Morgunblaðið - 09.11.1995, Side 45

Morgunblaðið - 09.11.1995, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 45 umræðuefni okkar og þá oft tímun- um saman. Ég minnist þess að oft þegar við unnum að þess háttar málefnum fyrir skólann, sökktum við okkur oft í svo djúpar umræður að við gleymdum alveg stund og stað. Svo áttuðum við okkur skyndi- lega á því að það var langt liðið á kvöld og við sátum með auðar blaðsíðumar fyrir framan okkur. Við höfðum gjörsamlega gleymt að skrifa allt niður. Fljótlega eftir að við lukum stúd- entsprófi frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði skildu leiðir okkar í ein 4 ár. Það var svo síðastliðið sumar að við hittumst aftur og urðu það miklir gleðifundir. Það var eins og leiðir okkar hefðu aldrei skilið. Margt var að tala um og segja frá. Ég man sérstaklega eftir því hvað við höfðum gaman af að sjá börnin okkar leika sér saman og hversu vel Jónu Dís og Ríkey kom saman. Þessa síðustu mánuði hittumst við mikið og ég þakka Guði fyrir þennan tíma. Ég er svo innilega þakklát fyrir að hafa fengið þennan tíma til að endumýja vináttu mína við hana og að ég fékk tækifæri til að segja henni það sem mér bjó í bijósti og hafði svo lengi langað að segja henni. Ég trúi því að þarna hafi örlögin verið að verki. Lífið er oft svo ótrúlega skrítið. Hvernig sumir hlutir falla saman þegar horft er til baka. Elsku kæra vinkona, með þessum orðum langar mig að kveðja þig. Megi Guðs hlýja og kærleikur um- lykja þig, kæra vina. Þú munt allt- af lifa í minningunni. Elsku Smári, Gerður, Garðar og Halldóra, megi Guð styrkja ykkur í hinni miklu sorg ykkar. Elsku Eggert, Ríkey litla og Smári. Guð blessi ykkur og styrki. Munið: Góður er Drottinn þeim er á hann vona, og þeirri sál er til hans leitar. Gott er að biðja hljóður eftir hjálp Drottins. (HL. 3,25-26.) Þín vinkona Jónína, Sigurður Styff og dætur. Ó, dauði, taktu vel þeim vini mínum, sem vitjað hefur þreyttur á þinn fund. Oft bar hann þrá til þín í huga sínum og þú gafst honum traust á banastund. Nú leggur hann það allt, sem var hans auður, sitt æviböl, sitt hjarta að fótum þér. ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 562 0200 i ILrfidryfzlzjur frá kr. 590 pr. mann S írnar: 55! 1247 55! 1440 Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR HÓTEL LOFTLElDlIi Er slíkt ei nóg? Sá einn er ekki snauður, sem einskis hér á jörðu væntir sér. Þá hefnir sín að hafa margs að sakna. En hinn, sem aldrei líf sitt jörðu batt, fær sofnað rótt án óskar um að vakna, fær óttalaust án fyrirvara kvatt. Hann á hér engu framar til að tjalda, og trúir ekki á neitt, sem glatast má, og þarf því ekki á heiminum að halda, en heilsar glaður því, sem koma á. Og þá er dauði, síður sorgarefni, þó sá, er þessum huga burtu fer og lífið sýndi litla undirgefni, að lokum fái meiri trú á þér. Og örðugt fleirum varð en vini mínum í veröld, sem er ótal þymum stráð, að vinna gullinn þráð úr sorgum sínum oe syngia fullum rómi um lífsins náð. MINNINGAR Ei spyr ég neins, hver urðu ykkar kynni, er önd hans, dauði, viðjar sínar braut, og þú veist einn, hvað sál hans hinzta sinni þann sigur dýru verði gjalda hlaut En bregztu þá ei þeim, er göngumóður og þjáðri sál til fundar við þig býst. Ó, dauði, vertu vini mínum góður og vek hann ekki framar en þér lízt. (Tómas Guðmundsson) Elsku vinkona, við kveðjum þig með söknuði og þökkum fyrir að hafa kynnst þér ogxátt með þér margar ánægju stundir. Þú gafst okkur hlýju þína og skilning sem við munum ætíð búa að. Við vottum fjölskyldunni dýpstu samúð. Kristín G., Kristín H., Ragna og Svafa. Elsku vinkona, aldrei hefði ég getað trúað því að samverustundim- ar okkar um jólin síðustu myndu verða þær síðustu. Þú geislaðir eins og alltaf. Við ræddum um svo margt, lífið, tilveruna og okkur. Margt hafði breyst, þú varst orðin tveggja bama móðir og ég var flutt utan til náms og Kristín var líka orðin móðir. En núna sit ég hér og skrifa þér kveðjuorð. Minningarnar fljóta framhjá, Lækjarskólinn og allt það sem við brölluðum á þeim tíma, hestarnir og allir útreiðartúrarnir, þar áttum við margar góðar stund- ir, Flensborg, dimmisjónpartýið hjá þér sem varð ansi líflegt, útskriftin. Þetta eru svo ótalmargar yndislegar minningar sem ég mun geyma vel. Þær eru eins og ljós í þessu myrkri sem sorgin er. Þeirri staðreynd að við munum ekki hittast aftur í þessu lífi er erf- itt að kyngja. Þú, sem alltaf virkað- ir svo sterk og gott var að leita til, en undir niðri vissi maður að bjó- viðkvæm sál sem tók nærri sér allt óréttlæti og erfiðleika annarra. Það er stórt skarð sem myndast hefur í okkar vinkonuhóp. En það er líka styrkur að fylgjast með bömum þín- um vaxa úr grasi sem sjálfstæðir einstaklingar og um leið svo mikil- vægur hluti af þér. Ég votta foreldrum þínum, böm- um, systkinum og öðmm aðstand- endum mína dýpstu samúð. Megi góður guð styrkja ykkur á þessum erfíðu tímum. Lísa. m Yttu á takkann □g gæðin koma í ljós Þú getur treyst því að Canon Ijósritunarvélin skilar þér afbragðsgóðum Ijósritum - en þeir sem til þekkja vita líka að Ijósritunarvélarnar frá Canon eru alltaf skrefi á undan keppinautunum. Hjá Canon er lögð áhersla á rekstraröryggi, góð afköst og mikla skerpu, sem tryggir þér Ijósrit í hæsta gæðaflokki. Þú getur valið um stórar og öflugar Ijósritunar- vélar sem eru nánast eins og prentvélar eða litlar, hljóðlátar en afkastamiklar vélar sem skila þér fyrsta flokks Ijósritum. Canon Þú þekkir Canon - þú þekkir Nýherja (J\) NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 • SÍMI 569 7700

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.