Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU IFPL og Faroe Seafood í Grimsby sameinast Vella sameinaðs fyrir- tækis um 9 milljarðar VERKSMIÐJAIFPL í Grimsby. FRETTIR: EVROPA Reuter LEIÐTOGAR Evrópusambandsins og Mercosur stilla sér upp til myndatöku í spænsku konungshöllinni í Madríd. Jóhann Karl konungur og Soffía drottning eru fyrir miðju. Tímamótasamningur við Mercosur Stefntaðfrí- verzlunarsvæði Madríd. Reuter. Arleg framleiðsla verður um 23.000 tonn af afurðum SAMKVÆMT hluthafasamkomu- lagi hafa eigendur fyrirtækjanna IFPL og Faroe Seafood komið sér saman um að sameina rekstur fyrir- tækjanna í eitt. Bæði fyrirtækin reka fiskréttaverksmiðjur í Grimsby í Bretiandi, en IFPL keypti í sumar helming hlutafjár í Faroe Seafood. Sameining gengur í gildi fljótlega eftir áramót. Hlutdeild IFPL í sam- einuðu fyrirtæki mun verða 75%. Velta sameinaðs fyrirtækis er tæp- lega 9 milljarðar fsl. kr. og heildar- framleiðsla verður í kring um 23.000 tonn. Forstjóri hins sameinaða fyrir- tækis verður Agnar Friðriksson. Ákveðin samrunaþróun hefur átt sér stað á Bretlandsmarkaði á síð- ustu árum. Fyrirtæki hafa samein- ast, þannig að nú eru færri en sterk- ari fyrirtæki á markaðinum. Þessi þróun stafar af harðnandi sam- keppni en einnig vegna þess að kröf- ur hafa verið auknar til fyrirtækj- anna í tengslum við framleiðslu og gæðaeftirlit og skýrslugerð til að hægt sé að rekja ferli vörunnar. Þetta eru skyldur sem krefjast mannafla og kostnaðar og smærri fyrirtæki eiga því erfitt með að standa undir þeim. Tvö stærstu fyrirtæki í dreifingu og framleiðslu á fiski í Bretlandi í dag eru Birdseye og Ross Young sem eru dótturfyrirtæki alþjóðlegra risa í matvælaframleiðslu, hið fyrrnefnda er í eigu Unilever sem er í hópi stærstu matvælaframleiðslufyrir- tækja í heimi og hið síðarnefnda í eigu United Bisquits. Með samein- ingu IFPL og Faroe Seafood Comp- any má ætla að fyrirtækið skipi sér sess sem þriðja til fjórða stærsta fyrirtækið á þessu sviði á Bretlands- eyjum og er að svipaðri stærð og Albert Fisher group. Vesti kr. 3.600 Blússur frá kr. 4.700 Pils kr. 4.900 Húfa kr. 1.200 JOSS KRIAiGLUIUNI Verslunarskýrslur sýna að versl- anir í Bretlandi dreifa frystum fiski árlega fyrir 330-350 milljónir sterl- ingspunda, miðað við verð frá verk- smiðju. Helmingur þessarar fisksölu fer fram undir merkjum stórverslana (private label) hinn helmingurinn er seldur undir merkjum framleiðenda. Verksmiðja IFPL framleiðir ár- Iega vörur fyrir andvirði 70 m. sterl- ingspunda. Um það bil 90% af þess- um vörum er dreift til stórverslana og í fiest- um tilvikum er fram- leiðslan seld undir merkjum viðkomandi stórverslana. í kring um 10% af verksmiðju- unninni vöru IFPL fer til veitingahúsa. Með tilliti til ofangreindra talna má áætla að hlut- deild hins sameinaða fyrirtækis á breskum smásölumarkaði verði eitthvað í kring um 18-19%. Þannig má segja að fimmti hver fiskur sem seldur er í smásöluverslunum í Bretlandi í frystu formi komi frá hinu nýsam- einaða fyrirtæki og ef eingöngu er talin með sú vara sem seld er undir merkjum stórverslana er um rúm- lega þriðjungs hlutdeild að ræða. Kostir sameiningarinnar í grundvallaratriðum verður til sterkari eining sem hefur betri stöðu á markaðinum. Um leið skapast tækifæri til þess að fara inn á svið sem eru áður ónumin. Þannig vinna menn land inn á þessum stóra mark- að sem menn þekkja orðið nokkuð vel til á. Síðustu tvö til þijú ár hefur rekst- ur Faroe Seafood Company í Grimsby gengið fremur illa. í ágúst s.l. var skipt um yfirstjórn í fyrirtæk- inu og tók þá Agnar Friðriksson forstjóri IFPL við yfirstjórn þess. Síðan þá hefur verið unnið að því að koma betra skipulagi á rekstur- inn. Með því að sameina verksmiðju IFPL og verksmiðju Faroe Seafood Company skapast betri nýting á tækjum og húsakosti fyrir bæði fyr- irtækin og bætt markaðsstaða gerir þeim kleift að vinna að aukinni sér- hæfingu. Framleiðsla fyrirtækjanna tveggja hefur að mörgu leyti verið fremur ólík og þau hafa sótt hvort inn á sinn markaðinn. 65-70% af hráefnisnotkun verksmiðjanna beggja er þorskur og ýsa og vonast menn til þess að í framtíðinni geti íslenskir framleiðendur tekið að sér að vinna dýrara sérunnið hráefni fyrir sameinaða verksmiðju. Einn af kostum sameiningarinnar er sá að með henni skapast tengsl við kaupendur sem IFPL hefur ekki verið í viðskiptum við áður kaup- endahópur fyritækjanna skarast þannig ekki eins og sjá má hér að ofan heldur er um að ræða hreina viðbót. Einnig ávinnast sambönd við framleiðendur í Færeyjum en eins og fyrr segir hefur færeyska verk- smiðjan keypt inn rúm 7000 tonn af hráefni árlega. Starfsemi IFPL í dag vinna hins vegar um 600 manns við verksmiðjuna í Grimsby og árið 1995 er gert ráð fyrir því að velta fyrirtækisins verði u.þ.b. 58 m. pund en til samanburðar má geta þess að veltan 1994 var 56.3 milljón pund og það ár skilaði fyrir- tækið um það bil 130 milljón kr. hagnaði. Stór hluti af vörum fyrirtækisins fara inn á breskan smásölumark- að, til stórverslana sem selja vöruna undir eigin vörumerki. Nokkur hluti er seldur til veit- ingastaða og er McDonalds veitinga- húsakeðjan þar stærst. Helstu kaupendur vöru frá IFPL eru frysti- markaðakeðjan Ice- land, Tesco, McDon- alds, Brake Bros og Asda. Auk þess er hluti framleiðslunnar fluttur til Frakklands, þar sem vörunni er dreift á veg- um söluskrifstofu SH í Frakklandi. í dag framleiðir verksmiðjan mik- ið úrval fiskrétta úr fjölmörgum físk- tegundum, svo sem þorski og ýsu alaskaufsa, lýsing, hokinhala frá suður Kyrrahafi og karfa sem er vinsæll víða í Evrópu. Auk þess sem IFPL selur unna verksmiðjuvöru er fyrirtækið einnig með mikil umsvif í bulk sölu í gegn- um söluskrifstofu fyrirtækisins. Um er að ræða fiskfök, síld og rækju sem seld er til framleiðenda og heild- sala víða í Bretlandi. Heildarmagn verksmiðjuvöru árið 1995 mun verða um 13,500 tonn en til að framleiða slíkt magn þarf u.þ.b. 6,500 tonn af fiskblokk, um 2,500 tonn af flökum og flakastykkj- um og 450 tonn af rækju. Fullunnin vara sem framleidd er fyrir smásölumarkað í Bretlandi er pakkað í áprentaðar öskjur. Pakkn- ingarnar eru keyptar frá breskum framleiðendum en einnig frá Plast- prent og Umbúðamiðstöðinni. Þessi viðskipti hafa verið að aukast og gert er ráð fyrir að í framtíðinni muni meira af þessum viðskiptum flytjist yfír til hinna íslensku um- búðaframleiðenda. Faroe Seafood Hjá fyrirtækinu vinna nú um 300 manns og er velta þess á árinu 1995 áætluð 32 m. punda. sem er nokkuð í samræmi við veltu síðustu ára. Helstu viðskiptavinir Faroe Sea- food Company eru stórverslanirnar Sainsbury, Marks og Spencer, Morri- sons, Tesco, Aldi, Gateway og Safeway. Heildarmagn verksmiðjuunninnar vöru verður árið 1995 um 9,600 tonn og eru notuð um 7,300 tonn af físki til framleiðslunnar. Um það bil 66% hráefnisins eru flök en 33% hráefnis eru fiskblokkir og flaka- skammtar. LEIÐTOGAR aðildarríkja Evrópu- sambandsins undirrituðu á fundi sínum í Madríd í gær viðskipta- samning við Mercosur, tollabanda- lag fjögurra Suður-Ameríkuríkja. Samningurinn markar tímamót í samskiptum bandalaganna og er með honum stefnt að sameiginlegu fríverzlunarsvæði. „Samningurinn ryður brautina fyrir aðra slíka. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar, sem kveður á um pólitísk samskipti og viðskipta- tengsl. Hann hefði verið óhugsandi fyrir tíu árum,“ sagði Manuel Mar- in, sem fer með tengsl við Róm- önsku Ameríku í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins. Fríverzlun á fimm árum Mercosur-ríkin eru Argentína, Uruguay, Paraguay og Brazilía. Þau gerðu með sér viðskiptabanda- lag fyrir fjórum árum, en í byijun þessa árs varð það að tollabanda- • TANSU CiHer, forsætisráð- herra Tyrklands, hefur verið boðið til Madríd til skrafs og ráðagerða með „þríeyki" ESB, þ.e. leiðtogum núverandi for- ysturíkis, þess síðasta ogþess næsta (Spánar, Frakklands og Ítalíu). Fundur Qillers og leiðtog- anna fer fram í dag og er um- ræðuefnið framkvæmd tolla- bandalags Tyrklands og ESB, sem tekur gildi um áramót. • FORSÆTISRÁÐHERRAR norrænu ESB-ríkjanna þriggja hittust á morgunverðarfundi í Madríd í gærmorgun og báru Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Hluti af pappírsflóðinu á leiðtoga- fundi Evrópusambandsins í Madrid, sem hófst í gær er skýrsla um sam- keppnisstöðu ESB. Skýrslan er samin af nefnd tólf frammámanna í evrópsku viðskiptalífi undir for- sæti ítalans Ciampi, fyrrum seðla- bankastjóra og forsætisráðherra utanflokkastjórnar. í skýrslunni er bent á að Evrópa standi höllum fæti gagnvart Bandaríkjunum og Suðaustur-Asíu. Einn fulltrúanna í nefndinni var Svíinn Percy Barnevik forstjóri ABB, sænsk-bandaríska stórfyrir- tækisins, sem hefur höfuðstöðvar í lagi. í Mercosur-ríkjunum búa 60% íbúa Rómönsku Ameríku og saman- lögð landsframleiðsla þeirra er 46 billjónir króna. Þannig er Mercosur fjórða öflugasta viðskiptaveldi heims á eftir Bandaríkjunum, ESB og Japan. í samningnum er stefnt að því að fjarlægja viðskiptahindr- anir á fimm árum, þannig að full fríverzlun komist á. Fríverzlun við stærstan hluta Ameríku? Forsetar Argentínu, Paraguay og Uruguay voru viðstaddir undir- ritun samningsins í gær. Julio Sanguinetti, foresti Uruguay, sagði að fljótlega myndi „Atlantshafið mjókka". Gangi markmið samningsins við Mercosur eftir og verði af áformum um að stórauka fríverzlun ESB og Bandaríkjanna, munu Vestur-Evr- ópa og langstærstur hluti Ameríku verða eitt fríverzlunarsvæði. saman bækur sínar fyrir leið- togafundinn. • MARIANNE Jelved, efna- hagsmálaráðherra Danmerkur, segir að halda verði nýja þjóðar- atkvæðagreiðslu, eigi Danmörk að taka þátt í Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópuríkja (EMU) og slíkt sé ekki hægt á næstunni. Jelved segist hvort sem er hafa litla trú á að Danir vilji vera með. Almenningur hefur ekki verið hrifinn af þátttöku í mynt- bandalaginu, en stór hluti stjórn- málamanna og sérfræðinga er fylgjandi aðild. Sviss. Barnevik kynnti skýrsluna í Svíþjóð í vikunni og lagði þá áherslu á að evrópsk fyrirtæki ættu að bera sig saman við bestu fyrirtækin í sinni grein, en ekki aðeins önnur evrópsk fyrirtæki. í skýrslunni er lögð áhersla á áframhaldandi afnám hafta á evrópsku viðskiptalífi. Varð- andi samkeppnisstöðuna sé helsta vandamálið að Evrópa tölti töluvert á eftir bæði Bandaríkjunum og Suð-austur-Asíu. í umsögn Financ- ial Times um skýrsluna segir að hún beri af fyrir skýrleika, sem verður annars ekki sagt um allar pappírsafurðir ESB. Agnar Friðriksson forstjóri. Qiller til Madríd Samkeppnisstaða ESB Evrópa á eftir Banda- ríkjunum og Asíu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.