Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 41 '
hinsvegar legið í geysivinsælum vor-
sýningum sem þar hafa verið haldn-
ar í byijun maí hvert ár. Bæði þykir'
þetta góður vettvangur til að auglýsa
folana og svo ganga margir með það
, í maganum að stöðvarhestar hafi
fengið smá aukabónus í einkunnum.
Ósagt skal látið hvort það fær stað-
ist en gott þótti að mæta með stóð-
hesta í dóm á vorsýningu stöðvarinn-
ar. Hin nýja stjóm stöðvarinnar hef-
ur ekki ákveðið fyrirkomulag vorsýn-
ingar að öðru leyti en því að stefnt
skuli að veglegri sýningu og hugsan-
lega megi gera ráð fýrir einhverjum
breytingum eða nýjungum til að auka
gildi og viðhalda vinsældum sýning-
arinnar.
Dýrt og vandað hús
ýtir við mönnum
Það er margt sem kemur inn í
umræðuna um framtíð stöðvarinnar
og þar vegur hið glæsilega hesthús
þungt. Það þykir mörgum snautlegt
að loksins þegar hafðist í gegn að
fá húsið byggt skuli umræðan vera
farin að snúast um að leggja starf-
semina niður. Þykir mörgum að kapp
hafi ráðið meir en forsjá þegar ráð-
ist var í byggingu þessa húss, sem
kostaði á rúmlega 40 milljónir króna
og eru allir sammála um að versti
kosturinn sé að láta slíkt hús standa
autt og ónotað. Þá þykir það grág-
lettin Qárfesting ef hús sem er dýr-
ara en 60 kúa fjós af bestu gerð yrði
í framtíðinni notað undir almenna
tamningastarfsemi. Sú staðreynd að
húsið er risið, mjög vandað og dýrt,
hvetur menn til að finna réttlætan-
legt og þarft hlutverk sem er hrossa-
ræktinni til hagsbóta. Flestir virðast
orðnir sammála um að starfsemin,
hver sem hún verður eða með hvaða
hætti, skuli ekki rekin af ríki eða
öðrum opinberum aðilum og hefur
þar í fyrstu lotu verið litið til samein-
ingar Félags hrossabænda og
Hrossaræktarsambands íslands sem
nú stendur yfir. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins eru menn hóf-
lega bjartsýnir um að sameining
verði komin á það stig að hægt verði
að yfirtaka starfsemi stöðvarinnar
að ári liðnu. Gangi það ekki eftir
má ætla að Bændasamtökin verði
treg í rekstur annað ár til bráða-
birgða ef þessi tilraun sem nú er
hleypt af stokkunum stendur ekki
undir sér. Bændasamtökunum er
þröngur stakkur sniðinn í fjárfram-
lögum til reksturs og líklegt að
tveggja ára meðlagsgreiðslur til stóð-
hestastöðvar geti valdið úlfaþyt inn-
an stofnunarinnar.
Af þessu má sjá að nýrri stjóm
stöðvarinnar er mikill vandi á hönd-
um og áríðandi að starfsemin gangi
upp, bæði frá fjárhagslegu og fag-
legu sjónarmiði. Það er að vísu gagn-
rýnt að ekki skuli vera gerðar gæða-
kröfur til þeirra hesta sem koma inn
á stöðina til að byija með en það er
að sama skapi ánægjulegt að sú vit-
und skuli ráða ríkjum að nauðsynlegt
sé að starfsemi sem þessi skuli
standa undir sér en ekki jarmað ein-
göngu eftir framlögum frá ríkinu.
Stjómin hefur nú þegar sett sig í
samband við Bændaskólann á Hólum
með ósk um samstarf við rannsókn-
arverkefni ýmiskonar. Tæpast verður
farið út í umfangsmiklar rannsóknar
á einu ári en þama sýnir stjómin við-
leitni í þá átt að leggja gmnninn að
því sem kann að verða í áframhald-
andi starfsemi. Flestir sem tjáðu sig
um málefni stöðvarinnar vom sam-
mála um að brýnt væri að efla rann-
sóknir til hagsbóta ,fýrir hrossarækt-
ina og væri stóðhestastöðin þar heppi-
legur vettvangur í sumum tilvika.
Stór nöfn á stöðinni
Stjómarmenn kváðust nokkuð
ánægðir með undirtektir það sem
komið væri og þegar ljóst að margir
kunnir stóðhestar muni gista stöðina.
Hrossaræktarsamband Suðurlands
hefur tryggt sér pláss fyrir fimm
hesta á stöðinni í vetur. Tveir hestar
frá sambandinu, þeir Hrynjandi frá
Hrepphólum og Kmmmi frá Hala,
verða þar í tamningu en auk þeirra
verða þar í geymslu Sörli frá Bú-
landi, Kveikur frá Miðsitju og flagg-
skipið Andvari frá Ey. Þrír síðast-
töldu hestamir verða jámaðir en
ekki þjálfaðir markvisst. Þá verður
Ögri frá Sauðárkróki áfram á stöð-
inni og komið hefur til tals að Hrossa-
ræktarsamband Skagfirðinga sendi
fjögurra vetra hest, Hjalta frá Hól-
um, suður en ekkert hefur verið
ákveðið endanlega. Þá hyggst Leifur
Þórarinsson bóndi í Keldudal senda
tvo fjögurra vetra hesta á stöðina
svo eitthvað sé nefnt. Ljóst er að
framundan em afdrifaríkir tímar
varðandi framhald á starfsemi stóð-
hestastöðvarinnar og fróðlegt að
fylgjast með hveijar verða undirtekt-
ir þeirra sem líklega munu yfirtaka
starfsemina, það er hrossabænda.
Höfundur skrifar um hesta
í Morgvnblaðið.
Morgunblaoið/Valdimar Kristinsson
FYRSTT hesturínn var kominn á staðinn daginn áður en starf-
semin hófst. Þeir Páll og Sigurður stilltu sér upp við hlið
Strengs frá Stakkhamri sem er undan Stiganda frá Sauðár-
króki og Pílu frá Stakkhamri, en hann mun verða í það minnsta
tvo mánuði á stöðinni.
hefur einn tamningamanna
stöðvarinnar unnið í þeim
þremur hesthúsum sem stöðin
hefur veríð til húsa í, en hann
vann á stöðinni frá 1980 til
1985.
Sigurður Matthíasson, sem í
sumar hætti að vera efnilegur
er hann skipaði sér á bekk með
fremstu reiðmönnum landsins,
sagði þetta vissulega spennandi
verkefni, dálítið öðruvísi en það
sem hann hefur verið að fást
við og svo væri gaman að
breyta um umhverfi. „Ég hef
alltaf verið í bænum á veturna
en breyti nú til og verð í sveit-
inni í vetur,“ sagði Sigurður,
ánægður með nýja starfið.
Þeir Páll og Sigurður eru
ráðnir fram að fjórðungsmóti
með mögulcika á framlengingu
ef starfsemi verður fram haldið
að loknu móti.
__________MIMNIMGAR
SIGURÐUR GÚSTAF
KJARTANSSON
+ Sigurður Gústaf Kjartans-
son fæddist á Grimsstöðum
á Fjöllum 18. mars 1922. Hann
lést á heimili sinu á Birnunesi
á Árskógsströnd 23. október
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Stærri Árskógskirkju
30. október.
MIG langar í fáum orðum að minn-
ast tengdaföður míns, Gústafs Kjart-
anssonar, sem er látinn. Gústaf var
búinn að vera heilsulítill nokkuð
lengi, en aldrei kvartaði hann eða
vildi ræða um veikindi sín, hann
eyddi alltaf slíku tali eða sló því upp
í glens. Gústaf var ekki sú mann-
gerð er bar tilfínningar sínar á torg,
en stutt var í gamansemina og létt-
leikann ef því var að skipta. Ég veit
ekki til þess að tengdafaðir minn
hafi látið styggðaryrði falla um
nokkum mann, hann var einstakt
ljúfmenni, kurteis og lítillátur. Gúst-
af hugsaði fyrst og síðast um fjöl-
skyldu sína, að henni liði vel og þar
væru allir hlutir í lagi. Það lýsir því
Gústaf vel að morguninn sem hann
lést hafði hann hellt upp á kaffikönn-
una eins og hann var vanur svo að
ijúkandi kaffisopinn yrði til áður en
heimilisfólkið færi til verka, en fáum
mínútum síðar var hann látinn. Hans
líðan vék fyrir umhyggju um sína
nánustu. Ég man enn í dag eftir
okkar fyrsta samtali þegar ég blá-
ókunnugur strákurinn kom í fyrsta
sinn í Brimnes. Þeirri hlýju og góð-
mennsku sem ég fann þá og alla tíð
síðan frá þér streyma gleymi ég aldr-
ei. Gestrisni og hjálpsemi hefur alla
tíð einkennt tengdaforeldra mína og
voru þau hjónin samhent í því, eins
og svo mörgu öðru og skipti þá ekki
máli hvort það voru börnin úr ná-
grenninu eða fullorðnir sem áttu í
hlut. Barnabörnin hafa öll mikið
sótt í sveitina og nærveruna við afa
sinn og ömmu, þar sem þau fengu
ótakmarkaða væntumþykju og
hlýju. Meðan okkar böm voru yngri
dvöldu þau þar stundum part úr
sumri og komu þaðan hraust og sæl
til baka. Oft hefðum við viljað vera
nær ykkur og geta skroppið oftar í
sveitina, en fjarlægðin hefur gert
slíka skreppitúra ómögulega. Gústaf
og Karólína byggðu upp á Brimnesi
af miklum dugnaði og myndarskap
og er þar rekið myndarlegt bú í
dag, sem synimir Kjartan og Arnar
hafa nú tekið við að mestu.
Gústaf gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum um dagana í sveitinni. Einn-
ig vann hann mikið utan heimilis
með búskapnum. Var þá oft langur
vinnudagur og ekki alltaf spurt hvað
tíma liði. Gústaf var mjög traustur
og lagtækur maður og var oft til
hans.Jeitað. Þar af leiðandi mæddu
bústörfin oft meira á Karólínu.
Þetta getur aldrei orðið tæmandi
upptalning á störfum Gústafs um
dagana enda ekki ætlunin, heldur
fátækleg orð um góðan mann.
Nú ert þú, kæri tengdafaðir, fall-
inn frá en minningin um yndislegan
afa, föður og tengdaföður lifir áfram
í hjörtum okkar.
Hver fðgur dyggð í fari manns
er fyrst af rótum kærleikans.
Af kærleik sprottin auðmýkt er,
við aðra vægð og góðvild hver
og friðsemd hrein og hógvært geð
og hjartaprýði stilling með.
(H. Hálfd.)
Mér finnst þessar ljóðlínur lýsa
vel hjartaþeli þínu, og vil ég fá að
þakka þér innilega fyrir kynnin og
allt það sem þú hefur veitt mér og
fjölskyldu minni í gegnum árin.
Karólína, börn og bamabörn. Drott-
inn mun sefa sorg ykkar og gefa
ykkur styrk á þessari sorgarstund.
Sigurður Ananíasson.
INDESiT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT
1ÍH tz
Q
Z
er einstök.
a Þvottavél
IW 860
Vindur 800 sn.
14 þvottakerfi.
Stiglaus hitastillir.
Orkunotkun 2,3 kwst.
Hae5 85 cm
Breidd 60 cm
Dýpt 60 cm
Verð kr. 52.527,-
I Uppþvottavél
D 4500
10 kerfa vél,
tekurl2 manna matarstell,
6 falt vatnsöryggiskerfi
mjög hljóSlót og fullkomin.
HæS: 85 cm
Breidd: 60 cm
Dýpt: 60 cm
Verðkr.63.153,- |
JVeirð stgr. \
Eldavél
KN 6046
Undir og yfirhiti.
Geymsluskúffa.
HaeS: 85-90 cm
Breidd: 60 cm
Dýpt: 60 cm
Verð kr.46.211,-
#índe$t
Kæliskápur
GR 1860
HaeS: 117 cm
Breidd: 50 cm
Dýpt: 60 cm
Kælir: 140 I
Frystir: 45 I
T. 15 kwst/24 tímum
Verð kr.41.939,
Kæliskápar með fiystihólfi fyrir ofan
Þurrkarí SD 510
Tromlan snýst í bóSar
óttir,tvö hitastig.
Kaldur blástur.
Klukkurofi.
Barki fylgir
Verð kr.37.517,-
Undirborbsofn ▲
Cl M2W - Blástur
undir og yfirhiti, grill meS
eSa án blásturs. Klukkurofi
Verð kr. 34.684,-
Veggofn Fl M1 ■ Blástur
undir og yfirhiti, grill meS
eSa án blásturs. Klukkurofi
Verð kr. 29.950,-
_Gerð HæöxBreiddxDýpt ’ Kirfir ltr.1 FrysUr Itr.j_Staðgr. 1
140x50x60
UR
170x60x60
BRÆÐURNIR
DJORMSSONHF
C Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi.
Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi.
c Guönl Hallgrímsson, Grundarfiröl. Ásubúö.Búöardal
Vestfiröir: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi.
® Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröl.
_ Norðurland: Kf. Steingrimsfjaröar.Hólmavík.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
w Skagfiröingabúö.Sauöárkrókl. KEA byggingavörur,
Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvfk. Kf. Þingeyinga, Húsavík.
Urö, Raufarhöfn.
Austurland: Sveinn Guömundsson. Egilsstööum.
O Kf. Vopnfirölnga, Vopnafiröl. Stál, Seyölsfiröi.
Verslunln Vík, Neskaupsstað.
JQ Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn
Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli.
E Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
3 Reykjanea: Stapafell, Keflavík.
Rafborg, Grindavfk. FIT, Hafnarfiröi
Lágmúla 8, Sími 553 8820
INDESIT INDESIT INDESIT INDEStT INDESIT tNDESIT INDEStT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT -