Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 23
ERLENT
Warren Christopher á fundi
með forseta Sýrlands
„Nýjar hugmynd-
ir“ Peres ræddar
Damaskus. Reuter.
WARREN Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, ræddi við
Hafez al-Assad, forseta Sýrlands,
í Damaskus í gær til að freista
þess að fá Sýrlendinga og ísraela
aftur að samningaborði. Christ-
opher sagði þetta rétta tímann til
að blása lífi í samningaumleitan-
irnar og „gera sér mat úr viðhorfs-
breytingunum“ sem hann kvað
hafa orðið í stjórn ísraels eftir að
Shimon Peres varð forsætisráð-
herra. Peres gaf til kynna í gær
að hann léði máls á að flytja allt
herlið ísraels frá Gólan-hæðum,
sem hefur verið helsti ásteytingar-
steinninn í viðræðunum.
Shimon Peres, forsætisráðherra
ísraels, jók bjartsýni manna á að
skriður kæmist á friðarumleitan-
irnar þegar hann sagði í ræðu á
Bandaríkjaþingi í vikunni að hann
teldi mikilvægara að ná friðarsam-
komulagi við Sýrlendinga en að
bera sigur úr býtum í næstu þing-
kosningum. Frá því Peres tók við
embætti forsætisráðherra eftir
morðið á Yitzhak Rabin hefur
hann rætt möguleikann á að semja
strax um alla þætti samskiptanna
við Sýrland, frekar en að einbh'na
á öryggismáiin, og gefíð til kynna
að Israelsstjóm léði máls á fleiri
tilslökunum.
Christopher og Assad ræddu
þessar „nýju hugmyndir, nýjú
sáttatillögur sem Peres er nú
reiðubúinn að ræða“, eins og utan-
ríkisráðherrann komst að orði, en
hann vildi ekki tjá sig frekar um
þessar hugmyndir.
„Fullt verð fyrir
fullar sættir“
Bandarískir embættismenn
vildu gera sem minnst úr fréttum
fjölmiðla í ísrael um að Peres iéði
m.a. máls á að flytja ísraelska
hermenn frá suðurhluta Líbanons
ef Sýrlendingar lofuðu að stöðva
árásir skæruliða á ísrael af svæð-
inu.
Þeir viðurkenndu hins vegar að
fótur gæti verið fyrir fréttum um
að Peres væri reiðubúinn að flytja
allt ísraelska herliðið frá Gólan-
hæðum fljótlega eftir að samning-
ar næðust, en ekki í áföngum eins
og Rabin vildi.
Peres gaf til kynna í gær að
hann léði máls á að flytja allt
herliðið frá Gólan-hæðum, sem
ísraelar hernámu árið 1967, þegar
hann sagði að ísraelar ættu að
vera reiðubúnir að greiða „fullt
verð fyrir fullar sættir“ við Sýr-
lendinga.
_ Christopher ræðir við ráðamenn
í ísrael um helgina og Hosni Mub-
arak, forseta Egyptalands, á
mánudag, áður en hann heldur
aftur til Bandaríkjanna.
Reuter
Kína-
tíska
KÍNVERSKAR fyrirsætur
spóka sig í klæðnaði sem fram-
leiddur er fyrir kínverskan
markað og sýndur var á alþjóð-
legri vörusýningu í Peking í
gær. Æ fleiri Kínverjar hafa
efni á því að ganga í erlendum
tískuklæðum og hyggja kín-
verskir framleiðendur sér nú
gott til glóðarinnar og hafa
aukið mjög framleiðslu á tísku-
fatnaði.
Einstök náttúrufræðauppgötvun
Ný fylking í dýraríkinu
Kaupmannahöfn. Morgunblaöið.
NYJAR dýrategundir finnast öðru
hveiju en ný fylking í dýraríkinu
hefur aðeins fundist þrisvar á þess-
ari öld. Þriðji fundurinn var gerður
nýlega af dönskum fræðimönnum,
sem hafa birt uppgötvun sína í
tímaritinu Nature. Um er að ræða
dýr, sem er minna en einn milli-
metri á stærð og hefur því verið
gefið nafnið hringberi eða Cycliop-
hora á latínu. Dýrið myndar áður
óþekkta fylkingu í dýraríkinu, svo
nú eru flokkar 36 í stað 35 áður.
Það eru fræðimennimir Peter
Funch og Reinhardt Möbjerg Krist-
ensen frá Kaupmannahafnarhá-
skóla, sem hafa fundið og greint
dýrið.
Aðeins tvisvar áður á þessari
Nýtt sníkjudýr
uppgötvað á
humri
öld hafa nýjar fylkingar í dýraíjöl-
skyldunni fundist, en hver fylking
greinist síðan í flokka, ættbálka,
ættir, ættkvíslir og tegundir. Upp-
götvunin hefur vakið mikla at-
hygli og ýmis stórblöð og fjölmiðl-
ar víða um heim greindu í gær frá
fundinum og greininni í Nature.
Dýrið var þekkt áður og eintak af
því var til við Kaupmannahafnar-
háskóla. í tengslum við lokaverk-
efni rannsakaði Funch það og
ásamt Möbjerg Kristensen komst
hann að því að um nýja fylkingu
í dýraríkinu var að ræða, en ekki
dýr af áður þekktri fýlkingu.
Dýrið er snikjudýr. Á því stigi
sem mest er af því situr það í kring-
um munn jómfrúrhumars og kræk-
ir sér í mat frá honum með löngum
þreifihárum. Dýrin fjölga sér bæði
með og án kynæxlunar. Nafnið
hringberi er bein þýðing á latneska
heiti þess Cycliophora og er dregið
af hring hárfruma í kringum
munninn. Ættin kallast Symbion
og undirættin Symbion pandora.
Rannsóknir á nýja dýrinu hafa
farið fram í Danmörku, en einnig
í Færeyjum og Belgíu. Búist er við
að nú muni finnast önnur dýr, sem
tilheyra þessari nýfundnu fylkingu.
ER FEGURSTA
KIRKJAN Á
ISFANDII
FEGURSTU
i KIRKJUNNI
ÁÍSLANDI?
Hallgrímskirkja á vígsludegi?
Bænhúsið á Núpsstað?
Prýði Norðurlands?
Djásnið á hálsi Kópavogs?
Á kærleiksstundu
getur hjarta þitt verið
fegursta kirkjan á íslandi.
Því svarar þú einn.
Ljóðabók, myndabók og fræðibók eftir Jón Ögmund Þormóðsson
um fjársjóði kirknanna, kristninnar og sögunnar okkar.
Fjörutíu Ijóð í einum Ijóðaflokki um nokkrar fegurstu kirkjur íslands.
Stór litljósmynd tengist hverju Ijóði. Skýringar, t.d. um fyrirmyndina að
turni Hallgrímskirkju og fjölda flísanna í altaristöflunni í Skálholti,
tilvitnanir í Biblíuna og aðrar trúarheimildir, svo sem hvar sagan um
eyri ekkjunnar sé geymd, ítarleg orðaskrá, vandaður útdráttur á ensku
o.fl. Ort um áttundu hverja kirkju, skrifað um fjórðu hverja kirkju.
FRODI
BÓK/\ & BLAÐAÚTGÁFA
HÉÐINSHÚSIÐ
SÍMI: 515 5500
SELJAVEGUR 2
FAX: 515 5599