Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MARGRET MA TTHIASDOTTIR + Margrét Matt- híasdóttir fæddist í Reykjavík 10. janúar 1936. Hún lést á Land- spítalanum 1. nóv- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkj- unni 8. nóvember. MAGGA, þú varst svo köld þar sem þú lást. Að vísu snerti ég þig ekki sjálf, en ainafna þín og dóttir mín hafði orð á því hve köld þú værir orðin og hún reyndi að hlýja þér þar sem þú lást nýlátin undir sænginni. Náttúrlega er það alveg gagns- laust að stíla þessi orð til þín, þú gast ekkert lesið fyrir rest, og núna sefur þú og getur þar af leiðandi alls ekkert lesið. En í von um að geta hughreyst einhvern ætla ég að vitna í rit sem gefið hefur verið út sérstaklega fyrir syrgjendur en þar er okkur bent á að - reiða okkur á vini, gæta heilsunnar, eins er okkur ráðlagt að sýna sjálfum okkur þolinmæði í sorginni. Þar er vitnað í vísindarannsókn á ástvina- missi sem útskýrir sorgarferlið á eftirfarandi hátt: „Sá sem syrgir ástvin sveiflast ef til vill ákaflega og hratt frá einu tilfinningaástandinu til annars, og um nokkum tíma kann hann til skiptis að forðast það sem minnir á hinn látna og viljandi að leggja rækt við minningar um hann ... Meinafræðingur varar við: „Það þarf að bera harmleikinn, þola hann og loks að fínna boðleg rök fyrir honum og sé það tafíð um of með því að sljóvga einstaklinginn með lyfjum gæti það dregið þetta ferli á langinn eða aflagað það.““ Og eftir að hafa fyallað um það að snúa sér aftur að eðlilegum vanagangi lífsins heldur ritið áfram: „Þótt undarlegt megi virðast eru sumir hræddir við að sleppa hend- inni af hinni áköfu sorg af því að þeir halda að það gæti gefíð til kynna að ást þeirra á hinum látna fari dvínandi. Sú er einfaldlega ekki raunin. Ef þú lætur sársauk- ann líða hjá, opnar þú leið fyrir kærar minn- ingar sem þú átt vafa- laust alltaf eftir að geyma." Satt að segja fannst mér það tilgangslaust að reyna að hlýja þér. Þú fannst jú ekkert til lengur og ekki gat ég vakið þig af þínum djúpa svefni, Magga mín. Svo að ég lagaði aftur til sængina sem hafði aflagast og dró hendur Margrétar var- lega undan sænginni og sagði: „Hún sefur núna, hún var svo veik, hún vaknar aftur þegar upprisan byijar, þá getur þú betur hlýjað henni.“ Eftir á að hyggja, þú varst svo heitfeng, það verður þú sem munt hlýja okkur. Það er ég viss um. Þín tengdadóttir. Til eru konur sem strá í kring um sig glaðværð, birtu og yl og sigrast á öllum viðfangsefnum lífs- ins hversu stóc og þung sem þau eru. Slíkar konur eru mikilmenni. Margrét Matthíasdóttir vinkona okkar var slíkt mikilmenni. Hún elskaði lífíð skilyrðislaust á hverju sem gekk og elskaði allt sem lifír og hrærist. Meginþáttur í lífí henn- ar var að gleðja aðra, vera hið sterka afl sem gefur endalaust og óeigingjarnt af sér án þess að hlífa sér á nokkum hátt og án þess að krefjast nokkurs á móti, þar til ekkert var hægt að gefa lengur. Þannig var Magga alltaf, ekki bara stundum, heldur alltaf. Hún var heil í því sem hún gerði og gerði allt vel. Hvaðan kom henni þessi kraftur og þrek, þetta æðruleysi og gleði? Það vitum við, sem þekktum æsku- heimili hennar á Bergþórugötu 31. Ásamt fjórum systkinum sínum var hún umvafín ást og kærleika á því mikla menningarheimili sem for- eldrar hennar þau Sigrún Melsteð og Matthías Sveinbjörnsson bjuggu þeim. Þar var mjög gestkvæmt og söngur og gleði voru í hávegum A UÐUNN HLÍÐKVIST KRISTMARSSON + Auðunn Hlíðkvist Krist- marsson fæddist 11. febrúar 1981. Hann lést af slysförum 2. ágúst síðastliðinn og fór útförin fram 10. ágúst. MEÐ nokkrum fátæklegum orðum vil ég minnast frænda míns og vinar Auðuns Kristmarssonar. Þeirri stund gleymi ég aldrei þegar mér var til- kynnt að það var Auðunn sem lést í slysinu þennan morgun. Þvílík ósanngimi þvi efnilegri drengur var vandfundinn. Þegar ég hugsa til baka um þennan unga mann þá get ég sagt að ég hafí þekkt hann miklu betur en ég gerði mér grein fyrir. íþróttir áttu hug hans allan, bæði körfubolti og fótbolti og var hann gríðarlegt efni í báðum greinum. Varð ég fyrir þeirri lukku að leið- beina honum í körfubolta þegar ég var að þjálfa ’81 árganginn veturinn ’94-’95. Hafði ég alltaf þekkt Auðun vegna skyldleika okkar, en nú fékk ég að kynnast honum náið, enda ríkti gagnkvæm virðing okkar á milli. Yfírvegun einkenndi hann ásamt mikilli vinnusemi og fór hann langt á skapinu einu saman. Þrosk- aður var hann með eindæmum og var mjög auðvelt að tala við hann um ‘daginn og veginn. Var hann vin- ur í raun enda var vinahópurinn mjög stór. Þó að hann Auðunn sé farinn þá er hann alltaf innra með okkur og varðveitir þetta litla líf sem við höf- um. Auðunn var ungur maður á uppleið sem kvaddi alltof snemmá. Fjölskyldu hans og vinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Einar Þór og fjölskylda. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR, Hjarðarhaga 64, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á að láta Krabbameinsfélagið njóta þess. Sigurður Emil Pálsson, Piret Laas, Páll Kaarel Laas Sigurðsson. höfð og hverjum gesti tekið fagn- andi hvort sem hann leitaði huggun- ar eða gleðistunda. Það þótti alltaf við hæfí að líta' inn á Bergþórugöt- unni. Bömin voru búin undir lífíð með því að kenná þeim æðruleysi og tillitssemi við náungann og ást á fögrum listum. Með það veganesti settist Magga á skólabekk í Kvennaskólanum í Reykjavík árið áður en hún fermd- ist. Þar bundust þau vina- og tryggðarbönd sem aldrei hafa slitn- að og engan skugga borið á í yfír fjörutíu ár. Við höfum kallað hópinn okkar „saumaklúbb“, svona til að hafa einhvern ramma utan um sam- verustundir okkar. Þær sem ekki þekktu Möggu áður löðuðust fljótt að þessari vel gefnu og brosmildu stúlku, kynntust fljótt kímnigáfu hennar og einstakri frásagnargáfu. Með einföldu lát- bragði gat hún túlkað frásögn sína þannig að viðstaddir beinlínis lágu af hlátri. Þessir eiginleikar þroskuðust með henni og urðu æ ríkari þáttur í sterkum persónuleika hennar. Magga var ung þegar hún fann sinn lífsförunaut og giftist Hjálmtý Hjálmtýssyni, sérstaklega ljúfum og elskulegum manni. Hann eins og hún var fíjálslegur, glaður og allra vinur, og hann elskaði söng eins og hún og auðvitað varð hann mikill vinur okkar allra. Það hélst siðurinn frá Bergþóru- götunni að eðlilegt þótti að líta inn hjá Möggu og Ebba enda byijuðu þau búskap sinn í því húsi og mik- ið var notalegt hjá þeim í risinu. Fljótt varð of þröngt þar og þau fluttu í Miðtúnið og enn bættist við barnahópinn. Það var alltaf hátíð að koma til Möggu. Hún kom bros- andi á móti manni og sagði alltaf: „Gott þú komst, ég var að enda við að baka köku og á nýtt rækjusal- at,“ og þar með dró hún fram stóru skálina góðu og bar fyrir gestinn ilmandi kökumar. Óperusöngur eða önnur sígild tónlist hljómaði um íbúðina og bömin vom á hlaupum inn og út og þurftu hvert um sig að fá athygli strax og úr öllu var leyst á hæglátan og hljóðlátan hátt og allir vom ánægðir. Ef ekki var plata á fóninum þá sungu þau hjón- in annað eða bæði hástöfum. Magga hafði alltaf afskaplega gaman af sögunni af vinkonunni sem rataði ekki til þeirra og spurði til vegar í Miðtúninu. Nágranninn vissi ekki nöfnin á þeim en spurði: „Syngja þau mikið? Já þá er það þarna uppi.“ Þessi ljúfí heimilisbragur fylgdi þeim auðvitað á Sólvallagötu 33 og nú var Ebbi kominn á heimaslóðir því hann var fæddur og alinn upp í því húsi. Heimilið þeirra bar þess merki að þar áttu fagurkerar í hlut, vandaðir og vel valdir munir. Enn bættist við fallega og myndarlega barnahópinn þeirra og nú vom þau orðin sjö talsins. Með hveijum hnokka jókst Möggu styrkur og hún pijónaði af enn meiri krafti og bak- aði enn meira, söng enn meira og sagði enn fleiri frábærar sögur og við hlógum endalaust. Þvílík gleði og þvílíkt æðruleysi. Magga byijaði snemma að syngja í kirkjukórum og tók þá eitt eða fleiri af bömunum með og oft var hún fengin til að syngja einsöng með sínum kór því röddin var hljóm- fögur og sterk. Þegar yngstu börn- in voru komin af höndum fór hún að gefa sér tíma til að læra söng og naut þess innilega. Margir fengu af að njóta hvort sem hpn söng ein, eða tvísöng með eiginmanni sínum, systur eða öðrum. Ástin á sönggyðjunni hefur erfst til bam- anna og hafa nokkur þeirra getið sér orð sem þekkt tónlistarfólk. Það var enn sumar þegar Magga og Ebbi komu heim úr mánaðar- sumarleyfísferð sinni og sauma- klúbburinn beið í ofvæni eftir sög- unum úr ferðinni því aldrei var nein lognmolla í frásögnunum. Þá kom höggið eins og hendi væri veif- að, allt of fljótt og allt of skjótt. Magga var orðin veik, og var send úr vinnunni til læknis. Hlutimir gerðust hratt og hún sagði hispurs- laust frá veikindum sínum eins og hveiju öðm sem fyrir hana kom. Hún hló áfram og vildi ekki sút, en sneri upp spaugilegu hliðunum og allt fram á síðustu stundu sagði hún okkur skemmtisögur af barna- börnunum sem hún var svo stolt af og daglegum viðburðum. í henn- ar huga var ekki farið að hausta, það var enn sumar. Það var svo mikið eftir af sumr- inu í henni Möggu því hún elskaði börnin sin öll og bamabörnin og gaf þeim aldrei nógu mikið. Vega- nestið frá æskuheimilinu entist henni allt til enda. Hún var töfra- ' maður augnabliksins og við vinir hennar vorum þiggjendur hvers augnabliks og þökkum fyrir frá- bæra en allt of stutta samfylgd. Við biðjum góðan Guð að styrkja allt fólkið hennar Möggu og blessa þeim minningarnar um stórbrotna konu sem veitir líkn eftir brottför sína; Ásta, Bryndís, Bjamey, Edda, Hertha, Ingibjörg, Nína og Sigríður Soffía. Kveðja frá stjórnendum Kórs Starfsmannafélags rík- isstofnana Okkur langar að minnast Mar- grétar Matthíasdóttur með fáeinum orðum. Kynni okkar lágu aðallega í gegnum starf SFR kórsins, en leiddu til nánari persónulegri kynna. Margrét hafði fmmkvæði að stofnun kórsins og var formaður frá byijun. Hún hafði frábæra söng- rödd frá náttúmnnar hendi og tón- listarhæfíleikar hennar nutu sín vel í kórstarfinu. í formannsstarfi sýndi Margrét þá eiginleiká sem höfð- ingja sæma. Hún hafði til að bera mikla reisn, víðsýni og kærleika sem laðaði og leiddi söngfélaga ör- ugglega að settum markmiðum. Okkur er minnisstætt síðasta skiptið er hún kom fram með kórn- um og söng dúett með Kristjönu Stefánsdóttur. Það er lýsandi fyrir hæfileika hennar að hún samdi sjálf fylgiröddina með mjög litlum fýrir- vara og smekkvís flutningur þeirra vakti mikla hrifningu áheyrenda. Með góðu skipulagi og skaplyndi gerði hún starf okkar stjórnend- anna sérlega ánægjulegt. Við þökkum Margréti fyrir marg- ar ánægjulegar söngstundir, hennar dillandi hlátur og björtu útgeislun og ekki síst fyrir það að minna okkur á hvernig hægt er að njóta augnabliksins. Elsku Hjálmtýr, Diddú, Palli og aðrir ástvinir, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Margrét J. Pálmadóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir., Hver getur siglt án meðbyrs á sæ? Hver getur siglt án ára? Hver getur skilið við kæran vin án tærra saknaðartára? Ég get siglt án meðbyrs á sæ ég get siglt án ára en ég get ei kvatt minn kæra vin án tærra saknaðartára. (Þýð. S.E.) Margrét Matthíasdóttir er ekki lengur meðal vor hér á jörð og þó lifír minningin áfram um einstaka, hjartahlýja konu sem geislaði af lífsorku og starfsgleði sem hún óspör miðlaði á lífsbrautinni til ann- arra. Starfsmannakór ríkisstarfs- manna var hugarfóstur Margrétar sem hún gerði að veruleika. Mikil- hæf altrödd Margrétar var í senn prýði og stolt kórsins. Hún var jafn- víg á hvaða rödd sem var og í senn formaður kórsins og leiðarstjarna. Margrét var hógvær en heilsteypt í öllu sem hún tók sér fyrir hendur og eðlislæg bjartsýni hennar jók okkur ásmegin. Þetta voru góð og skemmtileg ár. Margrét var einnig lífíð og sálin í öllu^ sannkölluð móð- ir kórsins og stóð fyrir mörgum heimsóknum á stofnanir til sjúkra og aldraðra og naut kórinn þá oft aðstoðar Hjálmtýs, eiginmanns Margrétar, og saman sungu þau hjón þá stundum tvísöng svo unun var á að hlýða. Við skiljum vel lista- manninn sem valdi ásýnd Margrét- ar til að prýða æðsta gjaldmiðil þjóðarinnar. Lífssýn Margrétar var, þó að ég sé látin harmið mig ekki með tár- um. Missir þeirra sem þekktu Mar- gréti Matthíasdóttur er mikill. Við vottum fjölskyldu hennar og vinum okkar dýpstu samúð í sárri sorg. Við kórsystur viljum enn fremur þakka Margréti allt hennar fórn- fúsa starf í þágu tónlistar. SFR-kór- inn mun leitast við að hafa að leiðar- ljósi andblæ Margrétar því að við eigum minningar um fágæta perlu sem lýsir fram á veginn. Okkur er ljúft og skylt að þakka þér þína samfylgd, starf og góðvild alla. Nú byrgir sólu, birtan dvína fer, blómin deyja, laufin sölna og falla. En aftur birtir, aftur grænkar blað, en enginn ræður sínum næturstað. (Á.J.) Kveðja frá SFR-kórfélögum. Kveðja frá Tónlistarsam- bandi alþýðu, TÓNAL Árið 1991 gerðist kór starfs- mannafélags ríkisins aðili að TÓNAL. Ári síðar var kómum breytt í kvennakór og kom þá Mar- grét Matthíasdóttir inn í stjórn sam- bandsins sem fulltrúi kórsins og sat þar sem þeirra fulltrúi til dauða- dags. Við viljum á kveðjustund þakka Margréti vel unnin störf í þágu TÓNAL. Við sendum eftirlif- andi eiginmanni hennar, Hjálmtý Hjálmtýssyni, bömum, bamaböm- un og öðmm ættingjuro okkar inni- legustu samúðarkveðjur. F.h. Tónlistarsambands álþýðu, Torfi Karl Antonsson, formaður. Við urðum hljóðar og daprar fé- lagarnir er við heyrðum sl. sumar af alvarlegumveikindum Margrétar Matthíasdóttur, formanns okkar í Félagi hjúkrunarritara. Lífið er fall- valt og breytist á örskömmum tíma. Félagið okkar er stofnað 1987 og er því ungt að árum. Margrét var kjörin einróma formaður 1989. Við fundum strax að henni höfðu hlotnast góðir eiginleikar. Hún var heiðarleg, réttsýn og umfram allt mannleg og bar velferð félaganna fyrir brjósti. Hún vann félaginu af einlægni og alúð en oft er erfítt að beijast fyrir bættum kjörum á sam- dráttartímum, en umfram allt vildi hún samstöðu og að félagið mætti eflast og styrkjast. Við félagarnir áttum góðar stundir saman er við gerðum okkur glaðan dag og fórum út að borða saman og nutum við þess í ríkum mæli og alltaf var Margrét glöð og kát. Við kveðjum Margréti formann okkar með virðingu og einlægri þökk fyrir störf hennar og árin sem við áttum saman í félaginu okkar. Eiginmanni og fjölskyldu hennar sendum við hugheilar samúðar- kveðjur. Félag hjúkrunarritara. Til Margrétar, sálufélaga í garðyrkju og góðs granna Þegar vora tekur lifnar allt við í garðinum: Grasið bregður upp græna litnum. Blómlaukarnir gægj- ast varfæmislega upp úr jörðu, keppast síðan við að skarta sínum fegurstu litum. Ávaxtatrén laufgast og blómstra hvítum blómum. Síren- utrén hneigja sig við þunga fín- gerðra blómaklasa. Fjölæru jurtirn- ar skjóta hægt og rólega fram ein- um anga eða knúpp, sem blómstrar svo í mestu makindum; rétt eins og af gömlum vana. Hverfið angar af sætri blómalykt. Rósirnar láta aftur á móti bíða eftir sér. Þær eru ekkert að hafa fyrir því að blómstra fyrr en þær eru öruggar um að hitinn haldist jafn, þannig að þær kvefíst ekki sakir bráðlætis. Sumar rósir standa í þeirri trú að sólin sé sköpuð til þess eins að veita þeim hlýju og birtu: Laun sólarinnar séu að njóta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.