Morgunblaðið - 11.02.1996, Side 35

Morgunblaðið - 11.02.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 35 minn, Sigurður Jónasson, sem lést fyrir rúmum tuttugu árum, vann alla ævi á ritsímanum í Reykjavík, var þar varðstjóri. Ég sé þau fyrir mér, þéssi glæsilegu hjón, eiga stefnumót eftir vinnu beggja, á Austurvelli, kíkja í kaffisopa inn á Hótel Borg og skoða mannlífið. Ég sé einnig Dúllu mína svífa um gyllta salinn á Hótel Borg í himinbornum dansi, því dans var eitt af því, sem hún elskaði mest. Blaðaljósmyndari nokkur kom eitt sinn auga á þau hjón á Austur- velli og tók af þeim frábæra mynd, sem er varðveitt vel. Sem dæmi um kjark hennar og áræði, þá datt henni í hug að taka bílpróf, þegar hún var komin hátt á sextugsaldur. Eftir það gat enginn stöðvað hana. Hún ók um allt, óhappalaust. Heimsótti m.a. oft og tíðum bróður sinn á Eyrarbakka, Guðlaug Pálsson, sem var landsfræg- ur kaupmaður þar, reyndar elstur allra kaupmanna á íslandi. Amma Dúlla var komin yfir áttrætt, þegar hún hætti að keyra og gaf þá sonar- dóttur sinni litlu fallegu bifreiðina, sem var þá orðin „antik“. Núna á síðustu árum höfum við öll, og amma Dúlla hefur verið með í því, skemmt okkur konunglega og hlegið, þegar rifjaðar hafa verið upp skemmtiferðir okkar sumar eftir sum- ar. Þá var ferðast norður allar strand- ir, eitt árið. Allir Vestfirðir þræddir næsta ár og síðan var aldeilis „lagt í hann“, farið hringinn í kringum land- ið, allir firðir, skagar, ekkert skilið eftir, miðnætursólin á Raufarhöfn, alls notið í botn. En amma, hún var sko aldeilis ekki í tjaldi eða tjald- vagni. Alltaf var fundið hótel fyrir hana. Þetta var alveg sjálfsagður hlutur í okkar huga. Hún var jú amman og hún fékk einnig að sitja frammi í bílnum, enda þótt það þýddi stundum að nánast væri setið ofan á gírstönginni. Við nutum þessara ferða og náttúru landsins til hins ít- rasta. Allir sungu mikið í þessum ferðum, og amma Dúlla var sem haf- sjór hvað kvæði og ljóð snerti. Með hennar bestu vinum voru konurnar í Kvenfélagi Grensássóknar og séra Halldór Gröndal og hans góða frú. Þar var hún afar virk í félagsstarfi, tók þátt í öllu og síðar tók hún sig til og fór að „hjálpa gamla fólkinu" hún sjálf komin yfir áttrætt, en hún lét sig ekki muna um það að hella upp á könnuna og leggja á borð hjá öldruðum í Furugerði 1. Hún leit aldr- ei á sig seiji gamla konu. Eftir hana liggja ótal listmunir í formi útsaums, en hún var mikill listamaður í sér og snillingur í að setja saman liti. Sívinn- andi var hún elsku Dúlla okkar. Þannig munum við vinir hennar og vandamenn eftir henni. Við sjáum hana fyrir okkur í Austurstræti á sínum fínu lakkskóm, með tíu sneti- metra háa hæla, fallega klædd og vel til hafða. Eða svifandi í dansi í gyllta salnum á Hótel Borg, með dansherrana í röðum. Hjúkrunarfólki í Skjóli, svo og læknum þar, er þökkuð afar góð umönnun. Ég kveð ömmu Dúllu með þeim orðum, sem hún hélt upp á og við öll segjum iðulega: Guð geymi þig. Edda Sigrún. Drápuhlíð — íbúð Til sölu hugguleg, 115 fm. hæö ásamt 30 fm bílskúr, suðursv. Áhv. 5,5 m. húsnæðist., þægil. afb. Verð 9,7 m. Uppl. í síma 551 2542. Em\MIDIXNIN % * - Abyrg þjónusia í áratugi. if Súni: 588 9090 - Fax 588 9095 íbúðarhæð óskast Höfum kaupanda að góðri og vandaðri sérhæð í Reykja- vík (innan Elliðaáa). Æskileg stærð væri um 150 fm. Bílskúr. Traustur kaupandi. i: á öeóta ötað ífkemun! Velkomin í Ostabúðina okkar að Skólavörðustíg 8. Við bjóðum fjölbreytt iirval gæðaosta ífallegu og þægilegu umhverfi á besta stað í bænum. Dýrindis ostar í miklu úrvali Þú finnur örugglega ost að þínu skapi því úrvalið er ótrúlegt. íslensku ostarnir í allri sinni fjölbreytni eru að sjálfsögðu í hávegum hafðir. Einnig er á boðstólum úrval erlendra osta. Þér er að sjálfsögðu velkomið að bragða á ostunum. Auk þess bjóðum við gæsalifur, andalifur, frönsk paté og sósur, sérbakaðar ostakökur og ostabökur, rjómaostaábæti o.fl. i Til leigu Verslunarhúsnæði — Laugavegur Til leigu ca 140 fm verslunarpláss við Laugaveg. Tvær einingar, ca 70 fm hvor. Mögulegt að leigja hvora i ™ einingu fyrir sig. Góð staðsetning í nýlegu húsi. EIGNAMIÐLUN S5333 444 SKEIFAN 19. 4. h. - FAX 588 3332 I I I i i i i i < LÆKJARGATA MIÐBÆR RVÍK Fyrir þá sein vilja vera í hjarta Reykjavíkur. Mjög góð 3ja herb. íbúð á tveimur hæðum (penthouse) ca 85 fm á 5. hæð í glæsilegu nýju lyftuhúsi við Lækjargötu í Reykja vík. Áhv. 4,3 ntillj. verð 7,9 millj. SÍMI 562 5722 - FAX 562 5725 BORGARTÚN 24 105 REYKJAVÍK Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi Sérþjálfað starfsfólk er þér innan handar, boðið og búið að veita þér allar þær ráðleggingar sem þú þarfnast. Veisluþjónustan - allt sem til þarf Veisluþjónustunni er gert hátt undir höfði hjá okkur enda nýtur hún sívaxandi vinsælda meðal viðskiptavina. Þú getur komið og ráðfært þig við okkur um magn osta, tegundir og meðlæti. Ef þú vilt útbúa pinnana sjálf(ur), skerum við ostinn í teninga. Hjá okkur færð þú allt sem þarf til pinnagerðar. Einnig færðu alls kyns smávöru, gjafavöru, skreytingar, ostaáhöld, uppskriftarbækur, bæklinga o.fl. Ostabökur í hádeginu! Líttu til okkar í hádeginu og gæddu þér á ostabökunum okkar, heilum eða í sneiðum, heitum eða köldum. ÍSLENSKIR Wt, OSTAK, ,y, 3 BUÐIN Verið hjartanlega velkomin íOstabúðina að Skólavörðustíg 8. Shninn er: 562 2772. OSTA OG SMJÖRSALAN SE Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10 -14 og „langa laugardaga" kl. 10 -17.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.