Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Síldarviðræðurnar í Færeyjum Tillögiir Rússa gætu einangrað Norðmenn HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði í gær að þáttaskil hefðu orðið í viðræðum um norsk- íslenska síldarstofninn í Færeyjum, en þeim lauk í gær án niðurstöðu. Hann kvað Rússa hafa lagt fram tillögur, sem einangruðu Norðmenn í viðræðunum, og hafði hörð orð um afdráttarleysi Norðmanna í síld- armálinu. Halldór sagði á hádegisfundi, sem fulltrúaráð framsóknarfélaga í Reykjavík hélt í gær, að hér væri á ferð eitt mikilvægasta utanríkis- mál okkar í langan tíma og samn- ingar um sfldina hefðu verið erfiðir. Hann hefði lagt sig fram um að knýja fram lausn, en yrði að játa vonbrigði. Norðmenn ósveigjan- AcieíSgn Halldórs voru samninga- viðræðumar um síldveiðar í Bar- entshafí á góðri leið þegar kröfur Evrópusambandsins settu strik í reikninginn. Norðmenn hefðu orðið hræddir og nú væri hann ekki bjart- sýnn. Mikilvægasta utanríkismálið í langan tíma, segir Halldór Ásgrímsson „Norðmenn eru nú mjög ósveigj- anlegir," sagði Halldór. „Ef þeir ætla að^koma fram með þessum hætti verður engin lausn.“ Norðmenn vilja miða við þá skipt- ingu afla, sem hefur verið undan- farið, og telja sig eiga rétt á lang- stærstum hluta hans. íslendingar og Færeyingar hafa staðið saman í viðræðunum og í gærmorgun skildi í fyrsta sinn milli Rússa og Norðmanna. Halldór sagði að Rúss- ar hefðu boðið að hver þjóð veiddi 70% af þeirri síld, sem hún hefði veitt í fyrra. Þá veiddu íslendingar um 170 þúsund tonn, en Norðmenn um 550 þúsund tonn. Norðmenn hafa nú boðið íslendingum sýnu minna en veiddist á síðasta ári. „Klókt útspil Rússa“ „Þetta er klókt útspil Rússa,“ sagði Halldór. „Ef Norðmenn hafna þessu, einangrast þeir.“ Halldór kvað þannig fara fyrir þeim kröfuhörðu ög.óbilgjörnu og sagði gleðitíðindi ef Norðmenn ein- angruðust. Þá myndu þeir ef til vill átta sig. „í vor blöskraði Færeyingum af- staða Norðmanna," sagði Halldór. „Þeir sáu að Norðmenn vildu ekki taka eitt einasta tillit til þeirra hags- muna.“ Móta ekki eigin stefnu Utanríkisráðherra sagði að oft gætti „gassagangs“ í sjávarútvegs- málum á íslandi, en hér væru einn- ig hógvær öfl, sem vildu málamiðl- un, og væri hann í þeim hópi. „En það eru takmörk fyrir því hvað má bjóða sanngjörnu fólki,“ sagði Hall- dór. Hann kvað Rússa hafa sýnt meiri skilning í viðræðunum, en Norðmenn. Samskipti sín við Bjorn Tore Godal, utanríkisráðherra Norðmanna, hefðu verið með ágæt- um, en norska sjávarútvegsráðu- neytið væri í gíslingu norskra út- gerðarmanna og því væru Norð- menn að sigla þessu máli í strand. Halldór tók sem dæmi að væri íslenska ríkið sífellt að semja fyrir Landssamband íslenskra útvegs- manna (LÍÚ) myndi svipuð staða koma upp hér og nú væri í Noregi, en norska sjávarútvegsráðuneytið virtist ekki hafa burði til að móta eigin stefnu. Guðmundur Eiríksson, þjóðrétt- arfræðingur utanríkisráðunejdis- ins, fór fyrir íslensku viðræðunefnd- inni í síldarviðræðum Færeyinga, íslendinga, Norðmanna og Rússa í Þórshöfn í Færeyjum. Auk Guð- mundar sátu í nefndinni Árni Kol- beinsson, ráðuneytisstjóri í sjávar- útvegsráðuneytinu, Albert Jónsson, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu, Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar, Kristján Ragnars- son, framkvæmdastjóri Landssam- bands íslenskra útvegsmanna, og Sævar Gunnarsson, forseti Sjó- mannasambands íslands. Árni Johnsen alþingismaður Skert flug- málaáætlun væri stórslys ÁRNI Johnsen þingmaður Sjálfstæð- isflokks sagði í umræðum um fjár- lagafrumvarpið að það yrði stórslys ef fyrirhugaður niðurskurður á flug- málaáætlun næði fram að ganga. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu og frumvarpi um ráðstafanir í ríkis- fjármálum er gert ráð fyrir því að af tæplega 400 milljónum, sem markaðir tekjustofnar flugmála- áætlunar eru taldir skila, verði 190 milljónum varið til rekstrar flug- valla. í fjárlögum 1995 var 30 millj- ónum af tekjustofnunum varið til rekstrar. Árni, sem situr í fjárlaganefnd Alþingis og Flugráði, sagðist vona að menn tækju þann pól í hæðina á næstu dögum að tryggja að flug- málaáætlun gangi fram þar sem ekki væri svigrúm til að kroppa í hana. Árni sagði að Reykjavíkurflug- völlur væri móðurskip flugsam- gangna íslendinga. Ef flugmálaá- ætlun stæði óbreytt yrði hægt að byggja flugvöllinn eins og þyrfti með tilliti til öryggisreglna á 2-3 árum, þótt framkvæmdirnar yrðu greiddar á 8-10 árum. Jafnframt þessu þyrfti að leggja lokahönd á frágang ýmissa flugvalla úti á landi. Andlát HALLDOR ÞORMAR JÓNSSON HALLDÓR Þormar Jónsson, sýsiumaður á Sauðárkróki, er látinn á 67. aldursári. Halldór fæddist á Mel í Staðarhreppi, Skaga- Ijarðarsýslu, 19. nóv- ember árið 1929. Sonur hjónanna Ingibjargar Magnúsdóttur hús- freyju og Jóns Eyþórs Jónassonar bónda. Stúdentsprófí lauk Hall- dór frá MA árið 1950 og embættisprófí í lög- fræði frá HÍ árið 1957. Hann varð héraðsdóms- lögmaður árið 1961. Halldór var framkvæmdastjóri hjá Sigurði Ágústssyni í Stykkishólmi 1957 til 1960, framkvæmdastjóri hjá Verslunarfélagi Skagfirðinga 1961 til 1974 og framkvæmdastjóri Fiski- vers Sauðárkróks hf. 1960 til 1962. Hann var fulltrúi sýslumannsins á Sauðárkróki 1964 til 1980. Settur bæjarfóg- eti í Siglufirði 1976 til 1977 og skipaður bæj- arfógeti í Siglufirði 1980. Hann var skipað- ur sýslumaður í Skaga- firði og bæjarfógeti á Sauðárkróki 1982 og sýslumaður á Sauðár- króki frá 1992. Halldór gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörf- um og var m.a. forseti bæjarstjórnar Sauðár- króks 1970 til 1974. Hann var formaður yf- irkjörstjórnar Norður- landskjördæmis vestra frá árinu 1983 og sat á Alþingi sem varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins á Norð- urlandi vestra í maí árið 1972. Eftirlifandi eiginkona Halldórs er Aðalheiður Ormsdóttir og eignuðust þau fjögur börn. Agreiningnr Statoil og útgerðar færeyska togarans Sambro Statoil fellur frá kröf- um og greiðir kostnað TOGARINN Sambro, sem kyrrsettur var í Vestmannaeyjum si. sumar, getur væntanlega haldið frá landi innan skamms. Togarinn hefur legið við bryggju í Eyjum í nær 160 daga, eða síðan færeyskt dótturfyrirtæki norska ríkisolíufyrirtækisins Statoil krafðist kyrrsetningar hans. Að sögn Jóns Haukssonar, lög- manns útgerðar Sambro, hefur Statoil nú fallið frá kyrrsetningar- kröfu sinni. „Við sömdum um að Statoil greiddi kostnað, til dæmis hafnargjöld og eftirlitskostnað, en enn hefur ekki náðst samkomulag um málskostnað. Eg vænti þess að úrskurðað verði um hann í Héraðs- dómi Suðurlands á næstunni." Ágreiningur var um hvort útgerð skipsins hefði staðið í skilum með afborganir af láni til Statoil, sem Iánaði tugi milljóna króna til að hægt væri að útbúa skipið til veiða. Var togarinn dreginn til hafnar í Vestmannaeyjum með bilaða vél í júní sl. og kyrrsettur í kjölfarið. Sambro er í eigu Færeyinga, en er skráður í Belize. Áhöfnin, sem var færeysk, hélt til síns heima sl. sum- ar, eftir að sýslumaður samþykkti vörslusviptingu. Að sögn Jóns Hauks- sonar er skipið enn við bryggju á kostnað Statoil, en hafnargjöld eru um 1.600 kr. á sólarhring. „Þegar viðgerðum verður að fullu lokið og búið er að fínna nýja áhöfn, má gera ráð fyrir að skipið fari úr höfn,“ sagði Jón Hauksson. Málverk eftir Júlíönu Sveinsdóttur selt fyrir milljón á uppboði Myndlista- markaður- inn sagður að glæðast MÁLVERK eftir Júlíönu Sveinsdóttur var slegið á 850 þúsund krónur á listmunaupp- boði Gallerís Borgar á fimmtu- dag, en með 20% uppboðsgjaldi þarf kaupandinn að greiða 1.020.000 krónur fyrir verkið. Verkið sem er stórt, 138 x 98 cm, var metið á 800.000- 1.000.000 og kveðst Pétur Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri Gallerís Borgar telja verðið vera mjög viðunandi. Lítið sé til af módelmyndum eftir Júlí- önu og verkið sé málað snemma á ferli hennar sem listamanns. Mikines kom á óvart „í heildina var uppboðið óvenju gott og mér virðist sem málverkamarkaðurinn sé að taka við sér aftur, eftir nokk- urra ára lægð. Eitt af þeim verkum sem komu á óvart í sölu var verk eftir færeyska meistarann Mikines, en hún var metin á 400-600 þúsund krónur en seldist á 750 þúsund krónur fyrir uppboðsgjald, eða alls á 900 þúsund krónur, sem er miklu hærra en við reiknuðum með,“ segir Pétur. Hann segir að seinasta upp- boð, sem haldið var skömmu eftir að snjóflóðið féll á Flat- eyri, hafi verið óvenju slakt og hann telji að í krónum talið sé uppboðið nú allt að 50-60% betra með tilliti til sölu. „Andrúmsloftið á uppboðinu á fimmtudag minnti um margt á lok seinasta áratugar þegar kaupgetan var mikil og áhug- inn sömuleiðis. Húsið var troð- fullt og fyrirtæki sem hafa ekki keypt verk að neinu ráði síðan MÁLVERK Júlíönu Sveinsdóttur sem seldist á uppboðinu sýnir nakið módel, og er myndin merkt listakonunni. 1987-1989 eru komin á stjá að nýju, og sömuleiðis afkasta- miklir safnarar sem seldu á krepputímanum en eru byijaðir að kaupa aftur. Mér finnst margt benda til þess að fólk sé að rísa upp úr kreppuhugarfar- inu,“ segir Pétur. Mikið úrval af meisturum Á uppboðinu var talsvert úr- val verka eftir Jóhannes Kjarv- al, Ásgrím Jópsson, Þorvald Skúlason, Jón Stefánsson og fleiri meistara íslenskrar mynd- listarsögu, en lítið af verkum eftir yngri myndlistarmenn. Pétur segir að þessi verk hafi safnast sarnan á talsverðum tíma, en auk þess sé vei\jan sú aðí desemberkomijafnangóð j verk í sölu. Yfirleitt séu einka- aðilar að selja. „Oft eru þetta dánarbú, því að þegar nokkrir erfingjar eru um t.d. eitt Kjarvalsverk er besta lausnin oft sú að selja það á almennu uppboði. Einnig skiptir fólk oft búum við skiln- að, sem leiðir til sömu niður- stöðu,“ segir hann. Gallerí Borg hefur nú ákveð- ið að flytja sig um set og opnar innan skamms í Aðalstræti 6, þar sem Morgunblaðið var áður til húsa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.