Morgunblaðið - 09.12.1995, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistarskólinn
á Akureyri
Jólatónleik-
ar í Glerár-
kirkju
120 nemendur í
sjö hljómsveitum
J ÓLATÓNLEIKAR hljómsveita
Tónlistarskólans á Akureyri verða
haldnir í Glerárkirkju á morgun
sunnudag kl. 14. A tónleikunum
koma fram um 120 nemendur í 7
hijómsveitum og hópum. Að tónleik-
um loknum verða kaffiveitingar í
safnaðarsal kirkjunnar í boði for-
eldrafélaga.
Leika fljótlega
í hljómsveitum
Tónlistarskólinn á Akureyri hefur
um langt skeið haft forystu meðal
íslenskra tónlistarskóla á sviði
hljómsveitastarfsemi, segir í frétta-
tilkynningu frá skólanum. Nemend-
ur í blásaradeild og strengjadeild
byija að leika í hljómsveitum fljót-
lega eftir að nám þeirra hefst. Þjálf-
Un nemenda í hljómsveitarleik heldur
áfram meðan á námi stendur og
fiytjast þeir úr einni sveit í aðra með
aukinni fæmi.
í Tónlistarskólanum eru nú starf-
andi 3 blásarasveitir undir stjórn
Sveins Sigurbjörnssonar og Jóns
Halldórs Finnssonar. Auk þeirra
kemur blásarasveit Oddeyrarskóla
fram á morgun en sveitin er sam-
vinnuverkefni Tónlistarskólans og
Oddeyrarskóla og hófst nú í haust
undir stjóm Jóns Halldórs Finnsson-
ar. Þá koma fram tvær strengja-
sveitir undir stjórn Guðmundar Ola
Gunnarssonar og hópur Suzuki-
fiðlunemenda.
Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson
KÓRSTARF er með miklum blóma í Hrísey, en myndin
er tekin á tónleikum kirkjukórsins nýlega.
Laxá vill
lóðí
Krossanesi
FÓÐURVERKSMIÐJAN Laxá hef-
ur farið þess á leit við bæjaryfirvöld
að fyrirtækinu verði úthlutað lóð á
athafnasvæði sínu í Krossanesi. Er-
indi þessa efnis var kynnt í bæjar-
ráði í gær.
Núverandi lóðaréttindi Laxár ná
aðeins til grunnflatar sumra af hús-
um fyrirtækisins þar. Bæjarráð vís-
aði erindinu. til bæjarverkfræðings
og fól honum að leggja fram tillögu
að lóðasamningum fyrir þau fyrir-
tæki sern hafa lóðir á Krossanes-
svæðinu.
Tíundi hver
Hríseyingur
í kór
Sunna Borg formaður leikhúsráðs
Leikhúsráði leiðist
ekki að hampa mér
Hrísey.
KIRKJUKÓRINN í Hrísey hélt
nýlega aðra tónleika sína á vetr-
inum og voru auk klassískra
verka ýmis jólalög á dagskránni.
Einstaklingar úr kórnum sungu
einsöng við hljómsveitarundirleik
auk þess sem kvennakór úr kórn-
um söng einnig.
Fyrri tónleikarnir voru í nóv-
ember við góðar undirtektir og
var fullt út úr dyrum á þeim
seinni, sem haldnir voru í Hlein.
Næsta átak er svo aðventukvöld
í kirkjunni sem haldið verður
annað kvöld, sunnudagskvöldið
10. desember, þar sem kirkjukór-
inn kemur fram, barnakór leik-
skólans Smábæjar auk kórs
Grunnskólans í Hrísey. Einnig á
að syngja á litlu jólunum í grunn-
skólanum og við jólamessu.
„ÞEIM leiðist ekki í leikhúsráði að
hampa mér,“ segir Sunnu Borg for-
maður ráðsins í kjölfar ummæla
varaformanns ráðsins í blaðinu í gær
þar sem vísað er á bug ummælum
í yfirlýsingu Sunnu eftir að hún dró
til baka umsókn sína um stöðu leik-
hússtjóra og sagði ráðið hafa þyrlað
upp moldviðri vegna málsins.
Hreinn Pálsson varaformaður
leikhúsráðs sagði í blaðinu í gær að
ráðið hefði ekki vilja láta væna sig
um að hafa ekki veitt hlutlausar
upplýsingar. „Með öðrum orðum
vænir leikhúsráð mig um að hafa
ekki veitt hlutlausar upplýsingar
varðandi þessa tvo umsækjendur
sem ég talaði við sem formaður ráðs-
ins áður en ég ákvað sjálf að sækja
um leikhússtjórastöðuna. Eðlilegast
hefði þá verið að leikhúsráð talaði
við þessa tvo umsækjendur og leið-
rétti þar með það sem ég hafði
væntanlega missagt. Nei, „hreinleg-
ast“ var að mati leikhúsráðs að rjúka
í blöðin með loðna yfirlýsingu þar
sem tvennt var a.m.k. vítavert.
í fyrsta lagi að gefa upp nöfn
umsækjenda áður en ákvarðanir
voru teknar og nýr umsóknarfrestur
var útrunninn. í öðru lagi að geta
þess að um leið og ég tilkynnti
umsókn mína, þá vék ég úr sæti í
leikhúsráði þar til ráðið hefði ákveð-
ið hver skyldi hljóta starf leikhús-
stjóra. Þetta orsakaði moldviðrið."
Morgunblaðið/Kristján
Heim á verkstæðið
FIVIIM
Flutningamiðstöð Norðurlands ehf.
Óseyri 1a - 603 Akureyri, s. 462 2624 - Gunnarsbraut 10 - 620 Dalvík, s. 466 1444
Fram að jólum býður FMN viðskiptavinum sínum sérstakt
jólaverð á flutningi á öllum jólapökkum til vina og vanda-
manna á Suður- og Norðurlandi.
Verð pr. jólapakka upp aö 20 kg.
kr. 300 m/vsk.
Afgreiðsla FMN í Reykjavík er hjá Landflutningum hf.,
Skútuvogi 8, sími 568 5400.
Ofangreint tilboð á einungis við um jólapakka.
Óskar Jónsson & Co hf., Stefnir hf.,
Gunnarsbraut 10, 620 Dalvík, Óseyrí 1a, 603 Akureyri,
sími 466 1444, simi 462 2624.
Kanebo
Art through Technology
Snyrtivörur frá Japan
sem njóta viröingar um víða veröld
KYNNING ÍDAG
Laugardag9- desember
hjá snyrtivörudeild Hagkaups í Kringlunni
Karl Berndsen förðunarmeistari farðar
og aðstoðar við val á KANEBO snyrtivörum.
ÞEIR hafa komið sér upp
býsna skemmtilegu farartæki,
strákarnir á vélaverkstæði
Samherja í Oddeyrarskála.
Sæþór Steingrímsson sem var
að vinna um borð í Víði á dög-
unum var ekki í vandræðum
með að koma verkfærunum
fyrir á hjólinu á leið heim á
verkstæði.
Messur
AKURE YR ARPREST AKALL:
Sunnudagaskólinn verður í
Safnaðarheimilinu kl. 11 á morg-
un, þar verður föndrað og fá börn-
in að taka með sér hlutina heim.
Messað í Akureyrarkirkju kl. 14.
Arnaldur Bárðarson guðfræði-
kandidat prédikar. Barnakór Ak-
ureyrarkirkju syngur undir stjórn
Hólmfríðar Benediktsdóttur. Bibl-
íulestur á mánudagskvöld kl.
20.30. _
GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur
og bænastund í kirkjunni kl. 13 í
dag, laugardag. Barnasamkoma á
morgun kl. 11. Fundur æskulýðs-
félagsins kl. 18. Aðventusamkoma
eldri borgara verður í kirkjunni
mánudaginn 11. desember kl.
15.30.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 13.30 á morg-
un, almenn samkoma kl. 20. Heim-
ilasamband kl. 16 á mánudag,
krakkaklúbbur á miðvikudag kl.
17.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Vakningarsamkoma í umsjá ungs
fólks í kvöld kl. 20.30, vakningar-
samkoma kl. 15.30 á sunnudag,
biblíulestur á miðvikudag kl. 20.30
og bænasamkoma næsta föstudag
kl. 20.30.
KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrar-
landsvegi 26: Messa kl. 18 laug-
ardag og kl. 11 á sunnudag.
Aðventu-
kvöld í
kirkjunum
AÐVENTUHÁTÍÐ verður í
Akureyrarkirkju annað kvöld,
sunnudagskvöldið 10. desem-
ber, og hefst það kl. 20.30.
Ræðumaður verður Björn
Bjarnason menntamálaráð-
herra. Barnakór Akureyrar-
kirkju flytur helgileik undir
stjóm Hólmfríðar Benedikts-
dóttur. Björg Þórhallsdóttir
syngur einsöng. Æskulýðsfé-
lagið verður með ljósahátíð og
þá verður almennur söngur, en
hátíðinni lýkur með því að sung-
inn verður sálmurinn „Heims
um ból.“
Aðventukvöld verður einnig
í Glerárkirkju sunnudagskvöld-
ið 10. desember og hefst það
kl. 20.30. Valgerður Valgarðs-
dóttir djákni flytur hugleiðingu,
þá verður mikill söngur á að-
ventuhátíðinni sem lýkur með
ljósaathöfn.
Tónlistarskóli
Eyjafjarðar
Fimm
tónleikar
framundan
NEMENDUR og kennarar Tón-
listarskóla Eyjafjarðar verða
víðförlir sem fyrr á aðventunni,
en þeir koma fram á ellefu að-
ventukvöldum auk þess að
heimsækja sjúkrastofnanir og
fleiri staði.
Helstu verkefnin eru jólatón-
leikar skólans, þeir fyrstu verða
í Gamla skólahúsinu á Grenivík
næstkomandi mánudag, þá
verða tónleikar í Þelamerkur-
skóla á miðvikurdag, 13. des-
ember, í Valsárskóla 14. desem-
ber, í Freyvangi 15. desember
og síðan aftur mánudaginn 18.
desember en það eru tónleikar
söngdeildar. Tónleikarnir hefj-
ast allir kl. 20.30.
Efnisskráin er fjölbreytt,
fyrst og fremst þó jólalög.
Aðgangur er ókeypis.
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Stal úr far-
gjaldakössum
strætó
TUTTUGU og sjö ára gamall
maður hefur verið dæmdur í
þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi í Héraðsdómi Norður-
lands eystra fyrir þjófnað. Hann
fór síðasta vetur allt að 15 sinn-
um inn í höfuðstöðvar Strætis-
vagna Akureyrar við Árstíg og
stal þaðan úr fargjaldakössum
vagnanna, að jafnaði 5.000 til
7.000 krónum í hvert sinn. Við-
urkenndi hann sakargiftir fyrir
dómi og staðhæfði að heildar-
fjárhæð þýfísins hafi verið um
70.000 krónur.
Maðurinn hafði starfað hjá
Strætisvögnum Akureyrar við
afleysingar í skamman tíma og
hafði lykil að húsinu. Ákærði
skal greiða Akureyrarbæ skaða-
bætur vegna verknaðarins.
Þrettándi
jólasveininn
SÖGUSVUNTAN, brúðuleik-
hús Hallgerðar Thorlacius, sýn-
ir „Þrettánda jólasveininn" í
Deiglunni í Kaupvangsstræti í
dag, laugardag. Sýningamar
verða tvær, sú fyrri hefst kl.
11 og hin síðari kl. 13. Sýning-
in tekur um klukkustund og er
aðgangseyrir 500 krónur fyrir
börn en ókeypis er fyrir full-
orðna í fylgd barna.