Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 80
80 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Bjarni Kristjánsson, miðill,
segir hér á hispurslausan
hátt frá erfiðum aðstæðum
í bernsku sinni í Keflavík,
unglingsárum, uppgötvun
miðilshæfileika sinna og
starfi sínu sem miðill.
*
I bókinni eru auk þess
frásagnir fólks sem notið
hefur aðstoðar hans sem
miðils og fróðleikur um
ýmislegt í andlegum málum
daglegs lífSy sem margir
gœtu haft gagn af
IMÝJAR HUÓMPLÖTUR
Þetta er fint
og það batnar
DUETTINN Súkkat sendi frá sér
eftirminnilega plötu fyrir tveimur
árum þar sem þeir félagar Gunnar
Öm Jónsson og Hafþór Ólafsson léku
sér með ýmis minni og stef. Fyrir
skemmstu kom svo út önnur plata
þeirra félaga, sem heitir því sérkenni-
lega nafni Fjap.
Fyrsta plata Súkkats gekk vel, en
þeir segja samt að ekkert hafi verið
ákveðið með framhald og reyndar
ekki tekin ákvörðun um að taka upp
nýja plötu fyrr en kominn var góður
slatti af lögum. „Einn góðan veður-
dag tókum við ákvörðun um að gera
aðra plötu og drifum okkur af stað,
kannski heldur seint fyrir jólamark-
aðinn.“
Hafsteinn og Gunnar segjast ró-
legir og samstarfið afskaplega af-
slappað, enda sé hvorugur gefínn
fyrir að ota sínum tota. „Það er gam-
an að troða upp,“ segja þeir, „og við
tökum yfírleitt að okkur það sem
berst til okkar. Það verður þó að
vera í hófi, ef það er orðið meira en
tvö kvöld í viku er það hætt að vera
gaman og orðið rútínuvinna, hættu-
leg rútína."
Tekin upp á einu kvöldi
Þeir félagar segja tónlistina á
Fjapi ósköp áþekka því sem var á
fyrstu plötunni, þó þeir leyfí sér að
bregða útaf í útsetningum, en einnig
á Megas eitt lag á plötunni, aldar-
fjórðungsgamalt og áður óútgefið.
Kristján Kristjánsson leikur á gítar
á plötunni og Eyþór Gunnarsson á
trommur, en upptökum stýrði ívar
„Bongó“ Ragnarsson. Þeir segja að
platan hafí verið tekin upp á einu
kvöldi og séð til þess að hljómurinn
væri hrár og skemmtilegur. Þeir séu
Morgunblaðið/Ásdís
GUNNAR Örn Jónsson og
Hafþór Ólafsson Súkkatar.
og ánægðir með plötuna, „þetta er
að koma, maður er alltaf svolítið
sleginn fyrst, þegar hvað styst er frá
því að geta breytt einhveiju, þetta
er fínt og það batnar".
Einfaldar formúlur og spaugilegt bull
TÓNLIST
Gcisladiskur
EILÍFT BETL
Eilíft betl, geisladiskur hjjómsveitar-
innar Betls sem skipuð er Rögnvaldi
Rögnvaldssyni, Halldóri Bragasyni
og Hreini Laufdal. Lög og textar
eftir þá félaga. Ekki kemur fram
hver gefur út, né hver dreifir. 53,33
mín., 1.999 kr.
HUÓMSVEITIN Betl er víst ekki
starfandi sem hljómsveit, enda eiga
liðsmenn hennar heima í ólíkum
landshlutum. Það hefur þó ekki kom-
ið í veg fyrir að þeir hafí sett saman
breiðskífu og það breiðskífu í lengra
lagi.
Tónlistin á Eilífu betli er miklu
leyti unnin á tölvur, þó stöku sinnum
megi heyra lifandi hijóðfæraleik, og
forritun er öll í einfaldara lagi, til
dæmis í Sjónvarpsglápi, svo einföld
reyndar að fljótlega verður þreytandi
á að hlýða. Ekki er þó vert að meta
of strangt útgáfu sem þessa, því
hvarvetna skín í gegn að Betlarar
taka sjálfa sig ekki yfírmáta alvar-
lega; lög eru einfaldar formúlur og
textar spaugilegt bull á köflum, til
að mynda í Ástarleikjum, í bítið og
Sjónvarpsgláp. Kímnin er reyndar
svo afkáraleg á köflum að hún miss-
ir marks, en víða komast þeir félag-
ar þó hnyttilega að orði og fyrir
kemur að þeir ná jafnvægi á milli
texta og útsetningar, sem dæmi má
nefna Elskuna og Þá. Söngur er al-
mennt afleitur, örugglega vísvitandi,
en gestasöngvarar lyfta plötunni
nokkuð, þannig syngur Kristján Pét-
ur prýðilega klénan texta við þunnt
lag í Mér. Frágangur á textablaði
er klúðursiegur og grúir af villum,
en það er kannski liður í gamninu.
Árni Matthíasson
Náttboró, höfóa- og fótagaflar
á amerísku rúmin
húsgagnaverslun
Langholtsvegi III* Sími 533 3500.
WINDHAM WAY
Höfðagafiar
Queen kr. 39.468 stgr.
King kr. 45.908 stgr.
Náttborð kr. 34.868 stgr.
MANCHESTER Höfða-og
Höfðagaflar fótagaflar
Queen kr. 48.576 stgr. kr. 80.960 stgr
kr. 55.016 stgr. kr. 86.480 stgr.
kr. 55.016 stgr. kr.86.480 stgr.
Máttborð kr.18.308 stgr.