Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 68
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
HP Vectra
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga á byggingu og rekstri nýs álvers hér á landi
Kínversk sendinefnd
kannar aðstæður hér
Afengis-
átöppun
" í Borg-
arnesi
Borgarnesi, Morgunblaðið.
KAUPFÉLAG Borgfirðinga, Borg-
arnesi - KBB - festi nýlega kaup á,
tæplega 20% hlut í fyrirtækinu Catco
hf. sem starfar að áfengisframleiðslu
og útfiutningi á lambakjöti. Þessa
dagana er verið að flytja vélasam-
stæðu fyrirtækisins frá Hrútafirði til
Borgamess. En þangað mun áfengis-
átöppunin flytjást.
Að sögn Þóris Páls Guðjónssonar
kaupfélagsstjóra mun vélasamstæð-
an verða sett upp í KBB að Engja-
ási þar sem Mjólkursamlag Borgfirð-
inga er til húsa. Sagði Þórir Páll að
þama væri um mjög svipaðan rekst-
ur að ræða og átöppunin á Icyvodka
sem fyrir er í húsinu.
Sagði Þórir Páll að þær áfengis-
tegundir sem þama væri um að ræða
væru m.a. íslenskt brennivín, Eldurís
vodka, Tindavodka, Kláravín, Dillon
gin og Jöklakrap. Reiknað væri með
að þama yrði um fjögur til fimm
ársstörf að ræða, fyrir utan störf við
þá flutninga sem starfseminni
fylgdu. Gert er ráð fyrir að starfsem-
in hefjist í Borgarnesi 27. nóvember
nk. Um einhvem útflutning á nefnd-
um áfengistegundum verður að ræða
og í dag virðist vera vaxandi áhugi
erlendis, sérstaklega í Rússlandi.
Sagði Þórir Páll að fyrirtækið
Catco hf. hefði verið að þreifa fyrir
sér með útflutning á lambakjöti til
Bandaríkjanna og sú staðreynd væri
ekki síður spennandi fyrir KBB en
áfengisátöppunin.
-----».♦.♦-----
Tilraun til
íkveikju
UNGUR maður var staðinn að verki
við að kveikja í bíl sem stóð inn í
Austurslipp við Strandveg í Vest-
mannaeyjum í gær. Grunur leikur
á að hann hafi einnig gert tilraun
til að kveikja í slippnum í fyrradag,
en þá var eldur borinn að msli í
slippnum. Óvemlegar skemmdir
urðu á bílnum.
Maðurinn er í haldi og verður
yfirheyrður af RLR í dag. Hann
hefur engar skýringar gefið á at-
hæfi sínu.
SENDINEFND frá Kína er væntan-
leg til íslands næstkomandi sunnu-
dagskvöld og mun dvelja hér á landi
næstu viku til að kanna aðstæður
fyrir hugsanlega byggingu og rekst-
ur álvers á íslandi.
Eins og fram hefur komið hafa
Kínverjar tvívegis lýst áhuga á að
kanna möguleika á að fjárfesta í
álveri á íslandi. Þessar hugmyndir
munu þó vera á frumstigi og ekkert
er vitað hvaða áform Kínverjar hafa
um hugsanlega fjárfestingu í ál-
framleiðslu utan Kína. Sendinefndin
kemur frá ríkisfyrirtækinu CNNC,
sem er stærsta málmvinnslufyrir-
tæki í Kína, með 1,2 milljónir starfs-
manna. Fulltrúar í sendinefndinni
munu skoða sig um hér á iandi og
eiga viðræður við stjórnendur Mark-
aðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins
og Landsvirkjunar og iðnaðarráð-
herra.
Columbia Aluminium
fylgdist með
Stjórnendur bandaríska álfyrir-
tækisins Columbia Aluminium
Corporation hafa haft samband við
Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneyt-
isins og Landsvirkjunar til að fá
upplýsingar um hver hefði orðið nið-
urstaða Alusuisse-Lonza varðandi
stækkun álversins í Straumsvík.
Samkvæmt upplýsingum Garðars
Ingvarssonar, forstöðumanns mark-
aðsskrifstofunnar, voru þeim veittar
upplýsingar um málið en Columbia
Aluminium hefur enn enga ákvörðun
tekið um hvaða land verður fyrir
valinu vegna staðsetningar nýrrar
álbræðslu fyrirtækisins. Stjórnendur
fyrirtækisins eru nú staddir í Ven-
esúela til að kanna aðstæður þar í
landi.
Fyrirtækið áformar að byrja með
álver með 60 þúsund tonna fram-
leiðslugetu með möguleika á stækk-
un upp í 120 þúsund tonn og jafn-
vel upp í 180 þúsund árlega fram-
leiðslugetu. Er búist við að ákvörðun
verði tekin fyrir áramót og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er reiknað með að fyrsti áfangi verk-
smiðjunnar yrði kominn í gagnið
fyrir lok næsta árs.
Alumax áréttar áhugann
Jóhannes Nordal, formaður álvið-
ræðunefndar, sagði í gærkvöldi, að
fundur með Atlantsáls-hópnum hefði
staðið til, en ekki gæti orðið af hon-
um fyrr en í byrjun næsta árs.
í Financial Times í gær var haft
eftir talsmanni bandaríska fyrirtæk-
isins Alumax, að forráðamenn þess
hefðu enn áhuga á að reisa álver á
Islandi og vitnaði hann til fyrri
ummæla um, að spurningin væri
ekki hvort, heldur hvenær. Fyrirtæk-
in þrjú Alumax, sænska fyrirtækið
Granges og það hollenzka Hoog-
ovens, frestuðu fyrir fjórum árum
framkvæmdum við 210 þúsund
tonna álver á Keilisnesí.
Neysluverðsvísi-
talan lækkar um 0,3%
VÍSITALA neysluverðs lækkaði um
0,3% milli mánaðanna október og
nóvember, en það jafngildir 4% verð-
hjöðnun á heilu ári. Astæður lækk-
unarinnar eru einkum lækkun á
dilkakjöti, kartöflum og grænmeti.
Síðustu mánuði hefur vísitalan hins
vegar hækkað frá mánuði til mánað-
ar og hefur mánaðarleg hækkun
verið á bilinu 0,3-0,5% frá því í júlí
og fara þarf aftur til mánaðanna
febrúar og mars til að finna dæmi
um lækkun vísitölunnar milli mán-
aða en þá.var lækkunin 0,1 og 0,2%.
Vísitalan hefur hækkað um 2,1%
Sðustu tólf mánuði og verðbólgu-
hraðinn síðustu þijá mánuði er 1,9%
umreiknað til heiis árs.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, kvaðst halda að þessi
lækkun vísitölunnar myndi hafa
áhrif á viðræður launanefnda ASI
og VSÍ um launalið þeirra samn-
inga, sem gerðir voru í febrúar.
Verðlagsforsendur staðist
„Það þarf enginn að efast um að
verðlagsforsendur samninganna
hafa staðist,“ sagði Þórarinn. „Verð-
bólga verður samkvæmt þessu undir
2% á þessu ári og innan viðmiðunar-
marka næsta ár. Verðlagsþróun er
hagfelldari en búist hafði verið við.“
Benedikt Davíðsson sagði að ekki
væri mikið um vísitölulækkunina að
segja. „Meginhlutinn er vegna kjöt-
útsölu og kemur aftur til baka,“ sagði
Benedikt. „Þetta er ekki raunveruleg
lækkun, en það er jákvætt að vísital-
an skuli lækka.“ Þegar Benedikt var
spurður um þau ummæli Þórarins,
að lækkunin sýndi að verðlagsfor-
sendur samninganna hefðu í raun
staðist, sagði hann að ekki hefði
verið lagt mat á það enn. Ætlunin
væri að setjast niður til viðræðna
um launamál, meðal annars í ljósi
þessara upplýsinga.
■ Útsala/4
Opinber
heimsókn
frá Eistlandi
TIIT Vahi, forsætisráðherra
Eistlands, kom í opinbera heiin-
sókn til íslands í gær ásamt konu
sinni, Raine-Lea Vahi, og fylgd-
arliði. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Sigríður Snævarr,
sendiherra Islands í Eistlandi,
voru meðal þeirra, sem tóku á
móti ráðherrahjónunum. Á leið-
inni til Reykjavíkur var komið
við í Bláa Íóninu og var þessi
mynd tekin þegar Davíð og Vahi
könnuðu hitastig þess. Heimsókn
Vahi stendur til 11. nóvember
og mun hann meðal annars eiga
fundimeð Davíð Oddssyni, Hall-
dóri Ásgrímssyni utanríkisráð-
herra og Ólafi G. Einarssyni,
forseta Alþingis.
Morgunblaðið/Kristinn
Hvítasunnu-
menn kaupa
Tívolí-húsið
HVÍTASUNNU SÖFNUÐURINN
hefur fest kaup á hluta Tívólí-hússins
í Hveragerði af Hveragerðisbæ og
hyggst flytja húsið í einingum að
safnaðarmiðstöð í Kirkjulækjarkoti í
Fljótshlíð.
Tívolíið er í raun tvö hús og Hvíta-
sunnusöfnuðurinn kaupir syðri álmu
hússins með turninum, alls um 3.000
fermetra. Húsið er smíðað úr límtré
og klætt með plastplötum. Kaupverð
þess er 5,7 milljónir króna en auk
þess sér kaupandi um að steypa vegg
í húsið sem eftir verður í Hvera-
gerði. Hinrik Þorsteinsson safnaðar-
hirðir segir að hafist verði handa við
að flytja húsið í maímánuði og verði
verkið unnið í sjálfboðavinnu.