Morgunblaðið - 29.11.1995, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Tommi og Jenni
þetto, e-ru qreini/eeiG
huncia doqcxrriir,—-
/'srATE
jmÉ: T
iljj
Ferdinand
Afkomandi
heimsmeistara
í lang’stökki
Frá Tryggva V. Líndal:
ÍSLENDINGAR munu ekki hafa
átt marga heimsmeistara. Vart
mun því heldur vera um að ræða
marga íslendinga sem eru afkom-
endur heimsmeistara.
Því er kannski vert að nefna
undantekningu þar á, þar sem
undirritaður sjálfur er, en afi minn
í móðurætt, Edward 0. Gourdin
(1897-1966), var heimsmeistari í
langstökki í nokkur ár á þriðja
áratuginum.
Þannig var að þessi afi minn,
Bandaríkjamaður, var í laganámi
við Harvard-háskóla, en var jafn-
framt mikill ftjálsíþróttamaður.
Svo gerðist það á sameiginlegu
íþróttamóti háskólanna Harvard,
Yale, Oxford og Cambridge, 1921,
að hann sló heimsmet í lang-
stökki. (í Encyclopædia Britt-
annica segir í kaflanum Jumping
að hann hafi verið brautryðjandi
i nýrri kynslóð langstökkvara, í
running broad jump, og að hann
hafí stokkið rúm 25 fet. Mun það
met hafa staðið í nokkur ár, og
ekki hafa verið bætt að ráði í sjö
ár.)
Þessi afí minn átti eftir að verða
aðsópsmikill í öðrum félagsmálum
einnig, (svo sem fram kemur í
National Cyclopedia of American
Biography). Þannig tók hann þátt
í Kyrrahafsstríðinu í síðari heims-
styijöldinni, þá sem stjórnandi
herfylkis fótgönguliðs (infantry
regiment), með herforingjatign
(Colonel). Hann er sagður síðar í
ýmsum opinberum nefndum, svo-
sem varðandi menntamál, æsku-
lýðsmál og jafnréttismál, og eftir
farsælan lögmannsferil varð hann
loks dómari í yfirrétti Massachus-
setts-fylkis.
Dóttir hans og móðir mín,
Amalía Líndal heitin; blaðamaður,
rithöfundur og skáld, giftist Baldri
Líndal, efnaverkfræðingi, og flutt-
ist með honum til Islands 1949.
Síðan eignuðust þau hér fimm
börn.
Fjölskyldan okkar hér á íslandi
var jafnan sinnulítil um þessar
vegtyllur afa, enda jafnan talið á
okkar bæ að íþróttir hefðu einvörð-
ungu heilsubótargildi, og að emb-
ættisframi væri hégómi miðað við
iðkun vísinda og lista. En því nefni
ég þetta að þrátt fyrir að löndum
mínum þyki snöggtum athyglis-
verðara að ég sé af Húsafellsætt
í föðurætt en að ég sé af Banda-
ríkjamönnum í móðurætt, þá sé
þó þarft mál að halda til haga
þeim afreksmönnum erlendum
sem við eigum einhvern hlut í.
TRYGGVIV. LÍNDAL,
Skeggjagötu 3, Reykjavík.
Varst það
ekki þú?
Hér er flugkappinn úr Ég sé að það er enn Hver skyldi þetta Sennilega einhver af kokkun-
stríðinu að ganga aftur ljós í hermanna- vera sem stendur í um ...
að flugstöðinni. skálunum... dyragættinni?
Frá Frá Sigurbirni Þorkelssyni:
ÞAÐ var að sumarlagi fyrir fáein-
um árum. Það hafði verið sól og
gott veður allan daginn. Kvöld var
komið og langaði mig að fara út
og njóta veðurblíðunnar. Ég tók
körfubolta sona minna með og
ákvað að reyna fyrir mér í körfu-
bolta ekki fjarri heimili mínu. Já,
þið lásuð rétt, ég sagði körfubolta,
þótt einhveijum kunni það að
hljóma einkennilega. Spilaði ég
reyndar aðeins við sjálfan mig, var
að reyna að hitta boltanum ofan
í körfuna, þið vitið.
Allt í einu koma tveir strákar
aðvífandi á hjólum sínum og fara
að fylgjast með mér. Ég hugsaði
„hva hafa þeir aldrei séð mann í
körfubolta áður eða hvað?“
Skyndilega segir annar: „Heyrðu,
varst það ekki þú sem komst í
skólann til okkar í fyrrahaust og
gafst okkur Nýja testamentið?“
Ég hugsaði með mér sem snöggv-
ast, „æ er nú hvergi friður, hvað
á nú að fara að skjóta á mig.“
Ég svaraði: „Jú, ætli það geti ekkj
passað, hvað eruð þið gamlir? í
hvaða skóla eruð þið?“
Jú, jú, þetta stóð allt heima.
Þeir reyndust ellefu og þrettán ára
og það bræður. Sá eldri sagði:
„Já, bláa bókin sem þú ert alltaf
að lesa.“ Þá sagði sá yngri: „Já,
ég er búinn að lesa hana alla, og
er byijaður á henni aftur, ég les
í henni á hveiju kvöldi áður en ég
sofna, þetta er uppáhalds bókin
mín. Ég geymi hana á sérstakri
hillu, sem er við rúmið mitt.“
Ég hresstist nú allur og færðist
í aukana_ enda á „heimavelli“ eða
þannig. Áttum við nú skemmtilegt
spjall saman, sem endaði að sjálf-
sögðu með því að þeir fóru að
spila við mig körfubolta.
SIGURBJÖRN ÞORKELSSON,
framkvæmdastjóri
Gídeonfélagsins á íslandi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt t
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta. ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.