Morgunblaðið - 11.02.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
r
Dagbók frá Kaíró
*
ALEIÐINNI úr skólanum
áleiðis að sporvagnastöðinni
fer ég um og meðfram Tahrir-
torgi. Klukkan er þá um fimm
og augljóst að mikið stendur til
á öllum veitingastöðunum við
torgið. Borð hafa verið sett upp
og það er verið að byrja að bera
á borð. Diskar og glös, vatns-
flöskur og stundum er saltið kom-
ið í skálar. Og það mun ekki
verða hörgull á gestum á þessum
stöðum, sums staðar eru karlar
sestir og mæna á vatnsflöskuna
og hlakka til að klukkan verði
hálfsex, fleiri réttir verði bornir
á borð og þeir geti loks fengið
sér bita eftir föstu dagsins.
Ef ég slóra á leiðinni og hróp
úr moskunum gefa til kynna að
nú sé formlega komið sólsetur
verð ég oft að bíða góða stund
eftir að sporvagninn minn leggi
af stað; allir starfsmennimir liggja
á bæn inni í litlu herbergi rétt við
stöðina og síðan setjast þeir 'á
gólfið og saman í hring og gæða
sér á nestinu sínu. Það eru stund-
um baunir, kartöflur eða hrísgijón
og kjöt í tómatsósu. Þegar þeir
hafa snætt nægju sína, þá fýrst
leggur sporvagninn af stað.
Þetta er almennt dæmigert hér
í Kairó nú á ramadan, í öllum
litlu búðunum hvarvetna um
borgina eru ljósin slökkt og af-
greiðslufólkið, sem er víðast hvar
karlar, situr á gólfinu og borðar.
Það þykir óviðurkvæmilegt að
trufla menn á þessari stundu, til
dæmis með að biðja um jógúrt
eða kaffipakka. Á hinn bóginn
er manni gjarnan boðið að tylla
sér hjá þeim og fá sér af matnum.
Það er enn rúm vika eftir af
ramadan, en þegar honum lýkur
hefjast enn ein hátíðahöldin, þá
er algengt að bakaðar séu sér-
stakar kökur, börnum eru gefnar
smágjafír og fjölskyldur halda
miklar matarveislur.
Spor-
vagnar
bíða með-
an menn
biðja og
borða
í arabísku er ekki bara
eintala og fleirtala,
heldur líka tvítala. J6-
hönnu Kristjónsdótt-
ur þykir tvítalan bara
viðkunnanleg og
regluleg.
Skólinn hjá mér á ramadan
hefst klukkutíma fyrr en. það
breytist svo aftur þegar hann
endar. Eftir áramótin ákvað ég
að taka eitt námskeið í arabískri
egypsku; mér hefur ekki fundist
einleikið hvað ég hef átt í miklum
brösum með að skilja mállýskuna
og ekki verið dús við hvað ég er
feimin að tala.
Það er töluverður munur á
framburði ýmissa orða sem og
framandi hljóða sem ég hafði
vandað mig sérlega að ná svo sem
eins og kokhljóðinu kof- og ýmis
orð eru önnur. Það hefur sína
kosti þó að arabíska egypskan
virðist ekki nærri eins flókin
málfræðilega séð.
Aftur á móti er ritmálið hið
sama, svo til að geta til dæmis
lesið blöð og bækur verður maður
að kunna skil á klassísku arabísk-
unni.
Þegar ég hef því æft mig baki
brotnu í arabískri egypsku í tvo
klukkutíma taka svo við tveir
klukkutímar í klassískri eins og
á fyrri önn. Þar er ég nú að glíma
við fleirtölu nafnorða. Það er þó
réttara sagt ekki bara eintala og
fleirtala, heldur líka tvítala. Tvít-
alan er viðkunnanleg og regluleg
og tekur bara en í karlkyni og
ten í kvenkyni. En þegar að því
kemur að fleiri en tveir eiga í
hlut þá breytast orðin undantekn-
ingarlítið svo að þau verða
óþekkjanleg. Enn hef ég ekki
áttað mig á hvort einhver regla
sé í allri þessari óreglu. Og í of-
análag rugla ég stundum öllu
saman og allt fer í flækju. En
það kemur- sjaldnar fyrir núna
en fyrstu vikurnar.
En ég er ekki ein um þetta;
þeir nemendanna í egypskunni
sem hafa hnusað af klassískri
arabísku líka lenda í því að þetta
vefst fyrir þeim.
Og talæfingarnar, maður lif-
andi! Þar er nú engin miskunn
hjá henni Monu kennara. Svo
sjálfstraustið hefur hresst; það
örlar á því að ég þori að tala.
Það er ekki svo lítill árangur
þegar allt kemur til alls.
EINKAUMBOÐ A ISLANDI
MACROTEL Símakerfi
Þar sem góðir kostir sameinast
er öflugt símakerfi fyrir
lítil og meðalstórfyrirtæki. Möguleikar á stækkun
eru fyrir hendi og kerfið getur stærst orðið fyrir 8
bæjarlinur og 16 símtæki, þar sem blanda má
saman venjulegum og sérbyggðum símtækjum.
Auðvelt er að tengja þráðlausa síma,
höfuðheyrnartól, módem, o.fl. við símakerfið.
Sísíel
MAmmWL HT°J98.PIUS eru símtæki
fyrir 1 til 3 bæjariínur. Hentug fyrir heimili og
lítil fyrirtæki. Raða má símtækjum saman og fá
þannig marga eiginleika sem finna má í
símkerfum. Hámarks fjöldi simtækja er 8.
Uppsetning er einföld og þarfnast ekki
sérstakra símalagna.
Bandarískt hugvit og hönnun sem
sameinar hagstætt verð, stækkunar-
möguleika, aðlögunarhæfni
og auðvelda notkun.
Yfir 600 notendur á íslandi.
... oéýweðtKfM í aótMmáfami'
SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 17
nýja vinnufataverslun aö Grensásvegi 16.
Erum meö mikiö úrval af vinnufatnaöi frá danska fyrirtækinu
Egro og einnig allar geröir af hnífum frá Vangedal.
VIIMWUFATAVERSLUIM
Grensásvegi 16 • Reykjavik • Sími 568 5577
„ERGO-
GRIFF"
Nýtt handfang
fer betur í hendi.
VERÐ STGR
Vampyr 6100
• Fjórföld ryksíun
• Stillanlegur sogkraftur
• Fylgihlutageymsla
• Tveir auka
sogstútar
• Inndraganleg
snúra
• Rykpoki 4 lítrar
• 1300 vött
• Þyngd 7 kg
Vampyr 5010
Fjórföld ryksíun •
Stillanlegur sogkraftur •
Tveir auka sogstútar •
Inndraganleg snúra
• Rykpoki 4 lítrar
1300 vött • Þyngd 6 kg •
' AEQ x
VAMPYR
Lausn á geymslu-
vanda. sogrörinu
er fest við botn
v ryksugunnar.
VERÐ STGR
2.99
VERÐ
STGR.:
Öko Vampyr 8251
• Sexföld ryksíun* Stillanlegur sogkraftur
• Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla
• þrír ouka sogstútar • Inndraganleg snúra
• Rykpoki 5,5 litrar • 900vött ( Nýr Oko-mótór
skilar sama sogkrafti og 1500 vatta mótor)
Vampyr 6400
Sexföld ryksíun*
Ultra- filter (Skilar útblósturs- •
lofti 99,97% hreinu) Stillanlegur sogkraftur •
Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla •
Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra •
Rykpoki 4 lítrar • 1400 vött • Þyngd 7 kg •
VERÐ STGR
Reykjavík: Byggt og Búið Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Guöni E.Hallgrímsson, Grundarfirði. Vestflrðlr:.Rafverk,
Bolungarvík.Straumur.lsafirðl. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavlk. Kf. Húnvetninga,
Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauðárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.
KEA,Dalv(k. Kf. Þingeylnga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson,
Egilsstöðum. Stál, Seyðisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúösfirðinga,
Fáskrúðsfiröi.KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergsson, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell,
Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Hönnun Qunn#r Steinþórsson / FlT / BO-02 96-018