Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRAINN
KRISTJÁNSSON
+ Þráinn Krist-
jánsson verka-
maður var fæddur
á Húsavík 10. ág-
úst 1912. Hann lést
á Sjúkrahúsi Húsa-
víkur 29. október
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Kristján Signr-
geirsson verka-
maður á Húsavík
og kona hans Þur-
íður Björnsdóttir.
Þau áttu sjö börn
og var Þráinn
þeirra yngstur og
sá síðasti sem kveður. Systkini
Þráins voru í aldursröð: Björn,
sjómaður á Húsavík, kvæntur
Sigríði Helgadóttur; Arnór,
verkamaður á Húsavík,
kvæntur Guðrúnu Magnús-
dóttur; Kári, ráðsmaður, síð-
ast á Hörgslandi á Síðu; Páll,
bæjarritari á Húsavik, kvænt-
ur Huld Sigurðardóttur; Ás-
geir, sjómaður og bæjarfull-
trúi á Húsavík, kvæntur Sig-
ríði Þórðardóttur; og Bára
húsfreyja á Bíldudal, gift Páli
Hannessyni.
Þráinn hóf sambúð með Sig-
rúnu Selmu Sigfúsdóttur á
Húsavík árið 1950 og gengu
þau í hjónaband 1960. Selma,
eins og hún- var
jafnan nefnd, lést
28. mars 1986.
Þeim varð 11 barna
auðið. Þau eru:
Þuríður, f. 15.4.
1950, d. 29.7. 1959;
Sigfús, f. 12.1.
1954, verkamaður
á Húsavík, maki
Elísabet S. Jóhann-
esdóttir; Kristján,
f. 9.12.1956, verka-
maður á Húsavík,
maki Soffía G. Guð-
mundsdóttir; Þur-
íður, f. 9.3. 1959,
verkakona á Húsavík; Jakob-
ína f. 25.7. 1960, húsmóðir í
Reykjavík, maki Guðbrandur
S. Jónsson; Höskuldur Goði,
f. 29.3. 1962, sjómaður, d.
19.10. 1991; Þráinn, f. 8.9.
1965, verkamaður á Húsavík,
maki Aðalheiður Tryggva-
dóttir; Sigrún Linda, f. 28.4.
1967, verkakona á Húsavík,
maki Sigurður H. Grétarsson;
Ölver, f. 24.7.1970, verkamað-
ur á Húsavík; Valgerður, f.
15.10. 1971, húsmóðir í
Reykjavík, maki Salim Sams-
hudin; Ágúst, f. 1.8. 1973, sjó-
maður á Húsavík.
Útför Þráins fór fram frá
Húsavíkurkirkju 8. október.
FÖÐURBRÓÐIR minn Þráinn
Kristjánsson kvaddi lífið á Sjúkra-
húsi Húsavíkur nú á haustdögum
eftir stutta legu. Hann hafði alið
allan sinn aldur á Húsavík, lengst
af sem verkamaður og sjómaður.
•Þráinn var yngstur systkina
sinna. Bræðurnir voru sex og ein
systir. Þráinn ólst upp á tímum .
fátæktar þegar verkafólk var að
móta félagsskap sinn til baráttu
fyrir betri kjörum. Þessu kynntist
Þráinn mjög vel sem barn og
unglingur. Þuríður móðir hans var
fyrsti formaður Verkakvennafé-
lagsins Vonar á Húsavík og
drukku þau systkinin baráttuand-
ann með móðurmjólkinni. Allir
bræðurnir nema Kári settust að
á Húsavík og höfðu mikil afskipti
af verkalýðsmálum. Þeir voru í
stjórn og gegndu formennsku í
Verkamannafélagi Húsavíkur um
áratuga skeið. Þeir skipuðu sér í
raðir sósíalista á Húsavík og var
Þráinn þar dyggur stuðningsmað-
ur um margra ára skeið.
Framan af ævi sinnti Þráinn
sjómennsku en lengst af starfs-
tíma sínum vann hann hjá Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur og hafði
umsjón með lifrarbræðslu fyrir-
tækisins. Hann hafði til margra
ára nokkurn íjárbúskap enda
hafði hann mikið yndi af sauðfé.
Fé hans var afurðagott enda vel
um það hirt. Honum var að því
mikil ánægja og afslöppun eftir
langan vinnudag að fara til gegn-
inga og sama mátti segja um
heyöflun sem einnig hlaut að vera
unnin í hjáverkum. Þessi hliðarbú-
skapur kom sér vel þegar fjöl-
skyldan stækkaði því marga
munna þurfti að seðja.
Þráinn lærði ungur á orgel og
hafði mikið yndi af tónlist. Hann
hafði góða söngrödd sem hann
hefði gjarnan viljað þroska betur
ef kringumstæður hefðu leyft.
Hann skemmti sér af lífi og sál
á sínum yngri árum, dansmaður
góður og alger bindindismaður á
vín og tóbak. Þá var hann áhuga-
maður um íþróttir, einkum knatt-
spyrnu. Hann var einn af stofn-
endum íþróttafélagsins.Völsungs
á Húsavík og í fyrsta keppnisliði
þess og reyndar fyrsti markaskor-
ari Völsungs. Lifandi áhuga hélt
hann fyrir knattspyrnunni til
endadægurs og lét sig sjaldan
vanta á völlinn.
Sem fyrr segir voru þeir bræður
miklir verkalýðssinnar og baráttu-
menn fyrir bættum kjörum alþýð-
unnar. Þráinn fylgdi eldri bræðr-
um sínum fast eftir þó hann væri
ekki eins mikið í sviðsljósinu og
þeir. En umræðan var sífellt í
gangi og ósjaldan urðum við börn
bræðranna áheyrendur að snörp-
um viðræðum því þó þeir bræður
væru allir sósíalistar gat þá engu
að síður greint á. I þeim umræðum
var Þráinn mjög ferskur enda lagði
hann sig fram um að afla sér þekk-
ingar með lestri. Þegar hann full-
orðnaðist voru það ungu mennirn-
ir sem leituðu til hans sem kjöl-
festu í umróti félagsmálanna.
Svo vildi til að þrír bræðurnir,
Þráinn, Arnór faðir minn og Páll,
bjuggu allir í sömu götunni og
húsin voru hlið við hlið. Þetta
voru lítil hús, verkamannabústað-
ir sem þeir höfðu eignast. Sam-
gangur þeirra bræðra var því
mikill einkum föður míns og Þrá-
ins og dægurmálin þá jafnan á
dagskrá. Þráinn varð snemma vel
að sér um ættfræði og grúskaði
mikið í þeim málum. Þangað gátu
Kristjánsmenn, en svo voru af-
komendur Kristjáns afa míns
nefndir, jafnan sótt fróðleik um
sitt fólk og raunar um svo margt
í ættum Þingeyinga.
Þráinn hóf sambúð með Sig-
rúnu Selmu Sigfúsdóttur 1950 og
gengu þau í hjónaband 1960. Hjá
þeim í heimili voru foreldrar
Selmu. Brátt hlóðst á Þráin og
Selmu mikil ómegð en þau eign-
uðust alls 11 börn. Oft var þröngt
á Brávöllum 7 þegar þessi stóri
hópur var að vaxa úr grasi en það
var þó svo að þangað löðuðust
börnin úr nágrenninu og fannst
gott að vera. Þar var heldur aldr-
ei amast við börnum. Af sjálfu
leiðir að það kostaði mikla vinnu
að sjá fyrir svo stórum hópi og
þá var ekki síður mikið álag á
húsmóðurinni. Kröfur foreldr-
anna voru ekki miklar fyrir sjálf
sig. Öflun tekna og umsjá fjöl-
skyldunnar tók nánast allan tíma
þeirra. Þráinn vann þá við lifrar-
bræðsluna. Þá var vinnudagurinn
oft æði langur og hvíldartíminn
skammur. Þráinn hélt þó áfram
að fylgjast með félagsmálunum
þó hann tæki minni þátt í þeim.
Borgarafundi og pólitíska fundi
sótti hann jafnan og tók þá oft
til máls. Hann var rökfastur í
málflutningi og hafði gott vald á
íslensku máli. Þráinn var vinsæll
af frændliði sínu og gerði sér líka
far um að fylgjast með frændum
sínum. Þegar ég heimsótti hann
í sumar ræddi hann mikið um
börnin sín og framtíð þeirra. Hann
var að vonum ánægður með hve
vel þeim farnaðist enda eru af-
komendur hans mikið myndar-
fólk. Við ræddum um gamla daga
Simi tf isósa
fftfeK OG fRÁBPER
Þetta er rétta sinnepssósan á grænmetissamlokuna
og hún bragðast lika mjög vel með fiski.
Kólesterólskert
E.Finnsson sinnepssósan fæst
í öllum helstu matvöruverslunum.
Verði ykkur að góðu.
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 424 6525
m
og skildum ánægðir frændurnir.
Frændi var vel sáttur við lífið og
svipurinn hreinn og heiður. Þann-
ig mun hann lifa í minningunni,
baráttumaður fyrir kjörum ann-
arra sem ekki gerði miklar kröfur
fyrir sína hönd. Við systkinin,
Árnórs börn, kveðjum þennan
ástsæla frænda með mikilli virð-
ingu og þökk um leið og við vott-
um börnum hans, tengdabörnum
og barnabörnum samúð okkar.
Kári Arnórsson.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast vinar míns, Þráins Krist-
jánssonar, sem er látinn, áttatíu
og j)riggja ára að aldri.
Eg þekkti Þráin alveg frá því
að ég var barn og lék mér við
bömin hans á Torginu. Vinskapur-
inn hélst alla tíð þrátt fyrir að
börnin væru farin að heiman og
hafði ég mikla ánægju af heim-
sóknunum til hans því hann hafði
frá svo mörgu, fróðlegu og
skemmtilegu að segja. Eftir að
hann hætti að vinna í Fiskiðjusam-
lagi Húsavíkur sjötíu og sex ára
gamall hafði hann meiri tíma en
áður til lesturs. Hann las allt milli
himins og jarðar og var fróður um
margt enda voru ferðir hans á
bókasafnið margar, sérstaklega
síðustu árin. Það var ótrúlega
gaman að heyra hann segja frá
og tala um gömlu dagana. Hann
sagði mér líka margar skemmti-
legar sögur af ættingjum mínum
og vinum hans.
Þráinn hafði alla tíð mikinn
áhuga á íþróttum og var einn af
stofnendum Völsungs. Allt fram á
síðasta dag var hægt að tala við
hann um fótbolta.
Hann fýlgdist vel með okkur
strákunum og eftir helgar vildi
hann alltaf fá að vita hvort við
hefðum nú ekki farið á dansleik
og slett ærlega úr klaufunum.
Heimabyggðin var honum mjög
kær og var honum tamt að tala
um „Gömlu Vík“. Gott dæmi um
það er þegar hann fór í fyrrasum-
ar í dags ferðalag með Kristjáni
syni sínum og fjölskyldu um Norð-
austurland. Veðrið var mjög gott
og þegar þau voru að koma heim,
sagði hann að það væri nú hlægi-
legt að bera þessa staði saman við
„Gömlu Vík“.
Nú situr gamli maðurinn ekki
lengur við eldhúsborðið og les
blöðin eins og ég sé hann svo oft
fyrir mér. En minning um góðan
vin gleymist ekki.
Kæru vinir, Siffi, Lilli, Þura,
Jaka, Minni, Linda, Ölli, Valla og
Gúddi, ég veit að þið og fjölskyld-
ur ykkar syrgið gamla manninn
og gott er þá að hugsa til þess
að góðir taka á móti honum.
Sigurjón Ármannsson.
Barnaljósmyndir • Fermingarmyndir
Brúdkaupsmyndir • Stúdentamyndir
P £ T U R PÉTURSSON
1. ] Ö S M Y N D A S T Ú D í Ó
l.augdvrgi 24 101 Rcykjavík
Sími 552 (Ví24
■----T-!--'-----------