Morgunblaðið - 11.02.1996, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
t-
LISTIR
„HEITIR“ ÍKONAR
íkonostasi (nr. 46) eru meðal
þeirra gripa sem vert er að ihuga
vel, og ættu að verða hveijum
manni til upplyftingar.
Sýningunni í Listasafninu er
þétt raðað, og hefði að líkindum
notið sín betur í meira rými. Hlý-
legur veggliturinn hentar þessum
verkum vel, sem og lýsingin, en
járnfestingar eru óþarflega gróf-
gerðar, og skyggja í sumum tilvik-
um hreinlega á myndefnin. Slíkt
ætti að vera óþarft í uppsetningum
af þessu tagi.
Þær skrár sem fylgja sýning-
unni (önnur á norsku, frá~fyrri
uppsetningu hennar í Tromsö, hin
á íslensku) hafa að geyma mikinn
fróðleik um íkona, eðli þeirra, stíl-
þróun þeirra í rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunni og vel unna verka-
skrá; allt er þetta efni til fyrir-
myndar, og skrárnar því góðar
heimildir.
Rússneskir íkonar hafa af ýms-
um orsökum verið „heitir“ í nú-
tímaskilningi um nokkuð skeið:
þar í landi hefur orðið mikil trúar-
vakning í kjölfar fall sovétkerfis-
ins, og mikið er nú lagt upp úr
endurreisn kirkjubygginga og
varðveislu helgigripa. Þar sem
íkonar eru í raun ekki listaverk,
heldur ætlaðir til trúarlegrar til-
beiðslu á táknmynd Guðs, er skilj-
anlegt að það hljóti að vera synd'-
samlegt að versla með þessa gripi.
Þrátt fyrir þetta hefur þjófnaður
íkona margfaldast, og bylgja stol-
inna (og falsaðra) íkona fiætt
yfir Vesturlönd, þar sem góður
markaður hefur verið fyrir gri-
pina, og sú staðreynd að kaupend-
ur slíkra gripa eru að líkindum
þjófsnautar virðist ekki hafa nein
áhrif þar á.
Þeir íkonar sem nú getur að líta
í Listasafni íslands eru einnig
„heitir“. Þetta eru innblásin verk
gerð af trúarlegri sannfæringu,
vitnisburðir um staðfestu manns-
ins í andstreymi aðstæðna á ólík-
um tímum. Er vonandi að sem
flestir gefi sér tíma til að staldra
við og kynnast þeim af eigin raun.
Eiríkur Þorláksson
Mokka
„Galtómur
rammi“
BORGHILDUR Anna Jónsdóttir
opnar listsýningu á Mokka við
Skólavörðustíg mánudaginn 12.
febrúar næstkomandi. Sýningin
nefnist „Galtómur rammi“ eða The
Interactive Frame" og miðar að
því að vekja gesti til umhugsunar
um stöðu myndlistarinnar í nú-
tímasamfélagi.
í kynningu segir: „Sýningar-
gestum er boðið að taka þátt í að
móta listaverkið með því að kosta
ýmsa þætti verksins og þá jafn-
framt að segja til um hvernig fjár-
munum þeirra muni varið - velja
liti, viðfangsefni og aðferð. Bijóta
þannig niður hefðbundinn múr
milli listamannsins og hins al-
menna borgara.
Verk þetta hefur verið unnið á
þremur sýningum í Lundúnum
með þátttöku sýningargesta og
dregið að sér fólk af ýmsum þjóð-
ernum og stéttum - auk þess sem
fastagestir hafa jafnvel fylgt sýn-
ingunni stað úr stað.
Sýningin verður opin á opnunar-
tíma Mokka og þar geta gestir
skilið eftir kostun og fyrirmæli,
en listamaðurinn verður til viðtals
á milli kl. þrjú og sex alla daga
vikunnar>■
MYNDLIST
ÍKON
Úr safni ríkislistasafnsins
í Arkangelsk. Opið kl. 12-18 alla
daga nema mánud. til 17. mars.
Aðgangur kr. 300.
Sýningarskrár kr. 400/kr. 1.500.
Hamraborg 20a, simi 5641000
0. crans montana • crans montana • crans moní^
cu m ** ^ ■
Skíðaferð til Sviss
| 10 daga páskaferð til Crans Montana
29. mars til 7. apríl.
Flogið verður til Zurich og ekið þaðan á eitt
besta skíðasvæði alpanna, Crans Montana.
Verö á hótel Intergolf Verö á Grand Hotel de Parc
2ja manna stúdíó í 2ja manna herb. m/morgun-
kr. 89.200. og kvöldveröi kr. 108.700.
Innifalið í veröi er flug, akstur milli flugvallai og
Crans Montana, gisting og íslensk fararstjórn.
Flugvallarskattar kr. 2.140 ekki innifaldir.
Leitiö nánari upplýsinga
Ferðaskrifstofa
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34, simi 511 1515.
Gengi miðað við 2. fobrúur 1996.
u.uejuoLii subjq :
GJ
B3
O
—<
Q)
=3
C/3
3
o
3
r+
D)
O
o
T
03
13
W
3
o
=3
r-f
03
=i
U)
o
—5
03
3
w
3
o
3
r—4-
03
3
03
O
—í
03
3
C/3
3
o
3
r+
03
3
0)
O
—4
03
3
(/)
3
o
3
r+
03
•SÍ
GERÐ helgimynda eða íkona
hefur haft mikla þýðingu fyrir
listasöguna. Margir af sterkustu
þráðum sögunnar trosnuðu illilega
eða slitnuðu undir lok fornaldar,
þegar holskeflur villiþjóða flæddu
yfir þau samfélög, sem höfðu
mótast í Evrópu, og kirkjan varð
eitt af fáu sem stóð eftir. Sköpun
myndlistar varð hornreka vegna
andstöðu innan frumkirkjunnar,
en smám saman jókst notkun
mynda af Kristi og ýmsum dýrl-
ingum, einkum í austurkirkjunni;
þar með hélst heill sá þráður
myndlistar, sem við erum enn að
vefa.
Eftir mikla öldu myndbrota á
8. og 9. öld kom rétttrúnaðarkirkj-
an fram með skilgreiningu íkona,
sem hefur dugað síðan til að rétt-
læta tilbeiðslu þeirra og notkun:
þar sem Guð hafði tekið á sig efn-
isform í líkama Jesú Krists, var
einnig hægt að tákna hann í efnis-
formi mynda.
Andstaða við notkun íkona hef-
ur þó ætíð verið fyrir hendi. Er
skemmst að minnast þeirra miklu
myndbrotatíma íslandssögunnar
sem fylgdu í kjölfar siðaskiptanna
á 16. öld þegar eytt var nær öllum
helgigripum, sem voru til í kirkj-
um og klaustrum landsins. Siða-
skiptin urðu því ekki aðeins til
að tryggja íslendingum ritmál,
heldur einnig til að svipta okkur
þeim myndlistararfi, sem hafði
orðið til á fimm öldum kristni í
landinu.
Sýningin í Listasafninu er af
helgimyndum frá landsvæði, sem
ekki þurfti að ganga í gegnum
slíkar hremmingar. Norður-Rúss-
land er meiri útnári alheimsins en
svo að þangað sé litið til listrænn-
ar upplifunar; svæðið hýsti nokkur
Morgunblaðið/Þorkell
GUÐSMÓÐIR sem vísar veg-
inn. Frá 16. öld.
af verstu búðum gúlagsins í hinu
trúlausa sovétkerfi. Það er undar-
leg tilviljun að þar hefur tekist að
varðveita í sovésku safni helgi-
gripi, sem safnað var af stóru
svæði úr föllnum þorpskirkjum og
klaustrum - eða stolið þaðan sam-
kvæmt opinberri skipun. Uppruni
verkanna skiptir nú litlu; sú stað-
reynd að þau hafa varðveist er
mikilvægust.
Þessi sýning kemur hingað frá
Tromsö í Noregi, enn norðar, og
sýnir að jaðarsvæði hafa sitthvað
fram að færa á menningarsviðinu.
Þetta úrval íkona er vei heppn-
að. Það gefur nokkra mynd af
þeirri þróun sem varð á þessu sviði
frá 16. til 19. aldar sem og innsýn
í þá fjölbreytni, sem þó var mögu-
leg innan ramma þeirra ströngu
hefða, sem ráða enn í dag sköpun
siíkra verka.
Það getur enginn staðið um
stund fyrir framan hefðbundið
íkon með opnum huga án þess að
hrífast af þeirri yfirvegun, kyrrð
og trúarsannfæringu sem geislar
af slíkum verkum. í Listasafninu
er að finna nokkur slík verk.
„Guðsmóðir Hodegetría" (nr. 2),
„Heilagur Nikulás frá Velikor-
etsk“ (nr. 8) og einkar failegur
styrki
ur
Auglýst er eftir
umsóknum um
Rannsóknarsjóði Barnaheilla.
Úthlutunarfé órið 1996 nemur 500.000 krónum.
Tilgangur
Rannsóknarsjóðs Barnaheilla er að eíla rann-
sóknir á högum íslenskra barna til að auka
þekkingu okkar á aðstæðum barna og unglinga. Veita má einstakl-
ingum og félagasamtökum styrki úr sjóðnum. Stjóm sjóðsins, sem
sér um úthlutun, er skipuð fulltrúum frá Barnaheillum, Háskóla
íslands og Kennaraháskóla íslands.
Dmsóknarfrestur
11. mars
Uthlutað verður úr sjóðnum 4. maí.
Styrkumsóknum skal skila til skrifstofu Barnaheilla á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást. Umsóknum þarf að skila í þremur
eintökum. Á umsókninni þarf m.a. að koma fram
I. Heiti verkefnis.
II. Lýsing á verkefni, markmiði þess og gildi.
III. Lysing á framkvæmd verkefnis, þ.e. verk- og tímaáætlun.
IV. Kostnaðaráætlun.
Styrkumsóknir berist til Kristínar Jónasdóttur á skrifstofu
Barnaheilla, Sóltúni 24 (áður Sigtún 7), 105 Reykjavík.
Par eru jafnframt veittar nánari upplysingar í síma 561 0545.
I
*
t
i
t
í
l
I
1