Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C 288. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR16. DESEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leita sól- kerfa á júmbóþotu London. Daily Telegraph. BANDARÍSKA geimferðastofnunin NASA hyggst verða sér úti um gamla júmbóþotu, skera þriggja metra breitt gat á þakið, setja þar út stjörnukíki og fljúga henni um heið- hvolfíð í leit að öðrum sólkerfum. Gert er ráð fyrir að þotan verði á lofti 8-14 stundir í senn og hægt verður að stunda rannsóknir hvar sem er yfír jarðarkringlunni þar sem júmbótþota getur athafnað sig á hundruðum flugvalla um heim allan. Skynjarar sjónaukans geta séð mjög kalda hluti úti í geimnum sem eru aðeins nokkrum gráðum fyrir ofan alkul og útilokað er að fínna með sjónaukum ájörðu niðri. Ástæð- an er sú að júmbóþotan mun að jafn- aði fljúga í 41.000 feta hæð eða ofar 99% allrar vatnsgufu andrúmslofts- ins sem gleypir í sig innrauða geislun. Sjónaukinn á að geta leitað reiki- stjama í öðmm sólkerfum og rann- sakað andrúmsloft þeirra með mæl- ingum á innrauðri útgeislun þeirra er þær fara framhjá sól sinni. Næmni sjónaukans verður nógu mikil til þess að fylgjast megi með myndun stjama og fínna afar daufar halastjömur á hringferð um stjörnur í órafjarlægð. -----» » ♦----- Verkföllin leysast upp Parfs. Reuter. FRANSKIR járnbrautastarfsmenn samþykktu í gær að aflýsa verkfalli sem staðið hefur í 22 daga. Sömuleiðis aflýstu verkamenn í þjónustu hins opinbera aðgerðum frá og með morgundeginum. Þá benti allt til þess að verkfall strætisvagna- stjóra og starfsmanna neðanjarðar- lestanna í París væri að leysast upp og líka verkfall starfsmanna orku- veitna og fjarskiptafyrirtækja. Borís Jeltsín reynir að stöðva sókn kommúnista í sjónvarpsávarpi Skorar á Rússa að hafna „öflum fortíðarinnar“ Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, ávarpaði rússnesku þjóðina í gær og skoraði á hana að afstýra því að „öfl fortíðarinnar" kæmust til valda í þingkosningunum á morgun. Hann vísaði þar til kommúnista sem voru alráðir í Rússlandi í 70 ár og eru taldir verða öflugastir á þinginu eft- ir kosningamar. „Hættulegast af öllu er að fulltrú- ar nokkurra flokka vilja færa landið aftur til fortíðarinnar," sagði Jeltsín í 12 mínútna sjónvarpsávarpi. „Það væru hörmuleg mistök.“ Ávarpið var tekið upp á heilsu- hæli þar sem Jeltsín hefur verið und- ir eftirliti lækna vegna vægs hjarta- áfalls fyrir tæpum tveimur mánuð- um. Tæknimenn sjónvarpsins urðu að vera með sóttvarnagrímur fyrir andlitinu vegna hættu á að forsetinn smitaðist af flensu. Auðséð var að Jeltsín hefur grennst og aðstoðar- menn segja að hann hafí lést um tíu kíló frá því hann veiktist 26. október. Stuðningur við Tsjernomyrdín „Þið ættuð ekki að leyfa öflum fortíðarinnar að komast aftur til valda,“ sagði Jeltsín og vísaði til kommúnista án þess þó að nefna þá. Af orðum hans mátti ráða að forset- inn væri að reyna að koma flokki Viktors Tsjernomyrdíns forsætisráð- herra til hjálpar á síðustu stundu. Hann nefndi aldrei flokkinn í ræðu sinni en notaði helsta vígorð hans: „Stöðugleiki og sættir á sameigin- legu heimili okkar - Rússlandi." Jeltsín gagnrýndi einnig Alexand- er Lebed hershöfðingja, sem vill að ríkið gegni stærra hlutverki í efna- hag landsins. „Hvorki miðstýring né strangt verðlagseftirlit getur orðið til bjargar. Efnahagur þessa lands Reuter TÆKNIMAÐUR setur hljóðnema á Borís Jeltsín, forseta Rússlands, fyrir sjónvarpsávarp hans í gær. Tæknimaðurinn er með sóttvarnagrímu fyrir andlitinu vegna hættu á að forsetinn smitist af flensu. hefur aldrei þrifíst með tilskipunum. Hann verður ekki bættur með tilskip- unum hershöfðingja." Atök í Tsjetsjníju Um 104 milljónir manna eru á kjörskrá og kosið verður á 11 tíma- beltum í þessu víðfeðmasta landi heims. Kosningar eru jafnvel ráð- gerðar í Tsjetsjníju, þar sem átök blossuðu upp í gær milli rússneskra hermanna og tsjetsjenskra aðskiln- aðarsinna í tveimur bæjum. Samhliða þingkosningunum eiga Tsjetsjenar að kjósa nýjan leiðtoga héraðsins, en búist er við að kjörsóknin verði mjög lítil. Annars staðar er búist við allt að 65% kjörsókn, en hún var um 50% í siðustu kosningum til Dúmunnar árið 1993. Slæmt veður og jafnvel flensufaraldur gætu þó sett strik í reikninginn. Skoðanakannanir sem gerðar hafa verið eru mjög óáreiðan- legar, en þær benda þó allar til þess að kommúnistar verði öflugastir á þinginu eftir kosningarnar. Leiðtog- ar þeirra sögðust í gær vissir um að fara með sigur af hólmi. Valentín Kúptsov, varaformaður flokksins, kvaðst búast við því að flokkurinn yrði stærstur í 70 af 89 héruðum og lýðveldum Rússlands. ■ Vesturlöndum kennt um/24 ■ Ollum brögðum beitt/43 Reuter Fögnuður í Nablus Evrópumyntin kölluð Evró Madríd. Reuter. Fótbolti í uppnámi BÚAST má við mikilli óvissu, hræringum og ókyrrð á knatt- spyrnumarkaði Evrópu vegna úrskurðar Evrópudómstólsins í gær um að vinnulöggjöfin og reglur Evrópusambandsins (ESB) um atvinnustarfsemi ættu við um atvinnuknatt- spyrnu. Dómur gekk Belganum Jean- Marc Bosman í hag í máli sem hann flutti gegn því fyrirkomu- lagi sem viðgengist hefur í Evr- ópu í sambandi við kaup og sölu knattspyrnumanna. Samkvæmt því er félögum óheimilt að krefjast sölugjalda fyrir leikmenn eftir að samning- ur þeirra er runninn út. Er leik- maðurinn þá frjáls ferða sinna og félagið getur ekki stöðvað hann. ■ Éger mjögþreyttur/Cl GÍFURLEGUR fögnuður ríkti i borginni Nablus á Vesturbakkan- um er Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), tók við völdum í gær. Við það tækifæri hóf hann kosninga- baráttu sína vegna forsetakosn- inga Palestinumanna, sem ráð- gerðar eru 20. janúar nk. „Leyfið þið mér að bjóða mig fram?“ spurði Arafat. Hann hafði tæplega sleppt orðinu er þúsundir borg- arbúa hrópuðu samþykki sitt svo að undir tók í borginni. Myndin var tekin er Arafat kom til Nablus en honum var fagnað mjög. HIN sameiginlega mynt Evrópuríkja verður kölluð Evró og hún verður tekin upp 1. janúar 1999, samkvæmt ákvörðun fundar leiðtoga aðildar- ríkja Evrópusambandsins, sem hófst í Madríd í gær. Leiðtogar ríkjanna fimmtán sam- þykktu einum rómi að Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU) gengi í gildi i ársbyijun 1999. Ákveðið verður snemma á árinu 1998 hvaða ríki uppfylla skilyrði fyrir þátttöku og stuðzt við hagtölur ársins 1997. Þremur árum eftir að EMU tekur gildi, árið 2002, mun Evró-mynt og -seðlar verða sett í umferð meðal almennings í aðildarríkjum mynt- bandalagsins. Sex mánuðum síðar falla núverandi gjaldmiðlar úr gildi. Síðdegis í gær ákváðu leiðtogarnir að ríkjaráðstefna ESB, sem á að endurskoða stofnanauppbyggingu og ákvarðanatöku sambandsins tii að búa það undir stækkun til austurs og suðurs, skyldi hefjast í Tórínó á Italíu 29. marz á næsta ári. Leiðtogarnir ákváðu, að á grund- velli sérstaks mats á stöðu einstakra ríkja í Mið- og Áustur-Evrópu um mitt ár 1997 yrði afstaða tekin til þess hvenær aðildarviðræður við þau hæfust. Það opnar möguleika á því að viðræður við þau, sem stæðust kröfur, heíjist sex mánuðum eftir að ríkjaráðstefnunni lýkur, á sama tíma og viðræður hefjast við Möltu og Kýpur. I dag inunu leiðtogarnir eiga fund með leiðtogum ellefu ríkja, sem sótt hafa um aðild að Evrópusambandinu; Möltu, Kýpur, Póllands, Ungveija- lands, Tékklands, Slóvakíu, Rúme- níu, Búlgaríu, Eistlands, Lettlands og Litháens. ■ Leiðtogafundur/20/22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.