Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjármálaráðuneytið endurskoðar skattheimtu af bifreiðum
Rætt um skráningar-
gjöld í stað vörugjalda
FRIÐRIK Sophusson flármálaráðherra segir að
starfshópur sé að störfum við að endurskoða stefn-
una í skattheimtu af bílum. Hann segir það ljóst
að þegar breytingar verða gerðar muni þær ganga
í þá átt að draga úr neyslustýringu á bílum. Inn-
flytjendur bíla hafa margoft gagnrýnt það vöru-
gjaldskerfí sem nú er við lýði sem þeir segja að
beini bílkaupendum inn á minni bíla sem bera lægra
vörugjald en stærri bílar.
Friðrik segir að ein þeirra aðferða sem komi til
greina sé að taka upp skráningargjöld. Gjöld af
innfluttum bíl yrðu þá fýrst greidd við skráningu
hans hjá Bifreiðaskoðun. Jafnframt er starfshópur-
inn að skoða mismunandi útfærslur af gjaldstofnum
og samræmingu á gjöldum af atvinnubifreiðum.
Meðal þess sem starfshópurinn skoðar er hvort
gjaldgrunnar innfluttrar bifreiðar geti verið þyngd
hennar, vélarafl og vélarstærð, annaðhvort allir
þessir þættir saman eða einhveijir þeirra. Með því
að láta gjaldgrunninn ráðast af þessum þáttum en
ekki verði bílsins væri m.a. komið í veg fyrir það
að öryggisbúnaður væri ákvarðandi í verði bílsins.
Eins og nú háttar til er vörugjald ákvarðað af stærð
vélarinnar sem hlutfall af verði bílsins. Af bíl með
2,5 lítra vél að slagrými þarf þannig að greiða
vörugjald sem er 75% af verði innflutts bíls en 30%
af bíl sem er með minni vél en 1,4 lítrar.
Ekki góð stefna
Friðrik segir að rökstuðningurinn fyrir því að
breyta frá núverandi kerfi sé m.a. sá að það eigi
ekki að stýra kaupum á bflum inn á vissa stærðar-
flokka með gjöldum.
„Almennt er líka talið að stærri bflar séu örugg-
ari og viðbragðsfljótari. Yfírleitt eru þeir einnig
sterkari. Það má því segja að það sé ekki góð örygg-
isstefna í bflamálum að stýra neyslunni allri inn á
ódýrustu og veigaminnstu bflana," segir Friðrik.
Hann benti á að til þess að fara niður um vöru-
gjaldsflokk hefðu innflytjendur flutt inn bfla með
minni vélum. Með þessu væru teknir inn bflar sem
gætu talist vera fremur vélarvana miðað við þyngd
og það væri alltaf viss hætta á því að slíkir bflar
væru hættulegri í umferðinni.
Friðrik sagði að samkvæmt GATT-samkomulag-
inu yrði nú að framvísa reikningum fyrir innflutt-
um, notuðum bílum til þess að miða gjaldstofninn
við. Þetta hefði valdið bflainnflytjendum áhyggjum
og heyrst hefði að menn hefðu rangt við í þessum
málum með því að framvísa röngum reikningum.
„Við erum bundnir af þessu viðskiptasamkomu-
lagi og þetta gildir um tolla og vörugjöld. Við erum
hins vegar fijálsari ef við höfum skráningargjöld
þvf þá fer gjaJdtakan í raun ekki fram fyrr en bfll-
inn fer á númer," sagði Friðrik.
Stefnt er að því að starfshópurinn sendi frá sér
tillögur í þessum mánuði.
Olíkar hugrnynd-
ir um skipulag
á Þingvöllum
SAMVINNUNEFND um svæðisskipulag fyrir Þingvalla-, Grafnings- og
Grímsnesshreppa fjallar á þriðjudag um hvort auglýsa eigi tillögu formanns
nefndarinnar um svæðisskipulag hreppanna. Tillaga formannsins er, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, frábrugðin þeirri tillögu sem sveitar-
stjómir tveggja hreppanna hafa þegar fallist á að auglýst verði. Undirbúning-
ur að gerð svæðisskipulags hreppanna hefur staðið í 8 ár. Samvinnunefnd
um gerð skipulagsins er skipuð tveimur fulltrúum frá hverri sveitarstjórn-
anna, auk Guðrúnar Jónsdóttur arkitekts, sem er formaður.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins samþykktu sveitarstjómir
Grímsness- og Grafningshreppa í
desember samhljóða greinargerðir
um hugmyndir að því hvemig aug-
lýsa skyldi skipulagið. Þær hug-
Hannes kom
til hjálpar
HANNES Hafstein, björgunarbátur
í Sandgerði, fór til aðstoðar togar-
anum Sturlu GK 12 á föstudags-
morgun, en togarinn hafði fengið
troll í skrúfuna. Hálfan sólarhring
tók að draga togarann nær landi og
aðrar 12 stundir að ná trolli og vírum
úr skrúfunni.
Togarinn var um 50 mílur suð-
vestur af Sandgerði, þegar óhappið
varð. Hannes dró Sturlu nær landi
og um kl. 23 á föstudagskvöld hóf-
ust kafarar handa við að skera úr
skrúfunni. Undir hádegi í gær héldu
björgunarmenn aftur til lands, en
Sturla til hafnar fyrir eigin vélarafli.
-----------♦
myndir eru unnar af Bjarna Helga-
syni, formanni Félags landeigenda
við Þingvallavatn.
í fundarboði fyrir fundinn á þriðju-
dag kemur hins vegar fram að sam-
vinnunefndin eigi að fjalla um hvort
auglýsa eigi svæðisskipulag sam-
kvæmt greinargerð Guðrúnar Jóns-
dóttur, sem er, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins, frábrugðin
þeim tillögum, sem sveitarstjómimar
tvær hafa samþykkt að fulltrúar
þeirra greiði atkvæði með í sam-
vinnunefndinni.
Við undirbúning svæðisskipulags-
ins hafa áður komið upp deilur, m.a.
varðandi skipulag vatnasviðs Þing-
vallavatns. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er ekki lengur deilt
um það.
Enn er þó m.a. ágreiningur um
hve langt eigi að ganga við að tak-
marka möguleika til landnýtingar,
einkum á ýmsum votlendissvæðum.
Sigurður Thoroddsen, starfandi
skipulagsstjóri ríkisins, vildi ekki tjá
sig um deilur um skipulagið og vís-
aði til þess að málið skýrðist að lokn-
um fundi samvinnunefndarinnar.
Morgunblaðið/lngólfur
Til fjalla
SKÍÐIN eru komin á toppinn og Dagur Jónsson stefnir til fjalla eins
og svo margir aðrir ferðagarpar þessa dagana. Undanfarið hefur
snjóað víðast hvar á landinu og líf og fjör er komið í skiðabrekkurnar.
Yfirmenn neita að gefa
skýrslu við sjópróf
Eldur slökkt-
ur með kók-
flösku
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík fór í
gærmorgun að sumarbústað í Mið-
dal, rétt fyrir ofan Geitháls, en þar
fundu hjón mikla reykjarlykt og ótt-
uðust að eldur væri kominn í milli-
vegg á bak við kamínu.
Slökkviliðið rauf vegginn á bak
við kamínuna og þar reyndist glóð
krauma í bitum. Eldurinn var lítill
og „var hægt að slökkva hann með
kókflösku" eins og varðstjóri
slökkviliðsins orðaði það. Hann sagði
hins vegar ljóst að mikill eldur hefði
fljótlega blossað upp hefði fólkið
ekki kallað á slökkvilið.
SJÓPRÓF vegna flutningaskips, sem
hafði næstum strandað á Eskifirði
aðfaranótt inánudags, en Albert GK
dró frá landi, hófust hjá héraðsdóm-
ara á Eskifírði í gær. Þá lá skipið úti
á firðinum, en skipstjóri skipsins
hafði neitað að leggjast að bryggju
og mæta í sjópróf. Dómarinn bað
Landhelgisgæsluna að hafa varðskip
til reiðu, ef færa þyrfti skipið að
bryggju. Auk skipstjórans neituðu
1. vélstjóri og 1. stýrimaður að
mæta til skýrslutöku.
Skipið er 7.000 tonna flutningaskip
og í fyrstu var það talið japanskt, þar
sem það kom til Eskifjarðar til að
taka loðnu til Japans. Skipið er hins
vegar grískt, skráð í Pireus, og kom
útgerðarmaður þess til landsins í
gær, til að vera viðstaddur sjóprófín.
Hætta á ferðum
Tryggvi Þórhallsson, dómarafull-
trúi, sagði að sjópróf ættu að hefjast
kl. 13.30 í gær. Hann sagði að skip-
stjórinn hefði tilkynnt að hann gæti
ekki mætt, þar sem hætta væri á ferð-
um ef svo stórt skip legðist að bryggju
á Eskifírði og ekki gæti hann komið
í land á léttabát, þar sem skipsijóri
yfirgæfi ekki skip nema það lægi við
íandfestar. Vélstjóri og stýrimaður
hefðu einnig neitað skýrslugjöf.
Tryggvi sagði að þrautalendingin
yrði sú, að leita atbeina Landhelgis-
gæslunnar við að færa skipið til hafn-
ar og væri varðskip á leiðinni. Sjópróf-
in ættu að standa til kl. 17.30 og
þegar færi að líða að lokum þeirra
myndi hann kanna hvort ástæða væri
að grípa til slíkra ráða hefðu yfirmenn
skipsins ekki skilað sér í dómsal.
ómissandi
►Javier Solana, hinn nýi aðal-
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, kemur í opinbera
heimsókn til Islands um miðja vik-
una. Morgunblaðið hitti hann að
máli í Brussel fyrir helgina. /10
Buchanan kominn
í baráttuna
►Repúblikanar halda kjörfund í
Iowa á mánudag. /12
Líftæknin komin
á skrið
►Fyrir áratug varð líftækni töfra-
orð og nú er hún að byija að skila
sér. /18
Þriggja fjöiskyldna
fyrirtæki
►í Viðskiptum og atvinnulífí á
sunnudegi er rætt við Kristján G.
Jóhannsson, framkvæmdastjóra
Gunnvarar hf. á ísafirði og öflug-
asta fyrirtækis Vestfjarða. /22
B
► l-28
Einkaf ramtak í
Rauða bænum
►Einkaframtakið er farið að
blómstra í Neskaupstað því upp
úr rústum gjaldþrots Kaupfélags-
ins Fram hafa sprottið kaupmenn
sem hafa tekið yfir verslunina í
bænum. /1
Ævintýri líkast
► Magnús Ólafsson er náttúru-
barn í leiklistinni. Hann hefur far-
ið mikinn á leiksviði og í kvikmynd-
um undanfarið. /4
Franski spítalinn
við Fáskrúðsfjörð
►Fátt er eftir í Hafnarnesi við
Fáskrúðsfjörð sem minnir á fjöl-
skrúðugt mannlíf í liðlega 100
manna byggðahverfi. /14
c
FERÐALOG
► 1-4
Athvarf bísa
og betlara
►Á útimarkaðinum Brick Lane í
Lundúnum má finna allt á milli
himins ogjarðar, þar á meðal staka
skó og notaða tannbursta. /2
Umhverfis heiminn
með tölvu
►Um Hótel hvar sem er, alnets-
setrið þar sem fínna má aragrúa
upplýsinga um allt sem viðkemur
ferðalögum. /3
D BÍLAR
► 1-4
Menn borgi tryggingar
í samræmi við áhættu
►FÍB hefur verið mikið í fréttum
að undanförnu vegna barátta fé-
lagsins, fyrir lægri iðgjöldum af
ökutækjatiyggingum. /2
Reynsluakstur
►Ánægja fyrir ökuglaða á Opel
Tigra sportbílnum. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 40
Leiðari 26 Fólk í fréttum 42
Helgispjall 26 Bíó/dans 44
Reykjavíkurbréf 26 íþróttir 48
Minningar 28 Ötvarp/sjónvarp 49
Myndasögur 38 Dagbók/veður 51
Bréf til blaðsins 38 Gámr 6b
Brids 40 Mannlífsstr. 6b
Stjömuspá 40 Kvikmyndir lOb
Skák 40 Dægurtónlist 12b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉT'riR:
1&6