Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
A
Viktor Kortsnoj enn á uppleið
skák
Atskákmöt PCA og
Intel
UNDANRÁSIR í PARÍS
4.-5. NÓVEMBER
Viktor Kortsnoj sigraði rnjög
_ örugglega í undanrásunum.
íslensku keppendumir Jóhann
Hjartarson og Margeir Pétursson
áttu báðir slakan endasprett
og komust ekki áfram
KORTSNOJ hlaut 8‘A vinning
af 11 mögulegum. Hann fékk
sjö vinninga úr fyrstu átta skák-
unum og gat síðan leyft sér að
gera þrjú stutt jafntefli. Þótt
hann sé orðinn 64 ára gamall
er snerpan enn upp á sitt besta
og atskákin er ein hans sterk-
asta hlið, þótt umhugsunar-
tíminn sé aðeins 25 mínútur á
skákina. Auk hans komust áfram
þeir Kiril Georgiev, Búlgaríu,
Predrag Nikolic, Bosníu, Vladím-
ir Arbakov, Rússlandi, Konstant-
ín Asejev, Rússlandi og Alexand-
er Chemin, Ungveijalandi, allt
stórmeistarar. Þessir sex skák-
menn keppa nú um helgina í
úrslitunum ásamt mörgum af
bestu skákmönnum
heims.
Þegar tvær um-
ferðir voru eftir stóð-
um við íslendingarn-
ir vel að vígi og átt-
um möguleika á að
hreppa enn einu sinni
úrslitasæti. Undirrit-
aður hafði þá 6 'A v.
og Jóhann 6 v. En
þá tapaði ég fyrir
Nikolic og Jóhann
fyrir Chemin og þar
með vorum við báðir
úr leik. Ég tapaði síð-
an fyrir Arbakov í
síðustu umferð en
Jóhann vann sína
skák og endaði með 7 v.
Bragi Þorfinnsson, 14 ára,
sigraði ömgglega á Unglinga-
meistaramóti íslands fyrir 20 ára
og yngri sem fram fór í Reykja-
vík um helgina. Bragi hlaut sex
vinninga af sjö mögulegum,
gerði aðeins jafntefli við Björn
bróður sinn í fyrstu umferð og
síðan Davíð Kjartansson, 13 ára,
í síðustu umferð. Yngri kynslóðin
var sigursæl, en þrjá af stiga-
hæstu unglingunum
í þessum aldurs-
flokki vantaði _ til
leiks. Helgi Áss
Grétarsson, 18 ára
stórmeistari, hefur
auðvitað lítið að
sanna, enda búinn
að vinna heims-
meistaratitilinn í
þessum aldursflokki.
Auk hans voru þeir
Magnús Örn Úlfars-
son, 19 ára, og Jón
Viktor Gunnarsson,
15 ára, ijarri góðu
gamni.
Bragi vann stiga-
hæstu keppenduma
á mótinu í ijórðu og fimmtu
umferð, þá Arnar E. Gunnars-
son, 16 ára, og Sigurbjöm
Bjömsson, 19 ára.
1. Bragí Þorfinnsson 6 v. af 7
2. Amar E. Gunnarsson 5'/z v.
3. Davíð Kjartansson 5 v.
4. Sigurbjörn Björnsson 4‘A v.
5. Bergsteinn Einarsson 4'/z v.
6. Sigurður Páll Steindórss. 4'A v.
7. Hlíðar Þór Hreinsson 4 'A v.
8. Baldvin Öra Gíslason 4 '/> v.
9. Björn Þorfinnsson 4 v.
10. Ingi Þór Einarsson 4 v.
11. Guðni S. Pétursson 3‘A v.
12. Ólafur ísberg Hanness. 3'/«v.
13. Kjartan Thor Wikfeldt 3 ‘A v.
14. Sveinn Þór Wilhelmss. 3 '/z v.
15. Atli Jóhann Leósson 3'/z v.
o.s.frv.
Skákstjórar voru þeir Haraldur
Baldursson og Gunnar Björnsson.
Þröstur efstur
á Hellismótinu
Andri Áss Grétarsson stöðvaði
sigufgöngu Þrastar Þórhallsson-
ar á Hellismótinu þegar þeir tveir
gerðu jafntefli í fimmtu umferð.
Hellismótið fer fram í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í
Breiðholti og lýkur í kvöld.
Keppnin hefst kl. 19.30.
Staðan eftir 5 umferðir
1. Þröstur Þórhallsson 4 '/z v.
2. Snorri G. Bergsson 4 v.
3. -6. Sævar Bjarnason, Halldór G.
Einarsson, Andri Áss Grétarsson og
Ólafur B. Þórsson 3'/z v.
7.-11. Jón Viktor Gunnarsson,
Áskell Öra Kárason, Gunnar Björas-
son, Hrannar Baldursson og Gunnar
M. Nikulásson 3 v. o.s.frv.
Opið mót á Krít
Hannes Hlífar Stefánsson,
stórmeistari, er kominn aftur frá
eyjunni Krít í Miðjarðarhafi þar
sem hann tók þátt á tveimur
öflugum opnum skákmótum.
Hannesi hefur oft tekist betur
upp en árangurinn var þó viðun-
andi þar sem mótheijamir voru
öflugir.
Seinna mótið fór fram í þeirri
fomfrægu borg Iraklion. Úrslit
urðu nokkuð óvænt. Lítt_þekktur
alþjóðlegur meistari frá Úkraínu,
Golod að nafni, varð hlutskarp-
astur, en hann er með 2.540
Elo-stig.
1. Golod, Úkraínu 7'/z v. af 9
2. -5. Nenashev, Úsbekistan, Shipo
og Tregubov, Rússlandi og Zifroni,
ísrael 7 v.
6. Mikhaelevski, ísrael 6'/z v. 7.-15.
Hannes Hlífar, Agnos, Englandi,
Grivas, Grikklandi, Guliev, Aserbad-
sjan, Fish, Úkrafnu, Krum Georgiev,
Búlgariu, Avrukh, Israel, Blees,
Hollandi og Tzermidianos, Grikk-
landi 6 v.
Þátttakendur voru u.þ.b. 100
talsins, þar af 12 stórmeistarar.
íslandsmót 15 ára
og yngri
Keppni í drengja- og telpna-
flokki á Skákþingi íslands verður
haldin í Skákmiðstöðinni Faxa-
feni 12 dagana 11. og 12. nóvem-
ber. Mótið er opið öllum bömum
og unglingum fæddum 1980 og
síðar. Það hefst kl. 13.00 laugar-
daginn 11. nóvember og fer
skráning fram á skákstað hálf-
tíma áður. Þátttökugjald er kr.
800.
Margeir Pétursson
Viktor
Kortsnoj
Bragi Þorfinnsson
unglingameistari
RAÐAUGí YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Heimilisaðstoð
Vantar einstakling 8-10 daga í mánuði til
að gæta barna, 2 og 7 ára, og sinna léttum
heimilisstörfum. Verður að vera barngóð,
reglusöm og stundvís.
Vinnutími eftir hádegi og fram á kvöld.
Upplýsingar í síma 581 1921.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast í 100% starf nú
þegar á heilsugæslu. Um er að ræða tíma-
bundna stöðu.
Upplýsingar veitir Hrafnhildur Sigurjónsdóttir,
deildarstjóri heilsugæslu, í síma 568 9540
eða 568 9500.
Fyrirtæki okkar óskar að ráða
rafvirkja
í þjónustudeild.
Starfið felur í sér viðgerðir á Siemens-heimil-
istækjum og ýmsum öðrum raftækjum.
Við leitum að ungum og röskum manni, sem
hefur áhuga á þægilegum, mannlegum sam-
skiptum og vilja til að veita góða þjónustu.
Þeir, sem hafa áhuga á ofangreindu starfi,
eru beðnir um að senda okkur eiginhandar-
umsókn með upplýsingum um aldur og fyrri
störf, ásamt meðmælum, ef þau eru fyrir
hendi, fyrir 14. nóvember nk.
SMITH &
NORLAND
pósthólf519, 121 Reykjavík, Nóatúni4.
fAkureyrarbær
Útboð
Bæjarsjóður Akureyrarbæjar óskar eftir til-
boðum í skrifstofuhúsgögn á Glerárgötu 26.
Tilboðsupphæðin skal miðast við afhendingu
á Glerárgötu 26.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Akur-
eyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 8.
nóvember. Tilboð skulu hafa borist skrifstofu
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9 á Akureyri,
eigi síðar en miðvikudaginn 22. nóvember
1995 kl. 11.00 f.h., og verða þau opnuð þar
í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Allar nánari upplýsingar gefa starfsmenn
Áætlana- og hagsýsludeildar Akureyrarþæjar.
Hagsýslustjórinn á Akureyri.
Optiker - gleraugnasali
Til leigu er versluinarbil, tilvalið undir gler-
augnaverslun, í KópavogsKjarnanum, Engi-
hjalla 8, Kópavogi.
Upplýsingar eru veittar hjá Fofni hf., Austur-
stræti 17, 6. hæð, sími 561-8011.
KópavogsKjarninn
- þar sem hjartað slær.
Apótek - lyfjabúð
Til leigu er verslunarbil, tilvalið undir rekstur
apóteks, í KópavogsKjarnanum, Engihjalla
8, Kópavogi.
Upplýsingar eru veittar hjá Fofni hf., Austur-
stræti 17, 6. hæð, sími 561-8011.
Kópa vogsKjarninn
- þar sem hjartað slær.
Smá auglýsingar
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 11 = 17711098’/z =
E.T.1. BK.
I.O.O.F. 5 = 1771198 = 9.0.
□ MlMIR 5995110919II 6 FRL.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Láttu sjá þig, þú ert
innilega velkominn.
\r—n
KFUM
V
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Spádómsbók Haggaí. Biblíu-
lestur í umsjón Ragnars Gunn-
arsson. Upphafsorð hefur Ragn-
ar Baldursson.
Allir karlmenn velkomnir.
Mannræktin,
Sogavegi 108,
fyrir ofan
Garðsapótek,
sími 588 2722
Skyggnilýsing
Ingibjörg Þengilsdóttir, miðill,
verður með skyggnilýsingu i
kvöld kl. 20.30. Fræðsla eftir
kaffihlé. Aögangseyrir kr. 1.000.
Upplýsingar i síma 588 2722.
Ingibjörg Þengilsd., Jón Jóhann.
Námskeið í kvöld í Aðalstræti 4,
3. hæð, kl. 20-22.
Efni: Að lifa i sátt - heima og á
vinnustað. Umsjón: Sf. MagniJs
Björnsson og Guðrún Dóra Guð-
mannsdóttir.
Heilbrigðisstarfsmenn sérstak-
lega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Fimmtudagur 9. nóv.'
kl. 20.00.
Göngum til betrl heilsu.
Um 1 klst. ganga um Öskjuhlíö
í samvinnu við íþróttir fyrir alla.
Mæting við Perluna.
Föstudagur 10. nóv. kl. 20.00.
Tunglvaka F.í. og Allsnægta-
klúbbsins.
Mæting í Ferðafélagshúsið,
Mörkinni 6 (miðju), en húsið
veröur opnað kl. 19.30. Heitt á
könnunni og meðlæti. Brottför
kl. 20.00. Haldið verður á dul-
magnaðan stað þar sem veröur
uppákoma tengd vættatrú. Til-
gangur tunglvökunnar er að lýsa
upp skammdegið. Verð 1.000 kr.
(innifaldar eru kaffiveitingar,
rútuferð, þlys og fararstjórn).
Sunnudagur 12. nóv. kl. 13.00.
a) Fjöruferö á Kjalarnesi.
b) Gönguferð um Blikdal í Esju.
Brottför frá BSÍ, austanmegin,
og Mörkinni 6.
Upplýsingar á skrifstofunni,
Mörkinni 6, í síma 568-2533.
Ferðafélag Islands.
- kjarni málsins!