Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 19 VIÐSKIPTI Microsoft og NBC koma á fót fréttarás New York. Reuter. BILL GATES, hinn kunni hugbún- aðarjöfur, og NBC-sjónvarpið hafa skýrt frá samkomulagi um að koma á fót kaplarás til að senda út fréttir allan sólarhringinn og beintengdri tölvuþjónustu. Microsoft-fyrirtæki Gates og NBC munu eiga jafnan hlut í fréttarásinni, sem mun keppa við CNN-sjónvarpið (Cable News Network) sem hefur verið allsráð- andi á þessu sviði í 15 ár. NBC og Microsoft munu koma á fót tveimur sameignarfyrirtækj- um til að dreifa fréttum allan sólar- hringinn í kaplasjónvarpi og með beinlínuþjónustu. Microsoft ver 220 milljónum dollara á næstu fimm árum til kaplasjónvarpsfyrirtækisins MSNBC Cable, sem tekur til starfa innan sex mánaða á svokallaðri America’s Talking kaplarás NBC. Fyrirtækin munu veija öðrum 200 milljónum dollara á næstu fimm árum til að þróa fréttarásina. Hitt sameignarfyrirtækið verður nefnt MSNBC Online. Gagnvirk tækni Gates sagði í sjónvarpssendingu frá Hong Kong að með samvinnu sinni sýndu fyrirtækin áhuga á að nota gagnvirkni í sjónvarpsfrétta- flutningi. Forstjóri NBC, Bob Wright, sagði að NBC mundi stjórna kaplakerfinu og fyrirtækin mundu hafa með sér samvinnu um stjórn á gagnvirka kerfínu. Fréttaþjónustan verður þróuð til að sameina fréttasendingar með sjónvarpi, kaplakerfi og alnetinu að því er segir í fréttatilkynningu. NBC mun leggja til alþjóðlegt fréttanet, viðskiptafréttakerfi, tengsl á ótal stöðum og milljónir áhorfenda. Microsoft leggur til tækni, hugbúnaðarþekkingu, vöru- merki og tengsl við notendur ein- menningstölva, segir i tilkynning- unni. Áhorfendur geta horft á fréttir NBC til að fylgjast með því helzta sem er að gerast í heiminum, stillt á kaplarásina til að fá fréttirnar brotnar til mergjar og smellt á Microsoft til að fá rækilegri upplýs- ingar allt eftir hvað notendur óska sér, segir einnig í tilkynningunni. Grandi hf. með nýtt upplýsingakerfi FRÁ undirritun samninga Granda og Skyggnis, f.v. Halldór Lúðvígsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Skyggnis, Torfi Þ. Þorsteinsson, vinnslustjóri frystiskipa Granda, Stefán B. Stefáns- son, fjármálafulltrúi Granda og Hjörtur Grétarsson, tölvufull- trúi Granda. GRANDI hf. og Faxamjöl hf. hafa valið upplýsingakerfið Fjölni sem heildarhugbúnaðarlausn fyrir alla starfsemi sína, bæði til lands og sjávar. Það er hugbúnaðarfyrir- tækið Skyggnir hf. sem mun sjá um uppsetningu, aðlögun og þró- un kerfisins hjá Granda hf. og Faxamjöli hf. en samningur milli fyrirtækjanna var undirritaður fyrir skömmu, að því er segir í frétt. Um er að ræða stærsta samning sem Skyggnir hf. hefur gert frá því að fyrirtækið var stofnað í apríl síðastliðnum. Skyggnir er söluaðili fyrir Fjölni og sérhæfir sig m.a. í þróun og þjónustu við ýmis sérkerfi í Fjölni, s.s. fram- leiðslukerfi, gæðakerfi og lausnir fyrir sveitarfélög. Skyggnir býður viðskiptavinum sínum einnig lausnir í Lotus Notes hópvinnu- kerfinu. Hjá Skyggni starfa nú 15 manns við þróun og þjónustu við upplýsingakerfi og hefur starfs- mannafjöldi fyrirtækisins tvöfald- ast frá því í maí sl. Grandi hf. og Faxamjöl hf. mun m.a. taka í notkun Útvegsbankann sem er heildarlausn fyrir rekstur sjávarútvegsfyrirtæýa. Uppsetn- ing nýja upplýsingakerfisins fer fram í áfóngum og verða fyrstu hlutar þess teknir i notkun um næstu áramót. í síðasta áfangan- um verður Fjölni skipt út fyrir upplýsingakerfið Navision Fin- ancials sem er arftaki Fjölnis í Windows umhverfinu. Navision Financials er skrifað frá grunni fyrir Windows95 og verður sett formlega á markað hérlendis snemma á árinu 1996. Eitt af meginmarkmiðum Granda með kaupum á nýju upp- lýsingakerfi er að bæta upplýs- ingaflæði og úrvinnslu með því að færa skráningar nær uppruna sínum, fækka tvískráningum og sameina kerfi. Fyrirtækið leitaði í senn eftir heilsteyptu og sveigj- anlegu upplýsingakerfi sem stutt er af öflugum þjónustuaðila. Meðal annarra notenda Fjölnis eru Þormóður rammi hf, Sigurður Ágústsson hf. og Frosti hf., segir ennfremur í frétt fyrirtækjanna. Sparisjóður Þórshafnar Nýr spari- sjóðssijóri tekinn við SPARISJÓÐSSTJÓRI Sparisjóðs Þórshafnar sagði í síðustu viku starfi sinu lausu með ósk um að láta þegar af störfum og varð stjórn sparisjóðsins við þeirri beiðni. Ragnhildur Karlsdóttir, fulltrúi sparisjóðsstjóra, hefur tekið við störfum sem sparisjóðsstjóri og mun sinna þeim þar til annað verð- ur ákveðið, að því er segir í frétt frá sparisjóðnum. Kristín Kristjánsdóttir, stjórnar- formaður sparisjóðsins, vildi lítið tjá sig um þetta mál í samtali við Morgunblaðið og sagði aðeins að trúnaðarbrestur hefði orðið á milli stjórnar og sparisjóðsstjóra. Reyktur lax og graflax er herramanns matur. Ljúffengur lax með graflaxsósu gefur fyrirheit um ógleymanlega máltíð. Notaðu því aðeins fyrsta flokks hráefni og bjóddu gestum „ , , þínum að gœða sér á góðum laxi um jólin. °g graflax í bitum og sneiðum. / Reyktur lax og graflax í heilum og hálfum flökum. Graflaxsósa, 250 og 125 ml í nýjum umbúðum. ISLENSK MATVÆLI Gott í bobi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.