Morgunblaðið - 09.12.1995, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 43
1
I
I
i
í
j
i
I
I
.
I
:
«
:
«
«
(j
«
«
1
«
«
«
«
«
«
«
MINNINGAR
á mig frá afa í gegnum heildsöluna
í Reykjavík. I helgarfríinu þá helgina
fóru allir á heimavistinni heim með
epli í nesti og þá sérstaklega tvær
vinkonur mínar sem hafa í seinni tíð
minnt mig óspart á eplasöguna. Þær
urðu yfir sig hrifnar á Síldarævintýr-
inu 1993 þegar þær hittu „Gest afa“
í eigin persónu. „Goðsögn holdi bor-
in,“ datt upp úr annarri. Það var í
rauninni mikið til í því, því hvern
vildi Biggi heitinn Run tala við þegar
•hann lagðist niður á miðja Aðalgöt-
una á einu stóru síldarsumri stopp-
andi alla um'ferð, nema afa? Þvemeit-
aði að standa upp nema Gestur
Fanndal væri ræstur svo hann gæti
reist sig upp. Svona eiga stórkarlar
að vera. Eg verð alltaf svo stolt þeg-
ar ég hitti fyrir íslendinga um allan
heim sem segja: „Já, þú ert sonar-
dóttir hans Gests Fanndal.“ Ég veit
ekki hvort það er til sá flugmaður
af eldri kynslóðinni, sem ekki hefur
heyrt Gest afa gefa veður úr gamla
Land-Rovernum frammi á gamla
flugvelli. Það voru víst ferskar veður-
lýsingar sem allir skildu.
Jæja afi, flug, það var vel við
hæfi að ég endaði skrif mín með
því. Ég óska þér góðrar ferðar, þú
þarft ekki að hringja þegar þú ert
kominn á áfangastað, þó að það
hafir verið þú sem komst þeirri reglu
á. Ég er ekki með konfektkassa í
kveðjuskyni eins og þú varst alltaf
með, en í staðinn er bros, gleði og
stolt yfir því að hafa átt þig sem afa
minn.
Ég vildi óska þess að ég gæti ver-
ið hjá þér á laugardaginn og bankað
tvisvar sinnum á „hurðina" hjá þér
eins og þú varst vanur að gera við
áætlunarvélarnar. Bless bless afí
minn og góða ferð.
Þín,
Guðný Erla.
„Hann Gestur afi er dáinn, Palli
minn.“ Þessi orð hljómuðu svo
óraunverulega þegar faðir minn
hringdi í mig á laugardagsmorgun-
inn síðasta. Ég trúði því ekki að
afi, þessi hressi og duglegi maður
hefði kvatt svo snögglega, en maður
huggar sig við að þetta hafi verið
alveg eins og hann vildi hafa það,
með stæl. 40 mínútum eftir að hann
gekk sjálfur óstuddur út um horn-
dyrnar á búðinni sinni út í bíl læknis-
ins var hann allur. Engin sjúkrahús-
lega, ekki byrði á neinum.
Ég tel það forréttindi að hafa átt
afa eins og Gest Fanndal. Hann
hafði alltaf tíma fyrir mann þegar
komið var í heimsókn. Þá lagði hann
frá sér það sem hann var að gera,
fór inn á kontór, hellti kaffi í tvær
stórar kapteinskönnur, hallaði sér
aftur í stólnum, krosslagði hendurn-
ar yfir magann og spurði svo: „Hvað
er að frétta, sonur?“ þótt ég væri
sonarsonur hans.
Margar góðar minningar koma
upp í hugann síðan í bemsku. Þegar
afi leyfði mér að opna einn búðar-
kassann í búðinni sinni í fyrsta skipti
þá náði hakan akkúrat upp á borð-
brúnina og þegar að peningaskúffan
skaust út lenti hún beint í andlitinu
á mér með tilheyrandi blóðnösum
og gráti. Ótal ferðir fór ég með afa
út á flugvöll í gamla Land-Rovernum
en flugsamgöngur við Siglufjörð
voru hans helgasta áhugamál alla
tíð og fékk hann Fálkaorðuna 1993
fyrir að stuðla að bættum samgöng-
um við Siglufjörð og var vel að henni
kominn. Hann var fyrsti umboðs-
maður land-flugfélaganna sem flugu
til Siglufjarðar frá 1955 til 1992.
Fyrst Flugsýn, síðan Vængir, Arnar-
flug og síðast íslandsflug, og þegar
þeir sögðu honum upp umboðs-
mannsstarfinu 81 ára gömlum, var
hann mjög ósáttur við það. Hann
gat alveg leikandi gert þetta áfram
eins og hann hafði alltaf gert. Áður
en farþegaflugskýlið sem hann „lét“
byggja var byggt fór allt fram í
Land-Rovernum, farþegarnir settust
inn hægra megin, í miðju sætinu var
taskan með farseðlunum í og afi
skrifaði farseðlana með stýrið fyrir
borð, síðan kallaði flugvélin í fjarðar-
kjaftinum í gömlu talstöðina í bíln-
um, sem aldrei heyrðist í þegar
mest lá við og þá var veðrið gefið
án allra mæla; vindurinn ekki í hnút-
um og gráðum heldur norðan gola,
sunnan andvari, o.s.frv., skýjahæð
ekki í fetum heldur yfir Hvanneyrar-
skálinni, svo þið sjáið ljósið í sjón-
varpsendurvarpinu, flennibjartur
o.s.frv. Já, margir reyndustu og
fræknustu flugmenn landsins fengu
sína eldskírn hjá afa þegar hann
sagði þeim skilmerkilega og tæpit-
ungulaust hvernig ætti að fljúga í
Siglufirði. Mislíkaði þessum flughetj-
um það oft. Síðar virtu þeir allir afa
umfram aðra. Sýndu þeir það með
kveðjum, kortum og gjöfum síðar.
Um helgar gisti ég oft hjá afa og
Guðnýju ömmu, og þar var allt í föst-
um skorðum. Fyrir hádegi á laugar-
dögum var maður settur i bað, eftir
hádegi var leikið sér uppi á lofti í
herberginu inni af kontórnum þar
sem afi sat og vann í reikningum,
og síðan þegar manni leiddist leikur-
inn settist maður hjá afa og vildi fá
að vinna í reikningum líka og það
var aidrei annað en sjálfsagt. Seinni
partinn fórum við félagarnir svo nið-
ur í búð og völdum okkur í sunnu-
dagsmatinn sem amma eldaði svo
ógleymanlega. Á sunnudagsmorgun
var farið á flugvöllinn að afgreiða
flugið, síðan beint heim í steikina
hjá ömmu sem var alltaf borðuð inni
í borðstofu og þá voru sko hvítar
stífstraujaðar léreftsservíettur og
silfurhnífapörin notuð. Á eftir var
teflt, spilað eða afí fór að segja
manni sögur úr mannkynssögunni,
af hershöfðingjum eins og Alexander
mikla, Napoleon, Hitler og Patton
eða fljótunum miklu í Síberíu. Afi
sagði svo skemmtilega frá þessu öllu
að maður lifði sig inn hveija stóror-
ustuna af annarri og reyndi af öllum
mætti að ímynda sér hvemig hinir
og þessir generálar og hershöfðingjar
gátu losnað úr herkvíum og búið til
fleyga til að sleppa úr höndum óvin-
anna. En allt var þetta í föstum
skorðum og aldrei breytt út af van-
anum. Afi átti nefnilega eitt uppá-
halds orðatiltæki: „Þetta var svona,
er svona og verður svona.“
Ekki er hægt að láta hjá líða að
minnast á hnittin svör sem hann gat
gefíð. Eitt sinn var hringt og spurt
um flugið, leiðindaveður var, snjó-
koma og hvasst. Hann svaraði: „Ef
þú sérð um veðrið skal ég sjá um
afganginn." Annað sem skýtur upp
í hugann er þegar flugvélin var einu-
sinni fullbókuð. Inn í farþega-
afgreiðsluna kemur einn af framá-
mönnum þjóðarinnar og þarf að kom-
ast suður í einum grænum hvelli á
fund. Fyrirmennið ber sig stórmann-
lega og krefst þess af afa að hann
láti einhvern þeirra sem á bókað
sæti sitja eftir. Afí svaraði: „Já, vel-
komið, ef að þér getið bent á þann
sem á að sitja eftir.“ Þá brast stór-
mennið kjarkinn og hann fór út hálf-
sneypulegur.
Sem dæmi um lestraráhuga afa
má nefna að ef einhver úr fjölskyld-
unni fór til Reykjavíkur var algjört
skilyrði að koma með nýjustu dag-
blöðin til baka, svo að hann væri
búinn að fá þau á undan Matta Jó-
hanns vini sínum. Síðan hringdi afi
í Matta og sagði honum hvað væri
í fréttum. Þá gátu þeir diskúterað
fréttirnar fram og til baka og lá
hvorugur á skoðunum sínum.
I þau sex ár sem ég vann í búð-
inni hans kynntist maður afa sem
stjórnanda, og jafnframt göfug-
mennsku hans. Ég held að flest börn
sem alist hafa upp á Siglufirði hafi
einhvern tíma fengið súkkulaði eða
bolsjer í munninn hjá afa og þar
voru synir mínir Andri og Sigurður
Ingi engin undantekning. Um leið
og þeir komu inn í búðina hlupu þeir
í einum grænum í gegnum vöruhús-
ið og beint inn á kontór og upp í
fangið á langafa sínum. Það mátti
vart á milli sjá hver var glaðari að
sjá hvern, þeir eða hann. Þar gátu
þeir unað eins lengi og þeim hent-
aði, því afi hafði nefnilega lag á því
að tala við böm eins og fullorðið
fólk og byijaði strax að kenna strák-
unum bókstafi, tölustafí og reikning.
Ég er stoltur af að hafa átt Gest
Fanndal sem afa. Hann var einn af •
þeim mönnum sem hafa ráð við öll- ^
um vandamálum, og mátti auk þess
ekkert aumt sjá.
Elsku Gestur afi, nú ert þú lagður
upp í þína hinstu ferð og getur ferð-
ast til allra landanna sem að þú
sagðir manni frá og tekið þátt í öll-
um orustunum sem við lásum saman
um og þú útlistaðir svo skemmti-
lega. Ég veit að vegferð þín verður
góð eins og þú sjálfur sáðir til.
Páll.
Tilvist okkar hér á jörðu er mis-
auðveldur skóli, aðalkennarar í i
þeim skóla eru samferðamennirnir.
Af þeim lærum við. Af þeim mótast
breytni okkar til allra verka. Áhrif
þeirra á líf okkar eru mismikil, sum
skilaboð sem við fáum eru veik,
önnur sterk og þannig upplifðum
við Gest afa á Sigló. Sterka persónu
sem tekið var eftir hvar sem hann
fór, en þó svo mildur og hlýr. Hlýju
sinni og kærleika miðlaði hann til
okkar í ríkum mæli og þegar maður
er svo lánsamur að kynnast þessum
eiginleikum í einni og sömu persónu
öðlast maður gott veganesti.
Nú er stund aðskilnaðar komin,
ljósið er slokknað, það dofnaði aldr-
ei, það bara slokknaði. Þannig var
Gestur afi, kraftmikill, atorkusam-
ur maður sem kenndi okkur svo
margt og gaf ríkulega.
Elsku Guðný amma, megi ljósið
sem hann skildi eftir í sálum okkar
verða þér styrkur.
Guðný Rósa, Gestur Már
og Þorbjörn.
• Fleirí minningargreirmr um
GestH. Fanndal bíða biriingar
ogmunu birtast í blaðinu næstu
daga.
Pastoralsinfónían eftir Nóbelsverðlaunaskáldib André Gide er
ein fegursta perla nútímabókmennta. Hér kemur hún í
þýbingu Sigurlaugar Bjamadóttur.
Sveitaprestur tekur upp á sína arma umkomulausa blinda
stúlku. Gegn vilja sínum verbur hann ástfanginn af henni.
Sagan snýst um sálræn átök, afbrýbi og örvæntingu; fegurðina
og ljótleikann í mannssálinni.
FJOLVI
Kristilegur kærleikur! Freisting - synd.
/
Atakanleg lýsing á einu mesta vobaverki Mannkynssögunnar.
Þab geröist fyrir
50 árum...
...á stórborgina Hírósíma var varpað kjarnorkusprengju. Á einu
augnabliki var hún lögð í rúst. Nær hundrað þúsund manns
fórust. Önnur hundrað þúsund áttu eftir að líða ólýsanlegar
kvalir.
Bók Herseys um hlutskipti borgarbúa, dauða og hörmungar er
þekkt um allan heim. Hún er byggð upp á samtölum við
fórnarlömb sem lýsa blossanum mikla og þeirri martröð sem
fýlgdi í kjölfarið.