Morgunblaðið - 09.11.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 43-
MINMINGAR
LARA KRISTIN
JÓNSDÓTTIR
+ Lára Kristín
Jónsdóttir var
fædd 13. nóvember
1921 á Patreks-
firði. Hún lést á St.
Jósefsspítalanum í
Hafnarfirði 30.
október síðastlið-
inn og fór útförin
fram 8. nóvember.
FRÆNKA okkar,
Lára Kristín Jónsdótt-
ir, er látin á 74. aldurs-
ári. Við systkinin úr
Valhöll á Patreksfirði
munum minnast hennar með þökk
og virðing meðan aldur endist.
Fyrst og fremst fyrir það hvemig
hún brást við, þegar móðir okkar
féll frá í blóma lífs síns árið 1943.
Þá kom hún vestur og aðstoðaði
föður okkar með heimilið og böm-
in fimm, öll á ungum aldri en tvö
þau elstu vom þá farin að heiman.
Það hefur verið mikið og fóm-
fúst starf, sem þar var í ráðist af
rétt liðlega tvítugri stúlku. En
Láru fórst þetta prýðilega úr hendi
og innileg vinátta hefur æ síðan
ríkt okkar í millum. En Lára upp-
skar ríkulega, því á þessu tímabili
kynntist hún sómamanninum
Magnúsi Guðlaugssyni síðar úr-
smið, sem varð lífsförunautur
hennar til æviloka. Magnús er
Hafnfirðingur og þar reistu þau
bú sitt og undu vel hag sínum.
Samfundir okkar hafa ávallt
verið ánægjulegir, hvort heldur
hefur verið á fallegu heimili þeirra
í Hafnarfirði eða í sumarbústaðn-
um í Mórudalnum. En
þar hafa þau unnið
mikið og óvenjulegt
uppgræðslustarf.
Við systkinin og
ijölskyldur okkar biðj-
um Magnúsi og fjöl-
skyldu hans allri Guðs
blessunar um ókomin
ár.
Bolli A. Ólafsson.
Á kveðjustund vil
ég þakka góða sam-
vera og frábær kynni
með örfáum orðum.
Vinátta góðs fólks er mikilvæg í
lífnu. Lára Jónsdóttir hafði lag á
að skapa gott andrúmsloft í hópi
vina og i miklu félagsstarfí. Hún
hafði af mörgu að miðla.
Ég var lánsöm þegar ég kynnt-
ist Lára og manni hennar Magnúsi
fyrir mörgum áram. Það var í stór-
um hópi vina og kunningja sem
kom saman af ýmsum tilefnum.
Síðar átti ég margra ára samstarf
við Lára á vegum Styrktarfélags
aldraðra í Hafnarfírði og í Inner-
wheel-klúbbi Hafnarfjarðar sem
er félagsskapur eiginkvenna Rota-
rymanna.
Lára var í fjölda ára formaður
Styrktarfélags aldraðra en félagið
stóð fyrir blómlegu félagsstarfí á
mörgum sviðum. I formannsstarfí
kom fram festa og virðuleiki,
ásamt dugnaði og hjálpsemi. Lára
var í raun hin virka forystukona.
Hún lagði, ásamt stjóm sinni,
mikla vinnu í að undirbúa fundi
og basari til að afla tekna fyrir
félagsstarfið. Dugnaður og óeigin-
gimi einkenndu störfín sem öll
vora unnin í sjálfboðavinnu.
Af mörgu er að taka en kannski
er merkast þegar Styrktarfélagið
gekkst fyrir opnu húsi fyrir aldraða
hálfsmánaðarlega. Lára og vinkon-
ur hennar unnu mikið og óeigin-
gjamt starf í þágu aldraðra í sam-
vinnu við hin ýmsu félög í bænum.
Slíkt félagsstarf er nú orðið að
fastri hefð þó að tilhögun hafí
breyst. Þama var um merkt braut-
ryðjendastarf að ræða.
Þegar Innerwheel-klúbbur
Hafnarfjarðar var stofnaður var
Lára í forystu við allan undirbún-
ing. Hún hafði þá félagsreynslu
og þann sterka persónuleika til að
bera til að vera í forystu. Hún var
sjálfkjörin forseti klúbbsins tvö
fyrstu árin á meðan við hinar vor-
um að öðlast reynslu til að taka
við hver af annarri. Hún var síðar
kjörin heiðursfélagi klúbbsins, sú
eina sem hefur orðið þess heiðurs
aðnjótandi.
Auk þess að vera forystukona í
félagsmálum var Lára húsmóðir
af myndarskap. Heimilið bar vott
um smekkvísi þeirra hjóna, Lára
og Magnúsar. Listfengar hannyrð-
ir prýða heimili þeirra og era víða
í öndvegi á heimilum ættmenna
og vina.
í Móradal á Barðaströnd byggðu
Lára og Magnús sér sumarhús.
Jörðina keyptu þau að mestu og
hafa lagt mikla vinnu I stórfellda
skógrækt og aðra uppgræðslu.
Ræktunin ber vott um elju og
nærfærni við landið. Það var mikið
lán að vera í þeim vinahópi sem
notið hefur gestrisni þeirra hjóna
í þessari sumarparadís.
Þegar leiðir skilja að sinni koma
margar góðar minningar upp í
hugann. Vináttan varð til þess að
við stóðum fyrir föndumámskeið-
um fyrir jólin í nokkur ár. Hug-
kvæmni Lára var mikil og afköst
og vinnusemi ótrúleg. Slíkrar sam-
vinnu er ljúft að minnast.
Við hjónin þökkum áralanga
vináttu og vil ég votta virðingu
mína á kveðjustund. Magnúsi, son-
unum og fjölskyldum þeirra send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Ragnhildur G.
Guðmundsdóttir.
Kveðja frá Inner Wheel,
Hafnarfirði
í dag kveðjum við Lára Kristínu
Jónsdóttur. Með henni er horfin
af braut helsti hvatamaður að
stofnun Inner Wheel, Hafnarfírði.
Hún leiddi okkur fyrstu sporin sem
forseti og mótaði starf klúbbsins
strax frá upphafí. Lára sýndi mál-
efnum Inner Wheel-hreyfingarinn-
ar ætíð mikinn áhuga og um leið
og klúbbamir vora orðnir nógu
margir til að stofna mætti umdæmi
á íslandi vann hún að stofnun þess
og átti síðan sæti í fyrstu stjóm
umdæmisins.
Lára var dugnaðarforkur og
mætti alla tíð mjög vel á fundi.
Sama var hvort hún var beðin um
að flytja erindi eða sjá um kaffí-
veitingar á degi aldraðra. Einnig
var hún mjög hög í höndum og á
okkar árlega jólafundi kom hún
ávallt með muni fyrir jólahapp-
drættið sem hún hafði unnið sjálf.
Þessir munir sýndu vel listrænt
handbragð hennar endá vonuð-
umst við allar til að hreppa þá í
vinning.
Fyrir starf sitt innan Inner
Wheel, Hafnarfírði var Lára gerð
að fyrsta og eina heiðursfélaga
klúbbsins. Með Lára er horfin af
braut góður félagi en við munum
ávallt minnast hennar með söknuði
og um leið þakklæti.
Fjölskyldu Lára og ástvinum
öllum vottum við okkar dýpstu
samúð.
Kveðjur frá Inner Wheel,
Hafnarfirði,
Brynja Guðmundsdóttir, -
forseti.
Elsku amma. Nú þegar komið
er að kveðjustund, ri§ast upp árin
þegar við bjuggum hjá ykkur í kjall-
aranum á Mánastígnum. Þá áttum
við ansi margar góðar stundir sam-
an og mér þótti alltaf gott að geta
komið til þín á efri hæðina. Þar var
alltaf eitthvað gott að kroppa í eða
skoða allt fína föndrið þitt.
Þó svo að heilsan hafi verið far-
in að gefa sig seinni árin, varstu-
alltaf hraust í mínum huga. Þú
varst mjög hress í afmælinu mínu
21. október siðastliðinn þegar þið
afí komuð í kaffí og við fengum
að heyra allt um Bahamaeyjaferð-
ina sem þú varst svo ánægð með.
Það er því mjög gott til þess að
vita að þið höfðuð það allavega
gott saman þú og afi í þessari síð-
ustu ferð ykkar utan.
Með þessum orðum kveð ég þig,
elsku amma, og sendi þér kveðju
frá henni litlu systur minni Lára
Huld. Við biðjum góðan Guð að
styrkja hann afa í sorg sinni.
Heiðar Már Ólafsson.
\Erfidrykkjwr
Safnaðarheimili I
Háteigskirkju \
>
I
I
»
.»
i
$
VERÐ NÚNA 15.990 KR.
Peysur
VERÐ ÁÐUR 5.990/ 6.490
VERÐ NÚNA 3.990 KR.
Flauelsjakkar
VERÐ ÁÐUR 1 1.990
VERÐ NÚNA 8.990 KR.
STAKAR BUXUR
VERO ÁÐUR 5.490
VERÐ NÚNA 3.990 KR.
Tilboð
PUMA SKÓR
DR. MARTENS SKÓR
OG FLEIRA OG FLEIRA
SENDUM ( PÓSTKRÖFU
KRINGLUNNI
/íA VERSÁÐUR 19.780 /rÆ VERO NÚNA 1 2.990 KR. 1
p - g ^jsnStá 'v l í/mg jakkaföt
W&Qjg-W MT ; JKlLSgil M/VESTI
VERO ÁÐUR 24.770