Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
FRÉTTIR
Þjóðhagsstofnun segir bjartara framundan
í efnahagsmálum en verið hafi um langt skeið
Meiri liagvöxtur og
aukin þjóðarútgjöld
27 milljarða aukning einkaneyslu á tveimur árum
Þjóðhagshorfur hafa breyst umtalsvert frá
því er þjóðhagsáætlun var lögð fram í haust,
m.a. vegna framkvæmda við stækkun álvers
og uppbóta á kjarasamninga. Þetta leiðir
að mati Þjóðhagsstofnunar til þess, að horf-
ur eru á 3,2% hagvexti á næsta ári og spáð
er aukinni verðbólgu eða 2,7%.
„ÁÆTLANIR um framleiðslu og
útgjöld á næsta ári benda til að nú
sé bjartara framundan í íslenskum
efnahagsmálum en verið hefur um
langt skeið. Að öllu samanlögðu
má ætla að horfur utan lands og
innan gefí færi á 3,2% hagvexti á
næsta ári. Þjóðartekjur eru taldar
aukast meir, eða um 3,7% vegna
viðskiptakjarabata," segir í lauslega
endurskoðaðri þjóðhagsspá Þjóð-
hagsstofnunar sem kynnt var í gær.
„Þjóðarútgjöld hafa að undan-
fömu aukist hraðar en gert var ráð
fyrir. Áætlað er að þjóðarútgjöld í
heild aukist um 4,9% á þessu ári
og 5,6% á því næsta. Álframkvæmd-
imar vega þungt á næsta ári en
jafnframt er mikill vöxtur í útgjöld-
um til einkaneyslu. Talið er að þau
aukist um 5,5% á þessu ári og 4,2%
á næsta ári. Þetta samsvarar um
15 milljarða króna aukningu fyrra
árið og 12 milljarða hið síðara,"
segir spá Þjóðhagsstofnunar.
Viðskiptajöfnuður snýst
í 7,3 milljarða halla
Viðskiptajöfnuður verður ekki
jafnhagstæður og áður var gert ráð
fyrir en talið er að hann verði með
um 2 milljarða kr. afgangi á þessu
ári og 7,3 milljarða halla á því
næsta. í þjóðhagsáætiun í haust var
gert ráð fyrir afgangi á viðskipta-
jöfnuði bæði árin.
„Horfurnar sem við blasa í þjóð-
arbúskapnum kalla á aðhaldssama
efnahagsstjórn á næstu misserum
til að koma í veg fyrir að þensla
myndist og til að tryggja viðunandi
jafnvægi í viðskiptum við önnur
lönd. Þetta er sérstaklega mikilvægt
á meðan framkvæmdir standa yfir
vegna stækkunar álversins í
Straumsvík. Ef af frekari fram-
kvæmdum verður á sviði stóriðju á
næstunni er brýnt að svigrúm verði
skapað fyrir þær með því að draga
úr opinberum framkvæmdum eftir
því sem kostur er,“ segir í spá Þjóð-
hagsstofnunar.
Stofnunin leggur ekki mat á
hugsanlega tekjuaukningu ríkis-
sjóðs á næsta ári en skv. upplýsing-
um Jóns Kristjánssonar, formanns
fjárlaganefndar, munu sérfræðingar
Þjóðhagsstofnunar þó hafa veitt
nefndinni þær upplýsingar að gera
mætti ráð fyrir að tekjuaukning
vegna álversframkvæmdanna einna
nemi á bilinu 600-800 millj. kr.
Jón tók undir skoðun Þjóðhags-
stofnunar um aðhaldsama efna-
hagsstjórn og sagði betri efnahags-
horfur á næsta ári ekki þýða að fjár-
laganefnd myndi taka upp pyngjuna
fyrir þriðju umræðu um íjárlaga-
frumvarpið.
Minni útflutningur
í ár en reiknað var með
Á árinu sem nú er að ljúka er
útflutningur vöru og þjónustu talinn
aukast um 0,3% frá árinu á undan
MORGUNBLAÐIÐ
Þjóðhagsstofnun:
Lausleg endurskoðun
þjóðhagsáætlunar
► Magnbreytingar frá fyrra ári
Þjóðhagsáætlun Endurskoðuö áætlun
1996 1996 Millj. kr
Einkaneysla 3,0 4,2 295.167
Fjárfesting 3,5 16,3 85.023
Verg landsframleiðsla 2,0 3,2 487.454
Viðskiptajöftruður, hlutfall af VLF 0,7 -1.5 -7257
Atvinnuleysi, hlutfall af mannafla 4,8 4,4
Verðbólga, % meðalhækkun 2,5 2,7
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann 1,8 3,5
en í þjóðhagsáætlun var reiknað
með 3,2%'aukningu. Minni útflutn-
ingur stafar af samdrætti í sjávar-
afurðaframleiðslu. Annar. vöruút-
flutningur eykst hins vegar verulega
eða um 14,5%. Þjóðhagsstofnun
stendur við fyrri spár sínar um verð-
bólgu á þessu ári sem hún telur að
verði um 1,6% milli ára. Þar sem
laun hækka að meðaltali um 5,5%
milli áranna 1994 og 1995 eykst
kaupmáttur ráðstöfunartekna á
mann um 4% frá seinasta ári, en í
fyrri áætlun var gert ráð fyrir 3,5%
kaupmáttaraukningu.
Áætlað er að þjóðarútgjöld á
þessu ári aukist um 4,9% samanbor-
ið við 3,9% í þjóðhagsáætlun, eink-
um vegna meiri útgjalda til einka-
neyslu og samneyslu en búist var
við. Þá lítur úr fyrir að viðskiptajöfn-
uður verði hagstæður um 2 milljarða
kr. á þessu ári í stað 4/7 milljarða
skv. þjóðhagsáætlun. Ástæðan er
annars vegar minni útflutningur og
hins vegar mikill innflutningur vöru
og þjónustu sem talinn er aukast
um 7% milli áranna 1994 og 1995.
Þannig jókst t.d. innflutningur
fólksbíla um 24% á fyrstu tíu mán-
uðum ársins.
Fjárfesting atvinnuvega gaéti
aukist um 13 milljarða
Þjóðhagsstofnun bendir á að auk
álversframkvæmda sé gert ráð fyrir
framkvæmdum við Hvalfjarðargöng
.á næsta ári og aukinni fjárfestingu
innlendra atvinnugreina. Reiknað
er með að atvinnuvegafjárfesting
aukist um 32,5% milli áranna 1995
og 1996 en hún samsvarar 13 miilj-
arða aukningu. Einkaneysla er talin
verða 4,2% meiri en á þessu ári og
samneysla 2% meiri. Þjóðarútgjöld
í heild eru talin verða 5,6% meiri en
í ár. Ef þessar áætlanir ganga eftir
verður þetta mesta aukning þjóðar-
útgjalda á einu ári frá 1987.
Stofnunin gerir ráð fyrir að at-
vinnuleysi minnki úr 5% í ár í 4,4%
á næsta ári. Einnig er spáð að
neysluverð hækki um 2,7% milli ára
en aukning verðbólgu stafar bæði
af launaþróun og vaxandi eftirspurn
og umsvifum. „Rétt er að fylgjast
vel með þróun verðlags á næstunni
því samkvæmt þessum áætlunum
verður verðbólga á næsta ári í efri
mörkum þess sem telja má viðun-
andi,“ segir Þjóðhagsstofnun.
Þjóðhagsstofnun telur áhyggju-
efni að viðskiptajöfnuður verður
mun óhagstæðari en reiknað var
með í þjóðhagsáætlun. Þá bendir
hún sérstaklega á að vænlegasta
leiðin til að varðveita stöðugleika
nú þegar umsvif í þjóðarbúskapnum
aukast verulega sé aðhaldssöm
stefna í ríkisfjármálum.
Síðasti þáttur Bingólottós í kvöld
Stjoniandiim
býðst til
aðtaka við
PÁLL Halldórsson
hyggst láta af for-
mennsku í Bandalagi
háskólamanna-BHMR á
aðalfundi samtakanna í
lok mars og verður þá
kjörinn nýr formaður.
„Það er ósköp einföld
ástæða fyrir því,“ sagði
Páll í gær. „Það segir í
lögum bandalagsins að
enginn skuli sitja lengur
en í átta ár, eða fjögur
kjörtímabil, en einnig
verður mér alltaf erfiðara og erfið-
ara að sinna þessu eins og skyldi
og sinna minni vinnu sómasamlega
um leið.“ Páll sagði að
BHMR hefði vaxið mik-
ið á undanfömum árum
og væri nú að nálgast
meira það markmið að
verða bandalag háskóla-
manna. Áður hefðu fé-
lagar mest verið starfs-
menn ríkis eða sveit-
arfélaga, en nú fjölgaði
starfsmönnum á al-
mennum markaði innan
vébanda samtakanna.
Páll er jarðeðlisfræð-
ingur á Veðurstofu íslands og hef-
ur verið formaður BHMR frá árinu
1988.
Stöð 2 býður áskrif-
endum í Eyjum til
skrafs og ráðagerða
Fá sama
kynningar-
tilboð eftir
útþenslu
STÖÐ 2 hefur ákveðið að bjóða
áskrifendum sínum í Vestmannaeyj-
um til skrafs og ráðagerða vegna
óánægju þeirra með að áskrifendur
Stöðvar 2 á Faxaflóasvæðinu fengu
Sýn og Fjölvarp án endurgjalds. Mun
markaðsstjóri fyrirtækisins vera til
viðtals í tvo tíma í dag í þessum tií-
gangi.
Jafet Ólafsson, útvarpsstjóri Is-
lenska útvarpsfélagsins, segir að
verði viðtökur góðar á Sýn og Pjöl-
varpi á Faxaflóasvæðinu, muni félag-
ið kanna möguleika á stækkun út-
sendingarsvæðis. Takist það muni
áskrifendum Stöðvar 2 á þeim svæð-
um einnig verða gert samskonar
kynningartilboð og áskrifendur á
Faxaflóasvæðinu njóta nú.
Hlé á BBC-Prime
Áhorfendur Fjölvarps hafa veitt
því athygli að útsendingar á BBC-
Prime hafa fallið niður að undan-
förnu, og segir Jafet þetta hlé stafa
af óviðráðanlegum tæknilegum
ástæðum.
„BBC-Prime er ekki send út núna
vegna erfiðleika í gervihnattamót-
töku og útsendingar Sýnar eru
komnar þar í staðinn. Þetta eru hins
vegar tímabundnir erfíðleikar og ég
á von á að ekki líði meira en vika
eða hálfur mánuður þangað til BBC-
Prime komi á skjáinn að nýju,“ seg-
ir hann.
AKVEÐIÐ hefur verið að leggja
niður Bingólottó-þættina, sem ver-
ið hafa á dagskrá Stöðvar 2 á laug-
ardagskvöldum. í kvöld verður
sýndur síðasti þátturinn í þeirri
þáttaröð, sem verið er að sýna,
að sögn Sigurðar Ágústs Sigurðs-
sonar, forstjóra Happdrættis DAS,
en þættirnir eru á vegum happ-
drættisins. Ingvi Hrafn Jónsson,
stjórnandi þáttarins, hefur boðið
stjórn DAS að taka við rekstri
Bingólóttósins og markaðssetn-
ingu.
Samdráttur
„Samningi milli Stöðvar 2 og
Happdrættis DAS hefur verið sagt
upp af hálfu Stöðvar 2,“ sagði
Sigurður. Hann sagði að sam-
komulag hefði ekki tekist um út-
sendingartíma. Lagt hafi verið til
að útsendingar yrðu kl. 18 á laug-
ardögum en það gat happdrættið
ekki fallist á. „Að sama skapi er
salan að dragast saman,“ sagði
hann. „Framan af gekk þetta
þokkalega og lofaði góðu þar til í
haust þegar Kínó og Happ í hendi
komu inn þá fundum við fyrir sam-
drætti.“
Trú á Bingólottó
Ingvi Hrafn Jónsson, stjórnandi
þáttanna, sagðist hafa óbilandi trú
á Bingólottói, sem framtíðarfjöl-
skylduefni í sjónvarpi og að hann
hafi boðið stjórn DAS að taka yfir
rekstur og markaðssetningu. „Ég
stefni að útsendingu 11. febrúar
næstkomandi," sagði hann.
„Ég lít þannig á að öll sam-
keppni sé til góða en auðvitað
verður að bregðast við henni, sem
ég tel a_ð ekki hafi verið gert nægi-
lega. Ég hef, sem starfsmaður
Stöðvar 2, aðeins haft með stjórn-
un þáttarins að gera, en ekki far-
ið leynt með þá skoðun mína gagn-
vart samstarfsmönnum hjá Happ-
drætti DAS, að það þyrfti meiri
ferskleika og kraft í markaðssetn-
ingu og fjölbreytni í vinningum
og uppbyggingu þáttarins og þá
auðvitað sérstaklega eftir að Kínó
og Happ í hendi komu til sögunn-
ar.“
Ingvar sagðist hafa lagt hug-
myndina fyrir hjá Stöð 2 og að
hún hafi fengið jákvæðar undir-
tektir og að stjórn DAS myndi
einnig skoða hana þegar ákvörðun
yrði tekin um framhaldið.
19711 LARUS Þ VALDIMARSS0N, framkvamdastjori
llllL I IuUuJl Iu/U KRISTJAN KRISUANSSON, 10GGILTUR FASTEIGNASALI
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Óvenju hagstæð eignaskipti
Glæsilegt timburhús, ein hæð, 160 fm, á úrvalsstað I Mosfellsbæ,
eins og nýtt. Góður bílskúr, tæpir 40 fm. Stór ræktuð eignarlóö. Margs-
konar eignaskipti.
Skammt frá Hótel Sögu
Stór og góð 3ja herb. íb. á 4. hæð við Hjarðarhaga. Langtímalán.
Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Skammt frá Hlemmtorgi - ódýr íb.
Lftil en góð 2ja herb. íb. í reisul. steinhúsi. Verð aðeins kr. 3,8 millj.
Hlunnindi - laxveiði - skotveiði
Fjársterkir kaupendur, þ.á m. gamlir og góðir viðskiptamenn, óska
eftir hlunnindajörð. Vinsamlega leitið nánari uppl.
• • •
Opiðídag kl. 10-12.
Ath. breyttan opnunartíma.
Lítil risibúð óskast
íHlfðunum.
Lætur af for-
mennsku í BHMR
Páll Halldórsson