Morgunblaðið - 09.12.1995, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 59
________FOLKI FRETTUM____
Yfir í allt annan heim
Nýjar hljómplötur
Haukur Heiðar Ingólfs-
son er mörgum kunnur
fyrir samstarf sitt við
Omar Ragnarsson á
árum áður. Hann er
sennilega eini læknirinn
sem gefur út plötu
fyrir þessi jól, en nýlega
kom út plata hans
Suðrænar perlur.
„ÉG VAR búinn að velta fyrir mér
efninu á plötuna í eitt til tvö ár,
en við vorum tiltölulega fljótir að
vinna hana, þegar í hljóðverið kom.
Núna, þegar platan er fullgerð og
komin á markað, get ég ekki sagt
annað en ég sé mjög ánægður með
útkomuna," segir Haukur Heiðar.
„Platan heitir Suðrænar perlur
og nafnið gefur náttúrulega til
kynna innihald hennar. Þetta eru
lög sem orðið hafa vinsæl í suðræn-
um löndum. Sum hver eru orðin
sígild og hafa ómað áratugum sam-
an. Sum eru að sjálfsögðu yngri,
en þau eiga öll sammerkt að hafa
upphaflega komið út í
suðrænum löndum.“
Er það engum vand-
kvæðum bundið að
flytja lög sem fólk
þekkir í flutningi
heimsfrægra lista-
manna? „Nei, við reyn-
um að standast sam-
anburðinn eftir bestu
getu. Með þvílíkt ein-
valalið hljóðfæraleik-
ara og söngvara mér
til aðstoðar sem raun
ber vitni er ég hvergi
banginn. Árni Sche-
ving er upptökustjóri
og útsetjari, auk þess
sem hann leikur á
bassa og fleiri hljóðfæri. Einar
Valur Scheving, sonur hans, leikur
á trommur og slagverk og Vilhjálm-
ur Guðjónsson á gítar. Sjálfur leik
ég á píanó, en söngvarar eru Egill
Ólafsson, Matthías Matthíasson og
Margrét Hauksdóttir. Allt er þetta
úrvalsfólk sem aðstoðaði mig af
bestu getu og ætti að standast sam-
anburð við erlenda flytjendur."
Spilaði með Spánveija
Eins og fyrr segir er Haukur
Heiðar læknir. Hvemig fer tónlistin
saman við starfið? „Mjög vel. Ég
er búinn að stunda þetta svo að
segja frá barnæsku og það hefur
aldrei valdið neinum vandræðum.
Ég byijaði í rokkinu í gagnfræða-
skóla á Akureyri, var þá í hljóm-
sveit, þangað til ég lauk
stúdentsprófi 1965 og
hóf þá nám við Háskól-
ann. Þá kynntist ég
Ómari Ragnarssyni og
breytti svolítið um stíl.
Reyndar hafði ég
snemma á sjöunda ára-
tugnum spilað tvö sum-
ur með Spánverja, svo
kannski er áhugi minn
á suðrænni tónlist það-
an kominn. í gegn um
árin hef ég svo spilað
með Ómari og það má
segja að það hafi farið
mjög vel saman við
starfið. Maður kemur
af læknastofunni yfir í
allt annan heim.“
Ákvað ungur að fara í
læknanám
Haukur Heiðar segist ekki spila
tónlist sína fyrir sjúklingana á
læknastofunni. „Nei, það hefur mér
ekki dottið í hug. Það er þó athygl-
isverð hugmynd og gæti verið af-
slappandi fyrir sjúklingana," segir
hann brosandi.
Var ekki frekar óvenjulegt að
tónlistarmaður færi í háskólanám á
þessum árum? „Reyndar var ég til-
tölulega ungur þegar _ég ákvað að
fara í læknanám. Ég tók mér
tveggja ára hlé frá námi eftir gagn-
fræðaskóla og gerði mér þá grein
fyrir því að ég vildi ekki treysta á
tónlistina sem lifibrauð.“
Morgunblaðið/Júlíus
Haukur Heiðar
Ingólfsson
r Nœstu
sýningar:
9.og30.des.
Allra síðustu
L sýningar .
r Matseðill
Forréttur:
Freyðivínstónuð laxasúpa ni/rjómatopp.
Aðalréttur:
Glóðarsteiktur lambavöðvi dijon
m/púrtvínssósu, kryddsteiklum jarðeplum,
gljáðu grænmeti og fersku salati.
Eftirréttur:
Heslihnetuís m/súkkulaðisósu og ávöxtum.
Verð kr' 4-600
Sýningarverð.
ÍÍÖmiÁlANP kr. 2.000
VBorðapantanir í stma 568 7111.
Ath. Enginn aðgangseyrir á dansleik,
Hótel lsland
ÞO LIÐIAR OG OLD
þar sem BJÖRGVIN HALLDÓRSSON rifjar upp öll bestu lögin
frá 25 ára glæstum söngferli ásamt fjölmörgum
frábærum listamönnum
í glæsilegri sýningu. /V'' V
Gestasöngvari:
SIGRÍDUR BEINTEINSDÓTTIR
Hljómsveitarstjóri:
GIINNAR ÞÓRDARSON
ásamt 10 manna hljómsveit ^
Kynnir: >
JÓN AXEL ÓIAFSSON /
Dansahöfúndur: i
HELENA JÓNSDÓTTIR J
Dansarar úr HATTl flokknu*
llandrit og leikstjórn: m
BJÖRN G. BJÖRNSSON ■
Haukur Hciðar Ingólfsson
leikur fyrir niatargesti
Hljómsveitin Kanna í Aðaisal
Ásbyrgi:
Carl Erik Lundgaard og
Flemming Quist Möllcr
Norðursalur:
Diskótek
Sértilboð á hótelgistingu, sími 568 8999■
Jackson
enní
gjörgæslu
MICHAEL Jackson var enn á
gjörgæsludeild sjúkrahúss í
New York í fyrradag, eftir að
hafa hnigið niður á æfingu dag-
inn áður. Að sögn lækna þjáist
Jackson af óreglulegum hjarts-
lætti og vökvaskorti. „Hann
kemur til með að þurfa að
dvelja í nokkra daga í gjör-
gæslu í meðferð við meltingar-
truflunum, vökvaskorti og fleiri
kvillum," segir einkalæknir
Michaels, Allan Metzger.
„Ástand hans er alvarlegt en
stöðugt."
Umrædd æfing var fyrir
sjónvarpsþátt Jacksons með Iát-
bragðsleikaranum Marcel
Marceau, sem átti að sýna á
morgun. Búist hafði verið við
að yfir 250 milljónir manna um
allan heim hefðu horft á hann.
Að sjálfsögðu var upptökunni
frestað og ekki er vitað hvenær
hún fer fram. „Við verðum bara
að bíða og sjá hvenær hann nær
sér,“ segir Quentin Schaffer
framleiðandi þáttarins.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
Reuter
sem Jackson á við heilsuvanda-
mál að glíma. Árið 1990 fékk
hann verk fyrir bijóstið og fyr-
ir tveimur árum þjáðist hann
af vökvaskorti og varð að af-
lýsa tónleikaför um heiminn.
Þá gaf hann þá yfirlýsingu að
hann væri orðinn háður verkja-
lýfjum. Á meðfylgjandi mynd
sjáum við hvar eiginkona Mic-
haels, Lisa Marie Presley, kem-
ur á sjúkrahúsið að heimsækja
eiginmann sinn.
DANSHusa>
568 6220
MIKIÐ FJÖR!
DANSSVEITIISI
OG EVA ASRUN
JÓLAHLAÐBORÐ & DANSLEIKUR í DESEMBER
HÓPAR VINSLAMLEGAST BÓKIÐ TÍMANLEGA
A&gangseyrir500,- Snyrlil. klæSnaSur. ATH. Opið kl. 23:30-03.
STAÐUR HINNA DANSCLOÐU
■
Ný sending
af jöfikum, pilsum, buxum og blússum.
*
20% afsláttur af blússum
í dag, laugardag.
Opið laugardag frá kl. 10-18 • Lokað sunnudag
Reykjavíkurvegi 64, sími 565 I I 47.
Danska jólahlaðborðið
Kántrýkvöld meö urrandi
stemmningu.
. þAMA T^ó
^ Hamraborg 11, sími 554-2166 ^
Hljómsveitin Saga Klass og söngvararnir
Sigrún Eva Ármannsdóttir og Reynir Guðmundsson
sjá um kraftmikla og góða danstónlist fiá kl. 23.30.
Listamennimir Raggi Bjama
og Stefán Jökulsson halda uppi stuðinu á
MÍMISBAR