Morgunblaðið - 07.02.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 9
FRETTIR
Deildaskipan í Tryggingastofnun breytt og staða lögð niður
Samþykki ráðherra og
tryggingaráðs skorti
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur,
að ekki hafi legið fyrir ákvörðun
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra um að staða deildarstjóra
lána- og inheimtudeildar Trygg-
ingastofnunar ríkisins væri lögð
niður. Þá hafi heldur ekki legið fyr-
ir samþykki ráðherrans og trygg-
ingaráðs, er forstjóri Trygginga-
stofnunar breytti deildaskipan
stofnunarinnar í ársbyijun 1994.
Deildarstjórinn fyrrverandi vís-
aði málinu til umboðsmanns. Mála-
vextir voru þeir, að í ársbyijun
1994 ákvað forstjóri Trygginga-
stofnunar ríkisins að sameina lána-
og innheimtudeild og lífeyrissjóða-
deild stofnunarinnar og átti deild-
arstjóri lífeyrissjóðadeildar að
stjórna sameinaðri deild. Gert var
ráð fyrir að deildarstjóri lána- og
innheimtudeildar léti af starfi
deildarstjóra, en myndi starfa
áfram sem yfirlögfræðingur og
halda að öllu leyti óbreyttum
launakjörum. Deildarstjórinn undi
þessu ekki og sagði í bréfi til for-
stjórans að hann hefði ekki í
hyggju að láta af starfi deild-
arstjóra. Forstjórinn vísaði til þess
að skipulagsbreytingarnar væru
nauðsynlegar og hann liti svo á
að deildarstjórinn hefði ákveðið að
hætta hjá stofnuninni. Enn svaraði
deildarstjórinn og nú því, að hann
liti svo á að staða hans hefði verið
lögð niður, sú staða sem honum
hefði verið boðin hefði ekki verið
sambærileg þeirri fyrri og ætti
hann rétt til biðlauna í eitt ár, sem
hann og fékk.
Góðra stjórnsýsluhátta ekki
að fullu gætt
Deildarstjórinn var hins vegar
ekki sáttur og skaut máli sínu til
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins með stjórnsýslukæru, þar
sem forstjórinn hefði ekki haft
heimild ráðherra og tryggingaráðs
til að stofna nýja deild. Þá hefði
forstjórinn tekið íþyngjandi ákvörð-
un fyrir starfsmann, án þess að
færa rök fyrir nauðsyn slíkrar
breytingar svo hagræðing næði
fram að ganga.
Ráðuneytið taldi að forstjóranum
hefði verið heimilt að leggja stöðu
deildarstjórans niður vegna skipu-
lagsbreytinga, en við þá ákvarðana-
tölu hafi ekki að fullu verið gætt
góðra stjórnsýsluhátta, án þess þó
að það leiddi til ógildingar ákvörð-
unarinnar.
Umboðsmaður telur, með vísan
til laga, að ráðherra hefði þurft að
taka ákvörðun um að staðan væri
lögð niður, en sú ákvörðun hafi
ekki legið fyrir. Ekki sé hægt að
miða við yfirlýsingu fyrirverandi
ráðherra, um að hann hafi lýst sam-
þykki í viðræðum við forstjórann,
en yfirlýsingin kom fram eftir á.
Stjórnvöldum bæri að sjá til þess,
að jafnan lægi fyrir í gögnum
þeirra, hvernig mál hafi verið end-
anlega afgreidd.
Þá segir umboðsmaður þann ann-
marka eirinig vera á málsmeðferð-
inni, að ekki hafi legið fyrir sam-
þykki ráðherra og tryggingaráðs
þegar forstjóri beitti heimild sinni
samkvæmt lögum til breytinga á
deildaskipan Tryggingastofnunar.
Umboðsmaður mælist til þess, að
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið taki mál deildarstjórans til
meðferðar á ný, komi um það ósk
frá honum, og leysi úr því með hlið-
sjón af þessum sjónarmiðum.
Dreymir
snjókomu á
næturnar
LÍTIL snjókoma á landinu hefur
haft þau áhrif að sala á ýmsum
vetrarbúnaði hefur verið í lág-
marki. Mörg vélsleðaumboð eiga
talsverðar birgðir af vélsleðum.
„Það hefur vægast sagt verið
léleg snjókoma í vetur nema síð-
ustu daga. Ég hef fylgst spenntur
með veðurfréttum á hverju
kvöldi og dreymir aukinn snjó á
næturnar," sagði Karl Jónsson
hjá Gísla Johnsen, sem selur Ski-
Doo vélsleða. „Við pöntuðum inn
85 sleða, því að salan í fyrra var
góð. Nú vona ég bara að snjónum
kyngi niður á næstu vikum. Mér
finnst lýsandi dæmi um ástandið
að fyrir nokkrum vikum kom hér
hópur manna á vegum trygging-
arfélags frá Glasgow í vélsleða-
ferð. I sex tíma börðust þeir við
að komast á flugvöllinn í stór-
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
KARL hjá Ski-Doo vélsleðaumboðinu vonast eftir meiri snjókomu
en gert hefur vart við sig í vetur.
hríð. Hér var hins vegar enginn
snjór og þeir urðu að gera sér
að góðu að renna hring á frosnu
vatni, rétt utan Reykjavíkur.
Þeir höfðu valið þessa ferð frek-
ar en ferð til Kanaríeyja."
„Það eru margir áhyggjufullir
útaf snjóleysinu, skiðasölumenn
og jafnvel hjólbarðasalar, en í
Reykjavík hefur selst minna af
vetrarhjólbörðum en oft áður.
Kannski menn fari að dansa snjó-
dans, eins og índíánar dönsuðu
regndans forðum," sagði Karl.
Ný sending
af Tripp Trapp stólnum.
6 litir — tvaer tegundir af sætisbólstrum.
STOKKE
ALLT FYRIR BORNIN
KLAPPARSTÍG 27, SÍMI 552 2522
Hótel Island
bItlaárin
1960-1970
ARATUGUR ÆSKUNNAR
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON PÁLMI GUNNARSSON ARI JÓNSSON BJARNI ARASON
FLYTJA BESTU LÖG BÍTLANNA OG MÖRG
VINSÆLUSTU LÖGIN FRÁ 1960-70
Hljómsveitarstjóri:
GUNNAR ÞÓRÐARSON ásarnt
10 manna hljómsveit
SÖNGSYSTRUM OG BLÓMABÖRNUM
KYNNIR: ÞORGEIR ÁSTVALDSSON
DANSHÖFUNDBR: JÓHANNES BACHMANN
HANDRIT, ÚTHT OG LEIKSTJÓRN:
BJÖRN G. BJÖRNSSON
Næstu sýningar: 10. og 24. feb.
2^^5v23^og30jtiare.
Hljómsveitin Hunang í Aðalsal
Ashyrgi: Söngvakinn og iiljómborðs*
i LKIKARINN GaBRIEL GaRCIA SaN SaLVAIJOR.
Matseðill
Forréttur: Kóngasvt'pposúpa
Aðalréttun EldstelElur lambavoúvi
með gljáðugraomMi,ofnsteilítum
jarðcplum og sólberjasósu.
Eftirréttur: Ferskjuls j brauðkörfu nvcð
heitri karamellusósu.
Verðkr. 4.800
uomMö
Sýningarverð kr. 2.200
Bordapantanir í síma 568 7111
Sértilboð á hótelgistingu, sími 568 8999.
Ath. enginn aðgangseyrir á dansleik.
(!aA cIciti íílnAV fytif eigendur spariskírteina
llvv ■jaVJijJ IIIUUI á innlausn 1. febrúar
Kynntu þér fjölbreytt úrval ríkisverðbréfa með lánstíma frá 3 mánuðum til 20 ára.
• Tryggðu þér ný ríkisverðbréf á góðum skiptikjörum um leið og þú innleysir gömlu spariskírteinin.
• Fjölbreytt úrval ríkisverðbréfa sem uppfylla óskir fjárfesta um ávöxtun, lánstíma, öryggi, verðtryggingu o.fl.
■ 3mánu6ir
6 mánuðir
I 12 mánuðir
3 ár
■ Óverbtryggð ríkisverðbréf
■ Verötryggö ríkisverðbréf
Komdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa
og fáðu nánari upplýsingar. Tryggðu þér
skiptikjörin á meðan þau bjóðast.
20 ár
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.D 1995 - 5 ár stendur yfirtil 16. febrúar.
ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. liaeð, sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum