Morgunblaðið - 17.11.1995, Síða 35
OSCAR
Aspassú
INNIHALD:
1 dós aspasbitar (270 g nettó)
3 msk aspassúpuþykkni
2 msk hveiti
4 dl safi af aspas og vatni
Pipar
300 g hamflett kjúklingabringa eöa
kjúklingafillet
1-2 eggjarauöur
1 dl rjómi
MEÐLÆTI:
Gott brauð
MATREIÐSLA:
1. Helliö safanum af aspasinum.
2. Búið til jafning úr
aspassúpuþykkninu, hveitinu og
aspassafanum/vatninu.
3. Látiö suöuna koma upp og hraeriö
vel í á meðan.
4. Skerið kjúkiingabringuna í hæfilega
bita og sjóöiö þá í 10-15 mínútur í
sósunnl.
5. Hræriö eggjarauðumar saman við
ijómann og síðan rösklega saman
viö sósuna.
6. Hitið réttinn í gegn og hræriö
stööugt í á meöan en látiö hann ekki
sjóöa þvi þá geta eggjarauðumar
skilið sig.
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995 35
AÐSENDAR GREINAR
Skipulagsmál við
V esturlandsveg
I MORGUNBLAÐ-
INU fimmtudaginn 9.
nóvember si. birtist
grein eftir Jóhönnu
Harðardóttur, íbúa í
Mosfellsbæ, þar sem
hún gagnrýnir tillögu
að breytingum á aðal-
skipulagi bæjarins.
Vegna þessarar gagn-
rýni er rétt að eftirfar-
andi komi fram: Frá
sjónarhóli skipulagsyf-
irvalda í Mosfellsbæ er
meginmarkmiðið með
breytingum á legu
Vesturlandsvegar að
lagfæra tvenn gatna-
mót í bænum, sem verið hafa til
vandræða. Gatnamótum Langat-
anga, Bjarkarholts og innkeyrslu
inn á bensínsölu Olís við Langat-
anga er ekki hægt að koma í viðun-
andi horf nema færa Vesturlands-
veg og hringtorgið lengra frá bens-
ínstöðinni. Ekki er hægt að lagfæra
gatnamót Bjarkarholts, Þverholts
og Háholts auk gatnamóta Þver-
holts og Vesturlandsvegar nema
flytja Vesturlandsveg til austurs.
Bæjaryfirvöld hafa átt í viðræð-
um við önnur bæjarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu auk Vegagerðar rík-
isins um skiptingu fjár sem ríkis-
stjórnin veitti til sérstaks átaks í
vegagerð á svæðinu. Það tókst með
nokkru harðfylgi að fá fjármagn í
að leysa þessi umferðarvandamál
með því að færa Vesturlandsveginn
eins og tillaga að breytingu á aðal-
skipulagi gerir ráð fyrir.
I aðalskipulagi Mosfellsbæjar
kemur fram að árið 1991 fóru 9.443
bílar að meðaltali á sólarhring áleið-
is upp í Mosfellsbæ. Af þessum
fjölda fóru um 7.500 bílar í Mos-
fellsbæ og á Þingvöll. Aðeins tæp-
lega 2.000 bílar fóru áfram norður
í land. Það er þess vegna nokkuð
ljóst að allar umbætur á Vestur-
landsvegi koma fyrst og fremst
Mosfellingum til góða.
í fyrsta áfanga fyrirhugaðra
umbóta er gert ráð fyrir að vegur-
inn verði fluttur til, sett verði
hringtorg við Skarhólabraut,
Langatanga og Þverholt og gerð
verði undirgöng undir veginn við
Þverholt og Langatanga. Undir-
göngin komast hinsvegar ekki fyrir
nema vegurinn verði færður. Þessar
breytingar hafa í för með sér aukna
hávaðamengun við tvö hús, Trölla-
gil 1 og Tröllagil 2. Hávaðamengun
minnkar hins vegar við öll hús við
Bjarkarholt. Vegurinn fer ekki nær
Tröllagilshúsunum en svo að sér-
fræðingar telja vera nægjanlegt
rými fyrir hávaðavarnir, þannig að
hljóðmengun við húsin verði ekki
meiri en nú er.
Benda má á að útreikningar á
hávaðamengun í skýrslu um frum-
mat á umhverfisáhrifum vegna
breytingar á legu Vesturlandsvegar
miðuðust við 70 km umferðarhraða.
Löglegur hámarkshraði er nú 60
BLEIUR & BLEIUBUXUR
Mikið úrval • ódýrt og gott
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13-S. 551 2136
km/klst. og ekki er fyr-
irhugað að breyta því.
Ástæða er til að ætla
að hraðinn frá Skar-
hólabraut að Ullarnes-
brekkum verði mun
minni þar sem hringt-
orgin draga mjög úr
hraða. Auk þess hafa
staðið yfir viðræður við
Vegagerð ríkisins um
að draga úr ökuhraða
á Vesturlandsvegi við
Ásland. Mun • það
minnka umferðarháv-
aða í Ullarnesbrekkum.
Gylfi Guðjónsson Með minni, nmferðar-
hraða nnnnkar havaða-
mengun miðað við það sem reiknað
er með í áðumefndri skýrslu.
Tenging vegarins við byggðina
breytist til hins betra við færslu
vegarins í fyrsta áfanga með nýjum
hringtorgum og góðum fráreinum.
Hættusvæðið við Aðaltún-Skar-
hólabraut hverfur við nýtt hring-
torg, þar sem Baugshlíð tengist
Ekki er hægt að
lagfæra gatnamót
Bjarkarholts, Þverholts
og Háholts auk gatna-
móta Þverholts og
Vesturlandsvegar, segir
Gylfi Guðjónsson,
nema flytja Vestur-
landsveg til austurs.
Vesturlandsvegi frá vesturhluta
Mosfellsbæjar.
Aðrir áfangar verksins, eins og
tvöföldun vegarins, eru ekki tíma-
settir. Ef marka má þá reynslu sem
menn hafa í því að ná fé í vegafram-
kvæmdir á þessum stað, þá er ekki
líklegt að meira verði aðhafst í
Vesturlandsvegi fyrr en langt verð-
ur liðið á næstu öld. Þá hefur aðal-
skipulagið verið endurskoðað
nokkrum sinnum í heild sinni og
óvíst hvaða áherslur menn hafa þá
í umferðar- og samgöngumálum.
Höfundur er formaður Skipulags-
nefndar Mosfellsbæjar.
□UL DOLBY SURROUND
FINLUX *
Alvöru heimabíó
sjónvarp
Verð kr.
139.900.-stg
Dolby surround pro Iogic magnari. (innbyggður)
( 5 sjálfstæöar hljóðrásir með umhverfishljómi,
3 hátalarar í tækinu og 2 lausir sem fylgja með.
Tengimöguleikar fyrir aðra 2 hátalara og verða
þá hátalararnir í tækinu miðju hátalarar.
Nicam og Hi Fi stereo móttaka.
Subwoofer (sérstakur bassahátalari).
Black invar super myndlampi (svartur og flatur).
Kamfilter, klýfur liti og línur betur, sem þýðir
betri mynd.
Hraðtextavarp sem finnur síður strax.
Allar aðgerðir upp á skjáinn.
Fjarstýring mjög einföld í notkun.
Tvö scart tengi, einnig RCA tengifyrir tökuvélar
að framanverðu.
Möguleiki á mynd í mynd (bætt í)
16:9 breiðtjaldsmöguleiki
Sjö fýrirfram stillt
umhverfis minni:
pro logic, normal,
music, club, hall,
stadium, speech
Einig fáanleg Nicam Stereo tæki frá kr. 109.900,-
HIJÓMCO
NÚVERANDI aðalskipulag Mosfellsbæjar.
ARBEN
KYN N I NG
í snyrti- og tískuhúsi
Heiðars jostudaginn
17. nóvember frá kl.
13-18. Heiðar Jónsson
farðar upp úr Elizabeth
Arden og ráðleggur með
liti.
Tímapantanir í síma
562 3160.
Fimm tegundir af
andlitsfarða; ein þeirra
hentar þér örugglega.
Einnig kynnum við nýjan
ilm ftá Elizabeth Ardeh •
Tnie Love.
Óvœntur glaðningur
og 20% afsláttur
HmARjmm
snyrti- og tískuhús / Image Design Studio,
Laugavegi 66, 2. hœð, sími 562 3160.
Tkiv