Morgunblaðið - 17.11.1995, Síða 25

Morgunblaðið - 17.11.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995 25 Ljósmyndabrúðurin KVIKMYNPIR Rcgnboginn Kvikmyndahátíö Regnbogans og Ilvíta t j a 1 d s i n s Ljósmyndabrúðurin „Pict- ure Bride“ ★ ★ Vi Leikstjóri: Kayo Hatta. Handrit: Kayo og Mari Hatta. Aðalhlutverk: Youki Kudoh, Akira Takayama, Tamlyn Tomita og Cary - Hiroyuki Tagawa. Mh-amax Films. 1994. JAPANSKA myndin Ljós- myndabrúðurin lýsir forvitnilegum kafla í kvennasögu Japans um og eftir síðustu aldamót þegar svo- kallaðar ljósmyndabrúðir fluttust búferlum frá Japan og Kóreu og víðar á sykurplantekrur á Hawaii. Það eina sem þær höfðu var ljós- mynd í vasanum af tilvonandi brúðguma er sent hafði mynd af sér heim til Japans í von um að íjölskylda hans bjargaði sér um eiginkonu. Myndin segir sögu einnar stúlkunnar, sem Youki Kudoh leikur forkunnar vel. Hún kemur til Hawaii með ljósmynd af myndarlegum ungum manni en í ljós kemur að myndin er gömul og maðurinn, sem Akira Takay- ama leikur, er. nú orðinn roskinn og lítt álitlegur ungri stúlku. Ljósmyndabrúðurin er feminísk mynd og minnir að mörgu leyti á Píanóið, aðra og þekktari kvik- mynd um örlög konu' er siglir yfir hafið gefin manni sem hún hefur aldrei séð áður. Báðar þurfa kon- urnar að sætta sig á endanum við hlutskipti sitt, yfirstíga örðugleika og harðræði og finna hina sönnu ást og nýjan tilgang með lífinu. Leikstjórinn, Kayo Hatta, vinnur ijarska vel úr sögunni á einfaldan og hófstilltan máta og lýsir skemmtilega litlu japönsku menn- ingarsamfélagi og ekki síst kvennasamfélagi ijarri heimaslóð- um studdur frábærum leik Kudoh og Takayama í aðalhlutverkunum. Einnig kemur sá aldni meistari Toshiro Mifune fram í örlitlu hlut- verki sýningarmanns með sam- uræjamyndir í farteskinu ásamt drengjunum Toshiro og Akira. Ljósmyndabrúðurin er ekki síst ástarsaga þeirra Kudoh og Taka- yama og hún er bæði kímileg og falleg. Kudoh er brothætt eins og postulín en afar sjálfstæð og vilja- sterk. Hann er kominn af besta skeiði, grófgerður og uxi til.vinnu en hefur líka fínlegri tilfinningar án þess að flíka þeim. Saman eru þau hjartað og sálin í fíngerðri og hlédrægri mynd um konu sem tek- ur illum örlögum sínum og skapar úr þeim hamingju. Arnaldur Indriðason Sýning listamanna og hönnuða „Takt’ana heim 95“ KETILL Larsen með tvö verka sinna. Skin frá öðrum heimi“ DAGANA 18.-19. nóvember 1995 heldur Ketill Larsen mál- verkasýningu að Fríkirkjuvegi 11,1. hæð. Sýninguna nefnir hann „Skin frá öðrum heimi“ og er þetta tuttugasta og önnur einkasýning hans. A sýningunni eru um 100 myndir, flestar nýjar af nálinni. Þetta eru olíu- og akrýlmyndir. í kynningu segir: „Ketill málar aðallega blóma- og landslags- myndir en einnig ber fyrir augu myndir sem lýsa hugmyndum Ketils um annan heim, t.d. fljúg- andi skip.“ A sýningunni verður leikin tónlist eftir Ketil af segulbandi. Sýningin verður opin báða dag- ana frá kl. 14-22. SÝNING á verkum ijölda lista- manna og hönnuða í Sýningarsaln- um við Hamarinn, Strandgötu 50, Hafnarfirði, verður opnuð á laugar- dag kl. 16. I kynningu segir: „Um er að ræða sölusýningu með því fyrir- komulagi að seljist mynd er hún tekin niður og önnur sett upp í stað- inn og er nafngift sýningarinnar þannig til komin. Takt’ana heim var fyrst haldin í desember 1990 í Djúp- inu að tilstuðlan Listkafaranna. Ekki er hér úm að ræða samstillt- an hóp heldur ræður ijölbreytnin ríkjum, málverk, skúffur, hillur, borð og allt þar á milli. Sýningin stendur aðeins í rúma viku og lýkur sunundaginn 26. nóv- ember. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18 nema mánudaga. PlayStation. bCliiCrVt VL-Llv (2 eÍLlU Lvöldi í Borgarlcikhúsinu Aif JJfUiiJiJ Ingibjörg Björnsdóttir Siguröur Þóröarson ^ (bíjíjJJfJJfi'úliJ i QöiJ^diJu August Bournonville Edvard Helsted og Holger Paulli jjíj ufubrjufuiiijij Petipa/lvanov ,b" P. Tchaikovsky Stephen Mills <brot> Edith Piaf ídcjj Robert LaFosse Scott Joplin [j fjyjbljid * J / August Bournonville H. Lövenskjold 'á (brot) V)<;\2)(Xb) i&jhinbht Aðeins þrjár sýningar ansflokkurinn Sfe SPARISIÓÐUR W) REYKJAVÍKUR og nÁcrennis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.