Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 63
I
i
V
1
-
I
ð
I
'
3
.3
9
J
MINNINGAR
hyggju sem væri hennar eigið.
Fyrir kynni, samstarf og hjálp-
semi færum við Hrafnhildi einlægar
þakkir okkar hjóna. Börnum henn-
ar, systkinum og öðrum ástvinum
vottum við samúð okkar á þessari
sorgarstund. Megi minningin um
duglega móður og félagslynda, at-
hafnasama systur lifa.
Blessuð sé minning Hrafnhildar
Kristínar Kristjánsdóttur.
Kveðja frá
SigursteiniXíunnarssyni tann-
lækni og Sigurbjörgu Sigur-
geirsdóttur.
Það eru mjög blendnar tilfinning-
ar sem koma fram þegar ung kona
í blóma lífsins er hrifin á brott frá
börnum sínum og ættingjum. Sam-
dægurs og þú missir móður þína
færðu þær frétti að um illkynja sjúk-
dóm sé að ræða hjá þér. Hugurinn
leitar að einhverri ástæðu, hver er
tilgangurinn með þessu öllu saman?
Ekkert svar, nema eitt er víst, að
það sem eitt sinn fæðist mun einnig
deyja. Það er það eina sem er ör-
uggt í iífínu, sagði móðir mín við
mig á dánarbeði sínu, og mikið er
það rétt.
Elsku Habbý mín, það var svo
margt sem riijaðist upp í huganum
hjá mér þegar mér var sagt að þú
værir farin eftir svona fáa mánuði,
en erfiða, í baráttunni við þann sjúk-
dóm sem ekkert virðist stoppa. Ég
er svo fegin að hafa hitt þig og
kvatt á undanförnum vikum, því við
vissum að þetta var spurning um
tíma. En alltaf skal þessi stund
koma aftan að manni.
Elsku besta æskuvinkona. Ég vil
þakka fyrir að hafa fengið að kynn-
ast þér, þegar ég fermingarárið
okkar flyst til Vestmannaeyja og
bytja í skóla þar sem ég þekkti
engan. Það var erfitt fyrir ungling.
Þá varst þú til staðar og urðum við
upp frá því algjörar samlokur (eins
og oft var sagt). Þar sem ekki voru
símar á okkar heimilum fengu tvær
yngri systur þínar að hlaupa m_eð
skilaboðamiða á milli okkar. Ég
minnist þess frá þessum tíma þegar
við vorum að fara í Höllina, allt til-
standið með hárið á okkur og stíf-
pressuðu buxurnar. Eða þegar það
alversta sem gat komið fyrir okkur
(bíósjúklingana) að vera straffaðar
í bíó í heila viku. Vegna hvers? Jú,
það var dillandi hláturinn sem pass-
aði ekki við myndina (Love Story).
Já, Habbý mín, við áttum margar
góðar og skemmtilegar stundir sam-
an. Síðan skildi leiðir, það fór að
gjósa í Vestmannaeyjum og fjöl-
skyldur okkar fluttu upp á land. Þið
fóruð í Borgarnes en ég austur. En
við létum það ekki skemma vinskap-
inn og vorum í bréfaskriftum á milli
landshluta. Við uxum úr grasi og
urðum að konum og þá kom tími
barneigna. Alltaf fylgdumst við hvor
með annarri, þú fékkst nú eina af
mínum dætrum í afmælisgjöf, báðar
eigum við dóttur með sama nafni
(sem var ákveðið á unglinsgárum)
og meira að segja erum við líka
nöfnur eftir allt saman.
Habbý mín, þú lifðir bæði góða
og slæma tíma eins og við gerum
flest, en ef það var erfitt þá barð-
istu bara meira og stangaðir frá
þér. Þú varst svo sterk og dugleg
alla tíð og sást það vel í þínum erf-
iðu veikindum þótt alltaf væri stutt
í brosið og húmorinn.
Ég vil þakka þér, Habbý mín,
fyrir ógleymanleg kynni í 26 ár.
Minning þín lifir. Éisku Hrefna,
Rakel og Kristján Þór, missir ykkar
er mikill, ég bið góðan Guð að
styrkja ykkur og hugga í sorginni.
Öðrum ástvinum votta ég innilega
samúð. Guð geymi ykkur öll.
„Þó ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta, ég er
svo nærri að hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur, þótt látinn
mig haldið ... En þegar þið hlæið
og syngið með glöðum hug, sál mín
lyftist upp í mót til ljóssins: Verið
glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt
í gleði ykkar yfir lífmu. (Höf.
óþekktur.)
Hinsta kveðja,
Kristín H. Runólfsdóttir.
(Stína Run)
FINNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
+ Finna Krislj-
ánsdóttir fædd-
ist 6. maí 1916 á
Breiðumýri í
Reykjadal. Hún lést
10. desember sl. í
sjúkrahúsinu á
Húsavík. Foreldrar
hennar voru hjónin
Kristján Jónsson og
Guðrún Friðfinns-
dóttir. Finna var
næstelst 5 systkina;
þeirra Ágústu,
Steingríms, Jóns og
Matthíasar.
Eftir venjulega
barnaskólagöngu fór hún einn
vetur í Húsmæðraskólann á
Laugum í Reykjadal. Finna var
ógift og bjó lengst af á Litlu-
strönd í Mývatnssveit. Síðastlið-
in 10 ár dvaldi hún á Dvalar-
heimilinu Hvammi á Húsavík
og nú síðast í sjúkrahúsinu á
Húsavík.
Útförin fer fram í Skútu-
staðakirkju í Mývatnssveit í dag
og hefst athöfnin kl. 14.
ELSKU Finna mín!
Þegar ég frétti að þú hefðir lagt
upp í ferðalagið mikla fann ég
bæði fyrir sorg og gleði í bijósti
mínu. Sorg af því að ég kvaddi þig
ekki, en gleði því ég veit að þú ert
ánægð með ferðina.
Ekki veit ég af hveiju við tvær
tengdumst svo sterkum böndum.
Kannski var það vegna þess að á
stundum fannst okkur við ekki
passa álveg inn í umhverfið, eða
kannski bara vegna þess að báðum
þótti okkur vænt um hann Jón
pabba ttiinn og bróður þinn.
Eitt er víst, að þú hjálpaðir mér
mikið á erfiðum tím-
um. Það var gott að
vita af þér í skólanum
á Skútustöðum. Að
geta komið í eldhúsið
og spjallað smá, fengið
kaffisopa og jafnvel
kökusneið var eins og
að vera heima hjá
mömmu. Þær voru
heldur ekki ófáar
stundirnar sem við átt-
um heima hjá Binnu
og Friðjóni í Hafnar-
strætinu. Það sem við
gátum hlegið og
gasprað... Og aldrei
fann ég fyrir aldursmuni okkar eða
ólíkri lífsreynslu.
Það sem þú gafst mér Finna mín
var óendanleg góðvild — góðvild
sem ég mun alltaf búa að og von-
andi koma áleiðis til annarra.
í gegnum tíðina höfum við ekki
átt svo ýkja margar stundir, en þær
hafa verið góðar og nú þegar ég
veit að við sjáumst ekki í bráð þá
rifjast þær allar upp fyrir mér.
Það var fallég kveðja þegar þú
sendir mér uppáhaldsbækurnar þín-
ar, Ljóðasafn Davíðs Stefánssonar,
og mér mjög dýmiætt að mega
varðveita þær.
Með hans orðum kveð ég þig nú.
Við nefnum dagleið frá dögun til sólarlags
að djúpi frá jökulrót er fljótsins ganga.
Frá móðurskauti að moldum hinsta dags
er mörkuð blóði og tárum ferðin langa.
Á morgni lífsins leggjum við öll af stað
er ieitin hefst er ferðahugurinn mestur.
En við höfum fengið fyrirskipun um það
að fylgja sólinni vestur.
Finna mín, þökk fyrir samveruna.
Þín frænka,
M.nú er hann líka
tril hlýralaus •••
THE ONE AND ONLY
WOftdefbra
ÚTSÖLUSTAÐIR
• AKUREYRI: ÍSABELLA • EGILSTAÐIR: OKKAR Á MILLI • GARÐABÆR: SNYRTIHÖLLIN •
HAFNARFJÖRÐUR: HB-BÚÐIN • HÚSAVÍK: ESAR • ÍSAFJÖRÐUR: SNYRTIHÚS SÓLEYJAR • KEFLAVÍK:
SMART • KÓPAVOGUR: SNYRTISTOFAN SNÓT • REYKJAVÍK: ÁRSÓL, DEKURHORNIS & SPES •
STYKKISHÓLMUR: HEIMAHORNIÐ •
Einkaumboð og heildsöludreyfing: Hafnarbræður S: 5550070
LEYNDARDOMURINN:
Svert og teygjanlegt
mittisband sem tryggir
fullkomna setu buxnanna
Meðalþétt teygja sem
gerir mittið grannt og
tígulegt.
Stuðningur um magann
gefur glæsileika.
Sérstök teygjubönd sem
lyfta rassinum og gera
hann fegurri.
Mótandi teygja fyrir
mjaðmir og læri.
Meðalþétt teygjubönd
sem hindra fellingar.
Breytilegur þéttleiki veitir
róandi nudd á
fótleggjunum.
ffp* ■■■,■ * ■' I
4 * : i •
A 1
I
Ásthildur.
VjJ/ iH NVJ015V9W4J;