Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 45
umræðuefni okkar og þá oft tímun-
um saman. Ég minnist þess að oft
þegar við unnum að þess háttar
málefnum fyrir skólann, sökktum
við okkur oft í svo djúpar umræður
að við gleymdum alveg stund og
stað. Svo áttuðum við okkur skyndi-
lega á því að það var langt liðið á
kvöld og við sátum með auðar
blaðsíðumar fyrir framan okkur.
Við höfðum gjörsamlega gleymt að
skrifa allt niður.
Fljótlega eftir að við lukum stúd-
entsprófi frá Flensborgarskóla í
Hafnarfirði skildu leiðir okkar í ein
4 ár. Það var svo síðastliðið sumar
að við hittumst aftur og urðu það
miklir gleðifundir. Það var eins og
leiðir okkar hefðu aldrei skilið.
Margt var að tala um og segja frá.
Ég man sérstaklega eftir því hvað
við höfðum gaman af að sjá börnin
okkar leika sér saman og hversu
vel Jónu Dís og Ríkey kom saman.
Þessa síðustu mánuði hittumst
við mikið og ég þakka Guði fyrir
þennan tíma. Ég er svo innilega
þakklát fyrir að hafa fengið þennan
tíma til að endumýja vináttu mína
við hana og að ég fékk tækifæri
til að segja henni það sem mér bjó
í bijósti og hafði svo lengi langað
að segja henni. Ég trúi því að þarna
hafi örlögin verið að verki. Lífið er
oft svo ótrúlega skrítið. Hvernig
sumir hlutir falla saman þegar horft
er til baka.
Elsku kæra vinkona, með þessum
orðum langar mig að kveðja þig.
Megi Guðs hlýja og kærleikur um-
lykja þig, kæra vina. Þú munt allt-
af lifa í minningunni.
Elsku Smári, Gerður, Garðar og
Halldóra, megi Guð styrkja ykkur
í hinni miklu sorg ykkar.
Elsku Eggert, Ríkey litla og
Smári. Guð blessi ykkur og styrki.
Munið:
Góður er Drottinn þeim er á hann
vona,
og þeirri sál er til hans leitar.
Gott er að biðja hljóður
eftir hjálp Drottins.
(HL. 3,25-26.)
Þín vinkona
Jónína, Sigurður Styff
og dætur.
Ó, dauði, taktu vel þeim vini mínum,
sem vitjað hefur þreyttur á þinn fund.
Oft bar hann þrá til þín í huga sínum
og þú gafst honum traust á banastund.
Nú leggur hann það allt, sem var hans auður,
sitt æviböl, sitt hjarta að fótum þér.
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
i
ILrfidryfzlzjur
frá kr. 590 pr. mann
S írnar:
55! 1247
55! 1440
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LOFTLElDlIi
Er slíkt ei nóg? Sá einn er ekki snauður,
sem einskis hér á jörðu væntir sér.
Þá hefnir sín að hafa margs að sakna.
En hinn, sem aldrei líf sitt jörðu batt,
fær sofnað rótt án óskar um að vakna,
fær óttalaust án fyrirvara kvatt.
Hann á hér engu framar til að tjalda,
og trúir ekki á neitt, sem glatast má,
og þarf því ekki á heiminum að halda,
en heilsar glaður því, sem koma á.
Og þá er dauði, síður sorgarefni,
þó sá, er þessum huga burtu fer
og lífið sýndi litla undirgefni,
að lokum fái meiri trú á þér.
Og örðugt fleirum varð en vini mínum
í veröld, sem er ótal þymum stráð,
að vinna gullinn þráð úr sorgum sínum
oe syngia fullum rómi um lífsins náð.
MINNINGAR
Ei spyr ég neins, hver urðu ykkar kynni,
er önd hans, dauði, viðjar sínar braut,
og þú veist einn, hvað sál hans hinzta sinni
þann sigur dýru verði gjalda hlaut
En bregztu þá ei þeim, er göngumóður
og þjáðri sál til fundar við þig býst.
Ó, dauði, vertu vini mínum góður
og vek hann ekki framar en þér lízt.
(Tómas Guðmundsson)
Elsku vinkona, við kveðjum þig
með söknuði og þökkum fyrir að
hafa kynnst þér ogxátt með þér
margar ánægju stundir. Þú gafst
okkur hlýju þína og skilning sem
við munum ætíð búa að.
Við vottum fjölskyldunni dýpstu
samúð.
Kristín G., Kristín H.,
Ragna og Svafa.
Elsku vinkona, aldrei hefði ég
getað trúað því að samverustundim-
ar okkar um jólin síðustu myndu
verða þær síðustu. Þú geislaðir eins
og alltaf. Við ræddum um svo margt,
lífið, tilveruna og okkur. Margt hafði
breyst, þú varst orðin tveggja bama
móðir og ég var flutt utan til náms
og Kristín var líka orðin móðir.
En núna sit ég hér og skrifa þér
kveðjuorð. Minningarnar fljóta
framhjá, Lækjarskólinn og allt það
sem við brölluðum á þeim tíma,
hestarnir og allir útreiðartúrarnir,
þar áttum við margar góðar stund-
ir, Flensborg, dimmisjónpartýið hjá
þér sem varð ansi líflegt, útskriftin.
Þetta eru svo ótalmargar yndislegar
minningar sem ég mun geyma vel.
Þær eru eins og ljós í þessu myrkri
sem sorgin er.
Þeirri staðreynd að við munum
ekki hittast aftur í þessu lífi er erf-
itt að kyngja. Þú, sem alltaf virkað-
ir svo sterk og gott var að leita til,
en undir niðri vissi maður að bjó-
viðkvæm sál sem tók nærri sér allt
óréttlæti og erfiðleika annarra. Það
er stórt skarð sem myndast hefur í
okkar vinkonuhóp. En það er líka
styrkur að fylgjast með bömum þín-
um vaxa úr grasi sem sjálfstæðir
einstaklingar og um leið svo mikil-
vægur hluti af þér.
Ég votta foreldrum þínum, böm-
um, systkinum og öðmm aðstand-
endum mína dýpstu samúð. Megi
góður guð styrkja ykkur á þessum
erfíðu tímum.
Lísa. m
Yttu á takkann
□g gæðin koma í ljós
Þú getur treyst því að Canon Ijósritunarvélin skilar þér afbragðsgóðum Ijósritum
- en þeir sem til þekkja vita líka að Ijósritunarvélarnar frá Canon eru alltaf skrefi
á undan keppinautunum. Hjá Canon er lögð áhersla á rekstraröryggi, góð afköst
og mikla skerpu, sem tryggir þér Ijósrit í hæsta gæðaflokki.
Þú getur valið um stórar og öflugar Ijósritunar-
vélar sem eru nánast eins og prentvélar eða litlar,
hljóðlátar en afkastamiklar vélar sem skila þér
fyrsta flokks Ijósritum.
Canon
Þú þekkir Canon - þú þekkir Nýherja
(J\) NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 • SÍMI 569 7700