dag, sem synimir Kjartan og Arnar hafa nú tekið við að mestu. Gústaf gegndi ýmsum trúnaðar- störfum um dagana í sveitinni. Einn- ig vann hann mikið utan heimilis með búskapnum. Var þá oft langur vinnudagur og ekki alltaf spurt hvað tíma liði. Gústaf var mjög traustur og lagtækur maður og var oft til hans.Jeitað. Þar af leiðandi mæddu bústörfin oft meira á Karólínu. Þetta getur aldrei orðið tæmandi upptalning á störfum Gústafs um dagana enda ekki ætlunin, heldur fátækleg orð um góðan mann. Nú ert þú, kæri tengdafaðir, fall- inn frá en minningin um yndislegan afa, föður og tengdaföður lifir áfram í hjörtum okkar. Hver fðgur dyggð í fari manns er fyrst af rótum kærleikans. Af kærleik sprottin auðmýkt er, við aðra vægð og góðvild hver og friðsemd hrein og hógvært geð og hjartaprýði stilling með. (H. Hálfd.) Mér finnst þessar ljóðlínur lýsa vel hjartaþeli þínu, og vil ég fá að þakka þér innilega fyrir kynnin og allt það sem þú hefur veitt mér og fjölskyldu minni í gegnum árin. Karólína, börn og bamabörn. Drott- inn mun sefa sorg ykkar og gefa ykkur styrk á þessari sorgarstund. Sigurður Ananíasson. INDESiT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT 1ÍH tz Q Z er einstök. a Þvottavél IW 860 Vindur 800 sn. 14 þvottakerfi. Stiglaus hitastillir. Orkunotkun 2,3 kwst. Hae5 85 cm Breidd 60 cm Dýpt 60 cm Verð kr. 52.527,- I Uppþvottavél D 4500 10 kerfa vél, tekurl2 manna matarstell, 6 falt vatnsöryggiskerfi mjög hljóSlót og fullkomin. HæS: 85 cm Breidd: 60 cm Dýpt: 60 cm Verðkr.63.153,- | JVeirð stgr. \ Eldavél KN 6046 Undir og yfirhiti. Geymsluskúffa. HaeS: 85-90 cm Breidd: 60 cm Dýpt: 60 cm Verð kr.46.211,- #índe$t Kæliskápur GR 1860 HaeS: 117 cm Breidd: 50 cm Dýpt: 60 cm Kælir: 140 I Frystir: 45 I T. 15 kwst/24 tímum Verð kr.41.939, Kæliskápar með fiystihólfi fyrir ofan Þurrkarí SD 510 Tromlan snýst í bóSar óttir,tvö hitastig. Kaldur blástur. Klukkurofi. Barki fylgir Verð kr.37.517,- Undirborbsofn ▲ Cl M2W - Blástur undir og yfirhiti, grill meS eSa án blásturs. Klukkurofi Verð kr. 34.684,- Veggofn Fl M1 ■ Blástur undir og yfirhiti, grill meS eSa án blásturs. Klukkurofi Verð kr. 29.950,- _Gerð HæöxBreiddxDýpt ’ Kirfir ltr.1 FrysUr Itr.j_Staðgr. 1 140x50x60 UR 170x60x60 BRÆÐURNIR DJORMSSONHF C Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. c Guönl Hallgrímsson, Grundarfiröl. Ásubúö.Búöardal Vestfiröir: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi. ® Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröl. _ Norðurland: Kf. Steingrimsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. w Skagfiröingabúö.Sauöárkrókl. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvfk. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson. Egilsstööum. O Kf. Vopnfirölnga, Vopnafiröl. Stál, Seyölsfiröi. Verslunln Vík, Neskaupsstað. JQ Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. E Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. 3 Reykjanea: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk. FIT, Hafnarfiröi Lágmúla 8, Sími 553 8820 INDESIT INDESIT INDESIT INDEStT INDESIT tNDESIT INDEStT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.