Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 68
OPIN KERFI HF. Sími: 567 1000 HP Vectra MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga á byggingu og rekstri nýs álvers hér á landi Kínversk sendinefnd kannar aðstæður hér Afengis- átöppun " í Borg- arnesi Borgarnesi, Morgunblaðið. KAUPFÉLAG Borgfirðinga, Borg- arnesi - KBB - festi nýlega kaup á, tæplega 20% hlut í fyrirtækinu Catco hf. sem starfar að áfengisframleiðslu og útfiutningi á lambakjöti. Þessa dagana er verið að flytja vélasam- stæðu fyrirtækisins frá Hrútafirði til Borgamess. En þangað mun áfengis- átöppunin flytjást. Að sögn Þóris Páls Guðjónssonar kaupfélagsstjóra mun vélasamstæð- an verða sett upp í KBB að Engja- ási þar sem Mjólkursamlag Borgfirð- inga er til húsa. Sagði Þórir Páll að þama væri um mjög svipaðan rekst- ur að ræða og átöppunin á Icyvodka sem fyrir er í húsinu. Sagði Þórir Páll að þær áfengis- tegundir sem þama væri um að ræða væru m.a. íslenskt brennivín, Eldurís vodka, Tindavodka, Kláravín, Dillon gin og Jöklakrap. Reiknað væri með að þama yrði um fjögur til fimm ársstörf að ræða, fyrir utan störf við þá flutninga sem starfseminni fylgdu. Gert er ráð fyrir að starfsem- in hefjist í Borgarnesi 27. nóvember nk. Um einhvem útflutning á nefnd- um áfengistegundum verður að ræða og í dag virðist vera vaxandi áhugi erlendis, sérstaklega í Rússlandi. Sagði Þórir Páll að fyrirtækið Catco hf. hefði verið að þreifa fyrir sér með útflutning á lambakjöti til Bandaríkjanna og sú staðreynd væri ekki síður spennandi fyrir KBB en áfengisátöppunin. -----».♦.♦----- Tilraun til íkveikju UNGUR maður var staðinn að verki við að kveikja í bíl sem stóð inn í Austurslipp við Strandveg í Vest- mannaeyjum í gær. Grunur leikur á að hann hafi einnig gert tilraun til að kveikja í slippnum í fyrradag, en þá var eldur borinn að msli í slippnum. Óvemlegar skemmdir urðu á bílnum. Maðurinn er í haldi og verður yfirheyrður af RLR í dag. Hann hefur engar skýringar gefið á at- hæfi sínu. SENDINEFND frá Kína er væntan- leg til íslands næstkomandi sunnu- dagskvöld og mun dvelja hér á landi næstu viku til að kanna aðstæður fyrir hugsanlega byggingu og rekst- ur álvers á íslandi. Eins og fram hefur komið hafa Kínverjar tvívegis lýst áhuga á að kanna möguleika á að fjárfesta í álveri á íslandi. Þessar hugmyndir munu þó vera á frumstigi og ekkert er vitað hvaða áform Kínverjar hafa um hugsanlega fjárfestingu í ál- framleiðslu utan Kína. Sendinefndin kemur frá ríkisfyrirtækinu CNNC, sem er stærsta málmvinnslufyrir- tæki í Kína, með 1,2 milljónir starfs- manna. Fulltrúar í sendinefndinni munu skoða sig um hér á iandi og eiga viðræður við stjórnendur Mark- aðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar og iðnaðarráð- herra. Columbia Aluminium fylgdist með Stjórnendur bandaríska álfyrir- tækisins Columbia Aluminium Corporation hafa haft samband við Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneyt- isins og Landsvirkjunar til að fá upplýsingar um hver hefði orðið nið- urstaða Alusuisse-Lonza varðandi stækkun álversins í Straumsvík. Samkvæmt upplýsingum Garðars Ingvarssonar, forstöðumanns mark- aðsskrifstofunnar, voru þeim veittar upplýsingar um málið en Columbia Aluminium hefur enn enga ákvörðun tekið um hvaða land verður fyrir valinu vegna staðsetningar nýrrar álbræðslu fyrirtækisins. Stjórnendur fyrirtækisins eru nú staddir í Ven- esúela til að kanna aðstæður þar í landi. Fyrirtækið áformar að byrja með álver með 60 þúsund tonna fram- leiðslugetu með möguleika á stækk- un upp í 120 þúsund tonn og jafn- vel upp í 180 þúsund árlega fram- leiðslugetu. Er búist við að ákvörðun verði tekin fyrir áramót og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er reiknað með að fyrsti áfangi verk- smiðjunnar yrði kominn í gagnið fyrir lok næsta árs. Alumax áréttar áhugann Jóhannes Nordal, formaður álvið- ræðunefndar, sagði í gærkvöldi, að fundur með Atlantsáls-hópnum hefði staðið til, en ekki gæti orðið af hon- um fyrr en í byrjun næsta árs. í Financial Times í gær var haft eftir talsmanni bandaríska fyrirtæk- isins Alumax, að forráðamenn þess hefðu enn áhuga á að reisa álver á Islandi og vitnaði hann til fyrri ummæla um, að spurningin væri ekki hvort, heldur hvenær. Fyrirtæk- in þrjú Alumax, sænska fyrirtækið Granges og það hollenzka Hoog- ovens, frestuðu fyrir fjórum árum framkvæmdum við 210 þúsund tonna álver á Keilisnesí. Neysluverðsvísi- talan lækkar um 0,3% VÍSITALA neysluverðs lækkaði um 0,3% milli mánaðanna október og nóvember, en það jafngildir 4% verð- hjöðnun á heilu ári. Astæður lækk- unarinnar eru einkum lækkun á dilkakjöti, kartöflum og grænmeti. Síðustu mánuði hefur vísitalan hins vegar hækkað frá mánuði til mánað- ar og hefur mánaðarleg hækkun verið á bilinu 0,3-0,5% frá því í júlí og fara þarf aftur til mánaðanna febrúar og mars til að finna dæmi um lækkun vísitölunnar milli mán- aða en þá.var lækkunin 0,1 og 0,2%. Vísitalan hefur hækkað um 2,1% Sðustu tólf mánuði og verðbólgu- hraðinn síðustu þijá mánuði er 1,9% umreiknað til heiis árs. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands íslands, kvaðst halda að þessi lækkun vísitölunnar myndi hafa áhrif á viðræður launanefnda ASI og VSÍ um launalið þeirra samn- inga, sem gerðir voru í febrúar. Verðlagsforsendur staðist „Það þarf enginn að efast um að verðlagsforsendur samninganna hafa staðist,“ sagði Þórarinn. „Verð- bólga verður samkvæmt þessu undir 2% á þessu ári og innan viðmiðunar- marka næsta ár. Verðlagsþróun er hagfelldari en búist hafði verið við.“ Benedikt Davíðsson sagði að ekki væri mikið um vísitölulækkunina að segja. „Meginhlutinn er vegna kjöt- útsölu og kemur aftur til baka,“ sagði Benedikt. „Þetta er ekki raunveruleg lækkun, en það er jákvætt að vísital- an skuli lækka.“ Þegar Benedikt var spurður um þau ummæli Þórarins, að lækkunin sýndi að verðlagsfor- sendur samninganna hefðu í raun staðist, sagði hann að ekki hefði verið lagt mat á það enn. Ætlunin væri að setjast niður til viðræðna um launamál, meðal annars í ljósi þessara upplýsinga. ■ Útsala/4 Opinber heimsókn frá Eistlandi TIIT Vahi, forsætisráðherra Eistlands, kom í opinbera heiin- sókn til íslands í gær ásamt konu sinni, Raine-Lea Vahi, og fylgd- arliði. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra og Sigríður Snævarr, sendiherra Islands í Eistlandi, voru meðal þeirra, sem tóku á móti ráðherrahjónunum. Á leið- inni til Reykjavíkur var komið við í Bláa Íóninu og var þessi mynd tekin þegar Davíð og Vahi könnuðu hitastig þess. Heimsókn Vahi stendur til 11. nóvember og mun hann meðal annars eiga fundimeð Davíð Oddssyni, Hall- dóri Ásgrímssyni utanríkisráð- herra og Ólafi G. Einarssyni, forseta Alþingis. Morgunblaðið/Kristinn Hvítasunnu- menn kaupa Tívolí-húsið HVÍTASUNNU SÖFNUÐURINN hefur fest kaup á hluta Tívólí-hússins í Hveragerði af Hveragerðisbæ og hyggst flytja húsið í einingum að safnaðarmiðstöð í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Tívolíið er í raun tvö hús og Hvíta- sunnusöfnuðurinn kaupir syðri álmu hússins með turninum, alls um 3.000 fermetra. Húsið er smíðað úr límtré og klætt með plastplötum. Kaupverð þess er 5,7 milljónir króna en auk þess sér kaupandi um að steypa vegg í húsið sem eftir verður í Hvera- gerði. Hinrik Þorsteinsson safnaðar- hirðir segir að hafist verði handa við að flytja húsið í maímánuði og verði verkið unnið í sjálfboðavinnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.