Morgunblaðið - 16.01.1996, Qupperneq 45
HHiNÚAUaÝ'
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 45
RADAUGí YSINGAR
„Au pair“
íÞýskalandi
íslensk fjölskylda í Wiesbaden óskar eftir
„au pair“, 20 ára eða eldri, í 5-6 mánuði.
Á heimilinu eru 2 börn, tveggja og 4ra ára.
Upplýsingar í síma 00496122936060.
Utboð
Fylling, hafnarsvæði
Eskifjarðarkaupstaður óskar hér með eftir
tilboðum í fyllingu á hafnarsvæði utan og
neðan við Hafnarvog í samræmi við útboðs-
gögn og skal verkinu vera lokið eigi síðar
en 20. febrúar 1996. Væntanlegir bjóðendur
eru hvattir til að kynna sér aðstæður á staðn-
um fyrir tilboðsgerð.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Eski-
fjarðarkaupstaðar, Strandgötu 49, Eskifirði,
frá og með þriðjudeginum 16. janúar 1996.
Tilboðum skal skila á sama stað mánudaginn
22. janúar 1996 fyrir kl. 14.00, þar sem þau
verða opnuð íviðurvist þeirra sem þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Verktakar
Seljendur byggingarvöru og -þjónustu
Húseigandinn - fræðslurit Húseigendafélags-
ins um fjöleignarhús - kemur út innan
skamms. Blaðið verður m.a. sent húsfélögum
um land allt fyrir aðalfundi í mars og apríl nk.
Efni blaðsins verður að mestu helgað löggjöf
um fjöleignarhús og við það miðað áð veita
svör við sem flestum spurningum um álitamál
á aðalfundum húsfélaga fjöleignarhúsa.
Nánari upplýsingar og móttaka auglýsinga-
pantana er á skrifstofu Húseigendafélagsins,
sími 588 9567, fax 588 9537.
íbúð í Kaupmannahöfn
2ja herbergja „penthouse“-íbúð í miðborg
Kaupmannahafnar er til leigu í tvo mánuði
til 10. mars. Húsgögn fylgja.
Styttri tími kemur til greina.
Upplýsingar síma 555 2557 eftir kl. 17.00.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
B0RGARTÚNI3 • 105RVÍK • SÍMI563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Kynningarfundur
f Grandaskóla
Boðið er til kynningarfundar vegna viðbygg-
ingar við Grandaskóla þriðjudaginn 16. janú-
ar kl. 17.30 í skólanum.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
KÓPAVOGSBÆR
Lautasmári 2-28
Breytt deiliskipulag
Tilllaga að breyttu deiliskipulagi í Lauta-
smára 2-28 í Kópavogsdal auglýsist sam-
kvæmt grein 4.4. í skipulagsreglugerð nr.
318/1985. Breytingin felst í eftirfarandi:
1. Þakhalli verði 22 gráður í stað 27 gráða.
2. Lautasmári 14 og 28 verði þrjár hæðir í
stað tveggja og þar af leiðandi mun íbúð-
um fjölga úr 80 í alls 84.
3. Neðanjarðarbílastæðum verði fækkað úr
26 í 12 og þau staðsett undir leiksvæði.
4. Bílskúrar verði á neðstu hæð húsanna
nr. 2, 10 og 12, alls 12 bílskúrar.
Uppdrættir ásamt skýringarmyndum verða
til sýnis hjá Bæjarskipulagi Kópavogs, Fann-
borg 2, 4. hæð, frá 16. janúar til 13. febrúar
1996.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila
skriflega til Bæjarskipulags Kópavogs innan
auglýsts kynningartíma.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
B0RGARTÚNI3 -105 RVÍK • SÍMI563 2340 ■ MYNDSENDIR 562 3219
Klapparstígur 1-7
og Skúlagata 10-
„Völundarlóð"
Staðgreinireitur 1.152.2
Breyting á staðfestu deiliskipulagi
í samræmi við skipulagslög, grein 17 og 18,
er auglýst kynning á deiliskipulagi ofan-
greinds reits í kynningarsal Borgarskipulags
og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð,
kl. 9.00-16.00 virka daga. Kynningin stendur
til 27. febrúar 1996.
Ábendingum eða athugasemdum skal skila
skriflega til Borgarskipulags, Borgartúni 3,
105 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn
11. mars 1996.
Þeir, sem eigi gera athugasemdnir innan til-
skilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Enskunám íEnglandi
Þægilegur og vinsæll skóli í Bournemouth
býður þig velkominn til náms.
Upplýsingar veitir Páll G. Björnsson
í vs. 487 5888 og hs. 487 5889.
Opinnfundur
á vegum Landssambands sjálfstæðiskvenna og sjálfstæðiskvennafé-
lagsins Sóknar í Keflavík um jafnréttismál verður haldinn í Sjálfstæð-
ishúsi Njarðvíkur, Hólagötu 15, Njarðvík, laugardaginn 20. janúar
nk. kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Hvað er framundan í jafnréttismálum í ríkisrekstri?
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra.
2. Árangur Peking-ráðstefnunnar fyrir konur á íslandi.
Inga Jóna Þórðardóttir.
3. Samstarfsáætlun Norðurlanda í jafnréttismálum 1995-2000.
Árni Gunnarsson, aðstoöarmaöur félagsmálaráðherra.
4. Kynning á lögum um jafnréttismál. Staða kvenna í sveitarstjórnum.
Drífa Hjartardóttir.
Kaffihlé frá 15.00-15.20.
5. Almennar umræður frá kl. 15.20-16.00.
Fundurinn er öllum opinn.