Morgunblaðið - 09.12.1995, Blaðsíða 27
Morgunhlaðið/Þorkeil
ALVEG EINS - Gunnar og Ásmundur Helgasynir.
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 27
Stórglæsilget úrval af sófasettum
í lebri og áklæði á hreint frábæru verbi.
Opið í dag kl. 10-18 • Sunnud. kl. 14-16
ARMULA 8, SIMAR 581 2275 og 568 5375
Ekki alveg
eins og ég
UM ÞESSAR
mundir kemur
Ásmundur,
klæddur sem
bandarískur
jólasveinn, fram
í nýrri sjón-
varpsauglýsingu
fyrir Mál og
menningu þar
sem helstu
barnabækur út-
gáfunnar fyrir
þessi jól eru
kynntar. Til stóð
í upphafi að
Gunnar, sem
líka er höfundur
barnabókarin-
nar Goggi og
Grjóni vel í sveit settir, tæki
það að sér. Einnig talaði Ás-
mundur yfir gamla upptöku
með Gunnari og kom í hans
stað í Stundinni okkar í októ-
ber vegna veikinda þess
síðarnefnda.
Bannað að leika
í auglýsingu
„Forsvarsmenn Máls og
menningar vildu fá mig til að
leika í sjónvarpsauglýsingu
þar sem barnabækurnar
þeirra eru kynntar. Ég var til
í það en yfirboðarar mínir hjá
Sjónvarpinu bönnuðu mér
það á þeim forsendum að ef
umsjónarmaður
Stundarinnar okkar auglýsti
bækur væri komið fordæmi
fyrir að auglýsa aðrar vörur,
til dæmis gosdrykki eða þess
háttar. Það drægi úr
trúverðugleika stjórnandans
og þáttarins. Ég skildi það
þótt ég væri reyndar örlítið
fúll,“ segir Gunnar.
Þegar hann síðan greindi
starfsmönnum Máls og menn-
ingar frá banninu varð úr að
Ásmundur yrði fenginn í
staðinn. „Það var útilokað
fyrir Sjónvarpsmenn að
banna það,“ segir Gunnar og
bætir við aðspurður að
honum sé ekki kunnugt um
hvort fólk haldi að hann sé
jólasveinninn í auglýsing-
unni.
Sýningin
stöðvuð
Frumraun Ásmundar í
Gunnars stað opinberlega var
í Stundinni okkar vegna
veikinda leikarans, sem fékk
vírussýkingu í raddböndin.
„Ég fer með hlutverk í
Himnaríki Árna Ibsens og
kom fram í sjö skipti þrátt
fyrir veikindin þangað til ég
missti röddina í miðju kafi.
Það varð að
stoppa sýning-
una þegar tíu
mínútur voru
liðnar. Gestirnir
voru beðnir af-
sökunar, þeim
boðinn bjór og
gefinn kostur á
því að koma
seinna. Þvl var
bara vel tekið.
Ég missi
röddina á föstu-
dagskvöldi og á
sunnudegi fer ég
upp í Sjónvarp.
Ég gat alls ekki
talað, bara rétt
hvíslað. Þá voru
góð ráð dýr og sú hugmynd
kom í raun upp hjá þremur
manneskjum samtímis, það
er mér, Felix Bergssyni og
Ragnheiði Thorsteinsson að
fá Ásmund bróður minn til
þess að hlaupa í skarðið og
hann var til í það.“
ÁsmuntJur
betri?
Hallgrímur Helgason,
bróðir tvíburanna, sagði í við-
tali nýverið að Ásmundur,
sem er viðskiptafræðingur,
væri betri leikari en Gunnar.
Hann hefði aftur meira við á
fjármálum. „Þeir sem sáu
Stundina okkar þar sem hann
kom í staðinn geta best dæmt
um það,“ segir leikarinn. Ás-
mundur talaði líka inn á eldri
upptöku fyrir bróður sinn
viku áður vegna þverrandi
raddstyrks og segir Gunnar
að raddir þeirra séu býsna
líkar.
Hent út úr
stúdíúinu
Þátturinn var síðan tekin
upp þannig að tvíburarnir
komu báðir inn í stúdíóið og
Felix, hinn umsjónar-
maðurinn, kynnti Ásmund
fyrir áhorfendum. „Ási
skýrði frá vandræðum
mínum og spurði Felix hvort
ég mætti ekki sleppa við
Stundina okkar að þessu
sinni því ég væri svo veikur.
Felix samsinnir og þá spyr
Ási hvort hann megi ekki
bara vera með í staðinn. Ég
mótmæli en Felix er
samþykkur og hendir mér út.
Mér leist bara vel á útkom-
una, þetta var fínn þáttur.
Mér fannst Ási að vísu ekki
alveg eins og ég, en það
fannst mörgum öðrum.“
Ásmundur
Helgason
markaðsstjóri
Húsasmiðjunnar
og tvíburaóróðir
Gunnars
Helgasonar, leikara
og annars
umsj ónarmanns
Stundarinnar
okkar, er að verða
helsti staðgöngu-
maður bróður síns
á opinberum
vettvangi, þótt
hann sé ekki
alveg eins.
mandarínur
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!