Morgunblaðið - 11.02.1996, Side 14
14 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Jónas Ingimundarson o g Gunnar Kvaran í Listasafni Kópavogs
Spil og spjall við slaghörpuna
Morgunblaðið/Kristinn
JÓNAS Ingimundarson og Gunnar Kvaran hyggjast spjalla við
áheyrendur á milli verka í Listasafni Kópavogs.
JÓNAS Ingimundarson píanóleikari
og Gunnar Kvaran sellóleikari
koma fram á tónleikum í Listasafni
Kópavogs annað kvöld, mánudags-
kvöld, klukkan 20:30. Tónleikamir
em liður í tónleikaröðinni Við slag-
hörpuna sem Jónas hefur staðið
fyrir í samvinnu við listasafnið ann-
að veifið í hálfan annan vetur.
Tónleikar þessir verða ekki með
hefðbundnu sniði að því leyti að
efnisskráin verður ekki kynnt
fyrirfram. „Fólk fær ekki afhenta
efnisskrá við innganginn. Heldur
verður hún kynnt jafnóðum. Við
ætlum með öðrum orðum að spjalla
um verkin sem við flytjum og það
sem okkur þykir þá og þegar vert
að gefa gaum,“ segir Jónas en
hnýtir því við að áheyrendur þurfi
ekki að hverfa tómhentir á braut
— prentaðar upplýsingar um efnis-
skrána verði vitaskuld á boðstólum
við útganginn til minningar um
tónleikana.
Jónas og Gunnar efndu til tón-
leika á sama stað 5. desember
síðastliðinn. Þá geysaði fárvirðri,
eins og Jónas orðar það, og sakir
þess komust færri en vildu á vett-
vang. „í það minnsta settu marg-
ir sig í samband við okkur eftir
tónleikana og spurðu hvort þeir
yrðu ekki endurteknir,“ segir
hann og bætir við: „Maður þarf
að sæta lagi til að skjóta svona
tónleikum að enda höfum við báð-
ir í mörg horn að líta. Þetta var
eiginlega eini tíminn sem kom til
greina."
Mikill heiður
Píanóleikarinn segir að þeim
félögum sé ljúft og skylt að endur-
taka tónleikana. Hann tekur þó
skýrt fram að efnisskráin hafi tek-
ið allnokkrum breytingum. Eðli
málsins samkvæmt vill hann hins
vegar ekki tjá sig frekar um hana
en lofar að þar kenni margra
grasa. „Þetta eru verk frá ýmsum
tímum fyrir selló og píanó — allt
verk sem eru vel þess virði að flytja
á tónleikum."
Jónas segir það mikinn heiður
að fá að starfa með Gunnari Kvar-
an. Þeir hafi alltof sjaldan samein-
að krafta sína á tónleikum. „Þau
skipti sem við höfum leikið saman
hafa á hinn bóginn fært okkur
gleði.“
Gunnar kveðst taka heilshugar
undir þessi ummæli. „Mér þótti
vænt um að Jónas skyldi leita til
mín, því þótt tónlistarfólk sé búið
að vera lengi í eldlínunni hér á
landi er því sjaldan boðið að halda
tónleika. Það hefur verið skemmti-
legt að starfa með Jónasi og von-
andi eigum við meira samstarf í
vændum."
Jónas segir að Kópavogur hafi
verið einskonar þurrkasvæði hvað
tónleikahald snertir þar til lista-
safnið kom til sögunnar. „Bæjarfé-
lagið hefur af miklum menningar-
legum metnaði staðið að reglu-
bundnu tónleikahaldi og skiptir
ekki minnstu máli í því samhengi
sá dæmalaust góði flygill sem þar
er. Hann er sannarlega í sérflokki."
Gunnar er á sama máli. „Stærsti
kosturinn við Listasafn Kópavogs
sem tónleikastað er vissulega þetta
frábæra hljóðfæri. Hljómburðurinn
er einnig þokkalegur, þótt yfirleitt
sé allsstaðar gaman að spila ef vel
er sótt og maður er vel undirbú-
inn.“
í þessu samhengi vill Jónas
nefna að hugsanlegt sé að á þessu
svæði muni í framtíðinni rísa sér-
stakur tónleikasalur, þar sem
hljómburður sitji í fyrirrúmi. Hug-
myndir þar að lútandi séu hins
vegar enn sem komið er á umræðu-
stigi.
sunnudasa
spennandi tilboð
HAGKAUP
m a t v a r a
BYGGT BUIÐ
DÝRÐLING
Ti-rSft^A,
HAGKAUP
L ikf nga údí
* JQAfLám JgJmWBm
i«S í
S-K-l-F-A-N
THE BODY SHOP
Skiu Cf Hair Care Products
rmru
íMó
•íSeÍkL A Kringlunni
Eymundsson
S T O F N S I’ T T 1 H 7 2
'££££- Þessar verslanir í
iiTSA*-1L
NNI
TítS av-A
veröa opnar sunnudaga eftir hádegi
Richard Wagner
félagið á íslandi
Ferð til
Bayreuth
VETRARSTARF hins nýstofnaða
Richard Wagner félags á íslandi
hefst með fundi, sem haldinn verður
þriðjudaginn 13. febrúar nk., á 113.
ártíð tónskáldsins.
Fundurinn verður í Þingholti á
Hótel Holti og hefst kl. 20. Þar verð-
ur sérstaklega fjallað um Richard
Wagner hátíðina, sem árlega er hald-
in í Bayreuth í Þýskalandi. „Síðastlið-
ið sumar gafst rúmlega þrjátíu ís-
lendingum kostur á að sækja hátíðina
og sjá þar sýningar á Niflungahring
Wagners. Það þótti einstakt tæki-
færi því að öllu jöfnu þarf að bíða í
sjö ár eftir að fá miða í Bayréuth
ef farið er eftir hefðbundnum leiðum.
Það má því segja að Islendingar
hafi aftur dottið í lukkupottinn með
því að þeim bjóðast nú aftur tuttugu
miðar á hátíðina í sumar; tíu miðar
á sýningar á Parsifal og aðrir tíu á
Tristan og Isolde. Þau Siegfried Jeru-
salem og Waltraut Meier fara með
hlutverk Tristans og Isolde, en enn
er óvíst hvort Placidö Domingo mun
syngja titilhlutverkið í Parsifal, eins
og hann hefur gert á undanförnum
árum,“ segir í kynningu félagsins.
Á fundi Richard Wagner félagsins
verður greint frá hinni fyrirhuguðu
ferð í sumar og sagt frá ferð íslend-
inga á hátíðina í fyrra. Óperurnar
Parsifal og Tristan og Isolde verða
kynntar, m.a. með því að sýna kafla
úr þeim af myndböndum, en einnig
verða sýnd kynningarmyndbönd frá
Festspielhaus og Willa Wahnfried í
Bayreuth. Loks verður sýndur fyrsti
þáttur Valkyijunnar eftir Richard
Wagner í uppsetningu Harrys Kup-
fer, sem sýnd var í Bayreuth fyrir
nokkrum árum.
Richard Wagner félagið á íslandi
var stofnað 12. desember sl. og eru
stofnfélagar þegar hátt á annað
hundrað talsins.
Fundur Wagnerfélagsins á Hótel
Holti 13. febrúar er opinn öllu
áhugafólki um tónlist Richards
Wagner og er aðgangur ókeypis, en
veitingar verða seldar.
------»■■-» ♦---
■ Söngsveitin Drangey heldur sitt
árlega þorrakaffi í Drangey,
Stakkahlíð 17, í dag, sunnudaginn
11. febrúar. Húsið opnað kl. 14.30.
Söngsveitin mun taka lagið fyrir
gesti undir stjóm Snæbjargar Snæ-
bjamardóttur og einnig koma
fram nokkir nemendur Snæbjargar.