Morgunblaðið - 11.02.1996, Síða 1
88 SIÐUR B/C/D
orötmtiísiííiíi
STOFNAÐ 1913
35. TBL. 84. ARG.
SUNNUDAGUR 11. FEBRUAR1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reynt
að hemja
mótmæli í
Tsjetsjníju
Grozný. Reuter.
RÚSSNESKIR hermenn skutu af
byssum upp í loftið til að koma í
veg fyrir að nokkur hundruð manns
kæmust á mótmælafund, sem hald-
inn var í Grozný, höfuðborg
Tsjetsjníju, til að krefjast sjálfstæð-
is.
Fréttastofan Itar-Tass greindi
frá því að hermennirnir hefðu
hleypt tvívegis af byssum sínum í
gærmorgun þegar fólk reyndi að
btjótast i gegnum raðir þeirra til
að taka þátt í mótmælunum. Sagði
að fólkið hefði verið hrakið brott,
en ekki var greint frá því hvort
nokkurn hefði sakað.
Mannfall í sprengingu
Mótmæli hafa nú staðið yfir í
viku fyrir utan forsetahöllina í
Grozný og hefur fólk láti fyrirber-
ast í tjaldborg, sem slegið hefur
verið upp þar. Þrír létu lífið og sjö
særðust í sprengingu á torginu
fyrir utan höllina á föstudag.
Talið er að eitt þúsund manns
hafi verið á fundinum í gær.
Tjaldborgin nefnist Duki Yurt,
sem var gælunafn Dzhokhars
Dúdajevs, leiðtoga tsjetsjenskra
aðskilnaðarsinna, þegar hann var
barn. Yfirvöld hafa sett á útgöngu-
bann og átti að flytja þá tjaldborg-
arbúa, sem sniðgengu það, með
lögregluvaldi. Umhverfis mót-
mælendurna eru hermenn og her-
bílar.
Rússneski herinn sagði að mót-
mælendur hefðu átt sök á spreng-
ingunni og í henni hefðu tveir borg-
arar og einn hermaður látið lífið.
Fréttastofan Tass sagði að í rússn-
eska innanríkisráðuneytinu væri
litið á þetta atvik sem „ögrun, sem
ætlað er að kalla fram geðshrær-
ingu og andúð á Rússum og stjórn-
völdum“.
Jeltsín varar við blóðbaði
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
segir að það muni leiða til blóðbaðs
að kveðja rússneska herinn brott
frá Tsjetsjníju og í stjórnaryfirlýs-
ingu sagði að rússneskir hermenn
„kæmu í veg fyrir að Dúdajev
hæfi ógnarherferð gegn sinni eigin
þjóð og öðrum þjóðum Rússlands".
Mótmælendumir kröfðust þess í
gær að rússneski herinn hyrfi á
braut og stjóm Dokus Zavagjevs,
sem er hliðholl Rússum, segði af sér.
Einkaframtak
íRauða bænum
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands ræðast við í Helsinki
AÐSTAÐAN Á ÍSLANDI
ÓMISSANDIFYRIR
ÖRYGGIEVRÓPU
Líftæknin
komin . 0
á strik 1 O
VIÐSKIPn AMNNULÍF
A SUNNUDEGI
ÞRIGGJA
FJÖLSKYLDNA
FYRIRTÆKI
Sprengjutilræðið í London fordæmt og þrýst á Sinn Fein
IRA lýsir yfir ábyrgð
London. Reuter.
ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) lýsti
síðdegis í gær formlega yfir ábyrgð
á sprengjutilræðinu í London á
föstudag og sagði að ákvörðun um
tilræðið hefði verið tekin af forystu
IRA. Breskir stjórnmálamenn skor-
uðu á Sinn Fein, stjórnmálaarm
IRA, að fordæma sprengjutilræðið,
sem batt enda á 17 mánaða vopna-
hlé, eða eiga á hættu að verða
haldið fyrir utan friðarviðræður um
Norður-írland. Gerry Adams, leið-
togi Sinn Fein, kvaðst vilja boða
til áríðandi viðræðna milli stjórna
Bretlands og írlands.
Breskir og írskir stjórnmála-
menn hétu því að halda áfram
friðarumleitunum, en sögðu að leið-
in til friðar yrði ekki auðfundin
eftir að (RA batt enda á vopnahléð
á þeirri forsendu að bresk stjórn-
völd hefðu tafið fyrir viðræðum til
að finna pólitíska lausn.
Allt að 50 millj. punda tjón
Rúmlega hundrað menn særðust
þegar sprengja sprakk á Dockland-
svæðinu í austurhluta London á
föstudagskvöld um 20 mínútum
eftir að yfirlýsing barst frá IRA.
Talið er að gasleiðsla hafi sprungið
rétt á eftir sprengjunni. Ekki hefur
verið lagt mat á tjónið, en talið er
að það gæti numið allt að 50 millj-
ónúm punda, samkvæmt sjónvarps-
stöðinni Sky.
Lögregla, sem reyndi að koma fólki
undan eftir að viðvörun barst um
sprengjuna, sagði að henni hefði
augljóslega verið ætlað að valda
manntjóni. Fimmtán byggingar
skemmdust mikið og gluggar
Reuter
MIKIL eyðilegging varð þegar sprengja sprakk í London á föstu-
dag. Hér sést iila farin skrifstofubygging við Canary-bryggju.
brotnuðu í tugum skrifstofubygg-
inga og heimila.
Stendur á sama um mannslíf
„Þetta sýnir að þessu fólki stend-
ur fullkomlega á sama um manns-
líf,“ sagði Anderson Dunn lögreglu-
foringi.
Elísabet Bretlandsdrottning gaf
út harðorða yfirlýsingu og sagði
að framið hefði verið „viðurstyggi-
legt ofbeldisverk".
Sinn Fein er eini stjórnmála-
flokkurinn, sem ekki hefur for-
dæmt verknaðinn, sem ber því vitni
að innan IRA er farið að gæta
óþreyju vegna þess að breska
stjórnin lætur ekki af kröfu sinni
um að lýðveldisherinn láti af hendi
vopn sín áður en allsheijar friðar-
viðræður hefjast.
Sir Patrick Mayhew írlands-
málaráðherra sagði í gær að
sprengingin sýndi að krafa Breta
væri réttmæt. Hann bætti því við
í samtali við breska útvarpið BBC
að fordæmdu leiðtogar Sinn Fein
ekki verknaðinn myndu margir ef-
ast um að þeir væru andvígir hon-
um.
David Trimble, leiðtogi írskra
sambandssinna, sagði að nú þyrfti
Sinn Fein að sanna enn á ný að
flokknum væri alvara með friðar-
viðræðum.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, ræddi við Bill Clinton
Bandaríkjaforseta og John Bruton,
forsætisráðherra Irlands, eftir
sprenginguna til að átta sig á því
hvað hægt væri að gera til að
bjarga friðarviðræðunum.
Umbótum haldið áfram í Rússlandi
Helsinki. Reuter.
WARREN Christopher, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, og Jevgení Prímakov, sem tók við emb-
ætti utanríkisráðherra Rússlands í janúar, lýstu
yfir því eftir fyrsta formlega fund sinn í gærmorg-
un að enn væri ágreiningur milli þeirra, en sam-
skipti þeirra hefðu farið vel af stað.
Prímakov var ekki jafn afdráttarlaus í ummæl-
um sínum um stækkun Atlantshafsbandalagsins
(NATO) og rússneskir ráðamenn hafa verið.
„Það er æskilegt að NATO stækki ekki,“ sagði
Prímakov. „Við verðum að finna rétta lausn, sem
mun fullnægja kröfum beggja aðilja og einnig
Austur- og Mið-Evrópu.“
Prímakov fullvissaði Christopher um að umbót-
um í Rússlandi yrði haldið áfram og ekki yrði
stigið til baka. Prímakov bætti við að gera þyrfti
ótilgreindar „leiðréttingar“ á stjórnarstefnunni
og dró ekki dul á að þær yrðu sniðnar til aðstoða
fólk, sem á undir högg að sækja vegna breytinga
í átt til markaðsbúskapar.
Prímakov tók við embætti 9. janúar af Andrei
Kozyrev og á Vesturlöndum hefur borið á ótta
um að þessi breyting boðaði fráhvarf frá umbót-
um og fijálslyndi. Fundi utanríkisráðherranna í
Helsinki er ætlað að treysta samskipti Banda-
ríkjamanna og Rússa.
Reuter
Christopher og Prímakov takast í hendur.