Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 51
MOKGUNBLAÐID LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 51 ÞRIÐJI SUNNUDAGUR í AÐVENTU Jólasöngur í Neskirkju AÐVENTUDAGSKRÁ í tali og tón- um verður í Neskirkju á morgun, þriðja sunnudag í aðventu, og byijar kl. 17. Dagskráin nefnist jólasöngv- ar og hefst með því að Egill Skúli Ingibergsson sóknamefndarmaður í Nessókn býður kirkjugesti vel- komna. Bamakór Víðistaðakirkju kemur í heimsókn og sýnir helgileik undir stjóm Guðrúnar Ásbjömsdótt- ur. Karlakór Keflavíkur fiytur nokk- ur lög, stjómandi er Vilberg Viggós- son, lúðrasveit nemenda í Granda- skóla leikur undir stjórn Lárasar Grímssonar og Litli kórinn syngur undir stjórn Ingu J. Backman. Þá flytur dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor í grasafræði hugvekju, en Kristín Bögeskov djákni við Nes- kirkju endar samkomuna með nokkram orðum og bæn. Eins og áður segir hefst þessi dagskrá kl. 17 og eru allir velkomnir. Aðventutón- leikar í Grens- áskirkju KÓR Grensáskirkju heldur aðventu- tónleika 17. desember kl. 14. Kór kirkjunnar syngur þýska messu eft- ir Franz Schubert. Söngkonurnar Ingibjörg Ólafsdóttir og Hellen Helgadóttir flytja jólatónlist með aðstoð hljóðfæraleikára. Martin Frewer og Ágústa Jónsdóttir leika konsert fyrir tvær fiðlur eftir Ant- onio Vivaldi, og orgelleikari kirkj- unnar Árni Arinbjarnarson leikur á orgel. Tónleikunum lýkur með helgi- stund, sem séra Halldór S. Gröndal annast. Aðventutón- leikar í Skál- holtsdómkirkju FJÖLBREYTTIR aðventutónleikar verða í Skálholtsdómkirkju í dag kl. 21. Þar syngja saman eftitaldir kór- ar: Samkór Oddakirkju, Skálholts- kórinn, Barnakór Biskupstungna og Kammerkór Skálholtsdómkirkju. Einsöng syngja Kristjana Stef- ánsdóttir og Hulda Björk Garðars- dóttir. Organleik annast Halldór Óskarsson og Hörður Bragason. Hjörtur Hjartarson leikur á klar- inett. Stjómandi Samkórs Oddakirkju er Halldór Óskarsson en stjórnandi Skálholtskóranna og barnakórsins er Hilmar Örn Agnarsson. Þetta eru aðrir Aðventutónleikar í Skálholtskirkju nú í ár. Á fyrri tónleikunum sungu kórar Mennta- skólans að Laugarvatni og Fjöl- brautaskólans í Breiðholti. Aðventumessa í Hallgríms- kirkju AÐVENTUMESSA ÆSKR verður eftir fatasöfnunina í Hallgríms- kirkju kl. 20.30 17. desember. Hóp- ferðir verða frá öllum félagsmið- stöðvunum í Reykjavík og einnig verða skipulagðar ferðir frá öllum kirkjum borgarinnar. Nánari upp- lýsingar má fá hjá viðkomandi fé- lagsmiðstöð og kirkju. Það er einvalalið sem stendur að messunni. Prestur verður sr. Hildur Sigurðardóttir, yngsti prestur landsins. Um tónlistina sjá Háskóla- kórinn, félagar úr kór Menntaskól- ans við Sund, unglingakór Grensás- kirkju, hljómsveit undir stjóm Sig- urðar Ingimarssonar, strengja- og blásarasveit frá Tónlistarskólanum 5 Reykjavík og orgelleikari úr Tón- skóla þjóðkirkjuar. Aðalstjórnandi kórsins verður Egill Gunnarsson. Þá eru nokkrir leikhópar sem hjálpa ÞRJÁTÍU ár eru síðan dr. Sigurbjörn Einarsson biskup vígði Háteigskirkju. til í messunni, m.a. félagar úr Götu- leikhúsinu, Shakespírarnar úr Kramhúsinu o.fl. Háteigskirkja 30 ára ÞESS verður minnst í Háteigskirkju sunnudaginn 17. desember að þijá- tíu ár era liðin frá vígslu kirkjunn- ar. Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, predikar í messunni kl. 14, en að henni lokinni mun hann blessa nýja safnaðarheimilið. Um kvöldið kl. 20.30 verða að- ventusöngvar við kertaljós, ræðu- maður dr. Páll Skúlason prófessor. Pavel Manásek organisti sér um tónlistina. Kirkjukór og barnakór syngja sígilda aðventu- og jóla- sálma, viðstaddir taka undir. Jólasöngvar í Seljakirkju JÓLATÓNLEIKAR verða í Selja- kirkju sunnudaginn 17. desember og heíjast þeir kl. 20. Við kirkjuna starfar margir kórar og standa þeir sameiginlega að jólasöngvunum. Þar verður kirkjukórinn undir stjórn Kjartans Siguijónssonar organista. Einnig barnakór Seljakirkju sem starfar undir stjórn Elísabetar Harðardóttur og Seljur, kór Kvenfé- lags Seljakirkju, en stjórnandi hans er Kristín Pjeturs. Á sunnudags- kvöld syngja allir kórarnir aðventu- og jólalög, bæði hver fyrir sig og síðan allir saman. Tilgangurinn er að laða fram tóna aðventunnar til uPPbyggingar og undirbúnings heil- agra jóla. Aðgangur er öllum heim- ill og ókeypis. Jólavaka við kertaljós í Hafnarfjarðar- kirkju HIN ÁRLEGA Jólavaka við kerta- ljós verður haldin í Hafnarfjarðar- kirkju 3. sunnudag í aðventu, 17. desember og hefst hún kl. 20.30. Líkt og jafnan verður mjög til henn- ar vandað. Barna og unglingakór kirkjunnar sýnir söng og helgileik um atburði jóla, Elín Ósk Óskarsdóttir sópran syngur einsöng ásamt kór kirkjunn- ar sem flytur aðventu- og jólatón- list og Gunnar Gunnarsson leikur á flautu. Stjórnendur verða þau Ólafur W. Finnsson organisti og Hrafnhild- ur Blomsterberg kórstjóri. Óskarsdóttir, Helga Bolladóttir, Sigurður Ingimarsson og Kristinn Svavarsson. Þessir tónleikar hafa unnið sér fastan sess hjá mörgum og þá ekki síst vegna tilgangs þeirra, að safna fé til þeirra sem minna mega sín um jólin. Það eru alltof margir sem ekki geta keypt það nauðsynlegasta til jólanna og við viljum reyna að hjálpa til. í lok tónleikanna verða sungin jólalög og kveikt á kertum. Aðgang- ur er ókeypis en tekin verða sam- skot sem renna óskipt til þessa málefnis. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Jólatónleikar í Keflavíkur- kirkju Ræðumaður kvöldsins verður Steingrímur Hermannsson seðla- bankastjóri. Við lok vökunnar verður kveikt á kertum þeim sem viðstaddir háfa fengið í hendur. Gengur þá loginn frá helgu altari til hvers og eins sem tákn um það að sú friðar og ljóssins hátíð sem framundan er vill öllum lýsa, skapa samkennd og vinarþel. Aðventukvöld í Vídalínskirkju, Garðabæ KÓR Vídalínskirkju býður til að- ventuhátíðar sunnudaginn 17. des- ember kl. 20.30. Sungin verða jólalög frá ýmsum löndum. Einsöngvari með kómum er Hallveig Rúnarsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, leikari, les ljóð sem tengjast jólunum. Kórstjóri er Gunn- steinn Ólafsson. Allir velkomnir. Aðventukvöld í Ytri-Njarðvík- urkirkju HIÐ árlega aðventukvöld verður haldið í kirkjunni nk. sunnudag kl. 20.30. Sr. Arngrímur Jónsson flytur aðalræðu kvöldsins. Fermingarbörn sýna helgileik er fjallar um aðvent- una. Einsöngvarar eru Kristján Jó- hannsson, Ingólfur Ólafsson og Sveinn Sveinsson. Kristín Kristjáns- dóttir leikur á fiðlu. Sungnir verða aðventu- og jólasöngvar sem kirkju- kórinn leiðir. Organisti er Steinar Guðmundsson. Tekið verður á móti framlögum til Hjálparstofnunar kirkjunnar. Allir velkomnir. Jólatónleikar í Ffladelfíu ÁRLEGIR jólatónleikar verða mánudaginn 18. desember í Fíla- delfíu. Þar koma fram m.a. Lof- gjörðarhópur Fíladelfíu, Miriam JOLASVEIFLA verður 17. desem- ber í Keflavíkurkirkju. Þar koma fram söngvararnir María Baldurs- dóttir, Ejnar Júlíusson, Rúnar Júl- íusson, Ólöf Einarsdóttir og Einar Örn Einarsson. Bjöllukór Bústaðakirkju, undir stjórn Guðna Þ. Guðmundssonar kemur í heimsókn. Þóroddur Ingi Þórsson og Sigurð- ur Guðmundsson ásamt Rúnari Júl- íussyni leika undir söngnum ásamt organista. Einnig syngur Kór Kefla- víkurkirkju jólalög í léttara kantin- um undir stjórn orangista kirkjunn- ar, Einars Árnar Einarssonar, sem hefur umsjón með tónleikunum. Sr. Sigfús B. Ingvason aðstoðar- prestur flytur hugvekju. í lokin syngja allir kirkjugestir saman við kertaljós. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Aðventukvöld, fjölskyldu- kvöld, í Víkinni Aðventukvöld, fjölskyldukvöld, verður þriðjudaginn 19. desember í Víkinni. Séra Pálmi Matthíasson ræðir um aðventuna og komu jól- anna. Hallur Hallsson les upp úr metsölubókinni Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus. Sigurð- ur Grétar Sigurðsson spilar á gítar og stjórnar jólasöng. Börnin fá smávegis jólaglaðning. Kaffi og veitingar. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík jóiatrésskemmtun yngri borna í Safnaóarheimtiinu kl. 13.00. Kl. 16.30: Jólaskemmtun eldri barna. Kl. 20.00: Jólaskemmtun Æskulý&sfélogsins, Sunnudagur kl. 17.00: Jóiavaka í kirkjunni. Ræóumaóur: Guórún Helgadóttir, rithöfundur. Kirkjukórinn syngur. Finsöngvarar: Arndís Fannberg, Elísabet Hermundardóttir, Erla B. Einarsdóttir, Sigrióur Snorradóttir og Svava Ingólfsdóttir. Ijósohátió og almennur söngurB. .-R', ith ffb .0} ' fijl !Ííi 1 1 1 g I 1 g FEGURSTA KIRKJAN Á ÍSLANDI Ljóöabók, myndabók og fræðibók eftir Jón Ögmund Þormóðsson um fjársjóði kirknanna, kristninnar og sögunnar okkar. Á kærleiksstundu getur hjarta þitt verið fegursta kirkjan á Islandi. HÉÐINSHÚSIÐ SELJAVE6UR 2 -- SÍMI: 515 5500 BÓKA & BLADAÓTGAfA FAX: 515 5599 FRÖÐI M ■ ) ■• 2 Glódis Gunnarsdóttir Þolfimikennari Áfram Latibær er alveg einstaklega skemmtileg og fræöandi bók bæöi fyrir börn og fullorðna. Fyndin og skemmtileg. Fullt af skemmtilegum myndum og leikjum. Svo finnst mér geisladiskurinn frábær. Erna Mattbíasdóttir Iþróttakennari Hér er á feröinni áhuga- verö bók sem mun án efa hvetja börn til þess að hreyfa sig meira og ástunda holla lífshætti Börnin og ég skemmtum okkur konunglega. Skemmtileg bók, bæöi fyrir mig og börnin og full af gleði og gáska.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.